Tíminn - 29.10.1975, Blaðsíða 19
Miövikudagur 29. október 1975.
TÍMINN
19
i—I
Framsóknar-
menn
Suðurlandi
Kjördæmisþing framsóknarmanna I Suðurlandskjördæmi
verður haldið að Hvoli, Hvolsvelli, sunnudaginn 9. nóv. og hefst
kl. 10 f.h. Auk venjulegra þingstarfa verða tekin til meðferðar
orku- og menntamál. Framsögumenn verða Helgi Bergs banka-
stjóri og Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra. Allt
framsóknarfólk velkomið.
Snæfellingar
önnur umferð i þriggja kvölda spilakeppninni verður að Breiða-
bliki laugardaginn 1. nóv, og hefst kl. 21.30. Aðalvinningur er
Mallorkaferð fyrir tvo. Einnig góð kvöldverðlaun. Alexander
Stefánsson oddviti flytur ávarp. Að lokum verður stiginn dans.
Félag framsóknarkvenna
í Reykjavík
Handavinnukvöld hjá basarnefnd að Rauðarárstig 18 n.k.
fimmtudag 30. okt. kl. 20.30.
Fjölmennið. Basarnefndin.
*
Arnessýsla
Ákveðið er aö Framsóknarfélag Árnessýslu haldi sin árlegu
spilakvöld i nóvember. Hið fyrsta verður aö Aratungu 14. nó.v,
annað að Borg 21. nóv. og þriðja og siðasta spilakvöldið i Arnesi
28. nóv.
Nánar auglýst siðar.
Stjórnin.
Fjórlagaræða 0
arsköttum eru áætlaðar 1.022
m.kr., eöa um 524 m.kr. hærri en i
fjárlögum 1975. Meginástæða
þessarar breytingar er sú, að gert
er ráð fyrir að við álagningu eign-
arskatta verði tekið mið af þeirri
breytingu, er orðið hefur að und-
anförnu á verðgildi fasteigna, en
fasteignamat til eignaskatts
hefur verið óbreytt siðan 1972.
A vegum yfirfasteignamats-
nefndar er nú i undirbúningi
framreikningur fasteignamats
skv. ákvæðum gildandi laga um
fasteignamat og -skráningu, sem
vonazt er til að taki gildi um ára-
mótin 1976/1977. Þá er og i undir-
búningi i fjármálaráðuneytinu
gerð nýs frumvarps um skrán-
ingu og mat fasteigna, að mestu
samhljóða eldra stjórnar-
frumvarpi, sem lagt var fyrir Al-
þingi vorið 1974, en fékkst þá ekki
afgreitt sökum timaskorts, en
með þvi frumvarpi er gert ráð
fyrir sifelldri matsstarfsemi og
þvi, að matsfjárhæðir endurspegli'
raunverulegt gangverð eigna á
hverjum tima. Verður gerð nán-
ari grein fyrir þessu máli, þegar
það kemur til kasta Alþingis nú á
næstunni.
Innheimtur tekjuskattur ein-
staklinga. A árinu 1976 er tekju-
skattur einstaklinga áætlaður
5.600 m.kr., að frádregnum
barnabótum og persónuafslætti
til greiðslu útsvars, en þá er með-
talin innheimta eftirstöðva frá
fyrri árum. Talið er, að innheimt-
ur tekjuskattur einstaklinga i ár
verði 4,350 m.kr. Þetta er 570
m.kr. lægri upphæð en áætlað var
i siðustu fjárlögum, og veldur þar
mestu um sú breyting á skatta-
lögunum, sem gerð var á sl. vori.
Tekjuáætlun þessi er m.a. á þvi
byggð, að tekjur til skatts hækki
um 27% milli áranna 1974 og 1975,
og er þá meðtalin 1—2% fjölgun
framteljenda.
Aætlaður tekjuskattur félaga
reyndist nokkru hærri i ár en á-
ætlað var, eða um 1.200 m.kr. Bú-
izt er við að álagður tekjuskattur
félaga verði minni næsta ár en i
ár, og er gert ráð fyrir að hann
muni nema 950 m.kr. við álagn-
ingu, en 990 m.kr. muni innheimt-
ast, og er þá miðað við áætlaðar
eftirstöövar um næstu áramót.
Gjöld af innflutningihækka um
142 m.kr. frá endurskoðaðri
tekjuáætlun árið 1975, en um 698
m.kr. frá fjárlögum 1975. Al-
mennar tolltekjur eru áætlaðar
10.070 m.kr. i ár, sem er aðeins
4% aukning frá fjárlagaáætlun.
Gjöld af innflutningi árið 1976
eru áætluð 10.013 m.kr. Er þá gert
ráð fyrir óbreyttu magni og svip-
aðri samsetningu innflutnings og
var á árinu 1975. Rýrnun tolltekna
vegna samnings við EFTA og
EBE er áætluð um 800 m.kr.
Verðhækkun á innflutningi er aft-
ur á móti áætluð 9% i krónum
miðað við núverandi gengi.
Aætlað er að innflutningur bif-
reiða verði með svipuðum hætti á
árinu 1976 og var nú i ár. Innflutn-
ingsgjöld af bifreiðum er talin
nema 800 m.kr. á næsta ári og
hækka um 100 m.kr. frá endur-
skoðaðri tekjuáætlun þessa árs.
Rétt er að minna á, að innflutn-
ingsgjölditt voru hækkuð i febrúar
sl., og er gert ráð fyrir óbreyttri
gjaldskrá á næsta ári.
Innflutningsgjald af benslni og
gúmmigjalder áætlað 2.033 m.kr.
á næsta ári. 1 fjárlögum fyrir árið
1975 var gjald þetta áætlaö 1.830
m.kr. Horfur eruá, að innheimtar
tekjur af gjaldi þessu verði svip-
aðar og áætlað var i fjárlögum.
Við endurskoðun vegaáætlunar á
sl. sumri var gert ráð fyrir að
bensingjaldið gæfi um 100 m.kr.
meira i tekjur en fjárlög gerðu
ráð fyrir, en ljóst er nú, að sú á-
ætlun mun ekki standast.
Skattar af framleiðslu eru tald-
ir nema 299 m.kr. á næsta ári, þar
af nemur álgjald 141 m.kr. Við
gerð siðustu fjárlaga var gert ráö
fyrir að álgjald næmi 320 m.kr.
Forsendur þeirrar áætlunar hafa
breytzt að hluta vegna ástands á
álmarkaði og nú er útlit fyrir, að
einungis verði greitt lágmarks-
gjald skv. álsamningnum, bæði á
þessu ári og þvi næsta. Ljóst er,
að tekjur af álgjaldinu eru mun
minni en vonir hafa staðið til. Að
undanförnu hafa staðið yfir við-
ræður við álfélagið um endur-
skoðun á framleiðslugjaldinu.
Skattar af seldum vörum og
þjónustu. Innheimtur söluskattur
i rikissjóð i ár eru riú áætlaður
16.300 m.kr., sem er 460 m.kr.
lægra en áætlað var i fjárlögum
1975, en þvi veldur niðurfelling
söluskatts af ýmsum matvælum
og af flugfargjöldum innanlands,
en lög um þessa skattalækkun
samþykkt i april sl. Eins og áður
hefur verið skýrt frá, er nú gert
ráð fyrir, að 2% sölugjald til Við-
lagasjóðs renni óskert i rikissjóð
fró og með næstu áramótum.
Miðað við þær forsendur og aðrar
forsendur frumvarpsins um
neyzlu, er innheimtur söluskattur
i rikissjóð á næsta ári áætlaður
21.560 m.kr.
Launaskattur er áætlaöur
nema 3.050 m.kr. á næsta ári, og
þá miðað við óbreytt kauplag frá
október 1975 og óbreyttar álagn-
ingarreglur. 1 ár er launaskatt-
urinn áætlaður 2.520 m.kr. Hlutur
Byggingarsjóðs af þessari upp-
hæð verður 1.740 m.kr. á næsta
ári, en i ár talinn verða 1.416
m.kr. Rétt er að vekja athygli á
þvi, að til þess að þessar tölur
standist, þarf að framlengja
gildistima laga um launaskatt.
Rekstrarhagnaður ATVR
nemur i ár að likindum 5.150
m.kr., sem er 1.050 m.kr. hækkun
frá fjárlögum. Miðað við núver-
andi útsöluverð óbreytt eru
tekjur af þessum stofni áætlaðar
5.900 m.kr. á næsta ári.
Flugvallargjald skv. lögum nr.
11/1975 er áætlað i ár 225 m.kr. Á-
kvæði laga þessara um flugvall-
argjald komu til framkvæmda 1.
mai sl.'og gilda til loka febrúar
1976. Gert er ráð fyrir, að fram-
hald verði á innheimtu þessa
gjalds með svipuðu fyrirkomu-
lagi og tiðkast i nágrannalöndum
okkar. Eru tekjur af gjaldi þessu
þannig áætlaðar munu nema 235
m.kr. á næsta ári.
Aðrir óbeinir skattarnema um
2.736 m.kr. skv. frumvarpinu, en
eru áætlaðir 2.313 m.kr. nú i ár.
Bifreiðaskattur i ár er áætlaður
487 m. kr. en 537 m.kr. á næsta ári
skv. vegaáætlun. Lagt verður
fram frumvarp á þessu þingi um
breytingu á þungaskatti bifreiða,
og verður gerð nánari grein fyrir
þvi, þegar þar að kemur.
Unnið er að endurskoðun laga
um aukatekjur rikissjóðs, en
gjöld fyrir ýmsa þjónustu, er
rikisstofnanir láta i té, hafa verið
óbreytt frá 1965 og gjaldaupphæð-
ir sem i þeim eru tilgreindar, þvi
löngu úreltar.
Verðjöfnunargjald raforku er
áætlað 715 m.kr. á næsta ári, mið-
að við núverandi orkuverð.
Hér að framan hefur verið getið
helztu skatttekna rikissjóðs, en
skatttekjur eru samtals um 99%
af heildartekjum. Afgangurinn er
m.a. arðgreiðslur frá rikisfyrir-
tækjum, sem áætlað er að hækki
nokkuðá ári, aðallega vegna auk-
inna tekna frá Frihöfninni.
i(
Vorum að fá fjölbreytt úrval
af smurkoppum
— 1 •
!
Slöngur og stútar
fyrir smursprautur
POSTSENDUAA UM ALLT LAND
s
í
é i
k A
ARAAULA 7 - SIMI 84450
Framsóknarfélag
#•
Arnessýslu
Aðalfundur Framsóknarfélags Arnessýslu veröur haldinn að
Ejirarvegi 15Selfossi 31. okt. kl. 21.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Þórarinn Sigurjónsson, alþingismaður ræðir stjórnmála-
viðhorfið.
Kjörnið verða fulltrúar á kjördæmisþing.
Stjórnin.
Hafnarfjörður
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Framsóknarfélögin i Hafnarfirði hafa opið hús að Strandgötu 11,
2. hæð á hverjum fimmtudegi kl. 18—19. Þar verða til viðtals
bæjarfulltrúi flokksins og varafulltrúi, svo og nefndarmenn.
Simi 51819.
Norðurlandskjördæmi eystra
Kjördæmisþing Framsóknarmanna á Norðurlandi eystra verður
haldið á Hótel KEA, Akureyri 8.-9. nóv. n.k.
Nánar auglýst siðar.
Stjórnin.
Dalvíkingar, Svarfdælingar
Framsóknarvist verður i Vikurröst 30. okt. n.k. og hefst kl. 21.00.
Framsóknarfélag Dalvikur.
Hafnarfjörður —Vetrarfagnaður
Vetrarfagnaður FUF verður haldinn i Skiphól föstudaginn 31.
október — matur — skemmtiatriði. Nánar auglýst siðar.
FUF.
Kópavogur
Framsóknarfélag Kópavogs heldur fund i
Félagsheimili Kópavogs — efri sal —
fimmtudaginn 30. október n.k.
Jón Skaftason alþingismaður ræðir spurn-
inguna: „Getum við eitthvað lært af rikjandi
efnahagskreppu?”
Oilum heimill aðgangur.
Hafnarf jörður —Framsóknarvist
Þriggja kvölda spilakeppninni verður fram haldið fimmtudags-
kvöldið 30. okt. i Iðnaöarmannasalnum Liennetsstig 3, kl. 20.30.
Kvöldverðlaun — Heildarverðlaun. Sólarferð með Feröamið-
stöðinni fyrir tvo næstkomandi vor. Framhald spilakvöldanna
verður 13. nóvember. Mætiö stundvislega.
Framsóknarfélögin i Hafnarfiröi.
Vestur-
Skaftafellssýsla
Aðalfundur Framsóknarfélagana i Vestur-Skaftafellssýslu
verður haldinn i Vik laugardaginn 1. nóv. kl. 20.30. Venjuleg
aðalfundarstörf. Alþingismennirnir Jón Helgason og Þórarinn
Sigurjónsson mæta á fundinum.
Stjórnirnar.
Viðtalstímar
alþingismanna og
borgarfulltrúa
Framsóknarflokksins
Alfreð Þorsteinsson borgarfulltrúi verður til viðtals
laugardag á skrifstofu Framsóknarflokksins Raui