Tíminn - 03.08.1975, Qupperneq 20
20
TÍMINN
Sunnudagur 3. ágúst 1975.
1 TVO MANUÐI hafa ritdeilur sett mikinn svip á Nú-timann og hafa ýmsir tekiö
til máls. Mest hefur veriö deiit um ágæti hljómsveitarinnar Led Zeppelin og
hafa aðdáendur hennar hafiö hljómsveitarmeölimi upp til skýjanna meö mestu
hrósyrðum íslenzkrar tungu. Þeir sem hins vegar hafa veriö á öndveröum
meiöi hafa ekki sparaö stóryröin i þeim tilgangi aö „rakka hljómsveitina niö-
ur.” Hljómsveitin Cream hefur einnig skipaö talsvert rúm f þessum ritdeilum,
enda viröast andstæöingar Zeppelin yfirleitt vera af þeim ættbálki.
Frá sjónarmiöi Nú-timans hafa þessar ritdeilur veriö allrar athygli veröar
(og vakið feiknaathygii) og veriö sérstaklega ánægjulegur þáttur. Kann Nú-
timinn öllum, sem tekiö hafa þátt I þessum fyrstu ritdeilum popphlustunar-
manna hinar beztu þakkir. EN NÚ ER MAL AÐ LINNI.
Efiaust má færa rök fyrir þvi, aö viö tökum hér ranga stefnu — en frá okkar
ÖU lög eru frumlegog eiga sér enga fyrirmynd.
Zeppelinski alþýðumaðurinn
tilgreinir 6 atriði þeirri sann-
færingu sinni til sönnunar, aö
Zeppelin sé bezta hljómsveit
veraldar. (Nútiminn 1. júni
1975).
s.iónarmiði verður einhvers staöar aö setja punkt. Ritdeilur um ágæti tveggja
hljómsveita eru merkilegar og ekki sföur fróölegar fyrst í staö, en þegar til
lengdar lætur verða þær minna spennandi eins og eölilegt er.
Nú-timinn hefur samt alls ekki f hyggju aö loka fyrir allar ritdeilur. Fjarri
þvi. Nú-tfmanum er einmitt ætlaöur — ööru jöfnu — að vera skoðanavettvangur
fyrir lesendahóp sinn, — en þaö eru til fleiri hljómsveitir en Zeppelin og Cream!
Myndirnar hér fyrir neöan eru af þeim fjórmenningum.sem mestur styrinn
hefur staöiö um, og eru textarnir fyrir ofan myndina haföir eftir Zeppelinska
alþýöumanninum, en textar undir myndum haföar eftir bréfritara dagsins I
dag.
Ritdeilum um áðurnefnt efni lýkur næsta sunnudag meö bréfi frá zeppelinska
alþýöumanninum, og svarar hann þar. R.K.
Tvær stefnur sem fylla hæstu gæöakröfur óma frá
hörpustrengjum Zep. Allar aðrar hljómsveitir hafa
eina.
Faðir og leiðtogi hljomsveitar-
innar, Jimmy Page er bezti
gitarleikari veraldar. Hann
hel'ur samið sérstæöustu lög.
sem við lýði hafa \erið frá upp-
hafi llomo Ereetus.
Guöfaöir grúbbunnar, Mr.
Page, er miölungs gítarleikari
og ekki fet fram yfir þaö. HANN
HEFUR SAMIÐ LEIÐINLEG-
ASTA OG SÉRSTÆÐASTA LAG
SEM UM GETUR. SEM SÉ,
ALLT EINS!
i hljómsveitinni er raddfegursti
og sérstæöasti söngvari verald-
ar, Robert Plant. Hann hefur
sungið fegurstu Ijóð popptim-
ans, auk þess að yrkja þau sjálf-
m
t grúbbunni er nokkuö sem kall-
ast söngvari á Zeppelinsku.
Hann ber nafnið Mr. Plant, og
hefur hann rekiö upp lengsta
spangól, sem um getur, sem
hann hefur auövitaö samiö
sjálfur. Þetta leiðindagól, er
ekki ólikt þvl er hundur gólar
upp I tunglið um miönæturskeiö.
Trom muslátta rm aður Zep.
John Bonhani, er sá kröftugasti
en um leið sá vandvirkasti, sem
litið hefur dagsins ljós'. Ilann er
fuilkominn!!
„Trommusláttarmaöur” Zep.
Mr. Bonham, er sá kröftugasti,
og um leið sá einhæfasti sem lit-
iö hefur dagsins Ijós. Hann er
klaufi!
Bassaleikarann veit ég liprast-
an i sólkerfinu. John Paul Jon-
es. Auk þess er hann gæddur
þeirri náttúru að spila undravel
á liljómhorðshljóðfæri.
Bassaleikarann veit ég
einhæfastan og klaufalegastan i
vetrarbrautinni. Þetta er Mr.
J.P. Jones. Auk þess er hann
gæddur þeirri ónáttúru aö fálma
viðvaningslega á hljómborö.
Tvær stefnur sem
báðar geta fyllt
hæstu gæöakröfur
þeirra, sem vita
ekki á hvaö þeir
eru að hlusta.
t Að öskra
með digur
t
öll lög eru eins, og
eiga sér enga fyrir-
mynd, hvaö snertir
ófrumlegheit.
barkalegu orðbragði
Mér fannst , þegar ég leit
yfir Nú-Timann frá 1. júni,
sem þar stæðu orð, sem komið
hefðu upp úr undirdjúpum for-
heimskunnar.
Þetta grátlega kjaftæði
hafði allt yfirbragð fáfræð-
innar, frumstæðrar hugsunar
og umfram allt, rotins tón-
listarsmekks.
Og nú vil ég hér með leyfa
mér að senda þessum
einangraða „alþýðumanni”
tóninn.
Þaö voru sársaukavein sem umluktu
siðuna frá 29. júnl s.l.
Hr. Rjómi hitti yður, villidýrið, beint I
hjartastað þegar hann svaraði lágkúru-
legum áróðri yðar þann 22. júni.
Það er staðreynd, að þeir sem rökþrota
eru eða eru staðnir að ósanninum, taka
að öskra og æpa með digurbarkalegu orð-
bragði af almætti til að þagga niður i and-
stæðingi sinum. Stundum tekst það, en
oftast er flett ofan af sökudólgnum.
Og í sambandi við svar yðar, (ef svar
skyldi kalla) þá vil ég segja þaö, að þér
hafið sennilega verið að skrifa um sjálfan
yður „Margur heldur mig sig”, þetta orð-
tæki gæti átt við I þessu tilvelli.
Okkur lesendum þessara saurugu og
útkllndu greina yðar hefur skilizt, að
rjomabúöingur eigi ekki upp á hið
lágkúrulega pallborð Zeppelin--
neytandans.
Þér fáið sennilega meltingartruflanir
eftir að hafa reynt að innbyrða smá-
skammt af þungmeltari tónlist en þeirri,
sem grjóthausarnir i Led Zeppelin ausa
án afláts i kjaftinn á óvitunum.
Nú ætla ég að leiðrétta þau miklu mis-
tök, sem yður urðu á i rökfærslu þeirri, er
átti aö sannfæra andstæðinga fornaldar-
skarkala Zeppelin um ágæti þeirrar
grúppu. (Sjá texta undir myndum)
Niðurstaða min verður vinsæl, þvi allir
nema sérvitringar eru á sama máli.
Þér talið fjálglega um það, hvað þér
hafið mikið vit á blues.
Ég get sagt yður það hr. ófróður, aö
bluesinn einkennist ekkert frekar af text-
unum. Er bluestónlist án texta þá ekki
blues, þ.e.a.s. ef yðar mælikvarði er lagö-
ur tíl grundvallar?
Svarið við þessari spurningu er auö-
vitað nei, þvi að þér hafið mjög takmark-
aða þekkingu á blues.
Það sem einkennir bluestónlist er fyrst
og fremst, stemmning verksins og
hrynjandi, texti og svo auðvitaö hljóðfæri
þau er notuð eru. Þetta er blues.
Þér ættuð til frekari fróðleiks að kynna
yður blues hins mikla E.K.Duke Elling-
tons — eftir það ættuð þér ekki að vera i
neinum vafa.
Og fyrir alla muni, reynið að komast
yfir „Minningarljóð Miles Davis um Duke
Ellington”, það er verk, sem kæmi þér til
að freta á þennan svokallaöa blues Led
Zeppelin ófreskjunnar.
Og þér munið væntanlega, hvernig fór
fyrir Zeppelin-bákninu (loftskipinu). Það
brann til kaldra kola, og þar með flestir
aödáendur þessa lélega farkosts og þær
vonir, sem við hann voru bundnar.
Flugtæknin þróaðist og er nú að komast
á það stig, að hægt verður innan skamms
að ferðast reikistjarna á milli.
Nákvæmlega þetta sama skeður með
tónlistina. Hin frumstæða og einfeldn-
ingslega tónlist Led Zeppelin liður undir
lok fyrr en varir, sem þar með hverfur al-
gjörlega úr vitund manna.
Heiðraði herra alþýðumaður eða pislar-
vottur: Þér ættuð einnig að kynna yður
þróunarkenningu Darwins. Þar er að
finna þessa meginkenningu: Lifverurnar
heyja baráttu fyrir tilveru sinni. 1 þeirri
baráttu halda þeir velli, sem bezt eru
fallnir til að bjarga sér, eru hæfastir i lifs-
baráttunni. Hinir, sem miður hæfa kring-
umstæðunum, verða undir i þessari bar-
áttu.
Svo mörg eru þau orð.
Þessi „barátta” yðar og yðar lika er þvi
algjörlega tilgangslaus. Þér snúið ekki
náttúrulögmálinu við hvernig sem þér
rembist eins og rjúpan við staurinn.
Þróunarkenningin gildir jafnt i heimi
náttúrunnar, sem I heimi mannanna,
vegna þess að maðurinn er hluti af náttúr-
unni.
Og nú, minn allra náðugasti herra, ætla
ég aö gefa yður dæmi um grúppur og
hljómlistarmenn sem flytja tónlist.
Hlustið og lesið (þ.e.a.s. ef þér eruð ekki
bæði blindur og heyrnarlaus af ofstæki
gagnvart sannleikanum). Hér kemur
aðeins það bezta og vandaðasta og jafn-
framt það sígilda. Emerson Lake og
Palmer, Electric Light Orchestra,
Genesis, Yes, Gentle Giant, Focus,
JethroTullSantana, Pink Floyd og Procol
Harum. Og ekki má gleymast hxnn sígildi
snillingur 20. aldar, Rick Wakeman.
Múmian hann Jones er ekki hæfur til
samanburðar við ofurmenni á sviði
hljómborðstækni eins og Keith Emerson
og Rick Wakeman.
Báðir eru þessir menn snillingar á
þessu sviði og einkar fjölhæfir, gott dæmi
um fjölhæfnina er það, að nú leikur Wake-
man með sinfóniuhljómsveitum í Bret-
landi sem orgel, pianó og semballeikari.
Tónlist Wakemans er þungmelt fyrir
þá, sem ekki eru komnir inn I hana, svo
það gæti farið svo, að rokkræflar og fals-
bluesistar eins og þér, hafið hvorki þroska
né vit til að njóta hennar og skilja.
„Bassaleikarann veit ég liprastan. I
sóíkerfinu: J.P.Jones”
Þetta er heldur einstrengingslega sagt,
en þaö stafar bara af þvi, að þér hafið ekki
heyrt i Greg Lake né Chris Squire (Yes).
Þeir eru báðir mjög sjálfstæðir og
frumlegir bassaleikarar, ekki alltaf sama
hjakkið og hjá Jones. Plant stenzt engan
samanburð við reglulega góöa söngvara,
eins og t.d. Arthur Brown, Jon Anderson,
Ian Andersoh og Greg Lake, enda ætlast
vist enginn til þess.
Giarleikarar eins og John Williams,
Carlos Santana, Jimmy Hendrix og Eric
Clapton eiga fáa sina lika. Og i hópi þeirra
fáu, sem ná þessum kempum að gæðum,
er ekki ræfilstuskan hann Jiinmy Page,
hann er of frumstæður til þess.
Hinn einhæfi harðhaus og „trommu-
sláttarmaður” Zep. ætti að taka niður um
sig buxurnar, þegar frábærir og fjölhæfir
trommuleikarar eins og Carl Palmer, Bil
Bruford og Alan White miðla áheyrendum
af nægtarbrunni snilldar sinnar.
Og að lokum herra minn, þá get ég sagt
yður það til frekari fróðleiks, að flestir
sem hlusta á svona vandaða og þróaða
tónlist eins og þessir snillingar flytja oss,
hlusta lika á klassiska tónlist eins og eftir
Beethoven, Bach Tchaikovsky,
Korsakoff, Ravel og Mussorgsky. Þetta
nægir til að sýna fram á, að bilið á milli
ELP, Yes, ELO, svo dæmi séu nefnd, er
miklu minna en á milli hins harða rokks
úrkynjaðra ræfla eins og Deep Purple,
Led Zeppelin og Rolling Stones.
Norölenzkur aödáandl’ vandaðrar og
þróaðrar tónlistár.