Tíminn - 03.08.1975, Qupperneq 28

Tíminn - 03.08.1975, Qupperneq 28
*v Sunnudagur 3. ágúst 1975. 1 Nútima búskapur þarfnast BHUER haugsugu Guöbjörn Guðjónsson G§ÐI fyrirgóóan mai $ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS HITAVEITUFRAMKVÆMDIR í KÓPAVOGI OG HAFNARFIRDI ERU ÁRI Á UNDAN ÁÆTLUN gébé Rvik — Hitaveitufram- kvætndir I Kópavogi og Hafnar- firöi ganga mjög vel, sem bezt sést á því aö þær eru heilu ári á undan upphafiegu áætluninni. Vinna viö siöasta hluta aðalæöar- innar til Hafnarfjaröar er langt komin og áætiað er aö hægt verði aö hleypa vatni á aöaiæöina i nóvember. Tengingu i ibúöarhús er eklri aö fuilu iokið, um 30% þeirra er eftir i Kópavogi og I Hafnarfriði er búiö aö tengja i um helming Ibúöarhúsa. Aöaiæöin til Hafnarfjarðar verður sennilega þrýstiprófuð seinni hluta ágústmánaöar og gæti þaö þvi þegar orðið i september sem fyrstu hverfin verða tengd viö hitaveitukerf ið. Að sögn Jóhannesar Zoega hitaveitustjóra, hjá Hitaveitu Reykjavikur, gerði Kópavogs- kaupstaður og hitaveitan með sér samning um framkvæmdirnar seinni hluta ársins 1973 og var þá Svona hafa götur litið út i Kópavogi I iangan tima, en loks geta Kópavogsbúar farið aö sjá fyrir endann á framkvæmdunum og hægt veröur aö aka um Kópavog meö venjuiegum hætti. Stendur huldufólk í vegi fyrir vega- gerðarmönnum vest- ur í Önundarfirði? áætlað að hægt yrði að taka hita- veituna I notkun um áramótin 1976-1977. — Framkvæmdum hefur hins vegar verið hraðað eins og unnt hefur verið til að hægt yrði að taka hitaveituna sem fyrst i gagnið, sagði Jó- hannes Zoega. — Til að fá þetta I gagnið, höfum við tekið miklu meira af lánum heldur en áætlað var, sagði Jóhannes. Það hefur valdið erfiðleikum að gjaldskrá hitaveitunnar hefur verið haldið niðri i botni i fjögur ár, en i októ- ber f fyrra fengum við hækkun og svo aftur i marz i ár, en þetta er enn langt fyrir neðan það sem þyrfti að vera i hlutfalli við ann- . að. — Chætt er að segja að hita- veituframkvæmdir hér gangi mjög vel, sagði ólafur Gunnars- son bæjarverkfræðingur i Kópa- vogi. Vinna við siðasta hluta aðal- æðarinnar erlangt komin.en eftir er að tengja hana yfir brúna, sem gæti orðið i september. — Teng- ing dreifikerfisins og nauðsynleg- ar breytingar, sem þarf að gera á Ibúðarhúsum, »ru á vegum hús- eigenda sjálfra og hafa sumir lok- ið þeim en aðrir gera þetta jafn- óðum, sagði Ólafur. Halldór Hannesson verkfræð- ingur i Hafnarfirði, sagði að aðal- æðin yrði þrýstiprófuð seinni hluta ágúst og þvi gæti það orðið I september sem tvö fyrstu hverfin yrðu tengd dreifikerfinu, en það er Norðurbæjarhverfi og Alfa- skeiðshverfi. —Vinna f dreifikerfi annars staðar t.d. i miðbænum, i öldunum og Kinnum, standa nú yfir,sagði Halldór. Þá sagði hann einnig að Hafnarfjarðarbær væri að endurbæta frárennsliskerfið, og væri unnið við það I sumar, eins og i fyrrasumar. Sum hús hafa þó ekki rotþrær tengdar frá- rennsliskerfinu, svo þeim þarf að koma I samband, sagði Halldór. — Hafnarfjarðarbær er þessa dagana að taka stór erlend lán, til þess að bærinn geti framkvæmt sinn hluta hitaveituframkvæmd- anna, sem fyrst, sagði Halldór. Búizt er við að hitaveitufram- kvæmdunum ljúki á næsta ári, en þaö verða hverfin suður á Holti og I gamla vesturbænum, sem fá hitaveituna siðast. Þetta er siöasti hluti aöal- æöar hitaveitunnar i Kópa- vogi. Flateyri-K.Sn. —Aö undanförnu hefur veriö unniö aö vegagerö viö bæinn Hvilft i önundarfiröi. Eins og gengur er mikill fjöldi tækja i notkun við vinnu þessa, en nú ber svo við, er vinnuflokk- urinn kemur frá vinnu i Bjarna- dal og hefst handa hér við Hvilft, aö vélabilanir fara að gerast svo tiöar, að ekki þykir einleikið. Drif „hrundi” i J.C.B.-gröfu, oliugjöf bilaöi I Bröyt-skóflu, tönn bilaöi á jarö- ýtu, viftureim fór sundur með dularfullum hætti i M.F.-gröfu og aðaltjakkurinn brotnaöi, en slikt gerizt annars sárasjaldan. Skekta, sem lá þarna viö land, sökk I stafalogni og ýmis önnur smáóhöpp hafa komiö fyrir. Ct yfir tók þó, er hafizt var handa um flutning á stórgrýti, sem fyrir var við og I vegar- stæöinu, (grjótið er flutt Ibrim- varnargarð á Flateyri), en þá brotnaði ýtutönnin, viftureimin fór, tveir fingur á manni mörð- ust illa, og einn vörubilstjórinn hætti akstri, — hann vildi ekki flytja grjótið. Þykja þessi óhöpp öll með ólikindum og er rætt um álfa og huldufólk i þessu sambandi. Sagnir eru ýmsar um slikt á Vestfjöruum t.d. segir Kristleif- ur Jónsson frá þvi einhvers staðar, er hróflað var við álaga- hól i Arnarfirði vegna vega- gerðar, að þá beinbrotnaði einn starfsmannanna litillega.en svo illa hafðist brotið við, að maður- inn var frá vinnu allt sumarið. Guðmundur Gunnarsson vegaverkstjóri sagði fréttarit- ara blaðsins frá þvi, að við Mjóanes i önundarfirði væri gott malarnám, en algerlega hefði verið hætt þar efnistöku fyrir um 30 árum vegna óhappa og slysa á mönnum. Sagan seg- ir, að á þeim stað hafi verið (og sé) álfakirkja. A miðvikudag brotnaði jarð- ýtutönnin aftur eftir eins dags brúk. Vegagerðarmenn unnu við logsuðu á tönninni til klukk- an fimm á fimmtudagsmorgun, en þegar til átti að taka við upp- haf vinnu fáum timum siðar, sneri tönnin öfugt og þykjast önfirðingar þess fullvissir, að þar hafi huldumenn verið að verki.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.