Fréttablaðið - 29.08.2005, Blaðsíða 2
2 29. ágúst 2005 MÁNUDAGUR
BAGDAD, AP Íraskir þingmenn
ákváðu í gær að vísa drögum að
stjórnarskrá landsins til þjóðarat-
kvæðagreiðslu. Súnníar eru mjög
ósáttir við inntak hennar og skora
á alþjóðasamfélagið að koma í veg
fyrir að hún verði samþykkt.
Stjórnarskrárvinnunni í Írak
lauk í gær en þá var uppkastið að
lögunum lesið upp fyrir íraska
þingmenn, án þess þó að þeir
greiddu atkvæði um það. Eftir
fundinn lýstu fulltrúar súnnía í
stjórnarskrárnefndinni að þeir
væru efni plaggsins mjög ósam-
mála og tiltóku þeir sérstaklega
andstöðu við að Írak yrði sam-
bandsríki, að ekki væri kveðið á
um að landið væri arabaríki og að
afdráttarlaust bann væri lagt við
starfsemi Baath-flokksins. „Við
skorum á Arabaráðið, Sameinuðu
þjóðirnar og alþjóðastofnanir að
grípa í taumana svo að þessi lög
verði ekki samþykkt nema að
óréttlætið í þeim verði leiðrétt,“
sagði í yfirlýsingu súnníanna.
Saleh al-Mutlaq, áhrifamaður
úr röðum súnnía, sagði í viðtali
við fréttamenn að nú myndu and-
stæðingar stjórnarskrárinnar
ráða ráðum sínum og ákveða
næstu skref. Hann hvatti súnnía í
landinu til að mótmæla stjórn-
lagafrumvarpinu á friðsamlegan
hátt með því að greiða atkvæði
gegn því í þjóðaratkvæðagreiðsl-
unni 15. október. -shg
Þór Jakobsson telur Katarínu einstakan fellibyl:
Töluver› hætta á fer›
FELLIBYLIR „Þessir fellibyljir
myndast vestur af Afríku en
viss skilyrði þurfa að vera í
sjónum. Það er viss hitamunur
milli hafs og lofts. Síðan eflast
þeir eftir því sem þeir nálgast
vesturströnd Ameríku,“ segir
Þór Jakobsson veðurfræðingur
sem telur töluverða hættu stafa
frá fellibylnum Katrínu. „Þarna
eru gífurlegir kraftar að verki,
ekki síst þar sem bylurinn ýfir
upp sjóinn og flóðbylgja stefnir
að landi,“ segir Þór en landið
sem bylurinn gengur yfir er
ákaflega lágt og sums staðar
fyrir neðan sjávarmál. Þór seg-
ir dofna yfir fellibyljum um
leið og þeir komi á land, en þeir
fái orku frá uppgufun úr haf-
inu.
Hann telur nokkrar breyt-
ingar hafa orðið á myndun felli-
bylja undanfarin ár. „Þeir eru
að byrja fyrr, hafa verið öflugri
og tíðari,“ segir Þór sem telur
Katrínu nokkuð einstaka enda
æði langt síðan fellibylur af
þessum styrkleika hafi gengið
yfir Bandaríkin. - sgi
Íbúar fl‡ja undan
fellibylnum Katrínu
Fellibylurinn Katrína stefnir hra›byri á borgina New Orleans. A›eins flrír
byljir af flessari stær›argrá›u hafa gengi› yfir Bandaríkin frá flví mælingar
hófust. Talsma›ur fellibyljastofnunar segir mannfall óhjákvæmilegt.
BANDARÍKIN Íbúum New Orleans í
Bandaríkjunum var í gær skip-
að að yfirgefa borgina vegna
mikillar hættu frá fellibylnum
Katrínu sem von er á að gangi
yfir borgina í dag. Borgarstjór-
inn, Ray Nagin, hvatti íbúa, sem
eru um hálf milljón, til að taka
viðvörunum alvarlega.
New Orleans stendur í dal
sem er tveimur metrum fyrir
neðan sjávarmál. Aðalhættan
stafar því af flóðum ef stíflu-
garðar sem verja borgina fyrir
ánni Missisippi og öðrum vötn-
um í kringum borgina bresta.
Spár benda til að borgin lendi
í miðju auga bylsins en í gær
hafði kraftur Katrínar aukist og
var metinn fimm stig sem er
það hæsta á Saffir-Simpson
skalanum. Mesti varanlegi vind-
ur sem mælst hefur í
fellibylnum eru 282 kílómetrar
á klukkustund en einstaka vind-
hviður hafa mælst enn meiri.
Sjö hafa þegar látist af völdum
bylsins en hann gekk yfir Flór-
ída á fimmtudag.
Aðeins þrír fellibyljir af
þessari stærðargráðu hafa
gengið yfir Bandaríkin frá því
mælingar hófust en sá síðasti
var árið 1992 þegar Andrés gekk
yfir Suður-Flórída með þeim af-
leiðingum að 43 létust. Árið 1935
létust 600 manns þegar fellibyl-
ur gekk yfir Flórída Keys en
árið 1969 léstust 250 manns þeg-
ar fellibylurinn Kamilla gekk
yfir strönd Mississippi.
Í gærmorgun höfðu götur
New Orleans fyllst af bílum á
leið út úr borginni en einstefna
var sett á stærstu umferðaræð-
arnar til að flýta fyrir brott-
flutningunum. Hótel í allt að 240
kílómetra fjarlægð eru fullbók-
uð en þeir sem geta af einhverj-
um ástæðum ekki yfirgefið
borgina geta leitað skjóls á tíu
opinberum stöðum, þar á meðal
stærsta íþróttaleikvangi New
Orleans. Borgarstjórinn sagði í
sjónvarpsræðu sinni að fólk ætti
að taka með sér mat til allt að
fimm daga.
Talsmaður fellibyljastofnun-
arinnar í Miami sagði að mann-
fall væri óhjákvæmilegt. Ef
Katrína kæmi að landi eins öfl-
ug og hún var í gær yrði þetta
öflugasti stormur sem nokkurn
tíma hefði gengið yfir ríkið.
solveig@frettabladid.is
OMRI SHARON Er ákærður fyrir að halda
leyndum ólöglegum fjárframlögum í kosn-
ingasjóð föður síns.
Sonur Ariel Sharon:
Ákær›ur fyrir
spillingu
ÍSRAEL, AP Omri Sharon, sonur for-
sætisráðherra Ísraels Ariel Shar-
on, hefur verið ákærður fyrir
spillingu. Hann er grunaður um
að hafa haldið leyndum ólöglegum
fjárframlögum í einn af kosninga-
sjóðum föður síns með því að nota
uppspunnin fyrirtæki.
Ákærurnar ná til ársins 1999
þegar Ariel Sharon varð leiðtogi
Likud flokksins og þar með í
framboði til forsætisráðherra-
embættisins. ■
Fuglaflensa í Finnlandi:
Ekki banvæn
FUGLAFLENSA Yfirvöld í Finnlandi
tilkynntu um helgina að líklega
hefði fundist fuglaflensusmit í
mávi í bænum Oulu í norðurhluta
landsins. Þrátt fyrir það er talið
ólíklegt að vírusinn sem fannst sé
af gerðinni H5N, sem er sá stofn
sem leitt hefur sextíu manns til
dauða í Asíu. Nýlegur
fuglaflensufaraldur í austurhluta
Rússlands hefur leitt ellefu þús-
und fugla til dauða og 120 þúsund
til viðbótar hefur verið slátrað.
Tilkynning finnskra yfirvalda
kom aðeins degi eftir að Samein-
uðu þjóðirnar hvöttu aðildarlönd
sín til að fylgjast vel með smiti í
farfuglum. ■
LÖGREGLUFRÉTTIR
INNBROT Á HÚSAVÍK Brotist var
inn í íþróttahúsið á Húsavík í
fyrrinótt. Engu var stolið en
skemmdir voru unnar. Lögregla
náði brotamanninum fljótlega og
telst málið upplýst.
HNEFAR Á LOFTI Mikið var um
slagsmál og læti í miðbæ Akur-
eyrar aðfaranótt sunnudagsins en
þar fór fram menningarhátíð
svipuð Menningarnótt í Reykja-
vík. Fóru hátíðahöldin í skapið á
mörgum sem létu hnefana tala en
engin alvarleg meiðsl voru þó til-
kynnt.
BÍLVELTA FYRIR UTAN AKUREYRI
Bíll valt á þjóðveginum skammt
fyrir utan höfuðstað Norðurlands
snemma í gærmorgun. Var öku-
maður einn í bílnum og sakaði
hann ekki.
FJÖGUR FÍKNIEFNAMÁL Fjögur
fíkniefnamál komu upp í um-
dæmi lögreglunnar á Akureyri í
gærnótt. Var í öllum tilvikum um
lítið magn til einkaneyslu að
ræða og gerði lögregla efnin upp-
tæk.
Mótmælendurnir við
Stjórnarráðið:
Líklega
ákær›ir
LÖGREGLUMÁL Mótmælendurnir
sem voru handteknir eftir að hafa
klifrað upp á þak Stjórnarráðsins
og flaggað þar borða með áletrun
gegn álverum í stað íslenska þjóð-
fánans sem þar venjulega blaktir
verða að líkindum ákærðir fyrir
tiltækið.
Að sögn Geirs Jóns Þórissonar
yfirlögregluþjóns í Reykjavík er
mál tvímenninganna ekki enn
komið til lögfræðinga embættis-
ins en hann átti frekar von á
ákærum í málinu enda
skemmdust þakplötur
stjórnarráðsins lítillega við
tiltækið. - aöe
SPURNING DAGSINS
Jörundur, er vörn besta
sóknin?
“Alveg tvímælalaust og hefur alltaf verið.“
Jörundur Áki Sveinsson er þjálfari íslenska kvenna-
landsliðsins sem þótti óheppið að sigra ekki Svía í
leik þjóðanna í Svíþjóð í gær. Leikurinn endaði 2-
2 en aðaláherslan fyrir leikinn var vörnin.
LÖGREGLUFRÉTTIR
ÞÓR JAKOBSSON Telur nokkar breytingar
hafa orðið á myndun fellibylja síðustu ár.
FLÓTTI Allar götur sem liggja frá New Orleans voru tepptar í gær þegar íbúar borgarinnar
flúðu undan fellibylnum Katrínu.
Eldsvoðinn í Stigahlíð:
Konan enn
flungt haldin
SLYS Konan sem slasaðist alvar-
lega í eldsvoða í Stigahlíð snemma
á laugardagsmorgun liggur enn
þungt haldin á gjörgæsludeild
Landspítala-Háskólasjúkrahúss.
Konan hlaut alvarlega reyk-
eitrun og slæm brunasár en
reykkafarar frá slökkviliðinu
fundu hana meðvitundarlausa á
gólfi íbúðarinnar nokkrum mínút-
um eftir að tilkynning barst um
eldinn. - aöe
HEITT Í HAMSI Saleh al-Mutaq (til vinstri)
og Abdul-Rahman al-Nueimi, formælendur
súnnía, segja stjórnarskrárdrögin óásætt-
anleg og hvöttu trúbræður sína til að
hafna þeim í þjóðaratkvæðagreiðslunni.
Órói í miðborginni:
Lögreglumenn
lentu í átökum
LÖGREGLUMÁL Lögreglumenn í mið-
borginni lentu í átökum við hóp
fólks í gærnótt þegar maður var
handtekinn fyrir utan skemmti-
stað fyrir slagsmál. Þótti félögum
mannsins það súrt í broti og réðust
að lögreglumönnunum. Voru tveir
til viðbótar handteknir í kjölfarið.
Fjölmargir aðrir gistu fanga-
geymslur vegna ýmissa brota.
Allmargir voru teknir ölvaðir
undir stýri og almennur erill var
víða um borgina. Furðuðu lög-
reglumenn sig á að svo virðist
sem haustkoma fari illa í marga
íbúa enda hafa síðustu þrjár helg-
ar verið annasamari en gengur og
gerist. -aöe
Súnníar hvattir til að greiða atkvæði gegn stjórnlagafrumvarpinu:
Írakar kjósa um stjórnarskrá
HUGA AÐ SKOÐUN OG TRYGG-
INGUM Lögreglan á Egilsstöðum
klippti um helgina númer af
þremur bílum vegna vangoldinna
trygginga og sjö til viðbótar voru
boðaðir í skoðun, en hugað var
sérstaklega að þessum þáttum í
umferðareftirliti. Lögreglan seg-
ir ekki langan lista yfir óskoðaða
bíla í umdæminu, en á honum
eigi sér alltaf stað nokkur endur-
nýjun.