Tíminn - 01.10.1975, Page 5
Miðvikudagur 1. október 1975
TÍMINN
5
Sjúkrahús í Keflavík
Tilboð óskast i að reisa og gera fokhelda
viðbyggingu við Sjúkrahúsið i Keflavik.
Auk þess skal fullgera húsið að utan og
ganga frá lóð.
Húsið skal vera fokhelt fyrir árslok 1976,
en verkinu ljúki að fullu fyrir 1. júli 1977.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
vorri, Borgartúni 7, Reykjavik, gegn
10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað, þriðju-
daginn 21. okt. kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍKI 26844
Dagblaðið hóð
útgefendum
sínum
Deilan milli fjármálamann-
anna, sem standa að baki VIsi
og Dagblaðinu, fer nú óðum
harðnandi. Þannig notar Vlsir
nú Armannsfellsmálið til að
deila á aðstandendur Dag-
blaðsins. t forustugrein Visis I
fyrradag, sagði á þessa leið:
„Enn kynlegri er þó afstaða
hins nýja dagblaðs, sem sjálft
hreykir sér af þvi að vera
frjálst og óháð. A.m.k. tveir af
aðstandendum þess eru jafn-
framt hluthafar i hinu um-
rædda byggingarfélagi. t
samræmi við það tók ritstjórn
þessa frjálsa og óháða blaðs
þegar upp þá stefnu, að með
engu móti mætti áfellast það
fyrirtæki, sem hér ætti hlut
að máli né heldur þá
stjórnmálamenn, er annazt
hefðu fésýslu fyrir viðkom-
andi stjórnmálaflokk.
Þetta óháða og frjálsa blað
taldi, að I þessu máli ætti ein-
vörðungu að ásaka æðstu for-
ystumenn þessa stjórnmála-
flokks. Þessi afstaða varpaði
hulunni af augiýsingaskrum-
inu um frelsið. En hún minnti
einnig á þá rlku tilhneigingu
að skjóta sllkum málum á bak
við lás og slá hinnar flokks-
pólitisku samtryggingar. Ef
sjónarmið af þessu tagi réðu
rlkjum, gæti pólitisk spilling
læst sig um þjóðarlikamann
án þess að menn gætu rönd við
reist.
Með þessu er ekki verið að
segja, að ritstjórn þessa
umrædda blaðs hafi sérstakan
áhuga á pólitiskri spillingu:
hún er aðeins háð sinum út-
gefendum”.
Með þessum orðum er Visir
ótvirætt að gefa I skyn, að að-
standendur Dagblaðsins séu
ekki neitt sérstaklega heiðar-
legir.
Dagblaðið svarar
í forustugrein Dagblaðsins á
mánudaginn er aðstandendum
Reykjaprents h.f., sem gefur
út Visi, sendur tónninn og seg-
ir þar á þessa leið:
,,Sú rangfærsla, sem oftast
hefur verið endurtekin i reiði-
lestri aðstandenda VIsis, eru
fullyrðingar leiðara blaðsins
um, að minnihlutinn I Reykja-
prenti útgáfufélagi blaðsins,
hafi reynt að ná fjármálaleg-
um tökum á fyrirtækinu.
Engin slik tilraun hefur
nokkru sinni verið gerð af
hálfu minnihlutans. Einu
hlutabréfin, sem ólöglega hafa
gengið milli manna I félaginu,
eru nokkur hlutabréf, sem nú-
verandi formaður Reykja-
prents aflaði sér fyrir mörg-
um árum.
Minnihluti Reykjaprents-
manna var einfaldlega hrak-
inn á brott með offorsi og knú-
inn til að stofna nýtt dagblað,
sem hefur nú þegar meiri sölu
en Visir hafði fyrir hrunið.
Vinsældir Dagblaðsins byggj-
ast meðal annars á þvl, að all-
ir helztu starfsmenn VIsis og
minnihluti Reykjaprents-
manna tóku höndum saman
um stofnun blaðs, er gæti
fengið að vera I friði fyrir
flokka- og hagsmunapólitlk.
Með ofurkappi sinu hefur
aðstandendum VIsis tekizt á
aðeins einu slðsumri aö stór-
skaða blað, sem aðrir menn
höfðu byggt upp á mörgum ár-
um. Hafi meirhlutamenn
Reykjaprents áttað sig á þess-
ari staðreynd núna, eiga þeir
ekki að láta málið koma sér úr
jafnvægi. Persónunlð getur
aidrei komið I stað heiðarlegr-
ar samkeppni.”
Vafalitið stendur ekki á VIsi
að svara.
Þ.Þ.
STJÓRNARSKRÁ
ÍSLANDS
— ný bók eftir dr. Gunnar G. Schram
AUGLYSIÐ
í TÍMANUM
ÚT ER KOMIN bók um Stjórnar-
skrá Islands, eftir dr. Gunnar G.
Schram, þar sem meginatriði is-
lenzkrar stjórnskipunar er
skýrður á þann hátt, að
almenningur á greiðan aðgang að
efninu. Jafnframt er bókinni
ætlað það hlutverk að vera hentug
bók við kennslu I félagsfræðum og
á skyldum sviðum.
í bók sinni gefur höfundur I
stuttu en mjög ljósu máli yfirlit
yfir megindrætti islenzkrar
stjórnskipunar. Fjallað er um öll
helztu ákvæði stjórnarskrár
landsins, sem verið hefur i gildi
siðan 1944. Sú stjórnarskrá er
kjölfesta hins islenzka réttarþjóð-
félags. Hér er þvi ritað um mál-
efni, sem allir íslendingar þurfa
að kunna skil á, ekki sizt hinir
yngri, sem eru að vaxa úr grasi.
í bókinni er rætt um embætti og
valdsvið forseta Islands og um
ráðherra, helztu störf þeirra og
ábyrgð þeirra á
embættisverkum. Þá er rætt um
Alþingi og réttindi og skyldur
alþingismanna. Einnig er vikið aö
þvi hvenær heimilt er að beita
þingrofi. Þá er fjallað um verk-
efni dómstólanna og loks um það
hvaða mannréttindi Islendingum
eru tryggð. Þetta er ómissandi
bók öllum þeim, sem áhuga hafa
á stjórnmálum, þjóðfélagsmálum
og islenzkri lögvisi.
Höfundur bókarinnar, dr.
Gunnar G. Schram, er einn kunn-
asti lögfræðingur landsins. Hann
var varafulltrúi Islands hjá Sam-
einuðu þjóðunum þar til á siðasta
ári. Hann er nú prófessor i lögum
við Háskóla Islands. Útgefandi
bókarinnar er örn og örlygur.
Bókin er sett i prentstofu G
Benediktssonar, prentuð hjá
Prenttækni hf. en bundin I Arnar-
felli. Kápu gerði Hilmar Helga-
son.
Yfir vetrarmónuðina er Bílapartasalan
opin fró kl. 1-6 eftir hódegi.
Upplýsingar í síma 11397 frá kl. 9-10
fyrir hádegi og 1-6 eftir hádegi
BÍLAPARTASALAN
Höfðatúni 10, simi 11397.
Opið frú kl. 9—7 alla virka daga og 9—5 laugardaga „
................^
Bílavara-
hlutir
Notaðir
varahlutir
í fiestar gerðir eldri bíla
Frá vistheimilinu
Sólborg Akureyri
Starf aðstoðarforstöðukonu við vist-
heimilið Sólborg, Akureyri er laust til
umsóknar.
Umsækjandi skal hafa próf frá Þroska-
þjálfaskóla íslands eða hliðstæða mennt-
un.
Hjúkrunarkona eða fóstra kæmi einnig til
greina. Upplýsingar um starfið gefa
framkvæmdastjóri eða forstöðukona i
sima 96-21755.