Tíminn - 12.10.1975, Blaðsíða 4

Tíminn - 12.10.1975, Blaðsíða 4
4 TÍMINN Sumiudagur 12. október 1975 llM'lllllffln!!! ffl. LOOo Er Friðrika drottning orðin brjáluð? Nú segja menn, að Friðrikka, fyrrum drottning i Grikklandi, sé orðin brjáluð og búi innilokuð i höll i fjöllunum milli Bayern og Austurrikis. Þar búa hjá henni tvær konur, sem vakta hana og sjá til þess að aðeins hennar nánustu ættingjar fái að koma til hennar. Sagt er, að heilsa frúárinnar fari stöðugt versn- andi, og enginn viti fyrir, hvað hún kunni að taka sér fyrir hendurá næsta augnabliki. Hún er annað hvort himinlifandi kát og hlæjandi, eða hún segir ekki eitt einasta orð, svo dögum skiptir. Þeir, sem ekki elska grisku konungsf jölskylduna alltof heitt i Aþenu, segja hrein- lega, að ekkjudróttningin sé orðin brjáluð. Konstantin kon- ungur vill hins vegar ekki sam- þykkja neitt slikt, og ber allar sögur um geðbilun til baka. Friðrikka er nú 58 ára gömul, og virðist hafa gefizt upp. Það þykir mönnum þvi merkilegra, sem hún hefur lengst af verið talin hið allra mesta hörkutól. Hún er dótturdöttir Vilhjálms Þýzkalandskeisara, og menn spáðu henni björtustu framtiðar þegar hún var barn, og hún var tákn um betra lif á fyrri striðs- árunum i Þýzkalandi. Sagt er, að karlmennirnir i lifi hennar hafi verið margir. Annars var hún aðeins tiu ára gömul, þegar hún hitti i fyrsta sinn Pál, þá- verandi Grikkjaprins, og mörg- um árum siðar trúði hún for- eldrum sinum fyrir þvi, að hún hefði elskað hann allt frá þvi hún leit hann fyrst augum svona ung. Annars var Hitler hennar fyrirmynd i einu og öllu. Þegar hann gekk um götur i Austurriki sá Friðrikka i fyrsta sinn, að fólk sneri sér frá henni og horfði i aðra átt. Henni fannst allt i einu að það væri eitthvað stór- kostlegt að vera þýzk-. og Hitler notfærði sér aðdáun hennar á sér, og þegar Friðrikka giftist Grikkjaprinsinum var það Þýzkaland, sem gaf sólskins- prinsessuna sina, og Hitler kyssti hana á kinnina að skiln- aði. Friðrikka lagði sig ávallt alla fram um hvaðeina, og eftir að hún var komin til Grikklands var hún ekki lengur góður Þjóð- verji, heldur góður Grikki, og hún hugsaði ekki um annað en að vinna sinni nýju þjóð allt það gagn sem hún mátti. Endirinn varð svo sá, aðhún varð að flýja sitt nýja föðurland, þegar þýzku herirnir komu til Grikklands, en hún hélt áfram að vinna fyrir grisku þjóðina þótt hún væri orðin landflótta, og m.a. sendi hún 400 þúsund pund til Grikk- lands, sem henni hafði tekizt að safna saman, og fyrir þessa peninga voru keypt lyf og vistir fyrir sveltandi og veikt fólk. En siðustu árin hefur Friðrikka viljað ráðkazt mikið með börn sin, Konstantin konung og Sophiu, sem er gift Juan Carlos á Spáni. Mörgum hefur þótt, sem ekki hafi allt verið til góðs, sem hún hefur gert i sambandi við þau, en hún hefur sennilega viljað vel, þótt vopnin hafi stundum snúizt i höndum henn- ar. En nú er sem sagt svo kom- ið, að þessi járndrottning situr innilokuð i höll i Bayérn, og þangað fær enginn að koma til þess að heimsækja hana nema hennar nánustu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.