Fréttablaðið - 27.08.2005, Side 58
27. ágúst 2005 LAUGARDAGUR
> Við drögum í efa ...
... að Berki Edvardssyni sé stætt að sitja
áfram í milliþinganefnd KSÍ um félagsskipti
og samninga. Börkur hefur
viðurkennt að hafa rætt
við Atla Jóhannsson á
það sem virðist hafa
verið kolólöglegan hátt
en í starfi sínu í nefnd-
inni þarf hann að gjör-
þekkja allar reglugerðir um
samningamál. Börkur virðist
ekki eiga sér neinar málsbætur.
Heyrst hefur ...
... að meistaraflokksleikmenn og hörð-
ustu stuðningsmenn FH ætli að fjöl-
menna á úrslitaleik 5. flokks í Garðabæ í
dag en þar spila FH-strákarnir til úrslita
við Breiðablik. FH getur varið titilinn frá
því í fyrra en þá komu einmitt fjölmargir
meistaraflokksleikmenn á völlinn og
studdu vel við bakið á framtíðar-
leikmönnum félagsins.
sport@frettabladid.is
38
> Við fögnum því ...
.... að íslensk knattspyrna skuli mögulega
vera að fá menntaðasta íslenska þjálfarann
í sínar raðir. Teitur
Þórðarson er með
UEFA-Pro gráðu, sem
meðal annars veitir
réttindi til að þjálfa í
efstu deild í öllum
löndum Evrópu.
Börkur Edvardsson, forma›ur knattspyrnudeildar Vals, sem saka›ur er um a› hafa fyrr í vikunni rætt
ólöglega vi› Atla Jóhannsson, leikmann ÍBV, situr í nefnd innan KSÍ sem sér um a› endursko›a reglu-
ger›ir um félagaskipti og samninga. Framkvæmdastjóri KSÍ segir máli› óheppilegt.
Börkur situr beggja vegna borðsins
FÓTBOLTI Börkur Edvardsson, for-
maður knattspyrnudeildar Vals,
sem knattspyrnudeild ÍBV sakar
um að hafa rætt ólöglega við Atla
Jóhannsson fyrr í vikunni um
möguleg félagaskipti hans til
Vals, er einn af fimm meðlimum í
milliþinganefnd KSÍ um félaga-
skipti og samninga. Að sögn Geirs
Þorsteinssonar, framkvæmda-
stjóra KSÍ, hefur þessi nefnd það
hlutverk að endurskoða reglu-
gerðir um félagaskipti eftir hvert
keppnistímabil og leggur til
breytingar á þeim ef hún telur
þess þörf, en Börkur var skipaður
í þessa nefnd fyrir keppnistíma-
bilið í ár.
Geir segir að nauðsynlegt sé að
þeir sem taki að sér störf í nefnd-
inni kynni sér allar slíkar reglu-
gerðir rækilega, en af vinnu-
brögðum Barkar í máli Atla, sem
er samningsbundinn ÍBV út næsta
sumar en Börkur ræddi samt sem
áður við án vitundar knattspyrnu-
deildar ÍBV, má efast um hvort
Berki sé sætt í þeirri nefnd. Í
reglugerð KSÍ um samninga og
stöðu leikmanna og félaga segir
orðrétt í lið D-2:
„Félag, sem gerir sambands-
samning, skuldbindur sig til að
hlíta reglum KSÍ um félagaskipti
leikmanna. Jafnframt skuldbind-
ur félagið sig til þess að hafa ekki
samband við samningsbundinn
leikmann nema að fengnu leyfi frá
viðkomandi félagi. Þó er heimilt
að ræða við samningsbundinn
leikmann eftir 15. október án
leyfis viðkomandi félags, ef samn-
ingur hans rennur út eigi síðar en
um næstu áramót.“
Börkur sagði við Fréttablaðið í
fyrradag að ástæðan fyrir því að
hann hefði haft samband við Atla
væri að hann hefði talið að samn-
ingur hans rynni út á þessu ári.
Annað hefði hins vegar komið í
ljós og í kjölfarið hefði hann beðið
knattspyrnudeild ÍBV afsökunar,
sem engu að síður hefur lagt inn
kæru til KSÍ vegna málsins. Í
áðurnefndri reglugerð segir hins
vegar að það hefði engu skipt þótt
samningur Atla hefði runnið út á
þessu ári – Börkur hafði engan
rétt til að ræða við hann fyrr en
eftir 15. október.
Aðspurður um hvort hann, sem
fulltrúi nefndar sem sér um þessi
mál innan KSÍ, hefði ekki átt að
kannast við þetta ákvæði, kvaðst
Börkur ekki vilja tjá sig meira um
þetta mál. „Þetta er á milli okkar
og Eyjamanna,“ sagði hann.
Að sögn Geirs er kæra ÍBV
komin í farveg innan KSÍ og segir
hann að gagnaöflun og rannsókn
málsins geti tekið nokkrar vikur.
Um setu Barkar í félagaskipta-
nefndinni sagði Geir að ef fótur
væri fyrir ásökunum Eyjamanna
væri hún vissulega óheppileg.
vignir@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
24 25 26 27 28 29 30
Laugardagur
ÁGÚST
■ ■ LEIKIR
14.00 Víkingur Ó. og Völsungur
mætast í 1. deild karla í knattspyrnu
á Ólafsvíkurvelli.
14.00 Þór tekur á móti Fjölni í 1.
deild karla á Akureyrarvelli.
14.00 KS og Haukar mætast í 1.
deild karla á Siglufjarðarvelli.
■ ■ SJÓNVARP
09.40 Strandblak á Sýn.
13.40 Mótorsport 2005 á Sýn.
10.30 Upphitun á Enska boltanum.
11.00 Enska knattspyrnan á
Enska boltanum. Bein útsending frá
leik WBA og Birmingham.
13.15 Á vellinum með Snorra Má
á Enska boltanum.
13.45 Enska knattspyrnan á
Enska boltanum.
15.20 Gullmót í frjálsum á RÚV.
15.35 Ensku mörkin á Sýn.
16.05 Enska 1. deildin á Sýn. Bein
útsending frá leik Watford og
Reading.
19.50 Spænski boltinn á Sýn.
22.00 Hnefaleikar á Sýn.
Leik KR-inga að nýjum þjálfara lokið?
FÓTBOLTI Forráðamenn KR hafa
samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum Fréttablaðsins rætt við
Teit Þórðarson um að hann taki
við þjálfun liðsins fyrir næsta
sumar.
Eins og flestum ætti að vera
kunnugt er Sigursteinn Gíslason
núverandi þjálfari liðsins eftir
að hafa tekið við af brottviknum
Magnúsi Gylfasyni en svo virð-
ist sem forráðamenn KR sjái
Sigurstein ekki fyrir sér sem
endanlegan arftaka Magnúsar.
Teitur er nú á öðru ári sínu
sem knattspyrnustjóri hjá Ull-
Kisa í norsku 2. deildinni, en
samningur hans við félagið
rennur út um áramótin. Í samtali
við Fréttablaðið í gær kvaðst
Teitur hafa fengið nokkrar fyrir-
spurnir frá öðrum félögum en
ekkert væri fast í hendi enn sem
komið er. Spurður um hvort KR
væri eitt þessara félaga vildi
Teitur hvorki játa né neita. „Ég
held að ég sé ekkert að segja um
þetta mál í augnablikinu,“ sagði
hann.
Teitur viðurkenndi hins
vegar að hann væri að skoða sín
mál og gæti vel hugsað sér til
hreyfings. „Á meðan ég hef ekki
ákveðið neitt er ég opinn fyrir
öllu, þar á meðal að koma til Ís-
lands. Ég útiloka ekki neitt,“
sagði Teitur.
- vig
Teitur fiór›arson a›
taka vi› KR-ingum
Áhorfendastúkan við knattspyrnuvöllinn
í Grindavík var auglýst á uppboði hjá
sýslumanninum í Grindavík í vikunni.
Eigandi hennar er Grindvísk knattspyrna
99 hf., en það er hlutafélag sem stofn-
að var til þess að reisa áhorfendastúk-
ana glæsilegu í Grindavík fyrir fjórum
árum síðan. Jónas Þórhallsson, stjórnar-
maður í GK 99, vonast til þess að hægt
verði að ganga frá þessari skuld fljót-
lega. „Þetta mál er í ákveðnum farvegi
sem miðar að því að Grindavíkurbær
komi okkur til hjálpar til þess að greiða
þessa skuld við Sparisjóðinn í Keflavík,
sem er rúm-
lega 23 milljónir króna eins og staðan
er í dag.“
Upphaflega var lánið upp á átján millj-
ónir króna en dregist hefur að borga
skuldina og því hefur hún hækkað um-
talsvert. Grindavíkurbær og GK 99 hf.
stóðu saman að því að reisa stúkuna
og skiptu kostnaðinum jafnt á milli sín.
Lánið sem eftir á að borga var tekið af
GK 99 hf., og er það því ekki Grindavík-
urbær sem skuldar enn í stúkunni. Jón
Þórisson, fjármálastjóri Grindavíkur-
bæjar, segir
viðræður milli GK 99 hf. og bæjarins
hafa staðið yfir undanfarnar vikur en
samkomulag hefur ekki náðst ennþá.
„Grindavíkurbær hefur staðið við allar
sínar skuldbindingar gagnvart GK 99 hf.
Skuldin er tilkomin vegna lántöku GK
99 hf. hjá Sparisjóðnum í Keflavík, með
veði í stúkunni, og er Grindavíkurbæ
óviðkomandi. En það standa nú yfir við-
ræður á milli GK 99 hf. og Grindavíkur-
bæjar um það hvernig megi leysa þetta
mál farsællega, og
vonandi
fæst niður-
staða í
þetta mál
sem
allra
fyrst.“
GK 99 EHF ER Í FJÁRHAGSÖRÐUGLEIKUM: GRINDAVÍKURBÆR KEMUR TIL BJARGAR
Áhorfendastúkan í Grindavík á uppbo›
Viltu PSP?
×
19
00
!
×
×
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
1
49
k
r/
sk
ey
tið
. *
A
ða
lv
in
ni
ng
ur
e
r d
re
gi
n
úr
ö
llu
m
in
ns
en
du
m
S
M
S
sk
ey
tu
m
BÖRKUR EDVARDSSON Situr í nefnd innan KSÍ sem sér um reglugerðir félagsskipta og ætti
því að þekkja þær manna best. Engu að síður ræddi hann við Atla Jóhannsson, leikmann
ÍBV, á ólögmætan hátt.
TEITUR ÞÓRÐARSON Gæti verið á leið í
Frostaskjólið eftir áralanga dvöl sem þjálf-
ari í Eistlandi og Noregi.
LEIKIR GÆRDAGSINS
Ofurbikarinn:
LIVERPOOL–CSKA MOSKVA 3–1, frl.
0–1 Carvalho (28.), 1–1 Cissé (82.), 2–1
Cissé (103.), 3–1 Luis Garcia (110.).
1. deild karla:
HK–KA 1–2
0–1 Haukur Sigurbergsson (10.), 0-2
Hreinn Hringsson (81.), 1–2 Rúrik
Gíslason (90. + 2).
STAÐA EFSTU LIÐA:
BREIÐABLIK 16 12 4 0 28–10 40
VÍKINGUR 16 8 7 1 33–9 31
KA 16 9 4 3 34–14 31
ÞÓR 15 5 3 7 21–30 18
Ofurbikarinn í gærkvöldi:
Liverpool-sigur
í framlengingu
FÓTBOLTI Djibril Cissé kom inn á
sem varamaður á 79. mínútu,
skoraði tvö mörk og lagði upp eitt
fyrir Luis Garcia í 3–1 sigri
Liverpool á CSKA Moskvu í fram-
lengdum leik í Mónakó í gær.
Þessi leikur var uppgjör
Evrópumeistara meistaraliða og
Evrópumeistara félagsliða um
svonefndan ofurbikar og Liver-
pool vann hann nú í þriðja sinn.
Rússarnir komust yfir á 28.
mínútu með marki Daniels
Carvalho. Cisse jafnaði leikinn á
82. mínútu, kom liðinu yfir á 13.
mínútu framlengingarinnar og
lagði síðan upp þriðja markið
fyrir Luis Garcia.