Tíminn - 10.10.1975, Blaðsíða 7
Föstudagur 10. október 1975.
TtMINN
Einar Þorldksson:
ÁRSKAUP UPP Á VEGG
Dagana 4.—12. október
stendur yfir í Norræna
húsinu sýning á verkum
Einars Þorlákssonar list-
málara, en hann er rúm-
lega fertugur að aldri.
Einar hef ur haldið nokkr-
ar sýningar á verkum
sínum, en hefur annars
verið hljóðlátur málari og
verið f remur lítið í sviðs-
Ijósinu. Undirritaður
minnist eldri sýninga,
a.m.k. einnar, sem haldin
var fyrir nokkrum árum.
Einar Þorláksson hlaut.
starfslaun i fyrra, eða hitteð-
fyrra, en þá geta menn ort, mál-
að, eða kompónerað á launum
menntaskólakennara, 3, 6, eða
12 mánuði, eftir atvikum. Hafa
starfslaun þessi, sem veitt eru
af Menntamálaráði verið talin
góð fjárfesting i listum. Einar
hlaut 12 mánuði.
Ekki mun beinlinis vera gert
ráð fyrir að menn skili endilega
miklu verki, þótt flestir geri
það. Listræn vinna er þess eðlis
að margir bókstaflega þagna
við röskun á högum, að ekki sé
nú talað um eins voðalegan og
framandi hlut eins og embættis-
laun, þegar brauðstritið er allt i
einu tekið frá manni. Galeiðu-
þrællinn hefur misst árina sina
og skipið fer á rek.
Það er enginn vafi á þvi að
margir munu skoða þessa sýn-
ingu Einars Þorlákssonar eins
og hverja aðra launakvittun. Nú
burt séð frá því hver hefur tekið
i nefið hjá hverjum, þá var það
a.m.k. fróðlegt að sjá fram-
vindu mála hjá Einari Þorláks-
syni, þv áeinustu verkin, sem ég
sá eftir hann, þá hjá honum dr.
Gunnlaugi Þórðarsyni voru at-
hyglisverð og frumleg.
Þessi sýning er hinsvegar
vond. Yfir myndunum (oliu) er
einhvert dæmalaust úrræða-
leysi bæði i lit og formi. Allt
virðist gert af hreinu handahófi.
Þó vil ég undanskilja eina
mynd, sem ber nafnið Pans.
Mun betur gengur á hinn bóg-
inn, þegar málarinn kemst ekki
i marga liti, sbr. myndir no 20
og 21, eða Úr Eyjum I og II.
Pastelmyndirnar eru hins-
vegar betri, Riki frændinn i
Ameriku og Hollenzk minning,
annað er verra, eða minnir of
mikið á aðra menn.
Vera má að Einar Þorláksson
telji sig nokkuð hart leikinn með
þessum ummælum, en við þvi er
ekkertað gera. Ævi listamanna,
eða listferill þeirra er mis vel
fallinn til sýninga, þeir eiga með
öðrum orðum vond og góð tima-
bil i listsköpun sinni. Sumir þó
einkum vond. Einar er sem bet-
ur fer ekki einn þeirra og þegar
menn vita hvernig ekki á að
mála, þá vita þeir þó það og þá
er útlit fyrir betri tið.
Á sýningu Einars eru tæplega
sextiu verk. Hann hefur þvi sið-
ur en svo setið auðum höndum
undanfarið. Sýningunni lýkur
um næstu helgi.
Jónas Guðmundsson.
Þriðja þing slökkviliðs
manna nýafstaðíð
BH-Reykjavik. — Þriðja þing manna var haldið dagana 4. og 5.
Landssambands slökkviliðs- október sl. að Hótel Loftleiðum.
Bújörð til leigu
Jörðin Hrisar I Dalvikurkaupstað er laus
til ábúðar nú þegar. Einnig er til sölu vél-
bundið hey.
Tilboð um leigu sendist undirrituðum fyrir
15. þ.m. sem jafnframt veitir nánari upp-
lýsingar.
Bæjarstjórinn Dalvik.
Þekkt | Hagstætt | Meiri | Betri
gæöafóður|| verð gjj mjólk | afkoma
Gtobusa
LAGMÍILI 5. SlMI 815 55
Allt í þágu
landbúnaðarins
Þingiðsóttu um 50 fulltrúar frá 38
félögum með 800 meðlimum.
Guðmundur Haraldsson, for-
mabur Landssambandsins, setti
þingið og minntist i upphafi Þór-
halls Dan. Kristjánssonar, sem
var einn af forystumönnum sam-
bandsins frá upphafi. I ræðu sinni
greindi Guðmundur frá samræm-
ingu, sem gerð var á kaupi laus-
ráðinna slökkviliðsmanna, en
ósamræmi i launum þeirra var
mjög mikið áður. Þá gat hann
þess, að á þinginu lægju fyrir um-
sóknir frá fimm félögum slökkvi-
liðsmanna um inngöngu i sam-
bandið.
Á þinginu var fjallað um launa-
mál. Mikill timi fór í umræður um
heilbrigðis- og öryggismál og ósk-
að var eftir þvi, að yfirvöld
brunamála i bæja- og sveita-
stjórnum lagfæri þau nú þegar.
Þá var samþykkt áskorun á rikis-
stjórnina að fella nú þegar niður
tolla og aðflutningsgjöld af
slökkvi- og björgunarbúnaði.
Þingið færði þeim stofnunum, er
mest hafa stuðlað að þjálfun og
búnaði slökkviliða, þakkir sinar
en það eru Innkaupastofnun rikis-
ins, Brunamálastofnun rikisins
og Samband isl. sveitafélaga.
Ný stjörn var kosin fyrir sam-
bandið. Fráfarandi formaður gaf
ekki kost á sér að nýju, og voru
honum þökkuð vel unnin störf i
þágu sambandsins.
1 stjórn sambandsins voru
kosnir: form.Armann Pétursson,
aðrir i stjórn eru, Magnús Guð-
mundsson, Þorsteinn Ingi-
mundarson, Marinó B. Karlsson,
Gunnlaugur B. Sveinsson, Stefán
Teitsson og Bjarni Eyvindsson.
Auglýsicf
íTimanum
POSTSENDUM
SPORW4L S
~$HEEMMTORGf J
ALLT
fyrir
leikfimi &
ballett
TÆKIFÆRISVERÐ
Verktakar -
vinnuvélaeigendur
Eigum fyrirliggjandi
Ingersoll Rand fleyghamra og skotholu-
bora i ýmsum stærðum og gerðum (einnig
hljóðlausa skotholubora).
Verð mjög hagstætt.
r HF HÖRÐUR * GUNNARSSON SKULATUNI 6 SIMI 19460
Fró Tækniskóla
íslands
Löggildingarnámskeið fyrir rafvirkja
hefst miðvikudaginn 15. október.
Umsækjendur mæti að Höfðabakka 9, kl.
8,15 f.h. þann dag.
w TILBOÐ
óskast i eftirtaldar bifreiðar, er verða til sýnis þriðju-
daginn 14. október 1975 kl. 1—4 i porti, bak við skrifstofu
vora Borgartúni 7:
Peugeot 404 station
Volkswagen 1000 Variant
Chevrolet Blazer
Ford Transit Custom 10 manna
Ford Transit Custom 15 manna
Chevrolet sendiferðabifreið
Chevrolet sendiferðabifreið
Land Rover bensin
árg.
1972
1972
1971
1970
1972
1970
1967
1970
Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 5:00, að viðstöddum
bjóðendum. Réttur áskilinn til að hafna tilboðum, sem
ekki teljast viðunandi.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTUNI 7 SIMI 26844