Tíminn - 03.08.1975, Blaðsíða 23

Tíminn - 03.08.1975, Blaðsíða 23
TÍMINN Sunnudagur 3. ágúst 1975, Gott samkomulag rikir i McCartney-fjölskyldunni. Hér eru faöir Pouls, stjiipmóöir og bróöir Iheimsókn á býiinu i hljómsveitinni. Paul Mc- Cartney segir nú: — Ringó er skynsamastur. Hann nýtur að minnsta kosti peninganna sinna. Það er eitt- hvað að John. George er lika oröinn furðurlegur. Hann sekk- ur sér svo niður i austurlanda- hugleiöslu að hann fer kannski bráðum að sofa á gaddafjöl eins og fakir. En Paul sjálfur? Hann sem áður var vilítastur þeirra allra er nú borgaraleg- astur þeirra allra. Hann hefur setzt að I Argyle 1 skozku há- lendunum ásamt konu og böm- um, sex hestum og tveimur hundum og fjölda sauðfjár, lifir hann nú kyrrlátu lifi brezks aðalsmanns i sveit. Á hverjum morgni veður hann um grýtta landareigninga, sem er vaxin stóru gráleitu grasi og þurru lyngi og virðir fyrir sér jörð sina. Það er ekkert eftir af þeim Paul^sem á viðhafnartónleikum til heiðurs Englandsdrottningu sagði: „Þeir sem eru i ódýru sætunum geta klappað. Hinir þurfa bara að láta hringla I gimsteinum”. Ekki rikir Þegar hann er i Skotlandi er hann bóndi. Hann hirðir ekki um það þótt hrossaskitur af stigvél- um hans verði eftir i Rolls Roycinum eða ágólfteppinu inni I húsinu. „Það mikilvægasta i lifinu er að skemmta sér” segir hann þurrlega — Ef þú þá getur skemmt þér? Ég hef oft spurt sjálfan mig, hvað raunverulega veitir mér gleði. Og það er með- al annars hestamennskan. Hvað hirði ég þá um svolitinn hrossa- skit? Og hann hefur án efa skemmt sér vel. „Ég hef lifað villtu lifi. Hljómleikaferðin um Ameriku 1964 þýddi villt lif fyrir okkur alla. En ég hef játað öll min vixlspor fyrir Lindu. Ég leyni hana engu. Auk þess er ég miklu hamingjusamari núna. Lif mitt með konu og börnum er mér einfaldlega miklu meira virði.” Að byrja að nýju er nú lykil- orð þessa fyrrverandi Bitils bæði I einkalifinu og tónlistinni. í tónlistinni hefur vegur hans ekki orðið mikill með nýju hljómsveitina Wings. En Paul er bjartsýnn og segir: „Ég vonast til að fá að reyna hljómsveitina með nýjum mannskap áður en langt um liöur, en fyrst verð ég að vera viss um,að við séum nógu góðir. Slðast vorum við af ýmsum ástæðum slæmir. Einn mann- anna kom til dæmis alltaf drukkinn á tónleika.” Linda eiturlyfjasjúklingur. Paul hefur ekki aðeins átt við vandamál að etja varðandi hljómsveitina. Upp á siðkastið hafa verið vandamál I einkalifi hans. Linda var nefnilega hand- tekin á hljómleikaferð i Banda- rlkjunum með eiturlyf á sér, og það var ekki góð auglýsing. Siðar kom I ljós að hún var svo háð örvandi lyfjum, að hún er nú undir læknis hendi til að venja sig af þeim. En vikjum aftur að Paul og tónlistinni. Það er fyrst og fremst af fjárhagsástæðum að hann spilar ennþá, syngur og semur lög. Ungi maðurinn, sem keypti stórt hús handa bróður sinum og stjúpmóður uppi i sveit skammt frá Liverpool og sem fer i fjöl- skylduboð i glæsilegum Rolls Royce telur sig og konu sina ekki auðug. „Allt of mikið af peningum okkar fór i „Apple”- fyrirtækið og er þar. Fyrrver- andiumboðsmaðurokkar, Allan Klein, tók einnig drjúgan skerf af tekjum okkar. Slikt viljum við ekki þurfa að reyna aftur, og faðir Lindu, sem nú er lögfræð- ingur okkar og umboðsmaður, hefurhöfðað mál gegn „Apple”. A meðan getur Paul i friði og ró farið i reiðtúra með börnum sinum, Mary 4 ára og Stellu 2 ára og hinni 11 ára gömlu Heatheij sem er af fyrra hjóna- bandi Lmdu. „Börnin eru alltaf númer eitt, segir hann. „Alveg sama,hve mikla peninga Linda og ég vinnum okkur inn. Þeir skipta engu máli samanborið við velferð barnanna. Paul leggur áherzlu á, að það sé ekki auðvelt verk að ala upp börn. — Umfram allt er mikil- vægt að samband stúlknanna viö hitt kynið sé eðlilegt. Þær eru þrjár systur og þvi höfum við Linda mikinn áhuga á að þær eigi drengi að leikfélögum. Útlitið er alls ekki svo slæmt fyrir Mary, Stellu og Heather. Ahugi almennings á Bitlunum og börnum þeirra truflar tæpast einkalif barnanna. Að minnsta kosti er það ekki lengur eins og Ringo sagði einu sinni: — Við erum alltaf hræddir um að ein- hver brjálaður kvennaaðdáandi rifi son okkar upp úr barna- vagningum og limi hann inn i Bitlaalbúmið sitt! Slikt þurfa Paul og f jölskylda hans ekki lengur að óttast. (Þýttog endursagt) Fjölbýlishús Stofnanir Sveitarfélög Verktakar húsió Þetta er orðsending til þeirra/ sem eru að leita aðteppum í hundruðum eða þúsundum fermetra. Komið eða hringið — við bjóðum f jölmargar gerðir, ýmist af lager eða með stuttum fyrirvara. Orvalsteppi með mikið slitþol frá Sommer, Kosset, Marengo, Manville og Weston. Og greiðsluskilmálarnir — þeir eru við allra hæfi. Við sjáum um máltöku og ásetn- ingu. Teppadeild • Hringbraut 121 ■ Simi 10-603

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.