Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.08.2005, Qupperneq 56

Fréttablaðið - 27.08.2005, Qupperneq 56
Áfimmtudaginn verður frumsýnd ný íslenskgamanmynd eftir Róbert Douglas sem heitirStrákarnir okkar. Hún fjallar um Óttar Þór, sem er frambærilegur knattspyrnumaður á hátindi ferils síns. Á konu og strák. Ákveður síðan að koma loks út úr skápnum með tilheyrandi erfiðleikum og látum. Hættir í KR og fer að spila með homma- fótboltaliði. Eignast kærasta og tekst á við lífið sem hommi. Það er Björn Hlynur Haraldsson sem leikur Óttar Þór. Víðir Guðmundsson leikur Daníel, kærastann hans. Hann er „nýja kjötið í bænum“. Stundar skemmtistaði og er frekar villtur. Finnst æðislegt að vera kominn út úr skápnum. Ólíkt Óttari Þór, sem er enn að velta því fyrir sér hvort hann eigi ekki bara að vera með eiginkonu sinni. Sleppa þessu öllu. Fara bara inn í skápinn aftur. Ekki slæmt upphaf Víðir situr pollrólegur á Prikinu. Þrátt fyrir að það sé frekar snemma morguns er ekki eins og hann sé ný- vaknaður. Hann er bara hress. Ætti líka að vera það. Er að æfa leikrit með Nemendaleikhúsinu sem byggt er á þremur bókum eftir Hugleik Dagsson og heitir „Forðist okkur“. Stefán Jónsson leikstýrir en verkið er sett upp í samstarfi við Common Nonsense. Hann var nánast búinn að gefast upp á leiklistinni. Var búinn að læra rennismíði. Hafði reynt við leik- listarskólann þrisvar og ætlaði ekkert að fara í fjórða skiptið. „Svo fór ég í prufurnar með því hug- arfari að mér væri nákvæmlega sama og þá gekk það,“ segir hann og hlær. Hafði fram að því verið í áhugamannaleikfélögum. „Ef ég hefði ekki komist inn ætlaði ég að klára stúdentsprófið og fara í Há- skólann,“ bætir hann við. Hann var að leika hjá tónlistar- og þróunarmið- stöð Reykjavíkur í leikriti eftir Jón Atla þegar honum var boðið að koma í prufu fyrir kvikmynd. „Jón Atli hafði sagt að ég væri tilvalinn í hlutverkið,“ segir Víðir en Jón Atli skrifar handritið að Strákun- um okkar. „Ég hitti Róbert Douglas leikstjóra og Björn Hlyn. Við lékum nokkrar senur og svo var þetta bara klappað og klárt,“ bætir hann við. Ekki búinn með leiklistina en strax kominn með hlutverk í kvikmynd. Ekki slæm byrjun á ferlinum. Víðir segir að gerð kvikmyndar hafi verið ný reynsla fyrir sig. Hann hafi ekki gert sér grein fyrir því hversu mikið batterí þetta væri. „Það var frábær andi í hópnum og við spiluðum fótbolta á milli. Það kom samt mest á óvart hversu mikill tími fór í bið. Ég var að bíða í níutíu prósent af þeim tíma sem ég var í vinnunni,“ segir hann. Draumahlutverkið? Víðir fær að vera það sem flestar stelpur dreymir um að vera. Hann fær að vera kærastinn hans Björns Hlyns. „Ég vissi samt ekkert hver hann var. Allir voru að tala um hann en ég hafði bara ekki hugmynd hver þessi náungi væri,“ segir Víðir og hlær. Segir að þeir kyssist ekkert í myndinni. „Það var samt ein sena sem reyndi alveg rosalega mikið á,“ segir hann. Víðir á kærustu. Hún kippti sér ekkert upp við það að kærastinn væri að leika homma. „Sagðist bara vera feginn að ég væri ekki að kyssa einhverja stelpu,“ segir hann og hlær. „Ég veit samt ekki alveg hvað mamma og pabbi segja þegar þau sjá myndina.“ Víðir segir enn frem- ur að margir félagar og kunningjar hafi rekið upp stór augu þegar hann kom á vagni niður Laugaveg- inn á Gay Pride göngunni. „Ég er viss um að margir hafi hugsað: Hann átti kærustu, er það ekki?“ segir Víðir og hlær. „Ég var sjálfur með alveg hrikalega hommafóbíu fyrir svona átta árum. Svo þroskaðist ég bara sem betur fer,“ segir hann. Víðir segist ekki hafa hugsað neitt sérstaklega mikið út í það að hann væri að leika homma. „Ég fleygði burt þessari stereótýpu sem drekkur kokk- teila og er þvílíkt kvenlegur. Var bara ég,“ segir hann. Þrátt fyrir að aðalsögupersónan sé knatt- spyrnuhetja fjallar myndin ekki mikið um fótbolta. Ef svo væri hefði Víðir sennilega ekki fengið hlut- verkið. „Ég get ekkert í fótbolta. Hætti að æfa þegar ég var þrettán ára. Ætlaði einhvern tímann að tækla Björn Hlyn þegar við spiluðum á móti Vesturporti. Hann hló bara og sólaði framhjá mér.“ Strákarnir okkar fjallar því frekar um það ferli sem fer í gang þegar einhver kemur út úr skápnum. „Hún snýst mest um að hafa húmor fyrir sjálfum sér og taka sig ekki of alvarlega.“ 27. ágúst 2005 LAUGARDAGUR Rennismi›ur ver›ur leikari í kvikmynd Ví›ir Gu›mundsson leikur Daníel í kvikmyndinni Strákarnir okkar. Hann fékk hlutverki› sem margar stelpur myndi dreyma um a› fá. Freyr Gígja Gunnars- son komst a› flví hva›a hlutverk fla› var. VÍÐIR GUÐMUNDSSON Er hvorki hommi né góður í fót- bolta. Leikur engu að síður kærasta Björns Hlyns í kvik- myndinni Strákarnir okkar sem frumsýnd verður í næstu viku. DANÍEL OG ÓTTAR ÞÓR Daniel nýtur þess að vera kominn út úr skápnum. Óttar Þór er þó meira fyrir að vera heima og slaka á. Engu að síður ná þeir vel saman og verða par. Hvort ástin lifir að eilífu verður síðan að koma í ljós. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.