Fréttablaðið - 29.08.2005, Page 73
Samfylkingin á leikinn í næstu kosningum
Nú er ljóst að Reykjavíkurlistinn
býður ekki fram með sama hætti
og gert hefur verið í þrennum
undangengnum kosningum. List-
inn hefur staðið fyrir stórstígum
framförum, en nú vilja ýmsir fara
aðrar leiðir í pólitísku starfi. Það
ber þó að undirstrika að R-listinn
hefur lyft Grettistaki í leikskóla-
málum, komið á einsetningu
skóla, bætt félagsþjónustu fyrir
alla aldurshópa, umhverfi og að-
stöðu fyrir tómstundastarf. Reyk-
vískar fjölskyldur hafa á síðasta
áratug fundið fyrir stórbreytingu
til batnaðar. Það er hins vegar
ekki pólitísk samstaða um að
bjóða fram sameiginlega á svipuð-
um nótum og áður. Ný staða krefst
nýrra leiða.
Samfylkingin hefur verið trú
stefnu sinni, nafni og uppruna, en
stjórnmálin þurfa að þróast áfram
og taka mið af breyttum aðstæðum.
Við viljum samfylkja áfram öllu fé-
lagslega sinnuðu fólki í baráttunni
fyrir betra samfélagi. Nú ætlum við
í Samfylkingunni að einhenda okkur
í að fara ítarlega yfir borgarmálin
fyrir komandi kosningar og við
hvetjum flokksmenn sem og aðra
sem vilja fylkja liði með okkur til að
taka þátt í mótun stefnu fyrir fram-
tíð borgarbúa. Á grundvelli þeirrar
stefnu munum við bjóða fram sigur-
stranglegan lista í kosningunum að
vori.
Af þeim stefnumiðum sem koma
munu til sérstakrar skoðunar eru
skipulags- og samgöngumál, efling
skóla- og menntastarfs á öllum stig-
um, þróun velferðarþjónustu og
íþrótta- og tómastundastarfs og efl-
ing umhverfisvaktar. Endurmennt-
un og endurhæfing mun verða fyr-
irferðarmeiri á næstu áratugum og
málefni aldraðra krefjast nýrra og
bættra úrræða. Við viljum lýðræð-
islegt samfélag, þar sem allir eiga
möguleika á þátttöku í samfélags-
þróuninni.
Flugvallarsvæði og innanlands-
flug hafa verið til umræðu þessa
dagana. Borgin þarf núverandi flug-
vallarland undir íbúabyggð og þró-
un háskólasvæðis. Niðurstaða kosn-
inga meðal borgarbúa var sú að
flugvöllurinn skyldi fara að ákveðn-
um tíma liðnum. Það þarf bara að
finna þann kost sem hagkvæmastur
er og sem best sátt getur skapast
um. Þar eru nokkrir staðir nefndir
og þá þarf að skoða fordómalaust.
Hér er um stórt mál að ræða sem
krefst vandlegrar yfirlegu, en hafa
ber í huga að þótt enn sé nokkur
tími til stefnu áður en endanlega
ákvörðun um staðsetningu verður
að taka verður að undirbúa ákvörð-
un í tíma. Því er mikilvægt að fram-
tíðarhorfur og þróun séu metnar af
sem mestri kunnáttu.
Um þessi mál og fleiri verður
fjallað í málefnastarfi Samfylking-
arinnar næstu vikurnar. Þau verða
síðan borin fram af fulltrúum okkar
í komandi kosningum sem valdir
verða á lýðræðislegan og opinn hátt.
Þar eigum við öfluga fulltrúa og
sjálfsagt munu fleiri borgarbúar
óska eftir því að koma til liðs við
okkur. Samfylkingin á samleið með
borgarbúum. Það mun verða öflug
og lýðræðisleg hreyfing okkar sem
býður fram til borgarstjórnarkosn-
inga í vor. Þá mun nýr kafli hefjast í
pólitískri sögu borgarinnar.
Höfundur er formaður Hverfa-
félags Samfylkingar í Breiðholti.
17MÁNUDAGUR 29. ágúst 2005
Algjör misskilningur
Daglega vekja fréttir eða fréttaskýringar í
fjölmiðlum hugleiðingar um eitthvað,
sem kannski væri tilefni til að ræða í dag-
bókinni. Í dag, laugardaginn 27. ágúst, sé
ég til dæmis, að Guðmundur Magnússon
leitast við að gera mér upp þá skoðun í
Fréttablaðinu, að mér finnist eitthvað
óeðlilegt við, að eigendur fjölmiðla hafi
skoðanir á efni þeirra og láti þá skoðun í
ljós við þá, sem annast ritstjórn miðl-
anna. Þetta er algjör misskilningur hjá
Guðmundi. Mér finnst ekkert óeðlilegt
við þetta. Hitt er síðan annað mál, hvort
ritstjórar og blaðamenn fara eftir slíkum
ábendingum og hvað gerist, ef það er
ekki gert.
Björn Bjarnason á bjorn.is
Ungir kjósendur
Framboð Gísla Marteins ber ekki síst að
meta í því ljósi að mjög stór hópur kjós-
enda er undir 35 ára aldri og væntir þess
að eiga öfluga fulltrúa á þingi og í bæjar-
stjórnum sveitarfélaga. Þessa fulltrúa hef-
ur vantað hin síðari ár í öllum flokkum og
því gæti skapast mikil stemmning fyrir
framboði Gísla innan Sjálfstæðisflokksins
um leið og andstæðingar hans munu að
öllum líkindum taka höndum saman og
fylkja sér um framboð Vilhjálms og mun
hann eflaust leita eftir bandalögum við
ýmsa í því sambandi. Það gæti þýtt hrein-
ar átakalínur hjá sjálfstæðismönnum
næstu tvo mánuðina og verður spenn-
andi að fylgjast með.
Björn Ingi Hrafnsson á bjorningi.is
Ekki lúta að smáu
Flokkssystir mín Steinunn Valdís sagði í
RÚV að framboð Stefáns Jóns Hafstein í
fyrsta sæti á borgarstjórnarlista Samfylk-
ingarinnar kæmi sér ekki á óvart því hann
væri búinn að ganga lengi með borgar-
stjórann í maganum. Mér fundust þetta
heldur óviðkunnanleg ummæli hjá borg-
arstjóranum. Í stjórnmálum er það yfirleitt
óskrifuð regla að menn fá að vera í friði
þegar þeir tilkynna framboð í embætti al-
veg einsog stjórnmálaforingjar láta aðra
flokka í friði með stórfundi einsog lands-
þing. Foringjar eiga ekki að lúta að smáu.
Össur Skarphéðinsson á ossur.hexia.net
Færi létt með það
Það verður einnig hart barist í Samfylk-
ingunni. Steinunn Valdís er sitjandi
borgarstjóri og getur því ekki annað en
boðið sig fram í fyrsta sætið. Stefán Jón
er núverandi oddviti listans og ætlar að
bjóða sig fram í það sæti áfram. En
áætlanir þeirra beggja gætu runnið út í
sandinn ef Össur lætur slag standa og
gefur kost á sér sem borgarstjóraefni.
Össur hefur staðið sig feikilega vel eftir
að hann tapaði formannsslagnum fyrir
svilkonu sinni. Flokksmenn eru honum
þakklátir fyrir það og velviljaðir. Er viss
um að hann færi létt með að ryðja þeim
báðum úr vegi.
Eiríkur Bergmann Einarsson á eirik-
urbergmann.hexia.net
AF NETINU
SENDIÐ OKKUR LÍNU
Við hvetjum lesendur til að senda okk-
ur línu og leggja orð í belg um málefni
líðandi stundar. Greinar og bréf skulu
vera stutt og gagnorð. Eingöngu er tek-
ið á móti efni sem sent er frá Skoðana-
síðunni á visir.is. Þar eru nánari leið-
beiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni
birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í
báðum miðlunum að hluta eða í heild.
Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til
að stytta efni.
STEFÁN JÓHANN STEFÁNSSON
STJÓRNMÁLAFRÆÐINGUR
UMRÆÐAN
KOMANDI
KOSNINGAR