Fréttablaðið - 27.08.2005, Side 52
32 27. ágúst 2005 LAUGARDAGUR
Allt frá því að fyrstu fréttirum ákærurnar í Baugsmál-inu birtust í erlendum fjöl-
miðlum hefur verið áberandi hve
sjónarmiðum Baugs gagnvart
ákærum ríkisvaldsins er gefið
mikið vægi. Breska blaðið The
Guardian reið á vaðið og var fyrst
blaða til að fjalla efnislega um
ákærurnar og tók afgerandi af-
stöðu með sjónarmiðum Baugs.
The Guardian sagði að þrátt fyrir
að ákærurnar litu út fyrir að vera
alvarlegar gætu þær allar átt sér
eðlilegar og saklausar skýringar.
Auk þess virtust þær ekki byggðar
á efnahagslegum raunveruleika.
Í umfjöllun erlendra fjölmiðla
um málið eftir að ákærurnar birt-
ust opinberlega og málið var dóm-
tekið var áberandi hve ásökunum
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og
Jóhannesar Jónssonar á hendur
Davíð Oddssyni var gefið mikið
vægi. Fjölmiðlamenn höfðu aug-
ljóslega tekið skýringar Baugs-
manna til greina og endurspeglað-
ist það í fréttaflutningi þeirra.
Málið var sagt hafa pólitískan
undirtón og gengið er svo langt að
halda því fram að íslenskt við-
skiptaumhverfi sé fyrir rétti í
málinu.
Umfjöllunin er afrakstur her-
ferðar Baugs, sem vinnur skipu-
lega að því að takmarka þann
skaða sem félagið getur orðið fyrir
vegna málaferlanna. Lögmenn og
ráðgjafar hinna ákærðu eru í
beinu sambandi við þá fjölmiðla-
menn, íslenska sem erlenda, sem
fjalla um málið, í því skyni að út-
skýra sem best hlut Baugsmanna
og svara öllum þeim spurningum
sem fréttamenn kunna að spyrja.
Ekkert einsdæmi
Þetta er ekkert nýtt og alls ekki
einsdæmi, hvorki á Íslandi né í út-
löndum. Eitt þekktasta dæmið hér
á Íslandi þar sem ákærðir reyna
að hafa áhrif á almenningsálit í
gegn um umfjöllun fjölmiðla er
Kaffibaunamálið svokallaða.
Fyrir málflutning í Hæstarétti
réð Samband íslenskra samvinnu-
félaga til sín ráðgjafa til að vinna
skýrslu um málið sem gagnast
gæti verjendum í málinu. Skýrsl-
an var lögð fyrir Hæstarétt og
jafnframt afhent fjölmiðlum.
Þekkt erlent dæmi þar sem
ákærðir hafa ráðið til sín ráðgjafa
til að vernda orðstír sinn er til að
mynda mál bandarísku kaup-
sýslukonunnar og heimilisráð-
gjafans Mörthu Stewart, sem
hefur tekist að afplána tíu mánaða
fangavist og stofufangelsi fyrir
innherjasvik án þess að orðstír
hennar hafi beðið hnekki.
Einnig má nefna mál kanadíska
blaðakóngsins Conrad Black, sem
meðal annars gaf út bresku blöðin
The Telegraph og Sunday
Telegraph. Black hefur átt í mest-
um erfiðleikum undanfarin tvö ár
og hefur þurft að takast á við hver
málaferlin á fætur öðrum vegna
ásakana um fjársvik.
Að auki má nefna mál rúss-
neska olíujöfursins Mikhael
Khodorkovskí, sem tekist hefur
að vinna almenning um allan heim
á sitt band í málaferlum sem rúss-
neska ríkið höfðaði gegn honum.
Ráðgjafar hans hafa lagt mikið
upp úr því að upplýsa fjölmiðla-
menn um það að ákærurnar á
hendur Khodorkovskí séu pólit-
ískar ofsóknir runnar undan rifj-
um forseta Rússlands, Vladimír
Pútín. Khodorkovskí situr nú í
fangelsi og afplánar dóm eftir að
hafa verið dæmdur sekur um flest
þau ákæruatriði sem honum voru
gefin að sök.
Almannatengsl mikilvæg
En geta fyrirtæki almennt haft
áhrif á opinbera umræðu? Gunnar
Steinn Pálsson, eigandi almanna-
tengslafyrirtækisins GSP World-
wide Partners, er sannfærður um
að svo sé. „Já, almannatengsl og
orðsporsstjórnun, með öllum
þeim tækjum og tólum sem nú-
tímasamskipti geta farið fram
með, skipta auðvitað miklu máli í
svona tilfellum rétt eins og í
hvaða mótvindi sem atvinnulífið
lendir í,“ segir Gunnar Steinn.
„Ég held að þetta eigi við sér-
staklega núna á síðari árum þegar
fjölmiðlaumhverfið er orðið með
þeim hætti að einstaka blaða-
menn, jafnvel fjölmiðlar í heild
sinni, hika ekki við að taka afstöðu
í hverju því máli sem upp kemur í
samfélaginu. Þá er auðvitað mikil-
vægt fyrir einstaklinga, fyrir-
tæki, félagasamtök og alla aðra að
reyna að koma sínum sjónar-
miðum og röksemdum hverju
sinni á framfæri með öllum til-
tækum ráðum,“ segir hann.
Gunnar Steinn segir þetta ekki
síst eiga við um fyrirtæki sem eru
á hlutabréfamarkaði og þar af
leiðandi háð bæði umræðunni
hverju sinni og væntingum sem
hugsanlegir fjárfestar hafa til
fyrirtækjanna. „Þar geta til
dæmis margra ára málaferli verið
gífurlega afdrifarík og sá tími, til
dæmis áður en hugsanlegur
sýknudómur er felldur, getur þess
vegna verið afar mikilvægur á
alþingi götunnar,“ bendir hann á.
Klæðskerasaumuð varnarbarátta
„Hins vegar þarf eðlilega að klæð-
skerasauma varnarbaráttuna í
opinberri umræðu og auðvitað
gæta þess alltaf að ganga ekki of
langt. Í þeim efnum er kannski
sérstaklega hér heima á Íslandi
um þessar mundir hægt að falla í
þá gildru að misnota aðstöðu sína í
gegnum eignarhald á einstökum
fjölmiðlum og því þarf að fara var-
lega í þessum efnum eins og svo
mörgum öðrum. Ég vil taka það
fram að mér finnst Baugsmenn
ekki hafa gerst sekir um að hafa
misnotað fjölmiðla í sinni eigu eins
og margir hafa haldið fram og
finnst skýringar Jóns Ásgeirs Jó-
hannessonar, að hann hafi valið
Fréttablaðið til að birta ákærurnar
fyrst allra fjölmiðla á Íslandi
vegna útbreiðslu þess, fullkomlega
eðlilegar,“ segir Gunnar Steinn.
Hann segist hins vegar vona að
umræðan á alþingi götunnar, hvort
sem hún standi í einhverja mánuði
eða jafnvel ár, hafi ekki áhrif á
dómara í einstökum málum vegna
þess að væntanlega þættu það ekki
vera eðlilegar leikreglur.
Gegnsæi meira en áður
Spurður um hvaða aðferðir fyrir-
tæki noti til að hafa áhrif á um-
ræðuna segir hann að fyrst og
fremst sé gegnsæi orðið meira en
áður. „Þróunin er jákvæð og í
staðinn fyrir að pukrast með erfið
mál fyrir dómstólum leggja menn
spilin á borðið, reyndar með sín-
um skýringum líkt og Baugur
gerði núna og til dæmis Jón Ólafs-
son fyrir nokkrum árum. Þá birti
hann ákærur Skattrannsóknar-
stjóra eins og þær lögðu sig og
kom jafnframt með sínar skýring-
ar,“ bendir Gunnar Steinn á.
„Þetta er allt önnur aðferð en til
að mynda olíufélögin notuðu í
samkeppnismálinu. Þau einbeittu
sér að því að þræta fyrir gjörðir
sínar, neituðu að vinna með yfir-
völdum, veittu ekki viðtöl og svo
framvegis. Að þessu leyti er
Baugur að höndla sín mál miklu
betur en olíufélögin gerðu,“ segir
Gunnar Steinn.
Málflutningur í
hinu svonefnda
Kaffibaunamáli
fór fram í
Hæstarétti í maí
og júní 1988 þar
sem nokkrir
starfsmenn SÍS,
Sambands ís-
lenskra sam-
v i n n u f é l a g a ,
voru ákærðir
fyrir fjársvik, skjalafals og brot á
lögum um skipan gjaldeyrismála
vegna verslunar með kaffibaunir.
SÍS hafði séð um innflutning á
kaffibaunum frá Brasilíu fyrir
Kaffibrennslu Akureyrar á árun-
um 1979 til 1981 með milligöngu
Norræna samvinnusambandsins.
Starfsmenn SÍS voru meðal ann-
ars sakaðir um að hafa leynt
Kaffibrennslu Akureyrar umtals-
verðum afslætti sem seljandi
kaffibaunanna veitti. Afslátturinn
nam tæpum fimm milljónum doll-
ara á verðgildi ársins 1981.
SÍS lét seljanda kaffibaunanna
útbúa tvo reikninga, annan með
afslættinum og hinn án afsláttar-
ins, og notaði skrifstofu sína í
London sem millilið fyrir við-
skiptin svo
leyna mætti
fjársvikunum.
SÍS greiddi
lægri reikn-
inginn í gegn-
um banka í
London og
rukkaði Kaffi-
b r e n n s l u
A k u r e y r a r
s a m k v æ m t
hærri reikn-
ingnum.
Auk þess að
leyna Kaffi-
brennsluna af-
slættinum sem
veittur var inn-
heimti SÍS um-
boðslaun af söl-
unni sem hlut-
fall af hærri
re ikningnum.
Fjórir af hinum
fimm ákærðu voru dæmdir sekir í
héraðsdómi en Hæstiréttur
dæmdi þrjá seka og sýknaði tvo.
Sérstök ferilgreining pöntuð
Málið vakti mikla athygli á sínum
tíma og var fjallað um það í öllum
helstu fjölmiðlum landsins. Það
sem vakti einna mestu athyglina
var að fyrir málflutninginn í
Hæstarétti höfðu Guðjón B.
Ólafsson, forstjóri SÍS, og Valur
Arnþórsson stjórnarformaður
SÍS, ráðið Guðmund Einarsson
verkfræðing til þess að semja
ferilgreiningu um kaffiviðskiptin,
sem jafnframt var lögð fyrir
Hæstarétt. Þar að auki fengu fjöl-
miðlar eintak af ferilgreiningunni
sem og ítarlegar skýringar Guð-
mundar á málavöxtum öllum.
Tilgangurinn með ferilgrein-
ingunni var að sýna fram á hvern-
ig kaffiviðskiptin hefðu átt að
fara fram, en sakadómur hafði
þegar dæmt þau ólögleg. Ekki var
dregið dul á það að ferilgreiningin
ætti að nýtast sakborningum,
starfsmönnum SÍS, í málinu.
Guðmundur var í miklu sam-
bandi við þá blaðamenn sem fjöll-
uðu um málið og gætti þess einatt
að koma sjónarmiðum sakborninga
á framfæri. Sigurjón M. Egilsson,
fréttaritstjóri á Fréttablaðinu, var
blaðamaður DV á þessum tíma og
sat málflutninginn í Hæstarétti og
fjallaði um málið í DV. Hann segir
kaffibaunamálið skýrasta tilfellið
þar sem ákærðir reyni að verja sig
frammi fyrir þjóðinni þangað til
núna í Baugsmálinu.
Reyndi að flytja mál SÍS í
gegnum fjölmiðla
„Það sem er mér minnisstæðast
frá málflutningnum í Hæstarétti
og undanfara hans var aðkoma
Guðmundar Einarssonar,“ segir
Sigurjón. „Guðmundur var að
mörgu leyti heillandi maður með
sterka nærveru og munaði um
hann þar sem hann var. Hann var
mjög duglegur við að setja sig í
samband við okkur fjölmiðla-
menn og benda okkur á þýðingu
þess sem annað hvort verjandi
eða sækjandi sögðu í málflutn-
ingum, augljóslega í þeim til-
gangi að freista þess að hafa
áhrif á fréttaskrif okkar. Guð-
mundur hafði enga beina aðild að
málinu aðra en að flytja mál Sam-
bandsins í gegnum fjölmiðla og
þannig út til þjóðarinnar og ég
vona að honum hafi ekki orðið
ágengt,“ segir Sigurjón.
JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON EFTIR
ÞINGFESTINGU Í BAUGSMÁLINU
Baugur beitir þekktum aðferðum við að
takmarka þann skaða sem félagið getur
orðið fyrir vegna málaferlanna sem nú
standa yfir.
Reyndi a› hafa áhrif á fréttaskrif
Í Kaffibaunamálinu svokallaða
reyndu ákærðir að verja sig
frammi fyrir þjóðinni samhliða
málflutningi í Hæstarétti. Sam-
band íslenskra samvinnufélaga
réð til sín mann til þess að reyna
að hafa áhrif á umfjöllun fjöl-
miðla um málið.
GUÐMUNDUR
EINARSSON
HLÉ FRÁ MÁLFLUTNINGI Í KAFFIBAUNAMÁLINU SÍS réð til sín mann sem gætti
þess að fjölmiðlar heyrðu sjónarmið sakborninga í málinu.
Almannatengsl geta skipt miklu máli og eru notu›
markvisst til a› vernda or›spor fyrirtækja flegar miki›
liggur vi›. Sigrí›ur Dögg Au›unsdóttir rifjar upp
íslensk og erlend mál flar sem flau hafa veri› ríkur
fláttur í málsvörn hinna ákær›u gagnvart almenningi.
Hvítflibbaglæpir og almannatengsl