Tíminn - 12.10.1975, Blaðsíða 39
TÍMINN
39
© Tíðahvörf
einkennin sem þvi eru samfara
geta verið það mikil, að þau valdi
verulegum óþægindum, sem svo
hafa óæskileg áhrif á lif þeirrar
konu sem i hlut á. í þessu sam-
bandi ermikilvægt að benda á, að
oft nægir ekki að veita þessum
sjúklingum venjulega læknis-
fræðilega meðferð, heldur er
nauðsynlegt, að gott samband og
gankvæmt traust sé til staðar og
læknir og sjúklingur geti skipst á
skoðunum hindrunarlaust.
Mikilvægt er, að sá læknir sem I
hlut á, viti sem mest um hagi
sjúklingsins. Lækninum ber að
gefa sér nægan tima til að út-
skýra hlutina, með þvi móti getur
hann oft eytt kviða og óþarfa
áhyggjum sjúklingsins.
Oft er full ástæða til þess að
ræða einnig við eiginmenn sjúkl-
inganna, en þvi miður vinnst
sjaldan timi til þess. Oft er unnt
að hjálpa þessum sjúklingum
með þvi að leysa ýmsan félags-
legan vanda, sem að þeim steðj-
ar. Margar konur hafa of litið
fyrir stafni á þessu timabili og
hefðu gagn af að fá sér vinnu utan
heimilisins. Það er þvi sjálfsagt
að hafa um þetta samvinnu við
félagsráðgjafa, þar sem þeir
starfa.
Miðaldra konur eru nú óhrædd-
ari en áður við að ræða kynferðis-
vandamál sin. Ef um er að ræða
dyspareuni er unnt að gefa
smyrsl til að draga úr sársaukan-
um. Einnig getur psykoterapi
gert gagn. Miðar hún þá að þvi að
skýra út málið fyrir sjúklingnum
og draga úr óþarfa áhyggjum.
Margar konur, einkum giftar,
hafa samfarir fram yfir sjötugt.
Oft er þá ekki beinlinis um að
ræða kynferðislega þörf heldur
umhyggju og ástúð gagnvart
eiginmanni. Það er engin ástæða
til að örva konúr til að taka þátt i
atferli sem þær ráða ekki við en
stundum þurfa þær hjálp til þess
að geta haldið áfram einhverju
kynferðislifi. Þess ber þó að gæta,
að karlmenn, sem teknir eru að
reskjast, eiga iðulega einnig við
kynferðisleg vandamál að striða.
Oft næst ekki árangur með
viðtölum eða félagslegum ráð-
stöfunum og þá verður að gripa til
lyfja. Þegar um einkenni frá
ósjálfráða taugakerfinu er að
ræða, fer meðferðin eftir þvi hve
þau eru á háu stigi. Ef óþægindin
eru væg, næst iðulega góður
árangur með róandi lyfjum.
Gjarnan má gefa spasmolytica
með. T.d. má nota Bellergal
retard, 1 töflu kvöld og morgna. í
þessum töflum er ergotamin tar-
tat 0.6 mg og phenemal 40 mg.
Ef óþægindin láta ekki undan
Bellergal eða eru á háu stigi, er
rétt að gefa östrogenhormón,
annað hvort i töfluformi eða
sprautum. östradiol valerianat.
t.d. tabl. Prögynova, er þá heppi-
legt lyf. Til að byrja með eru not-
uð 1-2 mg á dag, en ef það nægir
ekki er skammturinn smáaukinn
þangað til einkenninhverfa. Þá er
skammturinn aftur minnkaður,
það til komið er að þeim lægsta
skammti, sem þarf til að
sjúklingur verði einkennalaus.
Oftast nægir 1 mg á dag. Sumir
læknar hafa þann sið, að láta
sjúkling taka lyfin aðeins 1/2
mánuð i senn og hvila sig i viku-
tima á milli, t.d. Progynon-depot
10 mg f ml. Lyfið (1 ml) er þá gef-
ið á 2ja-6 vikna fresti og ákvarð-
ast tímabilið milli sprautannaaf
þvi hvenær einkennin koma aftur
i ljós.
Þegar um östrogen-lyfjagjöf er
að ræða, er alltaf gefinn sá
skammtur, sem minnstur nægir
til að halda einkennunum niðri,
þvi of mikið magn getur valdiö
blæðingum. Ef vart veður slikra
blæðinga, er nauðsynlegt að
rannsaka sjúkling m.t.t. illkynja
æxlis og venjulega verður að
skafa legið. Helstu aukaverkanir
af östregenlyfjum eru þroti og
eymsli i brjóstum og ógleði.
Aður fyrr voru margir tregir tii
að nota östrogen við einkennum
frá ósjálfráða taugakerfinu
(neurovegatavia symptom), enda
þótt löngu séu ljós orðin hin æski-
legu áhrif lyfsins. Astæðan fyrir
þvi, að menn hafa verið ragir að
nota lyfin, er óttinn við að þau get
aukið hættuna á illkynja æxlum L
brjósti og kynfærum.
Ef ákveðnum músastofnum
sem hætt er við cancer mammae,
er gefið östrogen fá þær oftar en
áður brjóstakrabba, en þó þvi að-
eins og þær drekki móðurmjólk
(Tvombly 1940). Mýs af stofnum,
sem sjaldan fá cancer mammae,
fá aftur á móti ekkert oftar
brjóstakrabba, þótt þær fái östro-
gen (Bouser 1936). Mýs, sem fá
östrogen, fá oftar en önnur dýr
krabbamein i legháls og leggöng
(Gardner 1959). Þetta á þó ekki
við um apa og marsvin en þeim er
óhætt að gefa östrogen i langan
tima án þess að hættan á cancer i
kynfærum aukist (Lippschutz
1950). Konum með truflaða
eggjastokkastarfsemi, sem leiðir
til aukinnar östrogen-framleiðslu
er hættara við krabbameini i leg-
bol, en öðrum konum. Sama á við
um konur, sem hafa ösrogen-
myndandi æxli i eggjastokkunum
(t.d. kornalagsfrumu-æxli).
Við nákvæma athugun á skýrsl-
um frá heilbrigðisráðuneyti
Bandarikjanna var þó ekki unnt
að sýna fram á að tiðni krabba-
meins I brjóstum eða kynfærum á
árunum 1930-1950 ykist, enda þótt
notkun östrogen-lyfja færðist
mjög i vöxt á þessu tfmabili
(Shelton 1954). Greenblatt (1959)
komst að svipaðri niðurstöðu, en
hann athugaði skýrslur frá árun-
um 1944-1959. Menn hafa þvf skipt
um skoðun á þessu máli og flestir
gefa nú orðið hiklaust östrogen
við óþægindum, sem rekja má til
breytingaskeiðsins.
Varast ber að nota ösrogen-
meðferð, ef um er að ræða:
1) krabbamein i brjösti eða
kynfærum, jafnvel þótt talið sé,
að sjúklingurinn hafi læknast af
krabbameininu,
2) leiomyomiata uteri, þar sem
vöxtur þeirra er háður östrogeni
og meðferðin getur valdið þvi, að
þau stækki.
3) hjartabilun með bjúg, þ.e. lyfið
getur minnkað saltútskilnað og
þar með aukið bjúginn.
Ég vil vara við ofnotkun lyfja,
sem innihalda bæði östrogen og
androgen, t.d. Primodian
(methyltes-tosteron + ethinyl-
östradiol). Það hefur verið álit
manna að karlkynshormón auki
æskileg áhrif östrogens, en dragi
jafnframt úr aukaverkunum.
Séu karlkynshormón notuð of
lengi, geta þau valdið breytingum |
I barkakýli, sem fyrst koma fram
sem hæsi og siðan sem dimm
rödd. Þeir geta einnig valdið
auknum hárvexti og stækkun á
clitoris. Þessar breytingar geta
komið á nokkrum mánuðum og
ganga aldrei til baka. Sjálfur nota
ég aldrei þessi lyf af framan-
greindum ástæðum.
Unnt er að meðhöndla stað-
bundnar breytingar i leggöngum
með östrogen-smyrslum, t.d.
Dynöstrolsmyrsli. Smyrslið ber
að nota daglega í 2 mánuði, en
slðan 2svar i viku og auk þess við
samfarir.
Urethiritis senilis má oft með-
höndla með mjög góðum árangri
með peroral eða parenteral östro-
gen-meðferð t.d. með östradio-
valerianati. Hormónið östriol
hefur veruleg östrogen-áhrif á
leggöng og legháls, en hins vegar
mjög litil áhrif á slimhúð legsins
(Borglin 1959). Langverkandi
stungulyf Triodurin (polyöstriol-
phosphat) er á skrá i Sviþjóð en
ekki hér, og er notað við urethritis
senilis (Jönsson ’73). Notaði ég
þetta lyf (80 mg. i.m. 3svar-4
sinnum á mánaðar fresti) i mörg
ár með góðum árangri.
Pre-menopausal-blæðinga-
truflanir stafa fyrst og fremst af
progesteron-skorti og er þvi
skynsamlegast að nota gestagen-
meðferð við þeim. Heppilegt lyf
er tabl. Primolut-Nor. Eru þá
gefnar 3 töflur á dag, frá 19.-26.
tiðahringsdags. Sumir gefa „pill
una” við þessum blæðingatrufl-
unum, en rétt er að benda á að
Lebech (1973) hefur sýnt fram á,
að ethinyl-östradiol og estranol
(ethinyl-östradiol 3-methyl-
ether), þ.e.a.s. östrogen-efnin i
„pillunni”, hækka serum-chole-
streol, betalipoprotein og trigly-
cerida, en minnka serum-
antithrombin III. Þessar
breytingar eru taldar auka hætt-
una á thromboembolismus.
Ýmsir læknar, einkum banda-
riskir, hafa haldið þvi fram, að
konur sem hættar eru að hafa
blæðingar, eigi að fara i lang-
tima-östrogen-meðferð — jafnvel
ævilangt (Wilson 1972). Með þvi
móti eigi að vera unnt að tefja
fyrir ellihrörnun og draga úr
osteoporosis og æðakölkun.
Gagnsemi slikrar meðferðar er
þó enn ósannað mál að flestra
dómi.
© Stúlka
þetta mál, sem ég get ekki alveg
áttað mig á. Ef ég vissi, hvað það
er, gæti ég hjálpað ykkur.
— Þá held ég, að þér verðið að
hugsa fast, sagði Driscoll. — 1
augnablikinu er útlitið ekki gott
fyrir yður.
— Hafið þér nokkuð á móti þvi,
að ég hugsi upphátt? Mér gengur
yfirleitt betur að hugsa þannig,
sagöi Embleton.
— Farið bara af stað og hugsið
upphátt, sagði lögreglumaðurinn.
■ — Látum okkur nú sjá, sagði
Embleton.
— Schaefer ók til verkstæðisins
til að gera við bilinn sinn...
Hann þagnaði og á enni hans
myndaðist djúp hrukka. Skyndi-
lega stökk hann á fætur.
— Þar kom það, hrópaði hann.
— Það er þetta, sem ég kom ekki
fyrir mig!
Hlutverkaskipti
— Nákvæmlega hvað er það,
sem þér hafið allt i einu áttað
yðuur á? spurði Driscoll.
—Svolitið i sambandi við
Schaefer, svolitið, sem er svo
litilfjörlegt, að furðulegt er, að ég
skyldi fara að hugsa um það. Ég
vissi, að það var eitthvað, en ég
var ekki viss, hvað það gæti verið.
En nú rann það upp fyrir mér.
Þegar Schaefer kom aftur til
dansstaðarins var hann i annarri
skyrtu og öðrum buxum. Ég
hugsaði ekkert um það þá, og ég
er ekki viss um, að þau hin hafi
tekið eftir þvi. Sliku tekur fólk
yfirleitt ekki eftir.
Driscoll varðstjóri tók fram
vitnisburð Schaefers, las hann og
sagði við Embleton: — Ég er
hræddur um að við þurfum að
halda yður hér aðeins lengur, en
ég vona, að það verði ekki lengi.
Meðan einn af lögregluþjónun-
um sótti Embleton, fór Driscoll
með samstarfsmanni heim til
Schaefers. Þeim var sagt, að
hann væri á vinnustað, og fundu
hann á bilaverkstæðinu. Þeir tóku
hann með sér á lögreglustöðina
og báðu hann að lesa vitnisburð-
inn sinn.
Er hann hafði lokið því, spurði
Driscoll: — Er ekkert, sem þér
óskið eftir að breyta eða bæta
við? Er vitnisburðurinn réttur og
fullkominn eins og hann er?
— Algerlega, sagði Schaefer. —
Engu er við að bæta. Vitnisburð-
urinn er fullkominn.
— Það kemur ekkert fram i
vitnisburðinum um, að þér fóruð
heim og höfðuð fataskipti áður en
þér fóruð aftur á dansstaðinn,
sagði Driscoll. — Hvers vegna
haíið þér ekki nefnt það?
— Mér datt það ekki I hug,
sagði Schaefer. -- Skyrtan og
buxurnar voru ötuð i'aliu eftir
bilaviðgerðina, svo að ég fór bara
heim og hafði fataskipti.
— Við viljum gjarnan sjá
skyrtuna og buxurnar, sagði
Driscoll. — Komið þér með okkur,
eða verðum við að verða okkur úti
um leitunarleyfi?
Schaefer fölnaði og stamaði: —
Nei, nei, ég kem með ykkur
heim.
Hann tók fram skyrtu og buxur,
sem ekki báru nein merki um
oliu- eða fitubletti, en þegar lög-
reglumennirnir rannsökuðu her-
bergið, sáu þeir, að rúmdýnunni
hafði verið sprett upp á hliðinni.
Inni i dýnunni fundu þeir blóði
drifinn fatnað, skyrtu, nærskyrtu
og buxur. Einnig fundu þeir
pappirshnif með blóðblettum.
Schaefer snéri sér að móður
sinni og stóðá öndinni af gráti. —
Ég ætlaði ekki að gera það,
mamma, stundi hann upp. — Ég
vildi ekki gera henni mein.
Alltof falleg
Á lögreglustöðinni sagði
Schaefer: — Irma var alltof lag-
leg. Hún var fallegasta stúlkan,
sem ég hef nokkurn tima séð, og
ég varð ástfanginn af henni. Ég
gat ekki hætt að hugsa um hana,
en hún hló bara að mér og striddi
mér. Ég sagði henni, að ég væri
hrifinn af henni og spurði, hvort
við gætum ekki rætt út um málið.
— Hún sagðist geta hitt mig
með leynd einhvern tima, þegar
það hentaði mér. Foreldrar minir
eru mjög strangir., og ég var
hræddur um, að þau kæmust að
þvi, að ég færi einsamall út með
Irmu. Ég beið eftir henni i bilnum
þarna um kvöldið. Það var ekkert
að bilnum. Ég hafði bara skrökv-
að þvi. Við ókum á þennan stað,
lögðum bilnum og töluðum um
ást.
— Hún sagðist hafa áætlanir
um að komast áfram i starfi, en
að hún hefði ekkert á móti þvi, að
ég skrifaði henni, og hún myndi
skrifa á móti. Ég reyndi að kyssa
hana, en hún streittist á móti.
Hún neitaði og sagðist vera svo
siðsöm stúlka. ,En ég var alveg
óður I hana og gat stungið hend-
inni undir blússuna hennar. Þá
fór hún að lemja mig. Ég dró
hana út úr bilnum og reyndi að fá
hana þangað, sem ég vildi. En
hún barðist á móti eins og villi-
dýr. Ég var með þennan hnif og
fór að stinga i hana. Ég var
hræddur um, að hún færi til lög-
reglunnar og kærði mig fyrir
nauðgunartilra un.
— Eg sá að það blæddi úr
henni, og hún virtist vera með-
vitundarlaus, en ég varð að drepa
hana. Ég varð að láta hana þegja.
Ég gat ekki leyfthenni að lifa. Þið
skiljið það, er það ekki? Ég varð
að drepa hana, það var engin leið
önnur!
Sekur
Þegar Roy Schaefer stóð i
réttarsalnum, játaði hann á sig
morðið á fegurðardisinni Irmu
Gamba. Hann var dæmdur fyrir
það, sem i amerísku réttarfari er
nefnt annars stigs morð.
— Þetta er harmleikur, sagði
verjandinn við dómarann, Arthur
L. Cook. — Þessi ungi maður var
innilega ástfanginn af stúlkunni.
Hefði hún bara leyft honum að
kyssa sig, kynni að hafa farið á
annan veg, en þegar hún neitaði
honum um að kyssa sig, missti
hann sjálfsstjórnina og drap
hana.
— Hann tók stein og sló hana i
höfuðið til að vera viss um að hún
væri dáin, sagði ákærandinn. —
Þá sýndi hann, að hann ætlaði sér
að drepa hana.
Ekki var um annað að ræða
fyrir Schaefer en að fallast á
þetta.
Ég hef tekið tillit til hins lága
aldurs hins ákærða, en sé ekkert
annað honum tii málsbóta, sagði
dómarinn. — Þvi dæmist hann til
fangelsisvistar, allt frá 30 árum
til ævilangrar. Dómurinn hefur i
för með sér, að hann verður að af-
plána a.m.k. 15 ár áður en hann
getúr sótt um náðun. (þýtt: K L )
Kaupið bílmerki
Landverndar
►Verjum
rBgróöurJ
verndum
land
Til sölu hjá ESSO og SHELL
bensínafgreiðslum og skrifstotu
Landverndar Skólavörðustíg 25
NOTAÐIR
FORD TRAKTORAR
TIL SÖLU
FORD 5000 — árgerð 1965
—75 hestafia — ca. 3300
tímar í mjög góðu lagi
m/öryggisgrind og klæðningu.
FORD 7000 — árgerð 1974
— 94 hestafla — ca. 700
tímar — sem nýr —
m/vönduðu húsi.
Báðar vélarnar eru til
afgreiðslu strax.
Upplýsingar hjá
sölumönnum.
Samband islenzkra samvinnufélaga
VÉLADEJLD
Ármula 3 Reykjavik sim.i 38900