Fréttablaðið - 27.08.2005, Side 31

Fréttablaðið - 27.08.2005, Side 31
LAUGARDAGUR 27. ágúst 2005 Í næsta mánuði skapast möguleiki fyrir Íslendinga til að bregða sér til Japan í beinu flugi á vegum ferðaskrifstof- unnar Úrvals-Útsýnar. „Við erum að selja sæti í beint flug milli Reykjavíkur og Tókýó hinn 12. september og örfá sæti til baka hinn 21.,“ segir Guðrún Sig- urgeirsdóttir, framleiðslustjóri hjá Úrvali-Útsýn, og lýsir tildrög- um þessa flugs. „Japanir eru að flykkjast hingað til lands og því verða nokkur leiguflug á milli Reykjavíkur og Tókýó í haust með Boeing 767-breiðþotu hjá Loftleið- um Icelandic. Við sendum vél út til að sækja Japanina og þá er nóg framboð af sætum fyrir Íslend- inga en eftir það eru vélarnar með Japanina meira og minna fullar. Þó eru nokkur sæti laus frá Tókýó heim hinn 21. september. Ef fólk ætlar að nota beina flugið fram og til baka er því bara hægt að stoppa í viku en auðvitað getur það notað beina flugið út og bókað sig heim með áætlunarflugi hvenær sem er. Það eru ágætar tengingar með SAS gegnum Kaupmannahöfn og Finnair gegn- um Helsinki,“ segir Guðrún. Hún bendir líka á að heimssýningin Expo 2005 stendur enn í Nagoya og þangað tekur tvo tíma að ferð- ast í hraðlest frá Tókýó. Verð á flugsæti er 62.600 aðra leiðina og 123.300 fram og til baka á almennu farrými með sköttum. Einnig er hægt að fljúga út á Saga class og heim á almennu fargjaldi. Þá kostar farið 208.400 krónur á mann fram og til baka. Tímamismunur milli Íslands og Japan er níu klukkustundir en flugið tekur tólf tíma. Eins og Guðrún bendir á er hægt að horfa á góðar bíómyndir, lesa og sofa á leiðinni. ■ Síðumúla 11 • 108 Reykjavík • Sími: 588 6500 • www.utivistogveidi.is OPIÐ Í SUMAR: laugardaga 10-17, sunnudaga 11-16, virka daga 9-19 Neyðarsími allan sólarhringinn 844 7000 Mikið úrval af skotveiðibúnaði fyrir gæsaskyttur ... Tvíhleypur frá FAIR og Sabatti haglaskot frá Baschieri og Pellagri Einnig veiðirifflar í hreindýraveiðina frá Mannlicher og Sabatti Ferðamönnum hefur fækkað mikið í Lundúnum. Ferðamenn lokk- aðir til Lundúna HÆGT ER AÐ GERA GÓÐ KAUP Í LUNDÚNUM ÞVÍ GERT ER VEL VIÐ ÞÁ FERÐAMENN SEM LEGGJA LEIÐ SÍNA ÞANGAÐ. Hagsmunaaðilar í ferðamanna- bransanum eru á nálum vegna þess hve fáir ferðamenn velja að heim- sækja Lundúnir. Margir segja að sala á haustferðum til borgarinnar verði að aukast til að forða iðnaðin- um frá hræðilegum örlögum. Síðan sprengjurnar sprungu í almennings- samgangnakerfi Lundúna hefur ferðamönnum fækkað svo um munar. Fulltrúar helstu ferðamanna- staða Lundúnaborgar eins og London Dungeon segja að fjöldi heimsókna hafi hrapað um þriðjung og fulltrúar leikhúsa á West End kvarta undan því sama og nefna margir allt upp í fjórðungs fækkun í því sambandi. Ferðamennirnir sjálfir geta þó grætt á þessu ófremdarástandi. Fólk sem á hagsmuna að gæta í borginni hefur nefnilega tekið höndum sam- an og lækkað verð til að reyna að lokka fleiri til Lundúna. Hótel- herbergi og leikhúsmiðar eru ómissandi fyrir ferðamenn og hafa af þeim sökum lækkað talsvert í verði. Það er því óhætt að segja að heimsókn til Lundúna í haust gæti orðið hagkvæm ráðstöfun. Beint flug til Tók‡ó Heimsborgin Tókýó heillar margra. Heimssýningin Expo 2005 stendur til 25. september.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.