Tíminn - 12.10.1975, Síða 10
10
TÍMINN
Sunnudagur 12. október 1975
Sigurður S. Magnússon læknir
Tíöahvörf og
breytingaskeið
Siguröur Magnússon læknir.
Skilgreining
Hugtökin menopausis og klima-
kterium hafa verið skilgreind á
mismunandi hátt. Orðið meno-
pausis þýðir hlé á blæðingum og
er það hugtak þvi notað um tima-
biliö, þegar siðasta blæðingin á
sér stað. Þannig er aldrei mögu-
legtað greina menopausis fyrr en
eftir á. Sumir höfundar, t.d.
Stoeckel, skilgreina menopausis,
sem timabilið næst á eftir siðustu
blæðingu. Hugtakið menopausal-
einkenni á við einkenni, sem
koma fram fyrir og eftir meno-
pausis.
Orðið klimakterium er griskt
að uppruna og þýðir þar stigi eða
trappa. Ekki eru menn sammála
um skilgreiningu á hugtakinu
klimakterium. Sumir skilgreina
það sem ti'mabilið næst á undan
menopausis, aðrir sem timabilið
fyrsteftir menopausis og enn aðr-
irláta það ná yfir bæði timabilin.
1 Sviþjóð er hugtakið látið ná yfir
allt breytingatimabilið, þ.e. frá
þvi konan er á siðasta timabili
frjósemisskeiðsins og fram á elli-
ár. Menopausis er þannig atburð-
ur I klimakterium á sama hátt og
menarche er atburður á gelgju-
skeiðinu.
Sennilega er heppilegt að fara
að ráði Kaisers og Daume (1965)
og skipta klimakterium i 2 tima-
bil, pre-menopausis, sem nær yfir
siðustu 2-5 árin fyrir menopausis,
ogPost-menopausis, sem nær yfir
2-5 ár eftir menopausis.
Einkenni, sem sjúklingar telja
að eigi rætur að rekja til
breytingaskeiðsins (klimakteri-
um) er algeng orsök þess, að leit-
að er læknis. A þessu timabili
verða hjá konunni lifeðlisfræði-
legar breytingar og nauðsynlegt
er að gera sér ljóst, að minnkandi
starfsemi eggjastokkanna á
þessu skeiði getur valdið hvarfs-
einkennum, sem stafa af minnk-
andi hormónaframleiðslu kynfær
anna. Þessi einkenni eru fyrst og
fremst frá kynfærum, en einnig
er óljóst samband milli kven-
kynshormóna annars vegar og
ákveðinna lyflæknis- og geðsjúk-
dóma hins vegar. Það er þvi
nauðsynlegt, að allir læknar
þekki þau sérstöku vandamál,
sem komið geta i ljós á þessu
timabili. Sá læknir sem best
þekkir til aðstæðna hlutaðeigandi
einstaklings er oft best til þess
fallinn að leysa vanda hans.
Hvenær verður
menopausis?
A slustu 75 árum hefur frjó-
semistlmabil ' konunnar lengst.
Menarche verður nú fyrr en áður
og menopausis kemur siðar.
Samkvæmt hollenskri atugun eru
konur nú að meðaltali frjósamar I
37 ár. Sama athugun sýnir, að
menopausis verður að jafnaði
fyrr hjá giftum konum en ógiftum
(51,4 ár resp. 53 ár), (Yaszmann
1969). Tlðalok hverrar konu
ákvarðast fyrst og fremst af arf-
gengum þáttum. en lélegt fæði og
járnskortur geta orðið þess vald-
andi að þau verði fyrr en ella.
Hins vegar verður ekki séð að
tlðabyrjun eða fjöldi barna hafi
hér nokkur áhrif. Annars er ekki
vitað hver er orsök þess, að tiða-
lok verða nú siðar en áður. E.t.v.
má þó tengja þetta betri lifskjör-
um.
Lifeðlisfræðileg
viðhorf
Karlmaðurinn myndar stöðugt
sáðfrumur ailt frá kynþroska-
aldri, en konan myndar hins veg-
ar engar nýjar\ eggfrumur eftir
fæðingu. Eggjastokkar nýfæddra
meybarn hafa að geyma
u.þ.b. 400.000 eggfrumur, en kon-
ur um fertugt aðeins 5-10.000.
Hvert blæðingatimabil (ca. 4 vik-
ur) þroskast allmörg eggbú
(folliculi), en aðeins eitt þeirra
nær að þroskast og verða að
Graafs-eggbúi, en hin rýrna fljót-
lega og eyðast. 1 upphafi breyt-
ingaskeiðsins eru aðeins fáeinar
eggfrumur eftir I eggjastokkun-
um og æðarnar f hilus og medulla
taka að kalka (fysiologisk
sclerosa). Meðan konan er frjó-
söm mynndast östrogen I eggja-
stokkunum, nánar tiltekið i
kornalaginu. (granulosa-frumun-
um), búhulunni (theca-frumun-
um) og sennilega lika I millifrum-
unum ( in t er s t i t i a le s ) .
Progesteron myndast aðallega I
gulnuðum (luteiniseruðum)
kornalagsfrumum og þá aðal-
lega eftir að egglos hefur átt sér
stað.
1 heiladingli myndast vaxtar-
hormón kynkirtla (gonadotro-
pin), sem stjórna svo aftur hor-
mónamyndun eggjastokkanna.
Eru það annars vegar FSH (folli-
kel stimuierandi hormón). Þarna
er um að ræða sjálfvirkt stýri-
kerfi, þannig að aukist magn
östrogena eða progesterona, þá
minnkar framleiðsla á FSH og
LH. Minnki hins vegar östrogen-
eða progesteronmagnið eykst
framleiðsla á FSH og LH.
Myndun og losun FSH og LH i
heiladinglinum stjórnast af los-
unarþáttum , sem myndast i
hypothalamus. Á pre-meno-
pausal-tlmabilinu minnkar næmi
egg.jastokkanna fyrir áhrifum
gonadotropina, en það veldur svo
minnkandi östrogen-framleiðslu
eggjastokkanna. Þetta leiðir aft-
ur til þess, að framleiðsla FSH fer
að nokkru úr hömlum. Úr þvi að
kona kemst á fertugsaldur er
unnt að sýna fram á aukið magn
af FSH I blóði og þvagi. LH eykst
einnig en minna þó. LH-hækkun-
in getur stundum valdið því, að
immunologiskt HCG graviditets-
próf verður ranglega jákvætt. Of-
an greindar breytingar hor-
mónajafnvægi valda þvi, að hlut-
fallið FSH/LH truflast, en það
getursvo aftur valdið þvi, að ekk-
ert egglos verði (anovutation).
Jafnvel þótt egglos eigi sér stað,
geturskort progesteron. Sýnt hef-
ur verið fram á, að útskilnaður á
pregnandioli i seinni hlemingi
tiðahrings er mun minni hjá kon-
um i pre-menopausis en yngri
konum.
Progesteron-skortur er oft
fyrsta einkenniö um minnkandi
starfsemi eggjastokkanna og
veldur hann þvi, að frjösemin
minnkar. Fósturlát verða einnig
tiðari, en það stafar af þvi, að
corpus luteum nær ekki að þrosk-
ast nægilega. Röskun á hlutfall-
inu milli östrogens og pro-
gesterons veldur fyrst og fremst
blæðingatruflunum, en þær eru
algengasta einkennið á premen-
opausal-timabiiinu. Smám
saman verður östrogen-fram-
leiðslan það litil, að hormónið
getur ekki lengur haft áhrif á vöxt
legslimhúðarinnar. Fari östro-
gen-framleiðslan undir 100-500
microgr. á dag þá hætta blæðing-
ar. Venja er að telja menopausis-
timabiliðliðið, ef kona hefur ekki
haft blæðingar i eitt ár.
Pre-menopausan einkennist af
minnkandi östrogen-framleiðslu,
sem kemst i lágmark á u.þ.b. 5
árum,«n helst lítil og jöfn úr þvi.
Siðan kemur 3. timabilið sem ein-
kennist af hrörnunarbreytingum
á kynfærum. Þá er þó enn unnt að
sýna á 2-10 microgr. östrogeni
I þvagi á dag. Það er ekki fyrr en
konur eru komnar hátt á sjötugs-
aldur, að östrogen-myndunin er
orðin hverfandi litil. Það östro-
gen-magn, sem þá er enn í líkam-
anum er sennilega komið frá
nýmahettuberki. Þessu til stuðn-
ings má benda á, að ACTH-gjöf
eykur mjög östrogen i þvagi og
gerir það þótt eggjastokkarnir
hafi verið fjarlægðir.
Eftir tiðahvörfin eykst gona-
dotropin-myndunin enn meira og
nær hámarki sinu u.þ.b. 2 árum
eftir tiðahvörf. Fyrst og fremst er
hér um að ræða aukningu á FSH.
Það er ekki fyrr en ca. 15 árum
síðar, að gonadotropin-myndunin
minnkar hægt og hægt niður i það
sem hún var fyrir Hðahvörf.
Lækkuð östrogen valda hrörn-
unarbreytingum i kynfærum og
þau minnka smám saman og
rýma. Fyrst eftir tiðahvörfin get-
ur legslímhúöin þó verið misþykk
og ofvöxtur af ýmsu tagi getur
þar átt sér stað. Oftast er þó leg-
slimhúðin þunn og rýr.
Með þvi að skoða frumustrok
úr leggöngum er unnt að íylgjast
með hormónabreytingunum. Ef
mikil östrogenáhrif eru til staðar,
fjölgar yfirborðsfmmum þekju-
lagsins miðað við djúpstæðari
þekjufmmur — svonefndar mið-
frumur og grunnfrumur (basal-
fmmur). Fyrstu árin eftir tiða-
hvörf sjást aðeins óveruleg merki
Þessi grein
birtist í Lækna
nemanum í
desember 1974.
Birtist greinin
hér með leyfi
höfundar
minnkaðra östrogen-áhrifa, en
smám saman (e.t.v. á 10-15
ámm) breytist útlit slimhúðar-
innar í leggöngunum og hUn verð-
ur alrýr að sjá (algjörlega
atrofisk). Þessi rýrnun verður
vfðar en á þekjufrumum kynfær-
anna. Eggjastokkarnir og legið
minnka og þá fyrstog fremst leg-
bolurinn. Vöðvaæxli i legi geta
minnkað (vegna rýrnunar vöðva-
fruma i æxlunum) og fram koma
ýmiss konar hrörnunarbreyting-
ar I þessum liffærum. Slimhúð
leggangnanna þynnist og þornar,
glycogenrnagnið i slimhúðinni
minnkar og af þvi leiðir, að
Döderleinsbakterium fækkar, en
það veldur aftur þvi, að pH i leg-
göngum hækkar. Einnig verður
sllmhúðin ljósari vegna minnkaðs
blóðflæðis til hennar.
Þessar breytingar á leggöngum
verða yfirleitt seint, þ.e.a.s.
nokkrum árum eftir tiðahvörf. Þó
em til undantekningar frá þvi.
INÖTIÐ H
ÞAÐ BESTA Si 1
TAKA
ÚR YKKUR
HRO
BMISSB
Skipholti 35 • Símar:
8-13-50 verzlun • 8-13-51 verkstæöi • 8-13-52 skrifstofa
Nornirnar fjórar eftir Aibrecht Diirer.