Tíminn - 03.08.1975, Blaðsíða 25

Tíminn - 03.08.1975, Blaðsíða 25
Sunnudagur 3. ágúst 1975. TÍMINN 25 Prestur og knattspyrnumaður Séra Rébert Jack Knattspyrnuþjálfarinn, sem gerðist sveitaprestur á tslandi. Jón Birgir Pétursson bjó til prentunar. Hilmir h.f. 1974. Þessi bók er kölluð sjálfsævi- saga og vlst er hún það. Séra Róbert gerir grein fyrir upp- runa sinum og rekur æviferil sinn. Og það er einstakur og óvenjulegur ferill. Þó að lesandanum finnist e.t.v. að hann þekki séra Róbert fremur litið að loknum lestri kemur hann viða við I minning- um sinum og rifjar margt upp. Ef til vill er mestur fengur að minningum hans frá hernáms- árunum en þá hafði hann þá sér- stöðu að vera beggja þjóða,þó að hann hefði ekki fengið rlkis- borgararétt meðal íslendinga. Frásögn hans einkennist af næmum skilningi á erfiðu hlut- verki hermannanna — ekki ein- asta þeim erfiöleikum, sem vlg- staðan olli, heldur þvi andlega álagi, sem hermennskunni fylgdi. Séra Róbert getur manna yfirleitt til góðs. Hann ber hlýj- an hug til margra samferða- manna. Gaman er að lesa minn- ingar hans um menn eins og Sigurgeir biskup og Asmund biskup og sr. Friðrik Rafnar. Nokkuð ber á hvimleiðum ruglingi á mannanöfnum og þvl- liku I bókinni. Matthildur móðir Sigurðar Arnalds er kölluð Matthiasdóttir en hún er dóttir Einars Kvaran, en að sönnu var seinni maður hennar sonur Matthiasar Jochumssonar. Eggert Briem hæstaréttardóm- ari er gerður sami maður og Eggert P. Briem bóksali og alltaf talað um Eggert P. Briem. Þetta er þvl óskiljan- legra að fyrst er þess getið að maðurinnværi látinn.en höfund- ur leigi herbergi I húsi Guðrún- ar ekkju hans. Seinna getur hann þess að hann standi i ævarandi þakkarskuld við hjón- in Sigriði og Eggert fyrir hjálp þeirra og skýringar á erfiðustu kvæðum Einars. Það virðist þó liggja I augum uppi, að það var ekki sá Eggert, sem andaður var, þegar sr. Róbert kom fyrst til landsins, sem nokkrum árum siðar átti aðra konu og las þá ljóð Einars með sögumanni. Fleira má nefna, svo sem það>aö Magnús Jónsson guðfræði- prófessor hafi verið fjármála- ráðherra og höfundur hafi kynnzt listamanninum Guð- mundi frá Miðdal á Isafirði. Það var auðvitað Guðmundur frá Mosdal. Svona ruglingur er skiljan- legur hjá útlendum manni, sem kemur ókunnugur til landsins, — nema auðvitað að gera Briemana að einum manni, enda er það gert I nafnaskrá. En það átti að vera hægt að sjá við þessu öllu,þegar sagan var búin til prentunar. Albert Guðmundsson skrifar formála fyrir bókinni, en þá hafði honum ekki unnizt tlmi til að lesa hana. Hins vegar kemur hann þar að maklegum viöur- kenningarorðum um sinn gamla þjálfara. Iþróttaþjálfari er leiðtogi I félagsllfi. Séra Róbert hefur alltaf verið knattspyrnuþjálfari samhliða þv^sem hann er prest- ur. Af llfsreynslu hans I þvi sambandi má ýmislegt læra. Þess er áður getið að nafna- skrá fylgir bókinni og ber það vel að meta. — H.Kr. Þess vegna borgaróu heldur meira fyrir Cudogler — þú ert að fjárfesta tilframbúðar. AÐRIR Yfirleitt mun minna af þéttiefni, vegna rúm- frekari ramma úr þynnra áli. Aðeins 2 hliðar rammans fylltar með einni gerð rakavamar- efnis. Minni viðloðun þéttiefnis, sem þarf að verja sérstaklega gegn utanaðkomandi efna- fræðilegum áhrifum. Við trúum því, að verðmæti húseignar aukist með tvöföldu Cudogleri. Hvort sem þú byggir fyrir sjálfan þig, aðra eða byggir til að selja, þá hækkar verðgildi byggingarinnar við ísetningu glers frá framleiðanda, sem aðeins notar Terostat þéttiefni, sparar hvergi til við samsetningu glersins, og gefur 10 ára ábyrgð á framleiðslunni. CUDO Mun meira af þéttiefni — þrælsterku Terostat, sem ekki þarf að verja sérstaklega. T erostat hefur,. skv. prófunum, mestu viðloðun og togkraft, sem þekkist. Álramminn er efnismeiri og gerð hans hindrar að ryk úr rakavamarefnum falli inn á milli glerja. Álrammamir em fylltir rakavarnarefnum allan hringinn — bæði fljótvirkandi rakavarnarefni fyrir samsetningu og langvarandi, sem dregur í sig raka, sem getur myndast við hitabreytingar. CUDO-I IGLERHE "VIÐERUM REYNSLUNNIRIKARI ” Skúlagötu 26 Sími 26866 þessu liggur

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.