Tíminn - 12.10.1975, Síða 27

Tíminn - 12.10.1975, Síða 27
Sunnudagur 12. október 1975 TÍMINN 27 Edda Joynes og William Cantrell tóku lika þátt i veizlunni. Á William Cantrell féll líka grunur i sambandi viö moröið á Irmu Gamba. um hvarf hennar og hafin var leit að henni. Það, sem vitað var, var það að unga stúlkan hafði yfirgef- iðdansstað um miðnætti og ætlaði að ganga til hótelsins. Eftir það hafði enginn séð hana fyrr en þarna i skóginum. Lögreglan komst að raun um, að Irma hafði verið stungin hvað eftir annað með hnif, sem trúlega var ekki öllu stærri en bréfahníf- ur, og að hún hafði verið slegin i höfuðið með einhverjum ávölum hlut. Læknar upplýstu, að dánar- orsökinværi innri blæðingar, sem stöfuðu frá stungum i háls og brjóst. Rannsókn á svæðinu umhverfis staðinn þar sem hún fannst, leiddi leitarmennina að sléttu u.þ.b. 100 m frá fundarstaðnum. Þar voru greinileg merki um slagsmál, þvi að blóðblettir fundust þar viða. Rannsóknir. lögreglunnar á ferli Irmu leiddu I ljós, að hún var stúlka með hreinan skjöld. Hún kenndi við sunnudagaskóla en var lífsglöð. Móðir hennar sannfærði lögregluna um, að hún hefði alrei fariö með karlmanni á þennan af- vikna stað, og sizt af öllu manni, sem hún e.t.v. varla þekkti. Það var auövelt, að hafa upp á stúlkunum tveim og ungu mönn- unum þrem, sem Irma hafði kynnzt i leyfinu. Schaefer, Cantrell og Embleton höfðu allir bila, en þetta kvöld höfðu þeir notað Schaefers bil, vegna þess að hann hafði farið á verkstæðið þar sem hann vann.til að gera viö bilinn, svo að hann ætti ekki á hættu, að billinn gæfist alveg upp, þegar hann æki hinu fólkinu heim. Ekki tvö og tvö Edda Joynes og Amy Leeney fullvissuðu lögregluna um, að þau öll sex hefðu veriö saman allan timann. Þau hefðu bara haft það notalegt, og það hefði ekki verið svo mikið sem skipzt á kossum. — Um miðnættið vorum við hin á dansstaðnum, sagði Edda Joynes við William Driscoll varð- stjóra, éinn þeirra lögreglu- manna, sem við rannsókn máls- ins unnu. — Á meðan var Roy Schaefer önnum kafinn við að laga bilinn. Irma varð óþolinmóð og sagði, að hún yrði að fara, þvi að hún hefði lofað móður sinni að vera komin heim um tólfleytið til að hjálpa henni að pakka niður. Það er u.þ.b. kortersgangur frá dansstaðnum til hótelsins. Hinar stúlkurnar reyndu að fá Imru til að bíða, en hún sagðist veröa að fara og yfirgaf dans- staðinn til að ganga til hótelsins. Sfðan hafði enginn séð hana, nema náttúrlega morðinginn. Ungu mennina þrjá kallaði lög- reglan fyrir sig, og þeir voru yfir- heyrðir. Schaefer sagðisthafa ek- ið að verkstæðinu, þar sem hann vann, og hann hefði eytt um ein- um klukkutima i að laga bilinn. Siðan ók hann aftur til dansstað- arins til að sækja hitt fólkið. Þeg- ar hann spurði um Irmu, var hon- um sagt, að hún hefði ekki getaö beðiö og hefði gengið til hótelsins. órólegir ungir menn Driscoll varðstjóri, tók eftir þvi, að ungu mennirnir þrir voru mjög órólegir við yfirheyrslurn- ar, en það er reyndar skiljanlegt. Ung stúlka hafði verið myrt á ruddalegan hátt, og þeir urðu að gera ráð fyrir að vera grunaðir þar til annað sannaðist. Peter Embleton virtist vera Amy Leeney og Peter Embleton tóku þátt i kveðjuveizlunni fyrir Irmu Gamba. Peter Embleton var grunaður um drápið, en mundi skyndilega eftir smávægi- legu en mikilvægu atriði, sem leiddi lögregluna ' á slóð morðingjans. þeirra órólegastur. Hann hafði borið það sama og önnur stúlkn- anna, að hann hefði fylgt Irmu út, eða farið út á eftir henni rétt eftir að hún yfirgaf staðinn. En Embleton sagðist bara hafa farið út úr reykmettuðum salnum til að fá sér friskt loft. Hann hefði stanzað á gangstéttinni, en ekki séð neitt til Irmu. hann Heyrði bilhurð skellt, en sá engan bil, þó að hann héldi, að bfllinn hefði varla verið meira en 100 m frá. Bilar ungu mannanna þriggja voru rannsakaðir mjög gaum- gæfilega en ekkert fannst, sem hægt væri að setja i samband við drápið á Irmu Gamba. Mennirnir þrir voru beðnir að gera grein fyrir hvað þeir hefðu hafzt að á timanum frá miönætti til kl. tvö. Vitnisburðir þeirra voru siðar staðfestir af stúlkun- um tveim. Schaefer hafði ekið hinu fólkinu heim og fór siðan heim sjálfur. Þá var klukkan orðin um tvö. Ein af kenningum lögreglunnar var sú, að Irma gæti hafa verið neydd inn i bil, eða henni hefði verið boðið far og það hefði orðið hennar bani. Ég drap hana ekki Roy Schaefer hafði skýrt svo frá, að hann hefði farið á verk- stæðið til að gera við bilinn sinn, og þvi verki hefði verið lokið nógu snemma til þess að hann gat ekið vinum sinum heim. Cantrell sagðist hafa farið úr bilnum rétt fyrir framan hús sitt rétt fyrir klukkan eitt. Embleton var kom- inn heim nokkrum minútum slðar og fór beint i háttinn. For- eldrar hans voru sofnaðir, svo að enginn sá hann koma heim og fara i rúmið. Læknar upplýstu að engir kyn- feröislegir áverkar sæjust á Irmu, og þvi var erfitt að finna ástæðu til morðsins. Eitt af óskiljanlegum atriðum var, hvers vegna Irma hafði farið á þennan eyðilega stað — og með hverjum. • — Já, sagði hann aðspurður, — ég var hrifinn af Irmu. Hún var góð og falleg, og mig langaði til að spyrja hana, hvort ég mætti heimsækja hana I New York City. En ég drap hana ekki. Embleton sat I djúpum þönkum á skrifstofu Driscolls varðstjóra. Hann vissi, að illa leit úr fyrir honum og hann var sá grunsam- legasti. — Um hvað eruð þér að hugsa, Embleton? spurði lögreglumað- urinn. — Ef þér drápuð stúlkuna, væri þá ekki betra að viðurkenna það og losna við þetta sálarstrið? Embleton leit fast i augu varð- stjórans og sagði: Ég drap Irmu ekki, en það er eitthvað, sem leit- ar á mig, eitthvað i sambandi við Framhald á bls. 39 Roy Schaefer var bflvirki, en bfllinn hans bilaði kvöldiö, sem kveöjuveizla var haldin fyrir hina fögru Irmu Gamba. Hann fór á verk- stæöiö, þar sem hann vann, til aö gera viö bfiinn, og kom þvi of seint til aö hitta Irmu. ...þeim vegnar vel. . ?au eiga íbúð í Breiðholti... en er að öllu gáð? Eru eignirnar nægilega tryggðar ? T.d. gegn eldsvoða ? Það geta starfsmenn okkar upplýst Þeim má treysta. Samvinnutryggingar eru gagnkvæmt tryggingafeiag(=samtök hinna tryggðu). Eru tryggingarnar nægilega víðtækar ? Síminn er 38 SAMVI rvNUTRYGGINGAR GT ÁRMÚLA3 SlMI 38500

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.