Tíminn - 12.10.1975, Side 3
Sunnudagur 12. október 1975
TÍMINN
3
Bragi Kristjánsson:
Heimsmeistaramót
unglinga í skák '75
XIV. Heimsmeistaramóti
unglinga i skák er nýlokið.
bað var haldið i Tjentiste i
Júgóslaviu á timabilinu 16.
ágúst til 1. september. fyrir ís-
lands hönd tefldi Margeir
Pétursson, en undirritaður var
honum til aðstoðar.
Fyrirkomulagi mótsins hefur
verið breytt. A mótinu tefldu
allir i einum flokki 13 umferðir
eftir Monradkerfi, en áður voru
tefldar undanrásir og úrslit.
Nýja fyrirkomulagið er tvi-
mælalaust til bóta, þvi nú ræður
tilviljun ekki eins miklu.
Þátttakendur á mótinu voru
48 frá 47 löndum, en gest-
gjafarnir hafa rétt á tveim
þátttakendum. úrslit urðu
þessi:
vinn.
1/2 vinn.
vinn.
vinn.
8 1/2 vinn.
8 1/2 vinn.
8 vinn.
vinn.
1/2 vinn.
7 1/2 vinn.
7 1/2 yinn.
7 1/2 vinn.
7 1/2 vinn.
7 1/2 vinn.
7 1/2 vinn.
7 1/2 vinn.
7 1/2 vinn.
1. Valerij Chehow (Sovétrikin),............... 10
2. Larry Christiansen (Bandarikin), .......... 9
3,- 4. Jonathan Mestel (England), .
Venseslav Inkiov (Búlgaria),
5,- 6. Harry Schússler (Sviþjóð), ..
Adam Kuligowski (Pólland),.
7.- 8. Lazaro Bueno (Kúba)....
Lim Seng Hoo (Singapore),............... 8
9.-17. Peter Nurmi (Kanada),................... 7
Paul van der Sterren (Holland),...
Dragan Barlov (Júgóslavia),.......
Raul Henao Calle (Kólumbia),....
Jaime Sunye Neto (Brasilia),......
David Bernstein (Israel),.........
Alexandri Pablo (Spánn),..........
José Villareal (Mexikó),..........
Pravin M. Thipsay (Indlandi), ....
Margeir varð 33. með 6 vinninga.
Sigur Chehows . var verð-
skuldaður, þvi hann tefldi mjög
vel og örugglega allt mótið.
Hann lenti aðeins einu sinni i
taphættu, gegn Christiansen I
næst siðustu umferð, en tókst að
halda jöfnu. Christiansen byrj-
aði illa, en náði sér vel á strik
undir lokin. Mestel tefldi mis-
jafnlega. Stundum mjög vel, en
illa á milli. Inkiov er öruggur,
en ekki mjög hugmyndarikur
skákmaður. Schússler var
óheppinn að ná ekki 3. sætinu,
þvi hann missti unna skák niður
i jafntefli gegn Seng Hoo Lim i
næst siðustu umferð. Arangur
Schússlers verður einnig að
skoðast i þvi ljósi, að hann tefldi
við alla efstu menn mótsins.
Bueno og Seng Hoo Lim hlutu
hærra sæti en þeir verðskuld-
uðu. Van der Sterren og Nurmi
voru i efstu sætunum allt mótið,
en lækkuðu flugið undir lokin.
Margeir byrjaði vel, vann
tvær fyrstu skákirnar, gegn
Gigerl frá Austurriki og Gaspar
frá Iran. I þriðju umferð tapaði
hann illa íyrir Pólverjanum
Kuligowski, lék illa af sér i byrj-
un og átti sér ekki viðreisnar
von eftir það. 1 þrem næstu
skákum gerði Margeir jafntefli
við Villareal (Mexikó), Höj
(Danmörk) og Pablo (Spáni).
Hann stóð betur i öllum skákun-
um og var mjög óheppinn að
vinna ekki a.m.k. tvær þeirra.
Skákirnar i 4.-6. umferð fóru all-
ar i bið, og hefur þreyta örugg-
lega átt sinn þátt i þvi, að Mar-
geiri gekk illa i næstu umferð-
um. Hann tapaði flókinni skák
fyrir Henao (Kólumbiu) i 7. um-
ferð og i þeirri áttundu tefldi
hann sina verstu skák i mótinu,
við Bernstein frá Israel. I 9. um-
ferð kom sú skák, sem ásamt
skákinni við Kuligowski olli
mestu um endanlega útkomu
Margeirs i mótinu. Hann tefldi
mjög vel og yfirspilaði Al-Attar
frá Irak eftir öllum listarinnar
reglum. Þegar aðeins var eftir
að innbyrða vinninginn, yfirsást
Margeiri gagnsóknarmöguleiki
andstæðingsins. Eftir það var
vinningurinn ekki lengur ein-
faldur, og frekari tilraunir til
sigurs leiddu til taps. Það var
sannarlega ergilegt fyrir Mar-
geir að tapa þessari skák. Með
henni fóru siðustu möguleikar
Margeirs á háu sæti forgörðum.
Úrslit i siðustu umferðunum:
Margeir-Rikkanen (Finnl.),
1/2-1/2, Rafael (Trindidad-Mar-
geir, 0-1, Margeir-Kouatly
(Liabanon), 0-1, Bonapart
(Surinam )-Margeir, 0-1.
Ilvitt: Margeir
Svart: Gaspar (Iran)
Vængtafl
1. c4 Rf6 2. Rf3 g6 3. g3 Bg7 4.
Bg2 0-0 5. 0-0 d6 6. Rc3 e5 7. d3
Rbd7 8. Hbl a5 9. a3 He8 10. b4
axb4 11. axb4 c6 12. Rel Rb6 13.
b5 c5 14. e4 Be6 15. Rc2 Dc8 16.
Re3 Bh3 17. Db3 Bxg2 18. Kxg2
De6 19. Bd2 Ha7 20. Hal Hca8 21.
Db2 Dc8 22. f3 Db8 23. g4 Bh6 24.
IIxa7 Dxa7 25. Rf5 gxf5 26. Bxh6
f4 27. I)f2 Kh8 28. Dh4 Rg8 29.
Hf2 Db8 30. Ha2 Hxa2 31. Rxa2
De8 32. Rc3 f6 33. g5 Dg6 34. Kf2
Rxh6 35. gxh6 Df7 36. Dh3 Dd7
37. Dh5 De7 38. Df5 Kg8 39.
Dg4+ Kh8 40. Rd5 Rd7 41. Rxe7
og svartur gafst upp.
llvltt: Pablo
Svart: Chehow
Kóngsbragð
1. e4 c5 2. 14 exf4 3. Rf3 g5 4. Il4
g4. 5. Re5 d6 6. Rxg4 Rf6 7. Rf2
Hg8 8. (14 Bh6 9. Rc3 De7 10. e5
dxe5 11. dxe5 Rbd7 12. Be2 Rxe5
13. Dd4 c5 14. Da4+ Bd7 15. Rb5
0-0-0 16. I)xa7 Bxb5 17.
I)a8+ Kc7 18. Da5+ Kb8 19.
I)xb5 13 20. gxf3 Rxf3+ 21. Kfl
Rh5 22. Bxhli Itg3+ og livitur
gafst upp.
Hvitt: van der Sterren
Svart: Mestel
Philidorsvörn
1. e4 e5. 2. Rf3 d6 3. d4 f5 4. dxe5
fxe4 5. Rg5 d5 6. c4 Bb4+ 7. Rc3
(14 8. a3 Bxc3+ 9. bxc3 e3 10. f4
c5 11. Bd3 Re7 12. 0-0 Rbc6 13.
Re4 0-0 14. Rxc5 Rf5 15. Rb3
dxc3 16. Bxf5 Dxdl 17. Hxdl
Bxf5 18. Bxe3 Bc2 19. Rc5 Bxdl
20. lixd 1 Ra5 21. Hd3 Rxc4 22.
Bcl Hac8 23. Rxb7 c2 24. e6 Hb8
25. Hd7 Rb6 26, Hc7 Hfc8 27. Hf7
Ra4 28. Kfl Rc5 29. Rxc5 Hxc5
30. Ke2 He8 31. Hxa7 Hxe6+ 32.
Kd2 Hd6+ 33. Ke2 Hdl og hvitur
féll á tima.
Hvitt: Nurmi
Svart: Mestel
Philidorsvörn
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 f5 4. Bc4
cxdl 5. Rg5 Rh6 6. Rxh7 Rg4 7.
Rxl8 Kxf8 8. exf5 De7+ 9. Kfl
Bxf5 10. Dxd4 Rxh2+ 11. Hxh2
Hxh2 12. Be3 De4 13. Dxe4 Hhl +
14. Ke2 Bxe4 og hvitur gafst
upp.
Ilvitt: Bariov
Svart: Christiansen
Caro-Kann
1. e4 c6 2. d4 d5 3. exd5 cxd5 4. c4
Rf6 5. Rc3 e(i 6. Bg5 Be7 7. Rf3
0-0 8. cá b(i 9. 1)4 Re4 10. Bxe7
I)xe7 11. Ra4 ^ r, Bd7 12. Bd3
Rc(i 13. 1)5 Rb4 14. 0 -0 Rxd3 15.
I)xd3 bxc5 16. dxc5 a6 17. c(i axb5
Margir hafa eflaust búizt við
betri útkomu hjá Margeiri, en
lánið lék ekki við hann I þessu
móti. Margeir er aðeins 15 ára
og mótið hefur áreiðanlega orð-
ið honum góður skóli.
Við skulum nú lia á nokkrar
skákir frá mótinu
18. Rb(iHa3 19. Dxb5 Rc3 20. I)b2
Bxcö 21. Rd4 Ba8 22. Rc2 Ha6 23.
al I)a7 24. aS Hxa5 25. IIxa5
Re2+ 26. Khl I)xa5 27. llal Dd2
28. Rxa8 d 1 29. DbS Rcl 30. I)b4
Dxc2 31. h3 (13 32. Rbö (12 og hvit-
ur galsl upp.
Bragi Kristjánsson.
Þetta er okkar fyrsta
á
SHARP
ELETRONICS
| | Sharp Eletronics er eitt allra stærsta
fyrirtæki sinnar tegundar í heiminum.
□ Sharp Eletronics framleiöir meðal
annars hljómtæki — útvörp — sjón-
vÖrp — geislaofna— reiknivélar —
tölvur — hárþurrkur — ísskápa —
þvottavélar — viftur — hárrúllur —
ryksugur o. m.m. fl.
I I Sharp Eletronics sjónvörp hafa farið
— sigurför um allan heim. Þau eru sér-
lega meðfærileg, faileg útlits og ganga
fyrir 220 volta spennu og 12 watta
batterisspennu. Mjög skýr mynd sést
alls staðar á landinu. Að sjálfsögðu
gefum við 1 árs ábyrgð.
I Sharp Eletronics er með ein allra
beztu og ódýrustu litasjónvörp á
markaðnum og þau eru væntanleg í
þessum mánuði.