Fréttablaðið - 27.08.2005, Qupperneq 54
Fjórðu hljóðversplötu SigurRósar hefur verið beðið meðmikilli eftirvæntingu á með-
al tónlistaráhugamanna. Þrjú ár
eru liðin síðan síðasta plata, (),
kom út. Sú festi Sigur Rós í sessi
sem eina athyglisverðustu hljóm-
sveit veraldar þrátt fyrir að hún
hafi ekki verið jafnaðgengileg og
Ágætis byrjun.
Öll lögin á Takk eru ný fyrir
utan Mílanó og Gong, sem er
nokkur breyting frá síðustu plötu
sem hafði að mestu að geyma lög
sem höfðu verið samin löngu áður.
Fyrsta smáskífulagið nefnist Gló-
sóli og verður það eingöngu gefið
út á netinu. Útgáfutónleikar hér
heima vegna nýju plötunnar
verða haldnir í október en ekki
hefur verið ákveðið hvar þeir
verða haldnir.
Mæta ferskir til leiks
Kjartan Sveinsson, hljómborðs-
leikari Sigur Rósar, segir að ýmis-
legt hafi breyst síðan síðasta plata
kom út. „Við vorum fyrir löngu
búnir að fá leið á Ágætis byrjun
og vorum farnir að semja fullt af
nýjum lögum og spila þau á tón-
leikaferðum úti um allt. Þetta
gerðist allt mjög hratt og við
vorum miklu yngri. Við fórum í
fullt af viðtölum og síðan treystir
maður engum. Ég held að síðasta
plata endurspegli það dálítið. Við
fórum í stúdíó að taka hana upp og
hún var ekkert rosalega fersk.
Hún var rosalega erfið og erfitt að
taka hana upp. Eftir að við vorum
búnir að túra hana tókum við árs
frí og mættum svo ferskir til að
gera þessa plötu. Hún hélst eigin-
lega fersk í gegnum allan „pró-
sessinn“. Það endurspeglar í raun-
inni hvernig okkur leið þegar við
vorum að gera hana. Það var
gaman að spila aftur og vera
hljómsveit.“
Um hvað fjalla textarnir ykkar?
„Þetta eru litlar smásögur, ekk-
ert merkilegar og mjög „naív“.
Þetta eru lítil ævintýri, flest af
þessu. Sumt af þessu er skemmti-
leg orð og setningar. Við erum
engir rithöfundar. Við gerum bara
það sem er eðlilegt fyrir okkur og
erum ekkert að rembast eitthvað
meira.“
Er tónlistin ykkar ekki svolítið
„naív“ líka?
„Það er alveg það sama þar. Við
erum ekkert hljóðfæraleikarar
fyrir fimm aura. Ástæðan fyrir
því að hlutirnir eru einfaldir hjá
Sigur Rós er sú að upprunalega
var tæknikunnáttan ekki það
mikil. Svo hefur það náttúrulega
þróast. Við erum ekkert klárir. Ég
er ekkert að spila einhverjar
Liszt-sónötur á píanóið, ég bara
get það ekki. Ég geri bara það sem
ég get og kann, sem er fínt. Það
skapar bara einfaldleika og ein-
lægni. Það er einhvern veginn
auðveldara að fylgja því eftir.“
Hvað varstu að gera áður en þú
slóst í gegn með Sigur Rós?
„Ég vann á leikskóla í þrjú ár.
Síðan vann Jónsi í vélsmiðju hjá
pabba sínum og Georg vann hjá
Stöð 2 en Orri var þá ekki kominn
í sveitina. Við vorum í „nætur-
sessíóni“ uppi í Sýrlandi og vorum
að mixa alla nóttina og svo fór
maður beint í vinnuna klukkan
átta að hlusta á krakkana og ég
var alveg brjálaður í skapinu,“
segir Kjartan, sem fannst engu að
síður gaman að vinna á leikskól-
anum og söng meðal annars og
spilaði á gítar. „Ég nennti ekki að
fara í menntaskóla. Það eru
rosamargir sem fara í mennta-
skóla af því að það er svo gaman
en ég einhvern veginn fattaði það
ekki. Ef ég fer í menntaskóla fer
ég þangað til að læra. Ég gat ekki
tekið það alvarlega og langaði
bara að fara að vinna og reyna að
gera músík.“
Fyrst og fremst vinna
Færðu ekki heimþrá þegar þú ert
á löngu tónleikaferðalagi?
„Jú, þetta er náttúrlega svolít-
ið lýjandi. Þetta lítur kannski út
fyrir að vera geðveikt partí, sem
það er stundum líka. Það er
gaman að fara á þessa staði og
spila en þetta er fyrst og fremst
bara vinna og maður þarf að
standa sig. Maður er kannski í ein-
hverri fallegri evrópskri borg og
sér ekkert nema innan í búnings-
herbergið því maður hefur ekki
tíma til að fara neitt.“
Margir þekktir tónlistarmenn
segjast vera aðdáendur Sigur Rós-
ar og er Chris Martin úr bresku
hljómsveitinni Coldplay einn af
þeim. Vilja ekki margir hitta
ykkur baksviðs eftir tónleika?
„Chris hefur komið einu sinni
eða eitthvað, en ekkert á þessum
túr. Eftir tónleika þarf ég stund-
um að vera einn, kannski með
góðum vinum, og slappa af. Þá
nennir maður ekki að vera að tala
við eitthvert lið. Gillian Anderson
(úr þáttunum X-Files) hefur
reyndar komið svolítið oft en ekki
lengur. Ég held að hún sé hætt
því. Ég var einhvern tímann að
stríða henni og hún hefur ekki
komið síðan.“
Í fjórum hljómsveitum heima
Vilja ekki margir fá að starfa með
ykkur?
„Nei, ekki svo mikið. Yfirleitt
er aldrei tími til þess. Við erum
beðnir um að gera tónlist við
myndir og það hefur oft verið
spennandi en það er ekkert oft
sem fólk vill vinna með okkur. Við
erum beðnir um að remixa hitt og
þetta en það er aldrei tími.“
Hafið þið sjálfir ekkert áhuga á
samstarfi við aðra tónlistarmenn?
Kannski einhvern tímann í
framtíðinni en það er ekkert rými
til þess núna. Það er rosalega
gaman að vinna með fólki. Eins og
hérna heima eru allir vinir manns
í einhverju. Það er svo skemmti-
legur fílingur hérna. Það eru allir
að spila með öllum og allir í fjór-
um hljómsveitum. Það væri geð-
veikt gaman að taka þátt í þessu
en maður getur ekkert verið með
í því.“
Skrítið að syngja á ensku
Af hverju hefur Sigur Rós ekki
reynt að gera sig aðgengilegri fyrir
erlendan markað, til dæmis með
því að syngja á ensku?
„Mér hefur alltaf fundist
skrítið að syngja á ensku. Það er
ekki okkar móðurmál. Ég tala
alveg ensku en þegar ég þarf
virkilega að tjá mig um eitthvað
er það erfitt. Ég sé ekki alveg að
það sé einlægt ef ég er að reyna
það á ensku.“
Eruð þið ekki undir neinum þrýst-
ingi um að vera aðgengilegri?
„Nei, nei, nei. Það er enginn að
þrýsta á okkur. Við erum bara eins
og við erum og erum búnir að vera
svona rosalega lengi og það hefur
virkað. Forsendurnar eru bara
svona og þeir reyna ekki einu
sinni að breyta okkur. Við gerum
bara það sem við viljum. Það er
mikilvægast því annars er maður
farinn að sleppa svolítið tökum á
sjálfum sér. Auðvitað breytast for-
sendur og áherslur. Við vorum svo
ungir þegar við byrjuðum og svo
„passionate“ með þessa hluti. Við
gáfum aldrei tommu eftir. Svo lin-
ast fólk oft með aldrinum í þá átt
finnst mér en maður reynir að
halda sínu striki.
Eruð þið ekki miklir náttúru-
verndarsinnar, til dæmis varðandi
Kárahnjúka?
„Okkur hefur fundist svaka-
lega erfitt að koma fram með ein-
hverjar skoðanir á hlutunum. Við
reynum að gera sem minnst í því
að persónugera okkur. Við erum
að gera músík og spila hana og
það er það sem þetta snýst um. En
með Kárahnjúka var manni svo-
lítið mikið ofboðið. Við erum allir
á móti því. Annars höfum við yfir-
leitt reynt að vera ekki með ein-
hverjar yfirlýsingar. Við erum oft
beðnir um að styrkja einhvern
flokk og jafnvel beðnir um að fara
fram í einhverju sæti en við
höfum aldrei viljað það. Það er of
persónulegt og við erum ekkert
sammála um alla hluti. En aðal-
lega samt af því að það kemur
músíkinni ekkert við.“
Brenndar í Bandaríkjunum
Þannig að þið ætlið ekkert að
predika gegn Bush á tónleikaferð
ykkar um Bandaríkin?
„Nei, það er stórhættulegt.
Maður þarf að passa sig á því sem
maður segir í Bandaríkjunum.
Þegar við förum þangað erum við
stoppaðir og settir í einhvern
öryggisforgang. Það er leitað ítar-
lega á okkur og í öllum töskunum.
Þá hugsar maður: Hvað er maður
eiginlega að spila í þessu landi?
En við erum náttúrlega að spila
fyrir fólkið sem býr þarna en ekki
ríkisstjórnina. Ég held að það sé
bara gott að við spilum þar.
Músíkin segir allt sem segja þarf.
Einhvern tímann leigðum við
„banner“ á heimasíðuna okkar
sem var gegn stríði. Það var fullt
af aðdáendum sem ætluðu að
kveikja í plötunum okkar í Banda-
ríkjunum.“
Er nýja platan ykkar sú besta?
„Það sem við erum að gera á
hverri stundu er alltaf best, en
það segja reyndar allar hljóm-
sveitir það. Ég hef eiginlega
ekkert hlustað á gömlu plöturnar.
Ég hef einu sinni hlustað á sviga-
plötuna og tvisvar á Ágætis byrj-
un. Maður fær bara nóg af þessu
enda búinn að hlusta á þær millj-
ón sinnum í „prósessnum“. Það er
líka allt öðruvísi að spila þær á
tónleikum, en við erum rosalega
ánægðir með þessa plötu.“■
34 27. ágúst 2005 LAUGARDAGUR
SIGUR RÓS Frá vinstri: Jón Þór Birgisson, Orri Dýrason, Georg Hólm og Kjartan Sveinsson. Nýjasta plata Sigur Rósar kemur út 12. september.
TAKK MEÐ AUGUM
KJARTANS SVEINSSONAR
1. TAKK Takk er náttúrlega intró-lag.
2. GLÓSÓLI Glósóli er fyrsta lagið
sem við semjum fyrir utan Mílanó
og Gong. Þegar við sömdum það
var svolítið gaman að sjá hvað
kæmi síðan næst.
3. HOPPÍPOLLA Þetta er mjög
skemmtilegt lag. Það er svolítil
endurvinnsla í því. Við stálum frá
okkur sjálfum af Ágætis byrjun,
klipptum út bút, snerum honum við
og hægðum á honum. Við tókum
„lúppu“ úr Viðrar vel til loftárása.
Þetta er svolítið stúdíólag sem var
mikið unnið í „kontrólherberginu“.
Við gerðum þetta líka í Starálfi.
4. MEÐ BLÓÐNASIR Þarna tókum við
„lúppu“ úr Hoppípolla og snerum
henni við aftur. Þetta eru svona tví-
buralög.
5. SÉ LEST Þarna fengum við svo
mikið af hljóðfærum, til dæmis
víbrafón og selestu. Það varð alls
konar skemmtilegt til í kringum það.
6. SÆGLÓPUR Mér fannst það svolítið
væmið þegar við við vorum að gera
það fyrst. Mér fannst píanóið svolít-
ið „halló“ en svo rætist vel úr því
með svolitlu rokki og róli. Það er
gaman að spila þetta lag.
7. MÍLANÓ Það er samið með stelp-
unum úr Aminu í Mílanó fyrir mörg-
um árum. Þetta voru ömurlegir tón-
leikar reyndar í Mílanó sama kvöld,
en lagið var samið í sándtékki. Það
er dálítið skrítið að spila það núna
og ég var mjög lengi að sætta mig
við þetta lag.
8. GONG Það er elsta lagið á plöt-
unni. Stelpurnar í Aminu útsetja það
líka.
9. ANDVARI Þetta var gömul hug-
mynd sem var alltaf fyrir aftan Gong.
Síðan hélt ég áfram með gítarinn.
Þetta lag gekk alltaf voða illa en svo
þrjóskuðumst við í gegn að taka það
upp. Ég er ógeðslega ánægður með
þetta lag.
10. SVO HLJÓTT Það er dálítið erfitt
að lýsa því lagi.
11. HEYSÁTAN Þetta er rólegt lag og
platan er svolítið búin þarna.
Ekki hljó›færaleikarar
fyrir fimm aura
Hljómsveitin Sigur Rós er í stuttu stoppi hér á landi eftir tónleikafer› um Evrópu sem hófst í júlí.
Á næstu dögum tekur sí›an vi› tónleikafer› um heiminn sem stendur yfir í heilt ár. Tilefni› er fjór›a plata
sveitarinnar, Takk, sem kemur út 12. september. Freyr Bjarnason hitti Kjartan Sveinsson hljómbor›s-
leikara og fræddist um n‡ju plötuna, öfgafulla a›dáendur og ósætti› vi› Gillian Anderson.