Fréttablaðið - 29.08.2005, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
FREMUR HÆG NORÐANÁTT Í
FYRSTU en snýst í suðlægari þegar líður
á daginn. Lítilsháttar rigning norðan
lands.
VEÐUR 4
MÁNUDAGUR
29. ágúst 2005 - 232. tölublað – 5. árgangur
Spáðu í mér?
Liðnir eru tímar umvöndunarmálfræð-
innar og upp er runnin öld mannúðar-
málfræðinnar, svo gripið sé til orðs
sem Megas bjó til í öðru samhengi.
Maður sér ekki lengur fyrir sér mál-
fræðinga á hvítum
sloppum með saman-
bitnar varir að reyna
að þrífa dönskuslett-
ur af villuráfandi
einstaklingi.
SKOÐUN 16
Einn besti árangur íslenska
kvennalandsliðsins
Íslenska kvennalandsliðið í knatt-
spyrnu gerði 2–2 jafntefli við hið
gríðarlega sterka landslið Svía í
undankeppni HM 2007.
Leikurinn fór fram í Svíþjóð í
gær og þetta eru ein
bestu úrslit íslenska
kvennalandsliðsins frá
upphafi.
ÍÞRÓTTIR 22
Smíðar vélbyssuhreiður
fyrir Eastwood
Leikmyndasmiðurinn og húsasmíða-
meistarinn Ólafur Ingimundarson frá
Hólmavík hefur nóg að
gera þessa dagana en
hann starfar við gerð
Flags of Our Fathers
með Clint Eastwood og
smíðar fyrir kappann
eftir pöntun.
FÓLK 30
Í gólfunum í 20 ár
ÓMAR FRIÐÞJÓFSSON:
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
● fasteignir ● hús
Var› ástfangin
af Líbanon
HRAFNHILDUR GUNNARSDÓTTIR
▲
KVIKMYNDIR 30
FÉKK MANNRÉTTINDAVERÐLAUN FYRIR HEIMILDARMYND
▲
VEÐRIÐ Í DAG
FERÐALÖG Fjórar íslenskar fjöl-
skyldur, 12 manns, eru stranda-
glópar á Hjaltlandseyjum eftir að
skipstjóri Norrænu ákvað að
sleppa viðkomu í eyjunum í síð-
ustu ferð sinni vegna veðurs.
Fólkið átti að koma hingað til
lands með ferjunni síðasta
fimmtudag, en tefst um viku
vegna þessa.
Símon Á. Sigurðsson húsbíla-
eigandi, sem er einn stranda-
glópanna, segir verst hafa verið
að sjá um 80 erlenda ferðamenn
sem ætluðu að sækja landið heim
verða frá að hverfa. Hann segir
hins vegar ekkert hægt að kvarta
yfir viðbrögðum Smyril Line.
„Þeir buðu okkur hvað sem var,
hótel eða flug heim, en við erum
hér á húsbílum og höfum það bara
gott, en þeir ætla að gera gott við
okkur í staðinn. Þeir standa sig
mjög vel í því þótt við séum nátt-
úrlega dálítið leið á heilli viku í
viðbót,“ segir hann, en bætir þó
við að á Hjaltlandseyjum sé
margt að skoða og ein vika hefði í
raun ekki nægt til þess. „Þegar
maður er á húsbíl eru manni allir
vegir færir.“ Símon segir að
vissulega hafi töfin komið sé illa
vegna þess að fólk hafi átt að vera
komið í vinnu, en þeim málum
hafi bara verið reddað.
Fólkið leggur af stað heimleið-
is með Norrænu á morgun og er
væntanlegt til Seyðisfjarðar
næsta fimmtudagsmorgun. - óká
Norræna sleppti viðkomu á Hjaltlandseyjum:
Tólf Íslendingar strandaglópar
KÖNNUN Sjálfstæðisflokkurinn
mælist með 53,5 prósenta fylgi í
Reykjavík samkvæmt nýrri skoð-
anakönnun Fréttablaðsins sem
gerð var um helgina. Þessi niður-
staða þýðir að sjálfstæðismenn
fengju níu borgarfulltrúa en til
samanburðar fékk flokkurinn sex
borgarfulltrúa kjörna í síðustu
borgarstjórnarkosningum. Í könn-
uninni mælist Samfylkingin með
29,7 prósenta fylgi, Vinstri grænir
með 8,8 prósent, Framsóknarflokk-
urinn 4,8 prósent og Frjálslyndir
með 2,2 prósenta fylgi. Samfylk-
ingin og Vinstri grænir eru einu
flokkarnir sem fengju fulltrúa í
borgarstjórn. Samfylkingin fengi
fimm en Vinstri grænir einn.
„Ég er mjög ánægður með þær
niðurstöður sem þessi skoðana-
könnun sýnir. Við sjálfstæðismenn
munum áfram og eftir næstu kosn-
ingar sýna borgarbúum að við
stöndum undir þeim væntingum
sem til okkar eru gerðar. Þó ber
ávallt að hafa í huga að skoðana-
kannanir eru fyrst og fremst vís-
bendingar en ekki heilagur sann-
leikur,“ segir Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, oddviti sjálfstæðis-
manna í borgarstjórn.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
borgarstjóri og borgarfulltrúi
Samfylkingarinnar, segir útkomu
Samfylkingarinnar góða en telur
eðlilegt að staða Sjálfstæðis-
flokksins mælist sterk um þessar
mundir.
„Mikið hefur verið fjallað um
framboðsmál sjálfstæðismanna að
undanförnu, fókusinn hefur verið á
þeim. En fyrir Samfylkinguna eru
þetta fínar niðurstöður og í sam-
ræmi við fylgi flokksins í borginni
í síðustu þingkosningum.“
Alfreð Þorsteinsson, borgar-
fulltrúi Framsóknarflokksins,
segir niðurstöðuna ekki koma á
óvart.
„Ég hef oft séð það svartara en
þetta,“ segir Alfreð. sjá síðu 6
Hátt olíuverð:
Kolmunnavei›-
ar bera sig vart
SJÁVARÚTVEGUR „Það er í raun komið
að þeim tímapunkti nú þegar í
nokkrum veiðiflokkum að það
borgar sig ekki að stunda þær veið-
ar,“ segir Björgólfur Jóhannsson,
forstjóri Síldarvinnslunnar. Kostn-
aður útgerðanna í landinu vegna ol-
íukaupa er að hans mati kominn í
þær hæðir að veiðar á tegundum á
borð við kolmunna sem lágt verð
fæst fyrir borga sig vart lengur.
„Ef við tökum kolmunnaveiðar
sem dæmi þá er verðið það lágt að
þær veiðar sem við stundum í dag
eru á mörkunum að borga sig og
olíuverðið er meginástæðan.
Áhyggjuefnið er heimsmarkaðs-
verðið og þær sífelldu hækkanir
þar sem fáir sjá fyrir endann á.
Sterk krónan er að þessu leyti að
hjálpa gagnvart olíuverði en hún
veldur vandræðum í sölu á okkar
afurðum á móti.“ -aöe
BORGARSTJÓRI RÝNIR Í TÖLUR Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri og fulltrúi Samfylkingarinnar, skoðar niðurstöður skoðanakönn-
unar Fréttablaðsins fyrir utan Ráðhúsið í gærkvöldi.
Stóri bróðir í Hollandi:
Fæ›ir barn
í beinni
HOLLAND Framleiðendur hollenska
Big Brother raunveruleikaþáttar-
ins hafa ákveðið að einn af þátttak-
endunum muni fæða barn í næstu
þáttaröð. Þættirnir sem njóta mik-
illa vinsælda víða um heim snúast
um það að fylgjast með hópi af
fólki sem býr í tiltekinn tíma sam-
an í íbúð og fær ekki að fara þaðan
nema vera kosið út.
Yfirvöld í Hollandi athuga nú
hvort fyrirætlanir framleiðanda
séu yfirleitt leyfilegar, því strang-
ar reglur gilda um börn í hollensku
sjónvarpi. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
NORRÆNA Á SEYÐISFIRÐI Norræna tafðist
vegna veðurs í síðustu ferð sinni, en tekin
var ákvörðun um að sleppa viðkomu á
Hjaltlandseyjum. Af þeim sökum eru þar
tólf Íslendingar strandaglópar.
ÓLÉTT Konan á von á sér eftir sex vikur.
B D F S V
0
9
0
5
1
FJÖLDI BORGARFULLTRÚA
Sjálfstæðismenn fengju öruggan
meirihluta í borgarstjórn samkvæmt
niðurstöðum könnunarinnar.
Sjálfstæ›isflokkurinn
fengi níu borgarfulltrúa
Sjálfstæ›ismenn fengju níu borgarfulltrúa samkvæmt n‡rri sko›anakönnun
Fréttabla›sins. Flokkurinn mælist me› tæplega 54 prósenta fylgi. Samfylking-
in og Vinstri grænir fengju samanlagt sex fulltrúa en Framsókn engan.