Fréttablaðið - 27.08.2005, Page 64

Fréttablaðið - 27.08.2005, Page 64
Það er ekki hægt að segjaannað en að Stella McCartn-ey komi með ferska strauma inn í íþróttalíf landans en lína hennar sem hún hannar fyrir Adi- das verður kynnt hérlendis um næstu helgi. Þetta er í fyrsta skipti sem hátískuhönnuður tekur höndum saman við fyrir- tæki sem framleiðir íþróttafatnað en samstarfið hefur borið góðan ávöxt. Línan gefur konum það sem þær vilja – vöru sem bæði upp- fyllir gæðakröfur og lítur rosalega vel út,“ sagði Bill Sweeney, verkefn- isstjóri samstarfsins hjá Adidas, þegar línan var kynnt fyrst. „Við höfum sameinað ein- staka hönnun Stellu og þekkingu Adidas á f r a m ú r s k a r a n d i íþróttavörum.“ Mikil líkamsræktarvakning hef- ur verið á öllum Vesturlöndum en hingað til hefur enginn íþróttavöruframleiðandi virki- lega tekið tillit til bæði þæginda og fegurðarskyns kvenna. Mikið af íþróttafötum er bæði ætlað körlum og konum og í flestum tilvikum er útlitinu fórnað fyrir aukin þægindi eða risastór vörumerki framleið- enda. Eins og Stella orðaði það sjálf: „Konur taka bæði líkamsrækt og lífsstíl alvarlega. Af hverju ættum við að þurfa að fórna öðru á kostnað hins?“ Nú þarf engin kona að vera púkaleg á æfingu lengur vegna skorts á smekklegum íþróttaklæðnaði, því haust- og vetrarlína Stellu McCartney og Adidas er vægast sagt æðisleg. Aðaláherslurnar í haust- línunni 2005 eru hlaupa-, leikfimi- og sund- fatnaður ásamt íþróttaskóm og fylgihlutum. Litirnir eru mjúkir og fallegir þannig að þeir henta nánast hverjum einasta húðlit enda hugað að öllu við hönnunina. Hver einasta flík er úthugsuð og mörg skemmtileg smáatriði færa flíkurnar upp á hærra plan. Aðeins sex verslanir á Norðurlöndunum fá að hafa þessa línu á boðstólum og ein þeirra er Adidas Concept Store í Kringlunni. Nú er engin ástæða lengur til að sleppa ræktinni. Með Stellu McCartney að vopni er ekki annað hægt en að komast í gott form. soleyk@frettabladid.is & martamaria@frettabladid.is MÓÐUR VIKUNNAR > MARTA SMARTA FER YFIR MÁLIN Hver er flessi n‡i svarti? Þegar fregnir bárust þess efnis að svarti liturinn yrði litur vetr- arins fékk ég svona tilfinningu eins og von væri á gamalli vin- konu í heimsókn. Ég fann að ég var tilbúin að taka á móti gjöf- inni og innra með mér myndaðist smá spenna. Hvað ætti ég að kaupa fyrir haustið? Ég sá fyrir mér hávaxnar og fallegar fyrir- sætur með dökka smókí skyggingu um augun sem brostu á dularfullan hátt. Rauði varaliturinn var heldur ekki langt undan. Það er kannski ekki skrýtið að maður fyllist spennu því þessi svarti stíll er svo ógurlega tignarlegur og smart. Og það besta er að nánast allar konur verða svolítið flottar þegar þær eru komnar í slíka múnderingu. Svarti liturinn klæðir þó ekki nærri því alla og þá kemur dökkblái liturinn eins og himnasending inn í þeirra tilveru. Mikið hefur verið predikað þess efnis að það sé alls ekki leyfilegt að klæðast svörtu frá toppi til táar. Nú er tíðin breytt og það er um að gera að vera í svörtu frá toppi til táar. Fyrir þær sem vilja poppa stílinn upp kemur naglalakk að góðum notum ásamt varalit og augnskugga. Litríkir leðurhanskar bæta líka ýmsu við. Tískuspekúlantar tala um þennan „nýja svarta“. Þegar það er sagt er alls ekki verið að tala um einhvern nýjan svartan lit heldur er þessi endurkoma svarta litsins kölluð þetta. Þeir sem eiga fullan fataskáp af svörtum fötum þurfa því ekki endilega að stökkva út í búð. Í raun væri alveg nóg að taka til í skápnum og vinsa úr þau föt sem farið er að sjá á. Það fylgir þessu útliti nefnilega að vera snyrtilegur. Það má enginn ganga í hnökrótt- um svörtum fötum eða fötum sem farin eru að missa lit. Það er ekkert smart við það. Með þessum „nýja svarta“ kemur fullt af nýjum sniðum og nýjum pælingum. Blússur í gamaldags stíl með blúndum og til- behör eru alveg að gera sig ásamt fallegum peysum úr góðum og vönduðum efnum. Það er líka nokkuð ljóst að hver kona verð- ur að eiga einar fallegar víðar síðar buxur með herrasniði. Ég sé fyrir mér ódýra reddingu í þeim efnum en það er að kaupa herrabuxur hjá verslun Guðsteins Eyjólfssonar og láta bara stytta þær og taka úr strengnum að aftan ef þær eru of víðar í mittið. Það er sumsé hægt að vera smart og elegant án þess að það kosti allt of mikið! Hvað er mest heillandi við tískuna? Fjölbreytileikinn. Uppáhaldshönnuðir? Ég var að kynn- ast Henrik Vibskov og er mjög hrifin af honum þessa stundina. Hann er danskur og gerir stór ótrúlega skemmtileg föt með skrítnum smá- atriðum. Fallegustu litirnir? Bleikur er alltaf uppáhaldsliturinn minn. Hverju ertu mest veik fyrir? Vestum. Hvaða flík keyptir þú þér síðast? Jakka, buxur og peysur frá Henrik Vibskov, þetta voru mjög góð kaup. Hvað finnst þér mest sjarmerandi í hausttískunni? Rómantíkin, haust- tískan iðar af henni. Hvað ætlar þú að kaupa þér fyrir haustið? Ég væri til í flottan haustjakka. Uppáhaldsverslun? Kolaportið. Hvað eyðir þú miklum peningum í föt á mánuði? Yfirleitt eyði ég alls ekki miklu. Það koma þó mánuður og mánuður sem ég fer yfir strikið, en það gerist eiginlega óvart. Ég fer aldrei upp í Kringlu til þess eins að kaupa mér föt. Hvaða flíkur gætir þú ekki verið án? Ég gæti ekki verið án pokabuxn- anna minna og svo á ég voðalega fínt vesti sem ég keypti mér í Kola- portinu. Uppáhaldsflík? Núna eru skærgular buxur frá Henrik Vibskov í mestu upp- áhaldi. Ég er í þeim á hverjum degi og fer bara úr þeim til að þvo þær á kvöldin. Í hvað myndir þú aldrei fara? Ég myndi aldrei fara í þröngan fleginn nylonbol og efnislitlar flíkur til þess eins að sýna hold. ROPE YOGA Bæjarhraun 22 / 220 Hafnarfjörður / 3. hæð Skráning er hafin í síma 555-3536 eða 694-2595 ropeyoga@internet.is • www.ropeyoga.net stöðin Bæjarhrauni 22 BYRJENDANÁMSKEIÐ AÐEINS 8 MANNS Í HVERJUM HÓPI margir tímar í boði, kennarar ÓSK, DÓMÍ og ÞÓRDÍS SMEKKURINN SARA MARÍA EYÞÓRSDÓTTIR KAUPMAÐUR Í NAKTA APANUM > svart & hvítt ... Astrid Munoz klæðist hönnun Karls Lag- erfeld. Hann flækir sjaldnast litasin- foníuna og einblínir á hið svarthvíta. Það er fallegt og smart og þegar vetrar má alltaf fara í 80 den sokka- buxur undir hvítu buxurnar. Myndi aldrei fara í efnislítil og flröng föt 44 27. ágúst 2005 LAUGARDAGUR Tískubylting Stellu Frekari upplýsingar um Stellu McCartney og Adidas-vörulínu hennar má sjá á: www.adidas.com/stellamccartney

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.