Fréttablaðið - 29.08.2005, Side 12

Fréttablaðið - 29.08.2005, Side 12
„Það nærtækasta er að hér er norðanátt ríkj- andi, golan er köld en það er bjart,“ svarar Grímur Gíslason, fréttaritari Ríkisútvarpsins á Blönduósi, aðspurður um helstu tíðindi. Grími er náttúran hugleikin og fylgist vel með áhrifum hennar á mannanna verk. „Bændur hafa verið að hirða hána sína enda nota þeir til þess hverja stund þegar ekki rignir. Greinargóðar fréttir Gríms af aflabrögðum í húnvetnskum laxveiðiám eru mörgum kunn- ar en hann hefur verið fréttaritari Ríkisút- varpsins um langt árabil. „Ég sendi fréttir tvisvar í mánuði og fer í það um næstu helgi að taka saman nýjar tölur,“ segir Grímur en að hans sögn hefur veiðin almennt verið góð þótt árnar hafi verið svolítið seinar til. „Svo gerðist það reyndar að Blöndulón fyllt- ist upp úr miðjum mánuðinum og þá beljaði jökulvatnið niður Blöndu. Þá reyndist erfitt að veiða í ánni.“ Grímur stundar ekki laxveiðar sjálfur en gerði það fyrir áratugum þegar hann var stráklingur. Það hvítnaði í fjöllum í Húnavatnssýslunum um helgina og segir Grímur þau fögur ásýndar. „Það er ákaflega fallegt að horfa á fjöllin með þessar hvítu húfur. Hér er að verða haustlegt og töluvert lauffok var á dögunum.“ Göngur eru að hefjast í sýslunum og lögðu menn af stað inn á Hveravelli í þeim er- indagjörðum í gær. Grímur fylgist vitaskuld með þeim eins og öðru markverðu sem gerist í Húnavatnssýslu. 12 29. ágúst 2005 MÁNUDAGUR Nor›anáttin ríkjandi og fjöllin me› hvíta kolla HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? GRÍMUR GÍSLASON FRÉTTARITARI nær og fjær OR‹RÉTT„ “ Íslandsmótið í kranastjórnun: Ver›launahafarnir vinna saman Þau undur og stórmerki urðu á Ís- landsmótinu í kranastjórnun á föstudag að þeir þrír sem unnu til verðlauna vinna allir hjá sama fyr- irtækinu. Heitir það Feðgar ehf og sinnir alhliða byggingaverktöku. Ingi Björnsson hafnaði í fyrsta sæti en það voru faðir hans og afi sem stofnuðu fyrirtækið. Er Ingi smiður að mennt og þriðji smiður- inn í beinan karllegg í fjölskyld- unni. Ingi er sonur Björns Bjarna- sonar sem aftur er sonur Bjarna Björnssonar. „Þetta var mjög gaman og ég er ánægður með sigurinn,“ sagði Ingi þegar Fréttablaðið náði af honum tali í gær. Hann hefur gaman af að stjórna krana og segir starfið ekki einmanalegt eins og sumir kunna að halda. „Það er liðin tíð að menn fari upp í kranana, nema kannski þá allra stærstu,“ segir hann. „Mað- ur er bara niðri með strák- unum og stjórnar með fjar- stýringu.“ Feðgar hafa yfir fimm krönum að ráða, eiga þrjá og leigja tvo. Í flotanum er meðal annars Liebherr 42 K1 krani en á slíkum verður keppt á Evrópumeistara- mótinu í kranastjórnun sem fram fer í Þýskalandi í haust. Ingi Íslandsmeistari verður vitaskuld okkar full- trúi þar og sú keppni leggst vel í hann. „Ég hef komið til bæjar- ins þar sem mótið verður og þekki því aðstæður. Svo erum við með 42 K1 krana þannig að ég get æft mig á honum.“ Ómar Theodórsson, samstarfsmaður Inga hjá Feðgum, varð annar og vakti árangur hans tals- verða athygli þar sem Ómar hefur aðeins sinnt kranastjórnun í fimm mánuði. Í þriðja sæti hafn- aði svo Bjarni Bjarnason en hann er einmitt föður- bóðir Inga Íslandsmeist- ara. Yfir 40 keppendur tóku þátt í þessu fyrsta Íslands- móti í kranastjórnun, meðal annars einn frá Akureyri. bþs FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E YS TE IN N S IN D R I E LV AR SS O N „firátt fyrir flessi or› er fletta hinn sami Sacranie og sag›i, ári› 1989, a› „dau›i væri hugsanlega of væg refsing“ fyrir höf- und „Söngva Satans“. SALMAN RUSHDIE RITHÖFUNDUR Í FRÉTTABLAÐINU. „fia› er óskrifu› regla a› stjórnmála- menn fá a› kynna frambo› sín til emb- ætta í fullkomnum fri›i.“ ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON ÞING- MAÐUR Í FRÉTTABLAÐINU. Steingrímur Njálsson í Vesturbæinn Foreldrar í KR-hverfinu varaðir við Landsmót hagyrðinga: Kristján Bersi hei›ursgestur Kristján Bersi Ólafsson, fyrrver- andi skólameistari Flensborgar- skólans í Hafnarfirði, verður heiðursgestur á Landsmóti hag- yrðinga á Hótel Sögu á laugardag. Veislustjóri verður annar gamall skólamaður, Þór Vigfússon, fyrr- verandi skólameistari Fjölbrauta- skóla Suðurlands, sem helst hefur helgað líf sitt draugum síðustu ár. Skráning á landsmótið er í síma 824 5311 eða í netfanginu landsmot@hotmail.com. Að sögn Sigrúnar Haralds- dóttur, sem situr í undirbúnings- nefnd mótsins, er mikill hugur í hagyrðingum og útlit fyrir góða þátttöku. Má vænta fjörugrar og glaðlegrar samkomu enda segir máltækið: „Þar sem tveir eða fleiri hagyrðingar koma saman - þar er gaman.“ - bþs Í STUÐI MEÐ GUÐI Hindúatrúaðir Bangla- desh-búar héldu helgina hátíðlega og fögnuðu fæðingu guðs síns, Krisna. Vefverslunin portus.is tók nýlega til starfa en í gegnum hana er hægt að kaupa hljómtæki af ýms- um stærðum og gerðum. Eigend- ur portus.is eru kærustuparið Drengur Óla Þorsteinsson og Jóna Benný Kristjánsdóttir sem búsett eru á Höfn í Hornafirði. Þaðan er Jóna Benný en Drengur Óla er ættaður frá Þórshöfn á Langanesi. „Ég bjó í Svíþjóð og fylgdist með miklum uppgangi í allri vef- verslun, ekki síst með hljóm- tæki,“ segir Drengur Óla sem lengi hefur haft áhuga á allra handa græjum. Þegar hann flutt- ist til Íslands á ný kannaði hann hvernig ástatt væri á net-hljóm- tækjamarkaðnum og afréð í fram- haldinu að opna vefverslun með Jónu Benný. „Ég varð mér úti um tölvukerfi og hafði samband við framleiðendur og úr varð port- us.is,“ segir Drengur Óla. Vöru- merkin sem þau skötuhjúin bjóða til kaups eru fæstum Íslendingum vel þekkt en þau eru til dæmis kínversku tækin CAV og Xindak, Yamakawa frá Þýskalandi og MarcusCables og Dynavoice frá Svíþjóð. Drengur Óla efast ekki um gæði þessara tækja og fullyrð- ir að í sumum tilvikum sé um sömu vöru að ræða og seld er í verslunum á Íslandi undir öðrum vörumerkjum. „Kína er að verða helsta framleiðsluland heimsins og næstum öll raftæki eru fram- leidd þar. Og oft eru sömu tæki smíðuð fyrir mismunandi vöru- merki.“ Drengur Óla segir þau Jónu Benný geta boðið mjög hagstætt verð því vörurnar fari til kaup- anda nánast milliliðalaust frá verksmiðjunni. Þau taka þó sitt eins og gengur. Vörunum verður dreift með Póstinum og segist Drengur Óla verða mjög svekktur ef þær ber- ast ekki kaupendum einum til tveimur sólarhringum eftir við- skiptin. bjorn@frettabladid.is Kærustupar í Hornafir›i selur hljómtæki á netinu Ungt fólk á Hornafir›i hefur hleypt af stokkunum vefverslun me› hljómtæki og b‡›ur upp á vörur á bor› vi› CAV, Xindak og Yamakawa. DRENGUR ÓLA OG JÓNA BENNÝ Höfuðstöðvar portus.is eru á Höfn í Hornafirði en lagerinn er á Akureyri. KRANI Starf krana- stjórans er ekki jafn einmanalegt og margur kann að halda.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.