Tíminn - 12.10.1975, Síða 26
26
TÍMINN
Sunnudagur 12. október 1975
Oft gera forlögin
moröingjum óvæntan
grikk. Maöurinn sem
drap hina fögru Irmu
Gamba/ situr t.d. í
æviiöngu fangeisi, þar
eö forlögin gerðu hon-
um tviþættan óleiK. í
fyrsta lagi kom af
hreinni tilviijun og
alveg óvænt i Ijós, hvar
hann haföi falið likið,
og i öðru lagi minntist
maður nokkur skyndi-
lega smávægilegs en
mjög þýðingarmikils
atriðis..
Unga fegurðardísin
Irma Gamba neitaði
ungum manni um koss
og galt fyrir með lifi
sinu.
Stúlkan, sem varð að
YAMAHA
50 CC. MÓTORHJÓL
Yamaha 50 cc.eru stílhrein í útliti.með tvígengisvéi 09'Sjálfvirkri olíuinnspýtingu, þannig
að óþarft er að blanda olíu saman við bensínið og 5 gira kassa.
Gott verð og greiðsluskilmálar. ' , .
Yamaha mótorhjól eru sérlega sterkbyggðog hafa jafnan verið í fararbroddi í mótorhjóla-
keppnum erlendis.
*. i.m
4 iitiiii,
"^SSSSZSSST
UMBOÐ Á AKUREYRI
«JI SIGURJONSSON. KALDBAKSGOTU
.!Íf - .*.fitífy Jf
„ "'Mí'
•"«iijtíÍÍÍiiii!
Síif jC:,;
Borgartúni 29 sími22680
deyja
Irma var tuttugu og
eins árs sumarið 1974,
þegar hún fór með fjöru-
tiu og fimm ára gamalli
móður sinni, Agnesi
Gamba, i leyfi til
Catskillsfjalla i New
York riki. Þar fluttu þær
inn á hótel i smábænum
Ferndale.
Irma, sem starfaði við
útgáfufyrirtæki I New
York, var notaleg og kát
stúlka, sem eignaðist
auðveldlega vini. Eftir
nokkurra daga dvöl i
Ferndale var hún komin
i kynni við tvær stúlkur
á svipuðum aldri, Eddu
Joynes, sem var tvitug,
og Amy Leeney, sem
var tuttugu og eins árs,
en þær voru lika i leyfi.
Þær voru i fylgd með
tveim ungum mönnum.
William Cantrell,
tuttugu og tveggja ára,
og Peter Embleton, tutt-
ugu og þriggja ára.
Irma fór oft út meö þessum
hjónaleysum, bæði i garöveizlur
og á dansleiki. önnur hinna nýju
vinkvenna Irmu hringdi dag
nokkurn i gamlan vin, Roy
Schaefer, tuttugu og tveggja ára
að aldri, og hafði það á bak við
eyrað, að gaman gæti verið fyrir
Irmu að hafa herra fyrir sig, þeg-
ar þau færu út að skemmta sér.
Irmu og Roy leizt vel hvoru á
annað, en Irma sagði honum, að
hún ætlaði að komast áfram i at-
vinnulifinu, og hefði ekki hug á að
bindast neinum karlmanni fyrst
um sinn.
— Jæja, nú erum við i leyfi,
sagöi Schaefer við þessa glæsi-
legu stúlku, — svo að við skulum
njóta lifsins.
Elskaði að dansa
Irma elskaði að dansa, og þó að
þeim hinum þætti hún nokkuð
þröngsýn, var hún ekki ófrjáls-
lyndari en það, að nokkrum
sinnum fór hún á næturklúbb.með
þeim.
En þessi hálfi mánuður leið
fljótt, og áður en varði rann upp
dagurinn, þegar Irma og móðir
hennar ætluðu heim. Hinir ihópn-
um ákváðu að halda smákveðju-
veizlu fyrir hana.
Um niuleytið morguninn eftir
var Elizabeth Kesbey, 44ra ára
gömul kona, búsett i Ferndale,
stödd I fjallagili i þriggja km fjar-
lægð frá bænum. Hún ætlaði að
tina bláber, og þar sem hún hafði
alizt upp á þessum slóðum, vissi
hún um alla beztu berjastaðina.
Ef frá er talinn hundurinn, sem
var i fylgd með henni, var hún al-
ein I skóginum.
Hún var nýkomin á gamlan
gangstig, þegar hitndurinn fór að
spangóla. Hundurinn hennar var
ekki vanur að láta svona, svo að
hún sneri við til að gá, hvað um
væri að vera.
Það, sem falið var með-
alrunnanna
Hún var nærri komin að hund-
inum, þegar hún snarstanzaði og
einblindi á tvo fætur, sem stóðu út
úr runnaþykkni. Hún gekk var-
lega nær og komst að raun um, að
það, sem við blasti, var ung
stúlka, sem hlaut aö hafa veriö
lagleg, og var enn falleg, þótt
látin væri og hálft andlitið þakið
storknuðu blóði. Kjóllinn var lika
þakinn blóðblettum.
Stúlkan lá á bakinu og var vel
hulin runnunum, svo að ef til vill
hefðu liðið vikur, eða jafnvel ár,
áður en hún hefði fundizt, ef ekki
hefði viljað svo til, að frú Kesbey
fór þennan dag aðra leið en hún
var vön, og að hundurinn var
með.
Forlögin höfðu sem sagt gripið
til sinna ráða og upplýst hvar
morðingi hafði falið fórnarlamb
sitt. Þegar lögreglan kom upp i
skóginn hálftima siðar, komst
hún að þeirri niðurstöðu, að stúlk-
an hefði verið drepin annars stað-
ar og siðan flutt upp i skóginn.
Ekki var þörf á að spyrjast
fyrir um hver hún væri, þvi að
móðir hennar hafði þegar tilkynnt