Tíminn - 12.08.1975, Page 2
2
TÍMINN
Þriðjudagur 12, ágúst 1975
Hvergerðingar óánægðir með skattamálin:
Vilja neyzluskatta
í stað tekjuskatts
BH-Reykjavik. — Á sunnudags-
kvöldið var haldinn i Hveragerði
almennur borgarafundur uni
skattamál. Mikil óánægja hefur
rikt i Hveragcrði, siðan skatt-
Gsal-Reykjavik. — t;ins og frá
hefur verið greint i Timanum, var
á siðasta fundi háskólaráðs
samþykkt hvernig skipta ætti
byggingarfé háskólans á árunum
1976-1980 milli framkvæmda á há-
skólalóð og landspitalalóð. Kom
fram i frétt Timans að fé það sem
hér um ræðir, sé u.þ.b. 900 millj.
kr. fyrir þetta timabil.
Skipting nýbyggingarfjár Há-
skóla íslands 1976-1980 var
samþykkt á þennan hátt:
Ár Til bygg. Til bygg.
á hásk. lóð. á Landsp.lóð
1976 20% 80%
1977 30% 70%
1978 60% 40%
1979 60% 40%
1980 60% 40%
skráin leit dagsins Ijós, og slikur
borgarafundur hefur verið á
döfinni um skeið, en samstaða
náðist ekki milli stjórnmála-
flokkanna á staðnum um þennan
t fréttatilkynningu sem Timan-
um hefur borizt frá Háskóla Is-
lands segir að þessi ráðstöfun á
skiptingu framkvæmdafjár
skólans til nybygginga nokkur ár
fram i timann sé til þess að
auðvelda áætlanagerð. ,,Þessi
skipting nýbyggingarfjár há-
skólans yrði meginregia við gerð
ýtarlegra, árlegra framkvæmda-
áætlana, og skipting fjarins
ákveðin nánar með þeim. Þessi
meginregla kæmi siðan til endur-
skoðunar fyrir árin 1981-1985 við
gerð framkvæmdaáætlunar
1981”, segir i samþykkt háskóla-
ráðs.
fund, svo að hann var haldinn
sem almennur borgarafundur og
boðað til hans af undirbúnings-
nefnd. Fundinn sátu á ann^
hundrað manns og sýnir það ljos-
lega áhuga Hvergerðinga á þess-
um málum.
Framsögumenn voru Unnar
Stefánsson, framkvæmdastjóri
Sambands isl. sveitarfélaga, og
Ólafur Nilsson, skattrannsókna-
stjóri, sem báðir héldu stórfróð-
leg erindi og svöruðu spurningum
fundarmanna.
Tvær ályktanir voru samþykkt-
ar á fundinum, svohljóðandi:
„Almennur borgarafundur
haldinn á Hótel Hveragerði 10.
ágúst 1975 samþykkir eftirfarandi
ályktun um skattamál:
Með tilliti til útsvars- og skatt-
lagninga I byggðarlaginu á þessu
ári, telur fundurinn að núgildandi
lög um álagningu tekjuskatts og
útsvars nái ekki þeim tilgangi að
jafna ráðstöfunartekjur borgar-
anna. Skorar fundurinn þvi á
stjórnvöld að hraða undirbúningi
nýrrar löggjafar um tekjuöflun
rlkis og sveitarfélaga með það að
markmiði:
a. að fella niður sköttun tekna en
skatta þess i stað neyzlu.
b. að fella að mestu niður niður-
greiðslur almenns neyzluvarn-
ings.
c. að fjölskyldubótum verði beitt i
Framhald á bls. 19
80% nýbyggingarfjárH.Í.
1976 til framkvæmda
á Landspítalalóðinni
Guðlaug varð Norðurlanda-
meistari:
Þetta er frábær
árangur hjá henni
— segir Friðrik Ólafsson stór-
meistari
ö.B. Reykjavik. — Guðlaug
Þorsteinsdóttir, hin unga og
snjalla skákkona okkar, varð
Norðurlandameistari i skák á
sunnudaginn. Mótið fór fram I
Osló og mun Guðlaug dveljast
þar um tima. Blaðið hafði sam-
band við Friðrik Ólafsson stór-
meistara, og fórust honum svo
orð um árangur Guðlaugar: —
Þetta er frábær árangur hjá
henni. Hún þekkti ekki styrk-
leika þeirra skákkvenna, sem
hún gekk til einvigis við, og með
tilliti til þess, að flestar þessara
kvenna eru þaulreyndar i skák
er árangurinn hennar hinn
ágætasti. Sú elzta mun vera i
kringum fimmtugt. Hún var
alveg óhrædd og virtist þess al-
búin að takast á við þær. Ég
vona að þetta sé upphaf að mik-
illi sigurgöngu hennar”.
Guðlaug Þorsteinsdóttir er
fædd i Reykjavik 2. marz 1961,
dóttir hjónanna, Sigurlaugar
Siguröardóttur og Þorsteins
Karls Guðlaugssonar renni-
smiös. Þau búa að Kársnes-
braut 123 i Kópavogi.
Guðlaug Þorsteinsdóttir við
skákborðið. á heimili foreldra
sinna.
NU AAEGA AAENN KOAAA AAEÐ
AAEIRA AF TOLLFRJÁLSUAA
VARNINGI FRÁ ÚTLÖNDUAA
Fjármálaráðuneytið hefur gef-
ið út nýja reglugerð um tollfrjáls-
an farangur ferðamanna og far-
manna við komu frá útlöndum.
Helztu nýmæli reglugerðarinn-
ar, hvað ferðamenn varðar, eru
þau, að andvirði varnings, sem
ferðamönnum er heimilt að hafa
með sér frá útlöndum, hækkar úr
kr. 8.000 i kr. 14.000 miðað við
smásöluverð erlendis. Af þeirri
fjárhæð má andvirði annarra
vara en fatnaðar þó ekki fara
fram úr kr. 7.000, andvirði mat-
væla, þar með talið sælgæti, ekki
fram úr kr. 1.400, og andvirði
myndavéla, sjónauka, útvarps-
tækja og segulbandstækja ekki
fram úr kr. 10.500.
Hvað varðar innflutning far-
manna og flugliða, sem hafa
verið 20 daga eða skemur i ferð,
hækkar hámarksandvirði toll-
frjáls varnings úr kr. 1.500 i kr.
3- 000. Sé ferð á bilinu frá 21 til 40
dagar skal farmönnum og fluglið-
um heimilt að flytja með sér toll-
frjálsan varning að andvirði kr.
9.000 en fyrir 14.000 kr. sé ferð
lengri en 40 dagar.
Engar breytingar eru frá eldri
reglugerð um það magn áfengis
og tóbaks, sem feröamenn og á-
hafnir mega taka með sér til
landsins.
Merkasta nýmæli reglugerðar-
innarer heimild fyrir tollyfirvöld
til að hafa aðskilda tollafgreiðslu
annars vegar fyrir þá, sem hafa
engan tollskyldan farangur með-
ferðis við komu til landsins og
hins vegar fyrir þá, sem annað
hvort hafa tollskyldan farangur
meðferðis eða farangur sem
háður er innflutningstakmörkun-
um eða banni.
Skulu hinir fyrrnefndu farþegar
ganga um hlið merkt grænu skilti
með áletruninni „Enginn toll-
skyldur varningur”, en hinir
siðarnefndu um hlið merkt rauðu
skilti með áletruninni „Tollskyld-
ur varningur”.
Um leið og farþegi hefur gengið
um hlið, sem merkt er samkvæmt
framansögðu telst hann hafa
svarað þvf sem tollgæzlumanni
bæri ella að spyrja um, hvort
hann hafi meðferðis tollskyldan
varning eða varning, sem háður
er innflutningstakmörkunum eða
banni.
Komi fram við skoðun farang-
urs varningur, sem ekki hefur
verið gerð grein fyrir eins og fyrir
Sýslunefnd Norður-Þingeyjarsýslu:
Oviðunandi ástand í
orkumálum sýslunar
SÝSLUNEFND Norður-Þingeyj-
arsýslu samþykkti nýlega svo-
hljóðandi ályktun um orkumál:
„Aðalfundur sýslunefndar
Norður-Þingeyjarsýslu haldinn á
Kópaskeri 15. júli 1975 telur nú-
verandi ástand i orkumálum sýsl-
unnar algerlega óviðunandi og
standi það beinllnis i vegi fyrir
þróun byggðarinnar. Leggur
sýslunefndin þvi áherzlu á, að
nægilegrar raforku verði aflað
eins fljótt og mögulegt er.
Einnig krefst sýslunefndin
þess, að nægileg varaorka sé ætið
fyrir hendi i sýslunni. Bendir
sýslunefndin á, að mikið öryggi
yrði i lagningu nýrrar háspennu-
linu frá Kröfluvirkjun norður i
Kelduhvsrfi.
Sýslunefndin mælir með þvi, að
hugmyndin um Norðurlands-
virkjun verði að veruleika hið
allra fyrsta ’’
er mælt i reglugerðinni skoðast
hann ólöglega fluttur inn og skal
gerður upptækur til rikissjóðs.
Tollafgreiðslukerfi þetta er tek-
ið i notkun hér á landi fyrir til-
stuðlan Tollasamvinnuráðsins i
Brússel, sem Island er aðili að og
hefur það þegar verið tekið upp i
mörgum löndum. Vonazt er til, að
kerfi þetta geti flýtt verulega
fyrir tollafgreiðslu farþega við
komu frá útlöndum og er nú að
þvi unnið, að fyrirkomulag þetta
verði tekið upp á Keflavikurflug-
velli.
Skráðum atvinnu-
leysingjum fækkar
BH-Reykjavik. — Atvinnu-
leysingjum á skrá fækkaði veru-
lega i júlimánuði, miðað við júnl-
mánuð, og voru á atvinnuleysis-
skrá þann 31. júli 305 manns i
kupstöðunum, en voru 804 í júni-
mánuöi. Alls voru á atvinnuleys-
isskrá á landinu öllu i lok júli-
mánaðar 305 manns, en voru 892 i
lok júnimánaðar.
Fækkunin er hvað mest áber-
andi I Reykjavik, að sjálfsögðu,
en þar voru um siðustu mánaða-
mót á atvinnuleysisskrá 121 kari
og 57 konur, eða samtals 178
manns. 1 lok júnimánaðar voru
502 á atvinnuleysisskrá i Reykja-
vik. Er auðséð að verkfallið á
stóru togurunum hefur haft sitt að
segja með atvinnuleysisskrán-
inguna i júnilok, og lausn þess
vafalaust orsök þess, hve fólki á
atvinnuleysisskrá hefur fækkað.
Sést þetta greinilega á stöðum
eins og Akranesi, þar sem 63 voru
á skrá i júnilok en aðeins 31 nú,
Akureyri, þar sem 175 voru á
skrá, en 29 nú. 1 einum kaupstað,
Siglufirði, hefur skráðum at-
vinnuleysingjum fjölgað. Þar eru
nú 28 á skrá, en voru 11 fyrir mán-
uöi. Af stærri kauptúnum þar sem
atvinnuleysingjum hefur heldur
fjölgað má nefna Stykkishólm
með 18 atvinnuleysingja skráða
(13) og Selfoss með 11, áður 6.
Kristilega stúdenta-
mótinu lýkur í kvöld
BH-Reykjavik. — Kristilega
stúdentamótinu, sem staöið hefur
hér i borginni undanfarna viku,
lýkur i kvöld. t gær var efnt til
útisamkomu i grasgarðinum i
Laugardal. Var þar margt manna
samankomið, auk þátttakenda i
mótinu, sem gengu fylktu liði frá
Laugardalshöilinni. Þarna fóru
fram ræöuhöld og söngur.og þótti
samkoman hin ánægjulegasta i
hvivetna.
Timinn ræddi i gærkvöldi við
Thorstein Egeland, sem er einn
þátttakenda i mótinu, en hefur
haft i mörgu að snúast, þar sem
miklar kóraæfingar hafa hvilt á
herðum hans og annar undir-
búningur. Lét Thorstein mjög vel
af mótinu og kvað það hafa haft
góð áhrif, ekki aðeins meðal þátt-
takenda, heldur og ekki siður út á
við, og það skipti verulegu máli.
Dagskráin mótsdagana hefur
yfirleitt verið með svipuðu sniði,
og verður henni þannig háttað i
dag, að flokkalestur bibliu hefst
að loknum morgunverði, siðan
hefst sameiginlegur bibliulestur
fram að hádegi. Eftir hádegið er
frjálst, þá stunda menn söng-
æfingar, iþróttir o. fl„ en kl. 16.30
taka umræðuhópar til starfa um
ýmis efni, svo sem kristindóm og
pólitik, vandamál tjáningar, trú-
arlifið almennt og bibliuna, og
hefur þá fátt eitt verið nefnt.
Kvöldsamkoman hefst svo kl.
8.30. Aðalræðumaður kvöldsins
verður Henrik Terret frá
Finnlandi, en þarna verður mikið
sungið svo sem undanfarin kvöld,
almennur söngur, einsöngur og
kórsöngur.
Mikið fjölmenni var á útisamkoin unni I grasgarðinum
Laugardal á sunnudaginn. Timamynd: Róbert.