Fréttablaðið - 27.08.2005, Síða 53

Fréttablaðið - 27.08.2005, Síða 53
LAUGARDAGUR 27. ágúst 2005 33 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 29 32 1 0 8/ 20 05 COROLLA SEDAN. Aukapakki að verðmæti 115.000 kr. fylgir með. Gríptu tækifærið! Nú bjóðum við Corolla Sedan með spennandi aukapakka fyrir veturinn, vetrardekkjum og álfelgum. Aðeins örfáir bílar eru til afhendingar á þessu kostaboði. Það borgar sig að taka fljótt af stað! Þú færð meira en þú borgar fyrir www.toyota.is Toyota, Nýbýlavegi 4-8, sími 570 5070 Verð: 1.799.000 kr. Blaðakóngurinn Conrad Black, sem stofnaði kanadíska útgáfufyrir- tækið Hollinger, sem meðal annars gefur út bresku blöðin The Tele- graph og Spectator auk Chicago Sun-Times og Jerusalem Post, hefur staðið í ströngu frá því í árslok 2003 þegar stjórn Hollinger sakaði hann og nokkra aðra stjórnarmeðlimi um að þiggja óeðlilegar þóknunargreiðslur. Hann var um leið neyddur til að segja af sér sem for- stjóri fyrirtækisins. Black neitaði ásökun- unum og sagðist hafa sagt af sér sjálfvilj- ugur því hann væri á leið á eftirlaun. Black sat áfram sem stjórnarformaður Hollinger þar til í janúar á síðasta ári, þegar hann var látinn hætta og stjórn Holl- inger höfðaði mál á hendur honum og framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Þeir voru meðal annars ákærðir fyrir að hafa dregið sér fé og falsað reikninga. Black tók ásökununum ekki sitjandi heldur réð til sín ráðgjafa í einu virtasta almannatengsla- fyrirtæki New York-borgar. Þeir hófust strax handa við að reyna að bæta fyrir þann skaða sem ímynd Black hafði þegar orðið fyrir og takmarka frekari skaða. Ráðgjafarnir settu sig í beint sam- band við alla helstu blaðamenn stórblað- anna, bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum, sem fjölluðu um málið og reyndu að tryggja að sjónarmið Black í mál- inu fengju sem mest vægi. Takmörk fyrir því hvað hægt er að gera Þrátt fyrir gríðarlega herferð eru samt sem áður takmörk fyrir því hversu mikið er hægt að gera með góðum almanna- tengslum, því enginn endir var á ásökunum í garð Black. Haustið 2004 var hann ákærður fyrir að draga til sín fé úr sjóðum Hollinger að and- virði tæpra þrjátíu milljarða króna síðustu sjö árin. Málinu var síðar vísað frá dómi. Black höfðaði á móti skaðabótamál á hend- ur stjórnarmönnum Hollinger fyrir að hafa skaðað orðstír sinn með órökstuddum ásök- unum um fjárdrátt. Þá höfðaði hópur kanadískra fjárfesta mál á hendur honum og sakaði hann um að hafa tapað milljörðum af fé þeirra með slæmri stjórnun fyrirtækisins. Gerði ráðgjöfunum erfitt fyrir Í mars 2005 tilkynntu yfirvöld í Banda- ríkjunum að þau hefðu komið af stað opin- berri rannsókn á fjárumsýslu Conrads Black. Almannatengslaráðgjafar Black áttu hins vegar í mestu vandræðum með að skýra út fyrir fjölmiðlum og almenningi hvers vegna Black hefði farið inn í skrif- stofur Hollinger í maí og fjarlægt tólf kassa fulla af skjölum þvert á bann dóm- stóla. Talsmaður Black í Bandaríkjunum, Jim Badenhausen, hélt því fram við fjöl- miðla að Black hefði ekki gerst brotlegur. „Þetta voru persónulegir hlutir sem hann taldi sig hafa leyfi til að fjarlægja úr skrif- stofu sinni,“ sagði hann. Kössunum var skilað líkt og dómari mælti fyrir um. Málinu er ekki lokið, en almanna- tengslaráðgjafar Black hafa nóg fyrir stafni og enginn veit fyrir víst hvort starf þeirra beri árangur eða ekki. Martha Stewart var í fyrra dæmd í fimm mán- aða fangelsi og fimm mánaða stofufangelsi að auki fyrir innherjavið- skipti. Hún var látin laus úr fangelsi í mars en situr enn í stofufangelsi heima hjá sér. Fjölmiðlaumfjöllun um mál hennar er nánast öll á eina bókina. Flestir eru sammála um að fangelsisvist hennar og lagabrot hafi einungis haft jákvæð áhrif á ímynd hennar og að almenningsálitið sé henni mjög í hag. Til marks um það eru niðurstöður úr skoð- anakönnun sem Gallup í Bandaríkjunum birti á föstudag þar sem fram kemur að meirihluti Bandaríkjamanna stendur við bakið á fyrirmyndarhúsmóðurinni og segist hafa jákvæð viðhorf til hennar. Flestir hafna því sjónarmiði að Stewart láti sem hún sé hafin yfir lögin. En þetta gerðist ekki af sjálfu sér. Um leið og Stewart var sökuð um innherja- viðskipti fór stór almannatengslamaskína í gang. Hún réði til sín ráðgjafa sem lögðu á ráðin um það hvernig hægt væri að takmarka skaðann sem ímynd hennar og fyrirtæki kynnu að verða fyrir vegna málsins. Þegar hún var dæmd í undirrétti ákvað hún að hlíta dómnum í stað þess að áfrýja og hóf strax að afplána fanga- vistina. Þá bauð hún fjölmiðlum að vera viðstaddir þegar hún kvaddi hund sinn og kanarífugla með miklum innileik þegar hún fór í fangelsið. Ímyndarsérfræðingar vestan hafs segja að hvort tveggja hafi verið snilldarbragð, því þá um leið hafi hún byrjað að vinna almenning á sitt band. Verð á hlutabréfum snarhækkaði Hún afplánaði fangavist sína í opnu fangelsi og nýtti sér hana sem best hún mátti. Fréttir um hana birtust reglulega í fjölmiðlum þar sem sagt var frá því hvað hún hefðist við í fangelsinu þar sem hún gerði allt fágað og fínt, eldaði og prjónaði og var fyrirmyndarhúsmóðir í einu og öllu. Verð á hlutabréfum í fyrirtæki hennar snarhækkaði á þeim tíma sem Stewart var í fangelsi eftir að hafa hrunið niður úr öllu valdi þegar upp komst um brot hennar. Hún gekk nýverið frá samningum um tvo sjónvarpsþætti sem hefja göngu sína í bandarísku sjónvarpi í haust, sat á dögunum fyrir á forsíðu tímaritsins Vanity Fair, fékk tveggja milljóna króna greiðslu fyrir ritun bókar um heilsufar og mataræði og undirbýr framleiðslu á húsgagnalínu undir eigin merki. Þar að auki hafa auglýsendur snúið sér aftur að tímariti hennar Martha Stewart Living Magazine, eftir að hafa flúið sökkvandi skip í fyrra. Martha Stewart er síður en svo af baki dottin. Blaðakóngurinn Conrad Black hefur átt í lagalegum útistöðum við útgáfufélagið Hollinger, sem hann sjálfur stofnaði. Hann er sakaður um fjárdrátt og skjalafals og réð til sín almannatengslafyrir- tæki til að koma sjónarmiði sínu á framfæri. Mál kaupsýslukonunnar þekktu Mörthu Stewart í Bandaríkjunum hefur vakið mikla athygli um heim allan, ekki síst fyrir allt fjöl- miðlaumstangið í kringum það. Ímynd hennar þykir ekki hafa beðið hnekki af fangavistinni. Bar›ist í fjölmi›lum N‡tti sér fangavistina CONRAD BLACK Á LEIÐ Í RÉTTARSAL Fyrir um tveimur árum sakaði stjórn Hollinger hann um að hafa dregið sér fé en Black hefur barist fyrir mannorði sínu með hjálp almannatengslasérfræðinga. MARTHA STEWART Í STOFUFANGELSI Á HEIMILI SÍNU Stewart hefur nýtt sér fjölmiðlana til hins ýtrasta og sýnir hér sítrónur sem hún ræktaði í gróðurhúsi í garði sínum.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.