Tíminn - 16.08.1975, Side 12
12
TÍMINN
Laugardagur 16. ágúst 1975
Höfundur: David Morrell
Blóðugur
hildarleikur
95
En f leiri ástæður voru til þess, að Rambo hleypti ekki
af. Síðast þegar hann þerraði blóðið af augum sér leið þó
nokkur stund áður en hann sá sæmilega skýrt á ný. Hann
sá tvöfalt. Nú var svo komið, að hann sá engan mun á
skugganum og runnunum. Allt rann saman í móðu, og nú
fékk hann svo ákafan höf uðverk, að svo virtist sem höf-
uðið ætlaði að klofna.
Hvers vegna hreyfðist skugginn ekki? Hreyfðist hann
kannski án þess hann tæki eftir því? Rambo fannst, að
hann ætti að vera búinn að heyra eitthvað til Teaslers.
Láttu heyrasteitthvað í þér, maður. Hvers vegna heyrist
ekkert i þér, hugsaði Rambo. Allt var að verða um sein-
an. Sírenuvælið nálgaðist þegar óðfluga. Kannski voru
það slökkvibif reiðar og kannski lögreglan.
Áfram nú, Teasle. Rambo heyrði nú til fólksins frá
húsinu. Það ræddi saman óttaslegið. Hann skynjaði eitt-
hvað og leit aftur fyrir sig til að kanna hvort einhver
væri enn við anddyrið með byssu eða annað hættulegt
verkfæri. Það var ekki um að villast. Hann sá Teasle
koma að sér úr átt frá f ramblettinum. Undrun Rambos
var svo mikil, að hann skaut áður en hann vissi af.
Teasle hrópaði upp yfir sig og þaut aftur sömu leið,
kastaði sér niður stallinn og hafnaði á gangstéttinni. En
Rambo gerði sér ekki gjörla grein fyrir þvi hvað hafði
komið fyrir. Hann hrökk aftur á bak eins og hann yrði
skyndilega þyngdarlaus. Hann kastaðist til annarrar
hliðar og skall með andlitið á grasið. Hendur hans voru
heitar og blautar af því að halda um brjóstið. Rétt á eftir
urðu þær kámugar. Teasle hafði hæft hann. Þrátt fyrir
allt tókst Teasle að skjóta einu skoti og tókst að særa
hann. Rambo var dofinn í brjóstinu og allar taugar
lamaðar af þessu eina skoti..Af stað. Ég verð að koma
mér héðan. Sírenuvæl.
Hann gat ekki staðið á fótunum. Engdist af sársauka.
Til hliðar við húsið var vírgirðing. Að baki hennar grillti t
ógreinilegar risamyndir í næturskímunni. Logarnir frá
lögreglustöðinni og dómhúsinu vörpuðu drungalegri
birtu yfir allt. Þó sá hann ekkert greinilega. Hann pírði
augun. Sjónin skýrðist og hann sá aftur í kringum sig.
Rennibrautir, rólur og sandkassar. Barnaleikvöllur.
Þangað skreiddist hann á höndum og fótum. Að baki sér
heyrði hann gráðuga iogana læsa sig í allt sem fyrir
varð.
— Ég ætla að sækja byssuna mína. Hvar er byssan
mín? Rambo heyrði einhvern hrópa innan úr húsinu.
— Nei, í guðs bænum, sagði konan. Vertu kyrr inni.
Ekki blanda þér í þetta.
— Hvar er byssan mín? Hvert léztu byssuna mína? Ég
sagði þér að vera ekki alltaf að færa hana milli staða.
Rambo skreiddist áfram svo hratt sem hann komst.
Hann kom að girðingunni og svo að hliði. Hann opnaði
það og skreiddist gegnum það. Að baki sér heyrði hann
fótatak á viðarþrepunum.
— Hvar er hann? Hvert fór hann? Hann var nú kominn
út úr húsinu og rödd hans mun skýrari.
— Þarna, æpti enn önnur kona í skelfingarofboði.
ÞARNA. VIÐ HLIÐIÐ.
Farið þið bölvuð, hugsaði Rambo. Hann skimaði kring
um sig. Logarnir teygðu sig til himins. Hann sá manninn
standa við verkfæraskúr og miða riffli. Maðurinn var
hálf klaufalegur við að miða. Hann var öllu glæsilegri
þegar Rambo skaut hann. Maðurinn greip um hægri öxl
sér, snerist hálfhring og hrasaði um litið barnahjól, sem
stóð við verkfæraskúrinn. Reisn hans hvarf aftur, þegar
hjólið rann undan honum.
— Jesús, hann skaut mig. Hann skaut mig. Ég er særð-
ur, stundi maðurinn.
Maðurinn vissi ekki hversu heppinn hann var. Rambo
miðaði á brjóst hans en ekki öxlina. Hann gat ekki lengur
skotið markvisst, ekki haldið byssunni stöðugri og blóðið
fossaði úr brjósti hans. Hann átti sér ekki undankomu
auðið og gat ekki lengur varið sig að neinu gagni. Ekkert
var eftir, nema ef vera skyldi dýnamítstaukurinn í vasa
hans. Rambo hugsaði um dýnamítið. Til f jandans með
dýnamítið. Hann var svo máttvana, að hann treysti sér
ekki tii að kasta því;nema nokkur fet f rá sér.
— Hann hæfði mig. Hann hæfði mig. Ég varð fyrir
skoti, stundi maðurinn.
Sama get ég sagt, en ekki væli ég og veina, hugsaði
Rambo gremjulega. Hann gat ekki sætt sig við að bíða
þess að lögreglumennirnir kæmu og hirtu sig. Þess
vegna hóf hann enn að skreiðast áf ram. Hann stefndi að
svolitlum polli, sem ætlaður var börnum til að vaða í. Þá
flæddi sársaukinn um hann allann. Kúlan hafði borast
inn á milli brákaðra rif ja hans. Hann varð nær trylltur af
sársauka, hristi höfuðið, klóraði í brjóst sér, klóraði og
reif. Hann reyndi að ná stjórn á sér og skolaði líkama
sinn í pollinum að f remsta megni. Sársaukinn var svo of-
boðslegur að hann hentist á fætur upp úr pollinum og stóð
krepptur og titrandi af kvölum. Svo skjögraði hann í átt
aðendamörkum leikvallarins. Girðingin var lág. Rambo
halaði sig yf ir hana másandi og spyrnti sér yf ir. Það var
klunnalegt stökk. Hann bjóst við að skella á jörðinni, en
iilliillí !Í
Laugardagur 16.
ágúst
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.). 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Sigrfður Eyþórsdóttir
les sögu sína „Gengið á
reka”. Tilkynningar kl. 9.30.
Létt lög milli atriða. Kl.
10.25: ,,Mig hendir aidrei
neitt”, — umferðarþáttur
Kára Jónassonar (endur-
tekinn). óskalög sjúklinga
kl. 10.30: Kristin Svein-
björnsdóttir kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
14.00 A þriðja timanum Páll
Heiðar Jónsson sér um þátt-
inn.
15.00 Miðdegistónleikar.
Itzhak Perlman og André
Previn leika á fiðlu og pianó
tónlist eftir Scott Joplin.
The New England
Conservatory Ragtime En-
samble leikur tónlist eftir
•Artie Matthews, Eubie
Blake, Zez Confrey, Jerry
Roll Martin.
15.45 1 umferðinni Arni Þór
Eymundsson stjórnar þætt-
inum. (16.00 Frettir. 16.15
Veðurfregnir)
16.30 Háif fimm Jökull
Jakobsson sér um þáttinn.
17.20 Nýtt undir nálinni örn
Petersen arinast dægur-
lagaþátt.
18.10 Síðdegissöngvar. Til-
kynningar
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 Hálftiminn Ingólfur
Margeirsson og Lárus
Óskarsson sjá um þáttinn,
sem fjallar um tónlist i
Rikisútvarpinu.
20.15 Hljómplöturabb
Þorsteinn Hannesson
bregður plötum á fóninn.
20.45 Á ágústkvöIdiSigmar B.
Hauksson annast þáttinn.
21.15 Kvöldstund með Peter
Kreuder.sem leikur með fé-
lögum sinum lög eftir Hey-
mann, Carste, Jary og
fleiri.
21.45 „Segðu mér að sunnan”
Edda Þórarinsdóttir leik-
kona les ljóð eftir Huldu.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir Dansiög
23.55 Fréttir I stuttu máli.
Dagskrárlok.
Laugardagur
16. ágúst
18.00 tþrótir Umsjónarmaður
Ómar Ragnarsson.
Hlé
20.00 Fréttir og vcður
20.25 Dagskrá og auglýsingar
20.30 Læknir i vanda.Breskur
gamanmyndaflokkur. Hver
er sekur? Þýðandi Stefán
Jökulsson.
20.55 Eigum við að dansa?
Kennarar og nemendur
Dansskóla Heiðars Ást-
valdssonar sýna nokkra
dansa. Stjórn upptöku
Andrés Indriðason.
21.20 Rauðá (Red River)
Bandarisk biómynd frá ár-
inu 1952, byggð á gamalli
sögu frá Texas. Aðalhlut-
verk John Wayne og Mont-
gomery Clift. Þýðandi Dóra
Hafsteinsdóttir. Myndin
gerist i Texas um 1850 og
greinir frþ bónda, Tom Dun-
son að nafni, sem þar hefur
komið upp stórri nautgripa-
hjörð. Reka verður gripina
um langan veg til markaðs-
borgarinnar, og er sú leið
torfarin og erfið. Dunson
bóndi sýnir kúrekum sinum
mikla hörku á ferðalaginu,
og þar kemur loks, að
fóstursyni hans, Matthew,
ofbýður framkoma hans.
23.30 Dagskrárlok