Tíminn - 03.08.1975, Blaðsíða 17

Tíminn - 03.08.1975, Blaðsíða 17
Sunnudagur 3. ágúst 1975. TÍMINN 17 Súlur, fyrra hefti 1975. tltg. Fagrahlfð s.f. Akureyri. SÚLUR heitir timarit, sem gefið er út á Akureyri. Útgef- andi er Fagrahlið s.f., en rit- stjórar eru Jóhannes Óli Sæmundsson og Erlingur Daviðsson. Efni þessa heftis Súlna er eins og jafnan hefur verið áður, það sem einu nafni er kallað þjóðlegur fróðleikur. Ritið hefst á langri og góðri grein eftir Jóhannes Óla Sæmundsson um ofviðrið mikla við Eyjafjörð 20. sept. árið 1900. Jóhannes óli gerir mjög skilmerkilega grein fyrir efninu og styðzt þar við frásagnir fólks, sem ekki að- eins varð vitni að atburðun- um, heldur tók lika þátt i þeim. Jafnframt rekur höf- undur eldri frásagnir af of- viðrinu og skaðanum sem það olli, og kemur þá i ljós, að heimildum ber ekki alls kostar saman. Með þessu hefur Jó- hannes Óli unnið mikið þarfa- verk, þvi að flestum hættir til að trúa i blindni „gömlum heimildum”, en villur og mis- sagnir hafa ótrúlegt lag á þvi að smokra sér inn i ritað mál, — jafnvel hinna ágætustu fræðimanna, — og geta orðið furðulifseigar, ef ekki er við þeim hróflað. Af öðru efni Súlria má nefna álfa- og huldufólkssögur, sögur um álagabletti, skyggni og fleira þvi likt. Margt af þessu efni er smátt og dálitið sam- tiningslegt, en áréttar þó og undirstrikar það sem við viss- um áður um hugsunarhátt og tilfinningalif feðra okkar og mæðra, —viðhorf, sem enn eiga djúpar rætur i islenzkri þjóðar- sál. Auðvitað er hverjum sem er frjálst að hæðast að forfeðrum okkar — og mæðrum fyrir að trúa þvi að til væri huldufólk og álfar, en er vist að siðari tima íslendingar liti með eintómri virðingu til okkar sem höfum gert hraða, hávaða og lifsgæða- kapphlaup að rilíustu þáttunum i lífi okkar? . Ein ánægjuíegasta lesningin i Súlum að þessu sinni er sendi- bréf,' sem séra Sigtryggur Guð- laugsson á Núpi hefur skrifað æskuvini sinum, Guðmundi Sæmundssyni á Lómatjörn i Höfðahverfi. Bréfið er dagsett á Núpi i Dýrafirði 4. nóv. 1936, 1 bréfinu ræðir séra Sigtryggur um fjárhag sinn og heimilis- ástæður, minnist á siðari konu sina og segir: „Við höfum eign- ast tvo drengi. Er sá eldri 15 ára á morgun og heitir Hlynur. Hinn er 7 ára og heitir Þröstur. Sérðu, að nöfnin minna á gróður jarðar og söng. Nú á Hlynur að byrja i menntaskólanámi i vetur, þótt heima verði að þessu sinni. Er hann hneigður til bóka, einkum þeirra, er snerta náttúru- fræði..” Siðan segir prestur i gamansömum tón, að sonur sinn sé liklegri til andlegrar iðju en llkamlegs strits, og vonar „að hann geti notað sálarhæfi- leika sér til framfæris.” Þessi yfirlýsing kemur lesandanum siztá óvart, þvi að við vitum, að ungi drengurinn, sem um er rætt, er enginn annar en núver- andi veðurstofustjóri, Hlynur Sigtryggsson. En það er fleira fróðlegt i bréfi séra Sigtryggs: „Skólanum sleppti ég 1929. Voru þá hús þau, er ég hafði smá-byggt honum metin á rúm- ar 20 þús. krónur. Taldist ég eiga af þvi um 18 þús. (hitt byggt fyrir opinbera styrki) og gerði ég kröfu til helmingsborg- unar (kr. 9000). Þar af þurfti ég strax að fá upp i skuld kr. 3000, sem ég lika fékk.Hitt, kr. 6000, átti að vinnast upp smám saman, með afborgunum og rentum af eftirstöðvum. En efnahagur skólans hefur siðan verið svo, að hann hefir ekki einu sinni getað greitt mér rent- ur og lítur eigi vel út með um- bæturiþvi efni.” Sjálfsagt þætti mörgum embættismanninum þetta hart aðgöngu nú á dögum, — og ekki að ástæðulausu. Ein er sú tegund frásagna i Súlum, sem ekki má láta hjá liða að minnast á. Það eru dýra- sögumar. Fögur er lýsing Er- lings Daviðssonar á þvi (bls. 40- 41), þegar tvær grenjaskyttur sáu yrðlinga að leik úti fyrir grenismunna, og þá brá svo við, að þeim hvarf öll veiðilöngun, „sneru til byggða og höfðu ekk- ert greni fundið!” Og bráð- skemmtileg er siðasta frásagan i Súlum, þar sem Jóhannes Óli Sæmundsson segir frá viðskipt- um Spora og Kempu, túnrollu, sem alltaf stóð framan i. Þar kemur fyrir sögnin að „sólhendast” = að flýja i hendingskasti. — Þetta órð hef ég aldrei heyrt fyrr. En ekki eru allar sögur, þar sem sagt er frá dýrum, jafn- ánægjulegar. Atakanleg er frá- sögn Jóhannesar Sigvaldasonar af þvi, þegar hundur hefði vafa- laust bjargað mannslifi, ef eig- andinn hefði sinnt bendingum hans. Lif Islendinga á íslandi hefur frá upphafi verið samofið lifi hesta og hunda, að ógleymdu sauðfé og kúm og geitum. Það hafa verið skrifaðar bækur um hesta og samskipti manna við þá, og nú er meira en kominn timi til þess að skrifað verði um samskipti manns og hunds. Hundurinn er vafalaust elzta húsdýr mannanna og hefur orðið þeim handgengnari en nokkur önnur skepna. Og eitt- hvað hefði gæzla sauðfjár orðið skrýtin á Islandi og viðar, ef hundsins hefði ekki notið við. Þess var getið hér að framan, að verulegur hluti af efni Súlna væri smátt og bæri á sér nokkurn blæ samtinings. Hér SÚLURNAR í FÖGRUHLÍÐ hafa þvi ekki verið tök á að ræða um nándarnærri allt, sem i rit- inu stendur: til dæmis hefur al- veg verið gengið framhjá kveð- skapnum, sem þó er mjög ómaklegt. Segja má lika, að efnið sé helzti einhæft. Hvernig væri að birta i fram- tiðinni eins og eitt veigamikið kvæði eftir eitthvert af höfuð- skáldum vorum i hverju hefti, og segja um leið frá höfundin- um, kvæðinu og/eða tildrögum þess o.s.frv. Eða þá að birta eina verulega góða smásögu i hverju hefti. Væri það svo frá- leitt? Það vill nú svo vel til, að Akureyringum eru hæg heima- tökin með beiðni um slikt efni, þvi að mitt á meðal þeirra býr maður, sem skrifar smásögur af meiri list en velflestir núlif- andi Islendingar, Einar Kristjánsson frá Hermundar- felli. WESTON DANSKA WESTON teppaverksmiðjan er ein stærsta teppaverksmiðja Evrópu og þekkt fyrir gæða- framleiðslu. Til þess að gefa viðskiptavinum okkar færi á að kynnast þessari úrvalsframleiðslu höfum við sett upp sérstaka sýningu MF-15 HEYBINDIVÉLAR nýjung á íslandi Nú er hafinn innflutningur á MASSEY-FERGUSON heybindivélum. Fengin reynsla af þeim, víös vegar um heiminn, hefur sannaö gildi þeirra svo sem annarra framleiösluvara MASSEY-FERGUSON. MF 15 HEYBINDIVÉLIN er traustbyggö einföld og afkastamikil. Stillingar eru einfaldár, s.s. lengd heybagga, frá 60-125 cm. Smurkoppar eru aóeins 12 talsins, þar af aöeins 5, sem smyrja þarf daglega. MASSEY—FERGUSON viögerðamenn um land allt hafa fengið sérþjálfun í viöhaldi og stillingu vélanna. Bútæknideildin á Hvanneyri hefur reynt þær. MF 15 HEYBINDIVÉLAR eru til afgreiöslu meö stuttum fyrirvara. Kynniö ykkur hiö hagstæöa verö 05 greiðsluskil- mála. Hafið samband viö sölumenn okkar eóa kaupfélögin. A/ SUQURLANDSBRAUT 32 • REVKJAVlK- SlMI 86500 • SlMNEFNI ICETRACTORS MF Massey Ferguson Kartöflupokar Þéttriðnir 3 tegundir Grisjur 2 tegundir Stærðir 25 og 50 kg Pokagerðin Baldur Stokkseyri, simi 99-3213 og 3310. á Weston TEPPUM og gefur þar á að líta yfir 100 mis- munandi gerðir og liti, allt frá ódýrum gerviefnum og upp í dýrustu alullarteppi. Þér veljiðgerðina, við tökum málið af íbúðinni — og inn- an þriggja til f jögurra vikna er teppið komið, nákvæm- lega sniðið á flötinn. Þér greiðið aðeins eftir máli flatarins — þ.e.a.s. engin aukagreiðsla vegna afganga. Teppadeild • Hringbraut 121 • Simi 10-603

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.