Tíminn - 14.10.1975, Blaðsíða 19

Tíminn - 14.10.1975, Blaðsíða 19
Þriðjudagur 14. október 1975. TÍMINN 19 — Rangæingar Aðalfundur Framsóknarfélaganna verður haldinn i félagsheim- ilinu að Hvoli Hvolsvelli, laugardaginn 18. okt. kl. 14. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf, kosning fulltrúa á kjördæmaþing. Ólafur Jóhannesson dómsmálaráðherra mætir á fundinum. Stjórnin. Keflavík Fundur verður haldinn i fulltrúaráði Framsóknarfélaganna f Keflavik, fimmtudaginn 16. okt. kl. 20.30. Fundarefni: Vetrar- starfið. — Stjórnin. M 11 Tryggir 1 Fosfórríkt i Mjög 1 Eykur |§ heilbrigði | Ca/P 1:3 |j lystugt | afurðir fDagna mineial STEINEFNABLANDA Allt í þágu landbúnaðarins BRAUN SYNCHRON PLUS Örþunnt platínuhúðað blað Það er leyndardómur hins snögga og mjúka raksturs Snöggur og mjúkur á raksturinn að vera. Hann á svo sannarlega ekki að vera harður og óþægilegur. Þess vegna er blaðið húðað örþunnri platínuhúð og það er mjúkt þegar það leggst þétt að húð þinni. Platínuhúðin er öruggasta tryggingin fyrir þægilegum, snöggum og mjúkum rakstri. Þessi þægilegi, snöggi ogmjúki rakstur er ástæðan fyrir því, að þér kaupið og notið BRAUN SYNCHRON PLUS rakvélina. Fæst í rattækjaverzlunum í Reykjavík og víða um land og hjá okkur.— Verð kr. 12.385. Sími sölumanns er 1-87-85. BRAUN-UMBOÐIÐ: RAFTÆKJAVERZLUN ÍSLANDS Ægisgötu 7 — Sími 17975/76 O Iþróttir Anfield Road. Fyrst skoraði hann með skalla, eftir hornspyrnu Ke- vin Keegan, siðan skoraði hann glæsilegt mark — með þrumu- skoti — og aðeins þremur min. fyrir leikslok rak hann enda- hnútinn á ,,hat-trick” sitt. 1 millitiðinni hafði Bob Hatton skorað fyrir Birmingham. BRYAN HAMILTON skoraði sigurmark Ipswich á Victoriu- leikvellinum i Stoke-on-Trent. — Fyrsti útisigur Ipswich á keppnistimabilinu varð þar staðreynd. Francis Lee meiddist á fæti i leik Derby gegn Norwich. Óvist er hvort hann getur leikið með Derby-liðinu gegn Real Madrid i Evrópukeppninni. — Ég hélt .fyrst að ég væri brotinn, en nú er ég vongóður um, að svo sé ekki — tærnar á méreru allar bólgnar, sagði Lee eftir leikinn. ANDY GRAY.sem Aston Villa keypti frá Dundee United fyrir 110 þús. pund, skoraði sitt fyrsta mark fyrir nýja félagið — gegn Tottenham á Villa Park. Þessi sókndjarfi leikmaður skoraði (1:0) með skalla. John Pratt jafnaði siðan(l:l) fyrir Lundúna- liðið. Terry Naylor,varnarmaður Tottenham, var rekinn af leikvelli i leiknum — þetta var i fyrsta skipti sem hann hefur verið tek- inn af leikvelli. — Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið, þegar dómarinn sýndi mér rauða spjaldið — þessi ákvörðun hans er óskiljanleg, hrein martröð, sagði Naylor, eftir leikinn. ÚLFARNIR unnu stórsigur (5:1) i leik gegn botnliðinu Sheffield United. John Richards (2) Ken Hibbitt (2) og Willie Carr skoruðu fimm mörk Úlfanna, en John Flynnskoraði fyrir United. PETER OSGOOD átti stórleik með Dýrlingunum frá Southampton, þegar hann lék gegn fyrrum félögum sinum úr Chelsea. Osgood var potturinn og pannan i stórsigri (4:1) Dýrlinganna — Channon (2) Stokes og Holmes skoruðu mörk þeirra, en Wilking skoraði mark Chelsea. Tony Tower, vitaspyrna „Pop” Robson og Bill Hughes, skoruðu mörk Sunderland gegn Orient. Alan Mullery fyrirliði Fulham var bókaður á laugar- daginn — hann lék sinn 650. deild- arleik þá gegn Nottingham Forest. 0 Iðnþing að efla þurfi meistaraskólana og að gera þurfi þá að skilyrði fyrir veitingu meístarabréfa. Vakin er athygli á þýðingu námsskrár- gerðar fyrir verknámið og þess krafizt, að beiðni Iðnfræðsluráðs um fjármagn til námsskrárgerð- ar verði afgreidd án niðurskurð- ar. . Um fjármögnun fræðslumála segir að öðru leyti i ályktuninni: „Til fræðslumála er árlega varið stórum hluta þjóðartekna. Eðli- legt væri að ráðstöfun svo mikilla fjármuna væri byggð á raunhæfri athugun, enda verður að telja, að fræðslukerfið sé ekki undanþegið þeirri skyldu, sem hvilir á öðrum stofnunum og borgurum, að stuðia að auknum þjóðartekjum og bættri afkomu þjóðarbúsins. Tvimælalaust er fjármögnun á vel skipulögðu verkmenntakerfi arðbær fjárfesting og nauðsynleg stoð i efnahagslifi hverrar þjóðar, en misvöxt fræðslukerfa verður að skoða sem bruðl á fjármunum þjóðarinnar. Þvi er nauðsynlegt að stjórnvöld láti gera hagfræði- lega könnun á þvi hvert beina skuli þeim fjármunum sem veitt- ir eru til fræðslumálanna.’ Samþykkt var að hvetja til end- urskoðunar á fjarskiptalögunum frá 1941 og þess er krafizt, að út- varpsvirkjum verði heimilað af hálfu Póst- og simamálastjórnar að annast uppsetningu og við- gerðarþjónustu á talstöðvum,enda er hér um mikið öryggismál að ræða og bætta þjónustu við not- endur. Þvi er harðlega mótmælt, að Póst- og simamálastjórn gefi út til handa óiðnlærðum mönnum „Löggildingarskirteini útvarps- virkja” án þess að þeir taki sveinspróf i útvarpsvirkjun. Þá var á þingfundi á laugardag rætt um hugsanlega upptöku virðisaukaskatts hér á landi, en ekki þótti rétt að álykta i þvi máli á þessu stigi. Eivind Halle, framkvæmda- stjóri norska iðnsambandsins fluttilðnþingi kveðjur frá Noregi, en hann er einn þriggja erlendra gesta, sem viðstaddir voru Iðnþing að þessu sinni. Siðasta mál á dagskrá 36. Iðnþings Islendinga var stjórnar- kjör i framkvæmda- og sam- bandsstjórn. Sigurður Kristins- son, málarameistari i Hafnar- firði, var einróma endurkjörinn forseti Landssambands iðnaðar- manna og varaformaður Þórður Gröndal, verkfræðingur. Aðrir i framkvæmdastjórn voru kjörnir: Gunnar S. Björnsson, húsasmiða- meistari, Þórarinn Sveinsson, framkvæmdastjóri, Asgrimur P. Lúðviksson, húsgangabólstrara- meistari, Gunnar Guðmundsson, rafverktaki, Arnfriður Isaksdótt- ir, hárgreiðslumeistari, Ólafur Pálsson, húsasmiðameistari og Egill Jónsson, framkvæmda- stjóri. Úr stjórn sambandsins gengu: Karl Maack, Jón Sveins- son og Guðbjörn Guðmundsson. Fyrsta tram- sóknarvist FR í vetur Fyrsta framsóknarvist vetrarins verður að Hótel Sögu, i Súlna- salnum, miðvikudaginn 22. október kl. 20:30. Sverrir Bergmann læknir flytur ávarp. Stjórnandi verður Baldur Hólmgeirsson. Framsóknarfélag Reykjavikur. Þorlókshöfn — Ölfusshreppur Aðalfundur Framsóknarfélags Olfusshrepps verður haldinn i Barnaskólanum i Þorlákshöfn sunnudaginn 19. október kl. 15.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Starf félagsins á komandi vetri. 3. Guðmundur G. Þórarinsson verkfræðingur flytur ræðu um landhelgis og efnahagsmál. 4. önnur mál. Alþingismennirnir Þórarinn Sigurjónssori og Jón Helgason mæta á fundinum. Mætið stundvislega. Stjómin. UTANLANDSFERÐ r Odýr Lundúnaferð Nú fer hver að verða siðastur að tryggja sér miða i hina ódýru Lundúnaferð Framsóknarfélaganna. Þeir, sem eiga pantaða farseðlaeru beðnir um að sækja þá, annars er hætt við að þeir verði seldir öðrum. Skrifstofan Rauðarárstig 18 — Simi 24480. Hafnarf jörður — Framsóknarvist Þriggja kvölda spilakeppni hefst n.k. fimmtudagskvöld, 16. október, i Iðnaðarmannasalnum, Linnetsstig 3, kl. 20:30. Kvöldverðlaun. Heildarverðlaun: Sólarferð með FERÐAMIÐSTÖÐINNI fyrir tvo, n.k. vor. Framhald spilakvöldanna verður 30. okt. og 13. nóv. Athugið, að hér er um að ræða frekar lltinn sal. Mætið þvi stund- vislega. Framsóknarfélögin i Hafnarfirði. Haustfagnaður FUF í Reykjavík verður haldinn i Félagsheimili Fóstbræðra laugardaginn 18. október, og hefst kl. 21. Hálfbræður skemmta. Ópus leikur fyrir dansi. 392 590 285 390

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.