Tíminn - 03.08.1975, Síða 27
Sunnudagur 3. ágúst 1975.
TÍMINN
27
Herbert Strang:
Fífldjarfi
drengurinn
toppinn á mér i áttina
til hans, en hann sá
mig ekki, nei. Samt
hefði hann nú séð mig,
ef hann hefði litið i
kringum sig, og ég
gerði skyldu mina, þvi
getur enginn neitað.
— Talaðu ekki
svona mikið, æpti Al-
an'óþolinmóður. — Ég
verð að komast til
Shalbury, og ég er
orðinn dauðuppgef-
inn. Segðu mér, hvar
ég get fengið hest. Ég
kemst ekki lengra
gangandi.
— Nú, væni minn,
ekki get ég sagt þér
það án þess að tala.
Það má sá gera, sem
getur i minn stað, og
ég skal sannarlega
hrósa honum fyrir
kraftaverkið. Það er
sama, hvort það er
hestur eða asni. Hann
Goodman Nopes, hús-
bóndi minn, á einn eða
tvo hesta. Hann á lika
bæði asna og múlasna
og auk þess stórt svin.
Karlinn söng:
t fjósinu er kýrin.
Fyrir svinin er
mýrin.
Og blessuð veri hún
angandi smáragrund.
Alani tókst að fá
karlinn til þess að
fylgja sér til Good-
man Nopes, sem var
alveg nýkominn á fæt-
ur. Jafnskjótt og hann
heyrði, hver kominn
væri, var hann fús til
að ljá hest. Alan reið
nú allt hvað af tók eft-
ir veginum til Shal-
bury, en sú borg var
fáeinar milur handan
við Stourton, og þang-
að kom hann rétt fyrir
klukkan sex.
í Jl Í,ll! Íli,
I
iII.II
II
w mmmmmÉtmm pJmlt
lÆrmim lf
Listakonan Grima við vinnu sina.
Ólöf Gríma
sýnir í
Þrastarlundi
1. ágúst opnaði málverkasýn-
ingu i Þrastarlundi frú Ólöf
Grima Þorláksdóttir sem er 80
ára gömul. Hún byrjaði að fást
við liti og léreft eftir að börnin
voru komin upp. Liklega hefur á-
huginn verið fyrir hendi alla tíð,
aðeins skort krafta, eða tima til
að byrja, ef þá ekki hvort tveggja.
Frií Grima sýnir áð þessu sinni
11 myndir, allt oliumálverk, mál-
uð á seinustu misserum. Mun
sýningin standa tii ágústioka.
Nýr staður
Það virðist kjörið fyrir málara
að sýna myndir sinar þar sem
menn eiga leið um i sumarskapi,
þótt meginerindið út i náttúruna
sé að sjá mótivið sjálft en ekki
mynd þess á striga eða pappir.
Valtýr Pétursson mun hafa riðið
þarna á vaðið, svo það er ekki
Íeiðum að likjast fyrir þá sem á
eftir koma.
En vikjum nú ögn að þessum
aldurhnigna listamanni, Grimu
og myndunum hennar.
Það er eftirtektarvert að i raun
og veru mála engir eins vel og
smáböm og gamalmenni, og eng-
ir mála eins illa heldur, þegar sú
sortin kemur upp. Menn virðast
ekki hafa kjark til að tjá sig af
frjálslyndi og unaði á milli-
striðsárunum, sem viðoft nefnum
miðjan aldur.
Ég þekki ekki þessa gömlu
konu, Grimu, og veit ekki annað
um hana en að hún er amma hans
Sverris hjá Bókmenntafélagi, en
þar sá ég myndir eftir hana fyrst,
mörg verk, sem þar voru i stöfl-
um. Þá hafði hún sina fyrstu
sýningu i fyrra og hlaut þá ein-
hvers konar viðurkenningu sem
naivisti, sem er mikill heiður.
Ég hefi ekki séð myndimarsem
hanga uppi i Þrastarlundi, en ef
þær eru svipaðar þeim fyrri,
verður þetta skemmtileg og nota-
leg sýning.
Breiddin nauðsyn
i listinni
Listin, myndlistin verður að
hafa ákveðna breidd til þess að
almenningur geti unað við hana
til fulls.
Við þurfum abstraktmálara,
frammúrstefnumenn, lika sætar
myndir handa kerlingum og fin-
um frúm,alltmögulegt til þess að
breiddin megi haldast. Við þurf-
um lika naivista eins og hann Is-
leif, hana Grimu og marga aðra.
Sú stefna hefur verið uppi hér og
þarv að naivistinn eigi að vera
einn svo þegar hann er farinn þá
komi einn i staðinn, siðan koll af
kolli. Ég er ósammála svoleiðis
krýningum og hvet alla mögulega
gamla menn og konur til þess að
mála og óska frú Grimu til ham-
ingju með sýninguna i Þrastar-
lundi.
Jónas Guðmundsson
k'erndurn
mJL
rotlendí/
LANDVERND
OKUNl
■EKKIH
UTANVEGÆ
LANDVERND
INNANLANDSFERÐ
Sumarferð Framsóknarfélaganna i Reykjavík, sunnudaginn 17.
ágúst. Ekið um Þingvelli, Laugarvatn, Gullfoss, Geysi, Brúar-
hlöð, Hreppa, Búrfellsvirkjun að Sigöldu og Hrauneyjarfossum.
Framkvæmdir við Sigöldu skoðaðar undir leiðsögn verkfræð-
ings. Nánar auglýst siðar.
UTANLANDSFERÐIR
Framsóknarfélaganna í Reykjavík
Framsóknarfélögin i Reykjavik gefa félögum sinum kost á ferð-
um til Spánar i sumar og haust. Brottfarardagar: 19. ágúst, 2.
september, 16. september.
Fyrirhuguð er i sept. 10—15 daga ferð til Vinarborgar. Þeir, sem
áhuga hafa á þessari ferð, hafi samband við f lokksskrifstofuna.
Nánari upplýsingar um ferðirnar á flokksskrifstofunni. Simi:
24480.
Strandasýsla
Héraðsmót framsóknarmanna i Strandasýslu verður haldið
laugardaginn 16. ágúst i Arnesi. Ræður flytja Gunnlaugur Finns-
son, alþingismaður og Pétur Einarsson. Karl Einarsson
skemmtir.
ísafjörður
Framsóknarfélag ísafjarðar heldur héraðsmót sitt 23. ágúst.
Nánar auglýst siðar.
Vestfirðlr
Kjördæmisþing framsóknarmanna i Vestfjarðakjördæmi hefst
föstudaginn 22. ágúst. Nánar auglýst sibar.
Héraðsmót framsóknarmanna 1 Skagafirði verður haldiö i Mið-
garði 30. ágúst og hefst kl. 21.00.
Ræðumenn verða Ólafur Jóhannesson formaður Framsóknar-
flokksins og Jón Sigurðsson varaformaður SUF.
Óperusöngvararnir Svala Nielsen og Guðmundur Jónsson
syngja og Karl Einarsson fer með skemmtiþátt.
AUGLÝSIÐ í TÍMÁNUM