Fréttablaðið - 29.08.2005, Qupperneq 18
Skipasund 82, 104 Reykjavík – s. 552 6255
www.ammaruth.is • Opið virka daga 14-18
Varanleg verðlækkun
á ýmsum munum, m.a.
mánaðarbollum og mæðra- og jólaplöttum
El
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
]HaustblómNú fer að koma tími á að taka sumarblómin úr pottunum og setja haust-blómin í staðinn. Erikur eru vinsælar á þessum árstíma en á hverju ári bæt-ast við nýjar tegundir af plöntum sem hægt er að setja í potta á haustin.[
Á dögunum var opnuð ný og
glæsileg hurðadeild í verslun-
inni Parkett og gólf.
Ómar Friðþjófsson, framkvæmda-
stjóri verslunarinnar Parkett og
gólf, hefur selt gólfefni í 20 ár. Fyr-
irtækið sjálft fagnar einnig 20 ára
afmæli um þessar mundir og af því
tilefni var mikið um dýrðir síðast-
liðinn föstudag. Ný hurðadeild var
opnuð með pompi og prakt og að
auki kom fjöldi erlendra fyrirlesara
til að fræða gesti um parkett. Ómar
segir að í starfi sínu hafi hann alltaf
lagt áherslu á hið faglega og þess
vegna hafi verið vel við hæfi að
halda upp á afmælið á þessum
fræðilegu nótum. „Við fengum
hingað sjö fyrirlesara og þetta tókst
allt saman mjög vel. Hingað var
boðið fjölda fólks allt frá hönnuðum
til parkettslípara.“
Á þeim tuttugu árum sem liðin
eru frá því Ómar hóf að flytja inn
parkett hefur hann komið víða við.
„Nokkur verkefni standa uppúr.
Lagning parketts á Bessastaði,
Listasafn Íslands, Ráðhús Reykja-
víkur, Hótel Sögu og nú síðast Al-
þingishúsið eru þau verkefni sem
ég er stoltastur af,“ segir Ómar.
Hann segir að fyrirtækið hafi tekið
miklum breytingum í gegnum tíð-
ina og úrvalið aukist stöðugt. „Í
fyrra opnuðum við deild með
veggjaefni og í tengslum við afmæl-
ið núna þótti okkur tilhlýðilegt að
taka eitt skref til viðbótar og bæta
við okkur glæsilegri hurðadeild.
Maður hefði svona haldið að allt það
besta sem völ er á væri þegar kom-
ið á markað hérna en svo fundum
við þýskan framleiðanda sem var að
byrja útflutning á afar vönduðum
hurðum. Vörumerkið er Lebo og úr-
valið er gríðarlega mikið,“ segir
Ómar og viðurkennir að hann sé
afar montinn af nýju deildinni sem
er bæði stór og glæsileg.
Verslunin Parkett og gólf er í Ár-
múla 23.
Þegar búið er undir súð eru
það þakgluggarnir sem gilda,
það er að segja þar sem ekki
eru kvistir.
Þakgluggar þurfa endurnýjunar og
viðhalds við eins og annað sem úr
sér gengur. Mestu skiptir þó að vel
sé gengið frá þeim í upphafi.
„Reglan er að láta alltaf efri plötu
fara yfir neðri plötu svo ekki
myndist leki. Það gildir allsstaðar,
jafnt kring um þakglugga sem ann-
ars staðar,“ segir Grétar Guð-
mundsson, húsasmiður þegar hann
lýsir fráganginum. Hann segir inn-
flutta Velux þakglugga fást í bygg-
ingavöruverslunum og lýkur á þá
lofsorði. „Þeir eru með blikksvunt-
um sem ganga undir járnið að ofan
og svo yfir að neðan og það er ekki
erfitt að ganga frá þeim,“ segir
hann og bætir við. „Hitt er annað
mál að þegar verstu veður koma,
rigning og rok eins og gekk yfir
síðasta vetur þá leka næstum öll
hús. Vatnið fýkur bara upp þökin
og smýgur undir plöturnar. En það
er bara tilfallandi.“
Grétar segir ýmis þéttiefni til
sem hægt sé að nota meðfram þak-
gluggum. Nefnir efni eins og
Sikaflex-15 LM kítti sem er oft not-
að við ísetningu, binst bæði við
stein og járn og fæst í málningar-
vörudeildum byggingaverslana.
Einnig SikablackSel-1 sem er notað
til viðgerða. „Ef um stórar rifu er
að ræða er gott að setja grisju yfir
hana áður en efninu er sprautað á,“
segir Grétar. Þéttiefnið Fill Coat
nefnir hann líka. Það er sett á með
pensli og er eins og málning í byrj-
un en verður gúmmíkennt.
Þeir sem búa við þakglugga
þurfa vissulega að muna að skilja
þá ekki eftir galopna þegar farið er
að heiman því alltaf getur komið
skúr og þá rignir inn. Sumir glugg-
ar eru með góðan loftræstibúnað
og á þeim er hægt að hafa rifu án
þess að eiga á hættu að fá yfir sig
dembu.
Ómar hefur unnið með gólfefni í 20 ár. Í gegnum tíðina hefur hann tekið að sér ýmis
verkefni, meðal annars gólfin í Alþingishúsinu og á Bessastöðum.
Verslunin stækkaði mikið þegar nýja
hurðadeildin var stofnuð. Þar eru seldar
hágæða hurðir frá þýska framleiðandan-
um Lebo.
Leggja áherslu á faglegu hliðina
Þéttingar meðfram þakgluggum
Velux þakgluggar eru með loftræstibúnaði.
Efni sem hægt er að nota til þéttingar ef
leka verður vart. Þau fundum við í Bykó.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA