Tíminn - 01.10.1975, Side 16
16
TÍMINN
Miðvikudagur 1. október 1975
Lið Pólverja er skipað eftirtöld-
um leikmönnum, t.f.v. (efri röð)
Andrzej Szumcak, hefur leikið
101 landsleik, Andrzej Sololow-
ski, 65 landsleiki, Zdzislaw Ant-
szak, 58 landsleiki, Jerzy Mel-
cer, 80 landsleiki, Jerszy
Klempel, 83 landsleiki, Wojci-
ech Gwózdz, 7 landsleiki, Zyg-
fryd Kuchta, 100 landsleiki og
Alfred Kaluzinski, 40 landsleiki.
(Neðri röð) Piotr Ciesla hefur
leikið 9 landslciki, Zbigniew Dy-
bol, 108 landsleiki, Janusz Brz-
ozowski, 28 landsleiki, Henry
Kozmiarek, 73 landsleiki og Jan
Gmyrek, 83 landsleiki.
A blaðamannafundi með stjðrn
HSI og Viðari Simonarsyni, 1 gær,
kom fram, að Geir Hallsteinsson
og Pálmi Pálmason hafa ekki
gefið kost á sér í landsliðshópinn,
og aðspurður kvaðst Viðar ekki
hafa leitað til Bjarna Jónssonar,
Þrótti, að þessu sinni — og hefur
það vakið talsverða athygli, enda
Bjarni fastamaður með lands-
liðinu I fyrra. — Þegar Viðar var
frekar inntur eftir þvi, hvers
vegna Bjarni væri ekki valinn I
hópinn, sagði hann, að hér væru
það margir menn sem léku sömu
stöðu og Bjarni og hans mat væri
það, að aðrir leikmenn kæmu bet-
ur út fyrir liðið i heild.
Þegar Viðar var spurður um
það, hvort hann teldi að þessi 16
manna landsliðshópur yrði kjarni
landsliðsins á þessu keppnistima-
nefnda. Szymczak kemur með
pólska liðinu hingað til lands, en
kjarni liðsins er sá sami nú og i
heimsmeistarakeppninni á sið-
asta ári.
I tilefni landsleikjanna gegn
Pólverjum óskaði Viðar Simonar-
son eftir þvi, að bræðurnir Ólafur
og Gunnar Einarssynir yrðu
kallaðir heim frá Þýzkalandi.
Komu þeir til landsins á sunnu-
dag og munu æfa með liðinu fram
að leikjunum tveimur. Axel,
Einar og Ólafur sem einnig leika i
Þýzkalandi áttu þess ekki kost að
taka þátt i undirbúningi lands-
liðsins að þessu sinni.
Islendingar og Pólverjar hafa
leikið sex landsleiki og hafa Is-
lendingar unnið fjóra þeirra, Pól-
verjar tvo. Nú siðast léku þjóðirn-
ar i Júgóslaviu i sumar og þá
vann islenzka liðið með 16-14.
LANDSLEIKIR VIÐ PÓLVERJA
— á laugardag og sunnudag í Laugardalshöll
— 16 manna landsliðshópur hefur verið valinn
LANDSLEIKIR verða I Laugar-
dalshöll um helgina við Pólverja
og eru það fyrstu landsleikir ts-
lendinga í handknattleik á ný-
byrjuðu keppnistimabili. Fyrri
ieikurinn hefst á laugardag kl. 15
og siðari leikurinn hefst kl. 20 á
sunnudagskvöld.
I gær tilkynnti stjórn Hand-
knattleikssambandsins hvaða
ieikmenn það væru sem tækju
þátt i undirbúningi landsliðsins
fyrir leikina við Pólverja:
Markverðir eru: Ólafur Bene-
diktsson, Val, Rósmundur Jóns-
son, Víkingi, Marteinn Árnason,
Þrótti. Aðrir leikmenn eru: Páll
Björgvinsson, Vlkingi, Viggó
Sigurðsson, Vikingi, Magnús
Guðmundsson, Vlkingi, Stefán
Gunnarsson, Val, Jón Karlsson,
Val, Gunnsteinn Skúlason, Val,
Sigurbergur Sigsteinsson, Fram,
Björgvin Björgvinsson, Fram,
Hörður Sigmarsson, Haukum,
Ingimar Haraldsson, Haukum,
Gunnar Einarsson, Göppingen,
Ólafur Einarsson, Donzorf og
Arni Indriðason, Gróttu.
Viðar Slmonarson er þjálfari og
AAarteinn til
Þýzkalands
ENN EINN máttarstólpi Islenzka
landsliðsins í knattspyrnu heldur
utan til að freista gæfunnar sem
atvinnuknattspyrnumaður. Nú er
það Marteinn Geirsson, hinn
kunni leikmaður Fram, sem
hefur fengið boð um að koma og
leika með v-þýzka knattspyrnu-
liðinu Kickers Offenbach. Mun
Marteinn æfa með liðinu I eina
viku, og ef forráðamönnum liðs-
ins lizt vel á frammistöðu hans
þennan vikutima, munu þeir
bjóða honum atvinnusamning.
Vandræði steðja nú að Offen-
bach-liðinu og um þessar mundir
er liðið I einu af neðstu sætum
1-deildarinnar þýzku og eins og
sást i Timanum i gær, mátti liðið
þola stórt tap s.l. laugardag (1:5)
fyrir Eintracht, Brunschweig á
útivelli.
Er ekki að efa að liðinu verður
fengur i þvi að fá Martein I slnar
raðir, en hann heldur utan á
föstudag.
einvaldur landsliðsins að þessu
sinni, en eins og greint hefur verið
frá, kunngerði stjórn HSI fyrir
nokkru skipan landsliðsnefndar,
en tveir nefndarmanna, Karl
Benediktsson og Birgir Björnsson
báðust undan þeirri skipan. Þar
sem þá var naumur timi til stefnu
fyrir leikina við Pólverja tók
stjórn HSI þá ákvörðun að þjálf-
arinn, Viðar Simonarson, skyldi
einnig gegna starfi einvalds um
sinn, þar til ný nefnd verður skip-
uð, en það mun væntanlega verða
gert innan tlðar.
MARTEINN GEIRSSON
bili, svaraði hann þvl játandi, en
gat þess jafnframt, að „útlend-
ingarnir” — Islenzku leikmenn-
irnir sem leika með þýzkum
handknattleiksfélögum, yrðu með
I liðinu, svo framarlega sem þeir
gætu tekið þátt I undirbúningi
leikja.
— Pólverjarnir hafa á að skipa
mjög sterku og skemmtilegu liði,
sagði Viðar. — og lið þeirra er eitt
skemmtilegasta sóknarlið sem ég
hef séð á þessu ári.
Pólverjar hrepptu sem kunnugt
er fjórða sætið i lokakeppni
heimsmeistarakeppninnar I
fyrra, og kom árangur liðsins
mjög á óvart. Þótti liðið leika sér-
lega skemmtilegan og hug-
myndarikan handknattleik, en þó
vakti markvörður þeirra, Andrés
Szymczak mesta athygli, en hann
er um þessar mundir álitinn einn
bezti markvörður i heimi og var I
fyrra valinn I heimsliðið svo-
Breytt fyrirkomulag
1. deildar
Mjög hefur verið gagnrýnt
hversu undirbúningur landsliðs-
ins hefur verið lltill fyrir þessa
tvo leiki við Pólverja. A funcunum
I gær, greindi landsliðseinvaldur-
inn og þjálfarinn, Viðar Simonar-
son, frá þvl, að stefnt væri að því I
vetur, að láta æfingar landsliðs-
ins og félagsliðanana ekki stang-
ast jafn mikið á eins og verið hef-
ur á undanförnum.árum. Verður
undirbúningi landsíiðsins þannig
háttað, að hann verður I „lotu”,
þ.e. æfingar á hverjum degi I
nokkurn tíma.
A fundinum kom fram, að öll-
um væri kunnugt um þá erfiðleika
sem orðið hafa á undanförnum
árum á æfingasókn landsliðs-
manna vegna verkefna þeirra hjá
félögunum. Þvl hafi fyrirkomu-
lagi 1. deildar verið breytt. Mótið
fer nú fram i tveimur áföngum
með hléi á milli.
REYKJANESAAÓTIÐ:
AUÐVELDIR SIGRAR
HJÁ GRÓTTU OG FH
— en Haukarnir áttu
úr Garðahreppi
A SUNNUDAGINN hófst Reykja-
nesmótið I handknattleik og voru
þá ieiknir fjórir leikir I meistara-
flokki karla. I. deildarliðin þrjú,
FH, Grótta og Haukar kepptu öll I
fyrstu umferðinni og sigruðu FH
og Grótta inótherja slna auðveid-
lega, en Haukarnir áttu I basli við
Stjörnuna.
Reykjanesmeistarar Gróttu
kepptu við þriðju deildarliðið
Aftureldingu úr Mosfellssveit og
sigruðu auðveldlega með 35
mörkum gegn 19.
FH-ingar kepptu við Breiðablik
úr Kópavogi og unnu yfirburða-
basli meðStjörnuna
sigur, skoruðu 36 mörk en fengu á
sig 12.
Haukaliðið lenti I erfiðleikum
með mótherja sinn, Stjörnuna úr
Garðahreppi, og það var ekki fyrr
en undir lok leiksins að þeim tókst
að ná yfirhöndinni.
Fjórði leikurinn i fyrstu umferð
var á milli HK úr Kópavogi og IA
liðsins, en bæði liðin leika I 3.
deild. Leikur þessi var mjög
spennandi, og það var ekki fyrr
en á siðustu minútu leiksins að sjá
mátti hvort liðið færi með sigur af
hólmi. HK vann með aðeins eins
marks mun, skoraði 25 mörk, en
ÍA-ingar 24.
Kii rby fékk fli jg-
ferð að launum o
Englendingurinn George Kirby, sem hefur þjálf-
að lið Akurnesinga siðastliðin tvö keppnistimabil
með mjög góðum árangri — fékk „flugferð” að
launum fyrir árangurinn eftir að Akurnesingar
höfðu lagt Kýpur-liðið Omonía að velli á Laugar-
dalsvellinum á sunnudaginn. Strax og leiknum
var lokið þustu leikmenn liðsinsað þjálfara sinum
og „tolleruðu” hann svo um munaði. Á þessari
Timamynd Róberts má sjá Kirby i einni ,,flug-
ferðinni”.