Tíminn - 12.10.1975, Blaðsíða 14
14
TÍMINN
Sunnudagur 12. október 1975
i
á milli við vefnað i ánauðinni,
fengu þær aldrei nóg að borða.
Þær flUðu saman að siðustu,
þvældust um, fengu vinnu ein-
staka sinnum en urðu annars að
betla fyrir mat. Móðir Phanthog
dó úr hungri og vosbúð og Phant-
hog hélt til Lhasa, þar sem hún
hélt áfram að berjast fyrir lifinu.
Eftir að Kinverjar náðu völdum
I Tibet, gerðist Phantog verka-
maður á búgarði 1958. Arið eftir
var hún ein af fyrstu konunum
sem valin var til fjallgöngu-
þjálfunar. Fyrsti leiðangurinn
sem hún tók þátt i, kleif fjallið
Muztagh Ata, sem er 7,546 m
metra hátt. Þar með setti hún
heimsmet kvenna i fjallgöngu og
bætti met sitt hvað eftir annað
eftir þvi sem árin liðu. Phanthog
tók virkan þátt i baráttu kvenna
fyrir jafnrétti I Tibet. Þar var áð-
ur litið á konuna sem óæskilega
mannveru og vinnudýr. 1 dag er
viðhorfið mjög breytt.
Phanthog er nú þriggja barna
móðir og hefur þyngst og fitnað
siðan hún byrjaði að taka þátt i
fjallgöngum. Hún gefur þó ekkert
yngri konum eftir, æfir ennþá
mjög mikið með þeim, hleypur,
stekkur og gengur langar vega-
lengdir með þunga byrði á bak-
inu.
Phanthog gaf karlmönnunum
sem hún fór með síðasta spölinn
upp á tind Qomolangma Feng,
ekkert eftir. Hún bar eins stóra
byrði og þeir og fylgdi þeim ötult
eftir. Þrátt fyrir ofsalega of-
reynslu, notaði hún ekki meira af
súrefni sinu en hinir, það þurfti að
spara það eins og mögulegt var.
Tindurinn sjálfur er aðeins 200
metrum fyrir ofan siðustu bæki-
stöðina, sem var i 8.680 m hæð. En
þetta var líka erfiðasti hjallinn.
Þau þurftu að klifra upp 60 til 70
gráða halla og einu sinni munaði
litlu að Phanthog missti jafnvæg-
ið,en henni tókstað halda áfram.
— Það var ólýsanleg gleðitil-
finning þegar ég stóð uppi á
tindinum, sagði hún. Ég stóö við
hliðina á Hou Seng-fu þegar hann
náði sambandi við félaga okkar i
aðalstöðinni um fjarskiptatækin.
Ég tók þátt i fagnaðarhrópum
þeirra, þegar þeir kölluðu: Lengi
lifi Mao og kommúnistaflokkur-
inn.
Eftir þetta afrek var Phanthog
gerð að meðlimi i kinverska
kommúnistaflokknum.
Upp við skulum komast, fyrir
Mao formann og klnverska al-
pýðulýöveldiö.
Hinar konurnar sem tóku þátt I
þessum leiðangri, slógu einnig
heimsmetið frá árinu 1961, sem
var 7,595 m. Þrjár komust upp I
8.600 m, þrjár i 8.200 m og tvær i
7.600 m. _gébg_
Vinkonur Phanthog fögnuðu
henni innilega þegar hún kom
ofan af tindinum til aðal-
bækistöðvanna. ____
Griðarstór grýlukerti I hlíðum fjallsins.
'
Nauðsynlegt var að lesa lltið eitt af fróðleik Mao.