Tíminn - 30.09.1975, Síða 1
SLÖNGUR
BARKAR
TENGI
% f 0*
*h\\ f &
^_________y.i.
Landvélarhf
Utanríkisráðherra á Allsherjarþinginu:
VÍSINDALEG
VERNDAR-
SJÓNARMIÐ
LÁTIN RÁÐA
HHJ-Rvík — Um þessar mundir
er unniö að áætlun um visinda-
lega stjórnun á veiðum Islenzkra
fiskiskipa, og hún mun fela i sér
miklar veiðitakmarkanir, jafnvel
eftir að lokið er veiðum erlendra
skipa á islenzkum fiskimiðum.
Tilgangur þessarar áætlunar er
að tryggja hámarksafla til lang-
frama undir visindalegri stjórn,
og hún grundvalhst á vlsindaleg-
um verndarsjónarmiðum.
Þetta var meðal þess, sem Ein-
ar Agústsson utanrikisráðherra
skýrði frá i ræðu sinni á 30. alls-
herjarþingi Sameinuðu þjóðanna
i gær.
Þá sagði utanrikisráðherra
einnig, að riki sem senda stóra
togaraflota á fiskimið annarra
þjóða án samþykkis þeirra, ættu
að réttu lagi að greiða skaðabæt-
ur fyrir þau auðævi, sem þau hafa
mokað upp. Lágmarkskrafan
væri sú, að þau létu af sliku hátt-
erni og horfðust I augu viö þá
staðreynd, að yfirgnæfandi
meirihluti rikja heims er hlynnt-
ur 200 milna efnahagslögsögu.
Einar skýrði ennfremur frá þvi,
að rikisstjórn Islands væri þrátt
fyrir þetta ekki andvig þvl að
veita þessum þjóðum nokkurn að-
lögunartima til bráðabirgöa, og
þá i þeim tilgangi að koma I veg
fyrir efnahagslega örðugleika er-
lendra fiskimanna.
Við munum hins vegar ekki láta
undan efnahagslegum þrýstingi
eins og þeim, sem við höfum orðið
fyrir af hálfu V-Þýzkalands.
Ræða utanrikisráðherra er birt
i heild á siðu 8.
Frumvarpið um vísinda-
lega stjórn fiskveiðanna
lagt fram á næstunni
grennslaðist fyrir um störf fisk-
veiðilaganefndar. Kvað Jón
nefndina, sem upphaflega var
skipuð fimm mönnum með
fiskimálastjóra i formannssæti,
hafa ferðazt um allt land og
kynnt sér verkefnið sem itar-
legast. Nú hefði verið fjölgað i
nefndinni um 7 menn með til-
komu fulltrúa stjórnmálaflokk-
anna, og undirbúningur frum-
varpsins þegar vel á veg kom-
inn.
Farnirað salta viðbryggjur
» > 0
BH—Reykjavík — Snemma á
komandi Alþingi verður lagt
fram frumvarp um áætlun að
vfsindalegri stjórnun á veiðum
Islenzkra fiskiskipa. Er þetta
gert með tilliti til þess, að unnt
verði að afgreiða frumvarpið
fyrir áramót.
Þessar upplýsingar fékk Tim-
inn i gær hjá Jóni L. Arnalds,
ráðuneytisstjóra i sjávarút-
vegsráðuneytinu, er Timinn
Þaft var ekki allt sama eftlis, sem kom I fyrirdráttarnetift I Elliftaánum
á laugardaginn, þegar félagar I Stangveiftifélagi Reykjavikur drógu
fyrir vegna klaks. i netift komu laxarog spunar og sitthvaft fleira.
— Timamynd: GE
Séð yfir ráðstefnusaiinn aft Hdtel Loftleiftum. Ólafur Jóhannesson I forsæti. Tfmamynd: Gunnar
Efta-fundur í Reykjavík:
Lítil von um að efnahags-
ástandið í heiminum batni
á þessu árí eða hinu næsta
HHJ-Rvik — Efnahagskreppan i
heiminum hefur enn versnað, og
ástandið er nú verra en það hefur
verið i fjörutiu ár, sagði Ólafur
Jóhannesson I upphafi ræðu sinn-
ar, þegar hann setti formlegan
fund ráðgjafanefndar Efta, sem
þingar að þessu sinni i Reykjavik.
Fyrr á þessu ári töldu menn
nokkra von um að ástandiö myndi
batna nokkuð þegar á þessu ári,
en nú er sýnt að varla er einu
sinni von um að úr rætist að
marki 1976, sagði Ólafur
Stóru rikin, og þá einkum
Bandarikin, Japan og V-Þýzka-
land, eiga mikla sök á þvi, hvern-
ig komið er I efnahagsmálum
heimsins. Margir höfðu vonað, að
þau myndu beita sér fyrir efna-
hagsaðgerðum, sem leiða myndu
til þess að ástandið skánaði, en sú
von hefur ekki rætzt, sagöi Ólafur
ennfremur.
Efta-löndin, þ.e. Island, Noreg-
ur, Sviþjóð, Austurrtki, Sviss,
Portúgal og Finnland, sem á
aukaáðild að samtökunum, hafa
ekki farið varhluta af efnahags-
vandanum, þótt ástandið i
Efta-löndunum sé þó ekki eins
slæmt og viða annars staðar.
Eftir ræðu ólafs gerðu fulltrúar
Svia og Norðmanna grein fyrir
þeim efnahagsvanda, sem lönd
þeirra eiga við að striða. Utan-
rikisverzlun Svia fer minnkandi,
og menn óttast aukna verðbólgu
þar i landi og minnkandi fjárfest-
ingu i atvinnulifinu. Norðmenn
búast hins vegar við þvi að þjóð-
arframleiðslan aukist um 6% á
næsta ári. Viðskiptajöfnuður
þeirra er nú óhagstæður, en
vegna þeirra miklu tekna, sem
olian mun færa þeim, telja þeir
ekki ástæðu til að óttast það. Al-
varlegri er sú minnkun, sem orðið
hefur á útflutningi frá Noregi, en
hún nemur 20% fyrri hluta þessa
árs, borið saman við útflutning I
fyrra.
Þá gerði Hjörtur Hjartarson
grein fyrir hinum alvarlegu horf-
um I Islenzku efnahagslifi og gat
þess m.a., að viðskiptajöfnuður-
inn hefði verið okkur óhagstæður
sem svaraði 113 milljónum
Bandarikjadala i ágústlok, og
fyrirsjáanlegt væri, að hann yrði
enn meiri I árslok, ef svo færi sem
horfði. Þá gat Hjörtur þess, að
viðhorf okkar til Efta-aðildarinn-
ar væri nú allt annað en við inn-
gönguna i samtökin árið 1970. þvi
að siðán hefðu bæði Danmörk og
Bretland sagt sig úr samtökunum
og friverzlunarsamningur okkar
við EEC væri ekki i fullu gildi,
vegna andstöðu V-Þjóðverja, en
það hefur valdið okkur miklu
efnahagstjóni, sem kunnugt er.
Fyrri hluta dags i gær fóru
fram óformlegar viðræður við
fulltrúa Dana og Breta.
Fundinum verður fram haldið I
dag.
Hani. sitja fulltrúar iðnaðar
verzlunar og verkalýðssamtaka.
Ólafur Jóhannesson mun siðar
flytja ráðherranefnd Efta skýrslu
um þennan fund, þegar ráðherra-
nefndin kemur saman i Genf sið-
ar á árinu.
Samningar við Svía um
síldarsölu út um þúfur
Gsal—Reykjavik — Svo virðist
sem samningaumleitanir sild-
arútvegsnefndar við Svia um
sölu á saltsild liafi farið út um
þúfur. — í fáum orðum sagt ber
mjög mikið á milli hvað verð
snertir, og þvi sáum við ekki
ástæðu til að halda þessum við-
ræðum áfram, sagði Jón Skafta-
son, formaður sildarútvegs-
nefndar, þegar Timinn hafði tal
af honum i Gautaborg um miðj-
an dag i gær.
Jón sagði, að verð það sem
Sviarnir hefðu boðið, hefði verið
allmiklu lægra en þeir hefðu
getað fallizt á, og þvi' hefði
nefndarmönnum þótt tilgangs-
laust að halda viðræðunum
áfram. — Hinsvegar létum við
þá vita af þvi, að við yrðum hér
á hótelinu fram á morgundag-
inn, hvort sem þeir nú hafa
samband við okkur eða ekki, en
mér þykir ósennilegt að þeir
geri það, sagði Jón.
Sviarnir standa fast á þvi að
grejða ekki hærra verð fyrir
sildina frá Islandi-i sömu gæða-
og stærðarflokkum), heldur en
sildina, sem fæst úr Norður-jón-
um, frá Noregi og Kanada, — og
sagði Jón, að sú sild væri jafnvel
oft stærri og feitari en sú sild,
sem hægt væri að veiða við Suð-
urströnd Islands enn sem komið
væri.
Sextán manns sátu á fundin-
um i gær af hálfu Svia.
Jón kvað liklegt að þeir héldu
til Danmerkur i dag, nema svo
óliklega vildi til að Sviarnir
endurskoðuðu sina afstöðu til
samninganna, og i ráði væri að
óska eftir viðræðum við V-Þjóö-
verja, einnig i' Kaupmannahöfn.
— Við gerum okkur vonir um
samninga við Finna, en um-
boðsmaður okkar þar hefur ver-
ið að kanna markað fyrir Is-
landssild. Við væntum þess að
fá einhverjar fregnir frá honum
i dag eða á morgun, sagði Jón
Skaftason að lokum.