Fréttablaðið - 27.08.2005, Blaðsíða 28
Umferðarskilti
Ágætt er að rijfa upp merkingar umferðarskilta öðru hvoru, þar sem sú
þekking getur skipt sköpum í umferðinni. Öðru hverju koma ný umferðar-
skilti sem gott er að kynna sér og þekkja.[ ]
Almennar bílaviðgerðir
VINNUM EFTIR
CABAS-KERFINU
Tjónaskoðun
Heillandi smábíll
Nýr Suzuki Swift er snaggaralegur útlits og minnir svolítið á gamla góða Austin Mini þótt hér sé vissulega á ferðinni stærri og meiri bíll.
Nýr Suzuki Swift er skemmti-
legur og einstaklega lipur
smábíll sem auk þess hefur út-
litið með sér. Hann er góður
kostur fyrir þá sem leggja upp
úr lipurleika og þægilegu rými.
Nýi Suzuki Swiftinn fellur ekki
beinlínis í fjöldann. Það er eitt-
hvað snaggaralegt og skemmtilegt
við útlitið á honum sem gerir hann
frábrugðinn flestum öðrum smá-
bílum á götunni. Eiginlega minnir
hann á gamla góða Austin Mini-inn
án þess að hann sé á nokkurn hátt
gamaldags í útliti, síður en svo.
Framendinn er afgerandi og svip-
sterkur og bíllinn hefur í raun
frekar evrópskt útlit en japanskt.
Gluggasetningin á bílnum gefur
honum líka sterkan svip, tiltölu-
lega stór framrúða og svo minnk-
andi hliðarrúður. Einnig er ástæða
til að vekja athygli á einstaklega
fjörlegum litum sem í boði eru.
Reynsluekið var bæði handskipt-
um og sjálfskiptum Swift og sömu-
leiðis bæði tekið í GL og GLX bílinn.
Í raun og veru er þó um sama bílinn
að ræða en undirritaðri þótti þó
einkum sá sjálfskipti vera afburða-
skemmtilegur bíll. Lykillaus hurða-
opnun og ræsing sem er viðbót í
GLX-útgáfunni er líka skondinn og
skemmtilegur búnaður sem nú er
fáanlegur í vaxandi fjölda bíla.
Swiftinn er mjög aðgengilegur
borgarbíll. Hann er snarpur og við-
bragðsfljótur og einstaklega lipur í
öllum meðförum. Til dæmis er leit-
un að meðfærilegri bíl að leggja í
stæði. Pláss fyrir farþega er ljóm-
andi gott miðað við stærðina en far-
angursrýmið telst ekki stórt. Þó er
þar ágætt pláss fyrir innkaupapoka
og farangur smærri fjölskyldu. Inn-
réttingin er falleg og hefur yfir sér
vandað yfirbragð.
Hér á landi fæst aðeins fimm
dyra útfærsla bílsins enda virðist
sem ekki sé hér mikill markaður
fyrir þriggja dyra bíla. Auk bensín-
bílanna sem reynslueknir voru er
einnig fáanleg dísilútgáfa með 1,3
lítra vél.
Af staðalbúnaði í Suzuki Swift
má nefna EDB hemlajöfnun, raf-
stýrða útispegla með upphitun, lit-
aðar rúður, frjókornasíu og eyðslu-
mæli en ef tekin er GLX útgáfa
bætast við álfelgur, þokuljós í fram-
stuðara og lykillaus hurðaopnun og
vélarræsing sem fyrr er nefnd.
Verðið á Suzuki Swift getur ekki
annað en talist hagstætt miðað við
það sem í boði er fyrir peningana.
steinunn@frettabladid.is
Lúxusbílar GM
í Indlandi
Hjá General Motors er áhugi
fyrir að selja Hummer og
Cadillac á Indlandi.
Bílaframleið-
andinn General
Motors gæti
hafið sölu á
Hummer og
l ú x u s b í l n u m
Cadillac á Ind-
landi á næst-
unni þar sem öflugur efnahagur
hefur aukið bifreiðasölu til muna.
Lokaákvörðun verður þó ekki
tekin fyrr en á næsta ári. Bifreið-
arnar hefðu þá stýrið hægra megin
eins og aðrir bílar á Indlandi.
Innfluttir lúxusbílar, eins og
Hummer og Cadillac, seljast á
margar milljónir rúpía á Indlandi
og er sala á þeim takmörkuð.
General Motors selur nú þegar
Chevrolet og Opel í Indlandi og
ætlar að setja nýjan smábíl á mark-
að bráðlega.
SUZUKI SWIFT VERÐ
Bensínbílar
1,5 lítra DOHC vél
GL 5 gíra handskiptur 1.479.000
GL 4 gíra sjálfskiptur 1.619.000
GLX 5 gíra handskiptur 1.599.000
GLX 4 gíra sjálfskiptur 1.739.000
Uppgefin meðaleyðsla 6,5-6,9 l/100 km
Dísilbíll
1,3 lítra DDiS vél
GL 5 gíra beinskiptur 1.599.000
Uppgefin meðaleyðsla 4,6 l/100 km
Farangursrýmið er ágætt og vel aðgengi-
legt.
Á þessu upplýsingaborði fyrir miðju mæla-
borðsins má lesa tímann, hitastig úti og eyðslu.
Rofar í stýri auka þægindin. Hönnunin að innan er nútímaleg og þarna
eru allir hlutir aðgengilegir.