Fréttablaðið - 29.08.2005, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 29.08.2005, Blaðsíða 8
1Hvar voru haldnir útitónleikar umhelgina? 2Hvernig sýru var reynt að smygla tillandsins fyrir fáeinum dögum? 3Hver sigraði í kraftakeppninni Suður-nesjatröllið? SVÖRIN ERU Á BLS. 30 VEISTU SVARIÐ? 8 29. ágúst 2005 MÁNUDAGUR SJÚKDÓMAR Fuglablóðögður, sem valdið geta sundmannakláða í mönnum og leitt til útbrota og ofsakláða, fundust nýlega í meira magni í Botnsvatni ofan Húsavík- ur en dæmi eru um í nokkru öðru vatni eða tjörn á Íslandi. Fugla- blóðagða varð fyrst vart í Botns- vatni í fyrra og þá sýktust tugir manna af sundmannakláða. Í kjöl- farið settu heilbrigðisyfirvöld á Húsavík upp skilti sem varar við sýkingarhættunni en þrátt fyrir varnaðarorð hafa nokkrir smitast í sumar. Þorkell Björnsson, heilbrigðis- fulltrúi á Húsavík, segir textann á skiltinu eingöngu á íslensku en í ljósi nýrra upplýsinga um sýking- arhættu verði varnaðarorðum á fleiri tungumálum bætt við, þó líklega verði það ekki fyrr en á næsta ári. Grunsemdir vöknuðu í sumar um að fuglablóðögður væri einnig að finna í baðlóninu sunnan Húsa- víkur en ekki hefur tekist að stað- festa það. Þorkell Björnsson segir baðlónið á ábyrgð Orkuveitu Húsavíkur en vatnið hafi lítið ver- ið rannsakað. „Við vitum ekki bet- ur en baðlónið sé hreint en ef ann- að kemur í ljós þá grípum við til viðeigandi aðgerða,“ segir Hreinn Hjartarson, veitustjóri Orkuveitu Húsavíkur. - kk FUGLAFLENSA Hollendingar eiga hugsanlega yfir höfði sér málsókn vegna ákvörðunar sinnar um að skylda bændur til að halda alifugl- um sínum innan dyra vegna hætt- unar á fuglaflensusmiti, að því er breska blaðið The Guardian skýr- ir frá. Lögfræðingar Evrópusam- bandsins íhuga hvort höfða eigi mál á hendur hollensku ríkis- stjórninni vegna ákvörðunarinnar, því hún hafi stangast á við reglur Evrópusambandsins. Þeir segja að taka skuli ákvörðun sem þessa á sameiginlegum grundvelli og einnig að Hollendingar brjóti lög með því að selja frjálsa kjúklinga á sama verði og áður, þrátt fyrir að þeir séu ekki lengur frjálsir. Ótti á fuglaflensufaraldri í Evrópu jókst í fyrradag þegar finnski landbúnaðarráðherrann tilkynnti um grun um fuglaflensutilfelli í norður-Finn- landi. Niðurstöðu úr rannsóknum er að vænta innan þriggja vikna. - sda Útlendingar ásælast fíkniefnamarka›inn Grí›arlegt magn amfetamíns og e-taflna er framleitt í Eystrasaltslöndunum. Smygltilraun Litháa brennisteinss‡ru til landsins er talin vísbending um a› erlendir glæpahópar vilji flytja flekkingu sína hinga›. EITURLYF Þórarinn Tyrfingsson yfir- læknir á Vogi segir tilraun Litháa til að smygla hingað til lands brennisteinssýru vísbendingu um að erlendir glæpamenn kunni að vera að reyna að flytja þekkingu sína hingað til lands. Sýran er með- al annars notuð til framleiðslu am- fetamíns og amfetamínafbrigða á borð við e-töflur. „Einstaklingar hafa verið að gera þetta að eigin frumkvæði í heimahúsum, en nú er vöknuð spurning um hvort menn eru að flytja á skipulegan hátt inn til Ís- lands þekkingu sem þeir hafa þró- að á sínum heimaslóðum,“ segir Þórarinn og bætir við að ýmislegt bendi til að erlendir glæpamenn renni hýru auga til fíkniefna- markaðarins hér. Jóhann R. Benediktsson, sýslu- maður á Keflavíkurflugvelli, seg- ir lögreglu hafa undirbúið sig til að takast í auknum mæli á við skipulagða glæpastarfsemi og vísar til starfshópa á vegum lög- reglu og tollgæslu sem farið hafi yfir löggjöf og skoðað hvar bæta mætti úr. Hann segir smygltil- raun Litháans ekki eina og sér kalla á breytt vinnubrögð, þó svo hún bendi vissulega til aðkomu al- þjóðlegra glæpasamtaka. „Ég held að löggæslumenn séu almennt meðvitaðir um þessa þró- un. Þessi erlendu burðardýr sem við höfum verið að glíma við um hartnær þriggja ára skeið voru kannski fyrsta vísbendingin sem við fengum um að þessir glæpa- hópar væru að skipuleggja sig betur,“ segir hann og bætir við að burðardýrin komi frá fjölda þjóð- landa. „Hins vegar má segja að þrátt fyrir að amfetamínfram- leiðsla hafi verið reynd hér, þá er þetta, eftir því sem ég best veit, í fyrsta skipti sem við höfum mjög sterka vísbendingu um að sú framleiðsla tengist erlendum aðil- um.“ Þá segir hann að ekki þurfi að koma á óvart hvers lenskur maðurinn er. „Við vitum að í Eystrasaltsríkjunum er hvað mest framleiðsla e-taflna og am- fetamíns í Evrópu.“ Jakob Kristinsson, dósent í eit- urefnafræði við Háskóla Íslands, segir ekki hægt að finna út fram- leiðslustað amfetamíns með efna- greiningu. „En hins vegar er hægt að greina frá hvaða verksmiðju efnið kemur, en það segir ekkert til um í hvaða landi það er fram- leitt,“ segir hann. olikr@frettabladid.is Sjaldgæf orkídea: Saurdaunn af blóminu MELBOURNE, AP Sjaldgæf orkídea frá Nýju-Gíneu blómstraði í ann- að skipti á þrjátíu árum í Melbo- urne í Ástralíu í gær. Margir komu til að sjá orkídeuna blómstra enda er hún ægifögur. Böggull fylgir þó skammrifi, lyktin af orkídeunni þykir vægast sagt viðbjóðsleg. Blómið gefur frá sér sterka lykt til þess að laða að sér flugur sem það síðan étur. Umsjónarmaður grasagarðsins þar sem orkídean er lýsir lyktinni á eftirfarandi hátt: „Ef þú blandar saman tveggja til þriggja daga gömlu rotnandi kjöti og kúaskít held ég að þú kæmist ansi nærri lyktinni.“ PRÍMATAR Átta dýr af tegundinni homo sapiens voru til sýnis í dýragarðinum í Lundúnum. Dýragarður í London: Hefur fólk til s‡nis DÝRAGARÐUR Í dýragarðinum í Lundúnum getur þú talað við dýr- in og sum þeirra svara þér líka. Um helgina voru til sýnis í dýra- garðinum átta dýr af tegundinni homo sapiens. Þarna voru á ferð- inni átta breskir sjálfboðaliðar, þrír karlar og fimm konur, klædd- ir í sundföt með fíkjulauf sem skýldu viðkvæmustu stöðum. Þetta uppátæki yfirmanna dýra- garðsins átti að sýna gestum og gangandi að maðurinn er þegar allt kemur til alls aðeins prímati eins og aðrir apar. ■ FLUGVÖLLURINN Í VATNSMÝRI Skoða á kosti þess að hafa flugvöllinn áfram í Vatnsmýri og kosti þess að flytja hann. Framtíð Reykjavíkurflugvallar: Meta kostna› og a›ra flætti SAMGÖNGUR Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar og skipulags- og byggingarsvið borgarinnar hefja á næstunni athugun á mögu- legri styttingu flugbrauta Reykja- víkurflugvallar og hugsanlegum flutningi flugvallarins á aðra staði á höfuðborgarsvæðinu. Fyrst verða metnir allir þeir staðir sem til greina koma fyrir flugvöllinn í framtíðinni og í framhaldi af því verða vænleg- ustu kostir metnir með hliðsjón af stofnkostnaði, vegtengingum, legu flugbrauta og skipulagi flug- vallarsvæðisins. Vinnan er hugs- uð sem innlegg borgaryfirvalda í samstarf við samgönguráðuneytið um framtíð flugvallarins. - bþg Sandgerðisbær: Selur vatns- veituna SVEITARSTJÓRNARMÁL Samþykkt hef- ur verið í bæjarráði Sandgerðis- bæjar að hefja samningaviðræður við Hitaveitu Suðurnesja um yfir- töku hennar og kaup á Vatnsveitu Sandgerðisbæjar. Vatnsveitan er metin á 135 milljónir, en þegar búið er að afskrifa lagnir er matið um 108 milljónir. Óskar Gunnarsson, forseti bæjarstjórnar í Sandgerði, segir þessa ákvörðun í samræmi við það sem sveitarfélögin á Reykja- nesi hafi verið að gera. „Það er hagræði í því að þessi rekstur sé á einni hendi.“ Stefnt er að því að sölu verði lokið fyrir áramót. - ss KJÚKLINGAR Evrópusambandið er ósátt við ákvörðun Hollendinga um að banna útigang alifugla. Evrópusambandið íhugar að stefna hollensku ríkisstjórninni: Ákvör›un vegna fuglaflensu ólögmæt Ísland og Víetnam: Skrifa› undir samning UTANRÍKISMÁL Fyrir helgi skrifuðu Gunnar Snorri Gunnarsson, ráðu- neytisstjóri utanríkisráðuneytisins, og Vu Dung, sérlegur fulltrúi forsæt- isráðherra Víetnam, undir tvíhliða samning Íslands og Víetnam um við- skipti milli landanna. Hér fundaði Dung meðal annars með Bolla Þór Bollasyni, ráðuneyt- isstjóra forsætisráðuneytis, fulltrú- um fyrirtækja og með Víetnömum sem hér eru búsettir. Fjölmiðlar í Víetnam sögðu Dung hafa þakkað stjórnvöldum hér sérstaklega sveigjanleika í viðræð- unum, sem eru hluti af aðildarferli Víetnam og Alþjóðaviðskiptastofn- unarinnar (WTO), og hjálp við Ví- etnama sem hér búa. - óká SJÚKLINGUR MEÐ SUNDMANNAKLÁÐA Lirf- ur fuglablóðagða fundust fyrst á Íslandi árið 1997 í tjörn í Húsdýragarðinum í Reykjavík eftir að hafa valdið útbrotum og ofsakláða hjá fjölda fólks tvö ár þar á undan. Útbrot og ofsakláði eftir baðferð í Botnsvatn við Húsavík: Vara› vi› s‡kingarhættu EFNIVIÐUR TIL METAMFETAMÍNFRAMLEIÐSLU Efnin hér að ofan voru tekin í rassíu lög- regluyfirvalda í Kansas í Bandaríkjunum í byrjun árs. Árlega kemst upp um fjölda fram- leiðslustaða amfetamíns í Bandaríkjunum þegar í þeim kviknar, en mikil eldhætta fylgir framleiðslunni. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G ET TY I M AG ES
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.