Tíminn - 12.11.1975, Qupperneq 2
2
TÍMINN
Miövikudagur 12. nóvember 1975.
Yfirheyrslur
vegna
verð-
lagsbrofa
bygginga-
meistara
Gsal-Reykjavik. Verðlagsdómur
hefur nú til meðferðar verðlags-
brot byggingameistara, og hafa
yfirheyrslur farið fram að undan-
förnu. Að sögn Sverris Einarsson-
ar. formanns dómsins, er enn
eftir að yfirheyra ýmsa aðila i
málinu.
Svo sem kunnugt er kærði verð-
lagsstjóri Meistarasamband
byggingamanna fyrir ofreiknað-
an uppmælingartaxta, sem i ljós
kom, að i gildi hafði verið um
langan tima. Rikissaksóknari fól
Verðlagsdómi að rannsaka málið,
og að sögn Sverris mun ekki liða
langur timi þar til viss þáttur
málsins verður fullrannsakaður.
Hins vegar sagði Sverrir, að ekki
lægi fyrir nú, hversu viðtækþessi
rannsókn yrði.
Svæðismótið
1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11.12. 13.14. 15.
PARMA
HAFÐI ÞAÐ
BK-Reykjavik.Eftir ellefu tima
baráttu tókst Parma að bera
sigurorð af Hamann og tryggja
sér þar með rétt til einvigis við
Liberzon um siðara sætið á
millisvæðamótið I skák. Varð
þetta lengsta skák mótsins og
gaf Hamann i gærmorgun án
þess að tefla frekar.
Einvigi þeirra Liberzon og
Parma verður liklega háð
snemma á næsta ári. Parma
kemur sennilega stigahærri út
úr svæðismótinu hér en Liber-
zon og munar þar mest um sigur
hans yfir Friðrik Ólafssyni, en
Liberzon tapaði fyrir Friðrik. i
Dugar þá Parma jafntefli i ein- '
viginu til að komast á milli-
svæðamótið og má geta þess, að
Parma hefur ekki ennþá tapað
skák á þessu ári.
Um endanleg úrslit svæða-
mótsins sjá töflu.
1. Ribli 1 1 1 1/2 1 1 1/2 1 1/2 1/2 1/2 1 1 1/2 11 1
2. Poutiainen 0 | 1 0 0 1 1 0 1 1/2 1 0 1 1 1 81/2 5
3. Hartston 0 0 0 0 1 0 0 1/2 1 1/2 1/2 1 1 1 6 1/2 10-11
4. Hamann 0 1 1 1/2 0 0 0 1/2 0 1 0 1 1/2 1 6 1/2 10-1]
5. Friðrik 1/2 1 1 1/2 1 1/2 1 1 1 1/2 1/2 0 1 1 1/2 10 4
6. Zwaig 0 0 0 1 i/i 1 0 1/2 1 1 1 1/2 1/2 1 1 8 6
7. Timman 0 0 1 1 0 1 l 0 1/2 1 1/2 1/2 1 0 1 7 1/2 7-9
8. Liberzon 1/2 1 1 1 0 1/2 1 1 1/2 1/2 1/2 1 1 1 10 1/2 2-3
9. Murray 0 0 1/2 1/2 0 0 1/2 0 1/2 0 0 1/2 1 1 0 3 1/2 12-13
10. Ostermeyer S/2 1/2 0 1 1/2 0 0 1/2 1/2 1/2 1/2 1 1 1 7 1/2 7-9
11. Jansa 1/2 0 1/2 0 1/2 0 1/2 1/2 1 1/2 1/2 1 1 1 7 1/2 7-9
12. Parma 1/2 1 1/2 1 1 1/2 1/2. J/i 1 1/2 1/2 1 1 1 101/2 2-3
13. Björn 0 0 0 0 0 1/2 0 0 1/2 0 0 0 1 1 0 2 1415
14. Laine 0 0 0 1/2 0 0 \ 0 0 0 0 0 •0 1/2 2 14-15
15. vandenBroeck 1/2 0 0 0 1/2 0 0 0 1 0 0 0 1 1/2 3 1/2 12-13
Guðmundur
sigurstrang-
legur
S.J.—Reykjavik — Guð-
mundur Sigurjónsson er enn
stigahæsturá svæðismótinu i
skák i Búlgariu ásamt þeim
Matanovic frá Júgóslaviu og
Georghiu frá Rúmeniu. Guð-
mundur vann Zerniak frá
Israel i gær i 34 leikjum.
Zerniak lék af sér.
Siðasta umferð mótsins
verður tefld á fimmtudag.
t gærkvöldi bauð Vilhjálmur
Iljálmarsson mcnntamálaráð-
herra til lokahófs i tilefni
svæðismótsins i skák.
Lombardy yfirdómari afhenti 9
efstu mönnunum peningaverð-
laun. Finninn Poutiainen hiaut
fegurðarverðlaun fyrir skákina
við Timman og fer með þrenn
verðlaun af hólmi. A myndinni
eru Liberzon, Parma, Ribli,
Viihjálmur Hjálmarsson
menntamáðaráðherra og kona
hans, Friðrik ólafsson og Lom-
bardy.
RAFORKUFRAMLEIÐSLA er
nú hafin i Blævadalsárvirkjun i
Nauteyrarhreppi við ísafjarðar-
djúp, og eru þá allir bæir norðan-
vert við Djúpið búnir að fá raf-
magn frá samveitu, svo og skól-
inn i Reykjanesi, en sæstrengur
hefur verið lagður yfir Djúpið til
Reykjaness.
Kostnaður við Blævadalsár-
virkjun nam um það bil 18
milljónum króna, en virkjunin er
eign Nauteyrarhrepps og Snæ-
fjallahrepps.
Framkvæmdir hófust haustið
1972, og er þeim að heita má lokið.
Framleiðslugeta virkjunarinnar
er 230 kilówött, og mun sú orka
nægja til húsahitunar og al-
mennrar heimilisnotkunar á
svæðinu, en tilkoma þessarar
virkjunar þykir treysta mjög bú-
setu við innanvert Isafjarðar-
djúp.
Hildur Stefánsdóttir og Rannveig ólafsdóttir i 6-D i Melaskólanum.
Héldu hlutaveltu og
NY VIRKJUN VIÐ
ÍSAFJARÐARDJÚP
Uppistöðulónið i Blævadalsá.
söfnuðu 22 þús. kr.
handa vangefnum
— ætla ab halda aðra hlutaveltu eftlr jól
MM-Reykja vik. Sex
ungar stúlkur i Melaskólanum
efndu til hlutaveltu á laugardag-
inn og létu ágóðann, 22.236,- kr.,
renna til sumarstarfs vangefinna.
Þær áttu hugmyndina sjálfar, og
söfnuðu einnig viða til hlutavelt-
unnar. Meðal annars létu verzl-
anir ýmislegt af hendi rakna.
Stúlkurnar sex, en þær heita
Hildur Stefánsdóttir, Rannveig
ólafsdóttir, Sveindis Hermanns-
dóttir, Rósa Harðardóttir, Ingunn
S. Veturliðadóttir og Rannveig
Sigurgeirsdóttir, sögðu að þær
hefðu getað selt miklu fleiri miða,
enda létu strákarnir i skólanum
ekki sitt eftir liggja að kaupa af
þeim. Miðarnir seldust upp á
hálftima. Af þvi að þetta gekk svo
vel, ætla þær að hafa „stóra
hlutaveltu” eftir jólin til styrktar
sama málefni.
Kjördæmis-
þing á Akur-
eyri og Hvoli
Mó-Reykjavik. Um siðustu helgi
voru haldin kjördæmisþing
Framsóknarmanna i Norður-
landskjördæmi eystra og Suður-
landskjördæmi. Voru þingin vel
sótt, og þar voru miklar umræður
um kjördæmismál og landsmál.
Þingið á Akureyri hófst laugar-
daginn 8. nóv., og þar voru sam-
þykktar margar ályktanir um
kjördæmismál, m.a. um bættar
samgöngur, jöfnun á lifsaðstöðu
fólks og friðun á fiskimiðum.
Einnig var samþykkt ýtarleg
stjórnmálaályktun. A laugar-
dagskvöld var haldinn haustfagn-
aður Framsóknarmanna i
Norðurlandskjördæmi eystra á
Hótel KEA og hófst hann með
borðhaldi. Þar flutti Þórarinn
Þórarinsson ræðu og Gisli
Halldórsson og Þórir Valgeirsson
skemmtu. Að lokum var stiginn
dans.
I stjórn kjördæmissambandsins
voru kjörnir: Hilmar Danielsson
Dalvik, Armann Þórðarson
ólafsfirði, Guðmundur
Magnússon Akureyri, Baldur
Halldórsson Akureyri, Þormóður
Jónsson Húsavik, Indriði Ketils-
son Fjalli og Aðalbjörn Gunn-
laugsson Lundi. Kjördæmisþing-
inu lauk siðari hluta sunnudags.
Kjördæmisþingið á Suðurlandi
var haldið að Hvoli og hófst kl. 10
á sunnudag. Þar voru einnig
mörg mál til umræðu, en aðalmál
þingsins voru orku- og mennta-
mál. Helgi Bergs, form. stjórnar
RARIK, flutti ræðu um orkumál
og Vilhjálmur Hjálmarsson
menntamálaráðherra ræddi um
menntamál. Urðu miklar umræð-
ur um þessa málaflokka.
Ályktanir voru gerðar um land-
helgismál, samgöngumál, at-
vinnu- og orkumál o.fl.
Istjórn kjördæmissambandsins
voru kjörnir: Páll Lýðsson Litlu-
Sandvik, Jón R. Hjálmarsson
Skógum, Ólafur Ólafsson Hvols-
velli, Einar Þorsteinsson Sol-
heimahjáleigu, Garðar Gestsson
Selfossi, Jóhann Björnsson Vest-
mannaeyjum og Hörður Sigur-
grimsson Holti.
Nánar verður greint frá álykt-
unum kjördæmisþinganna siðar.
AUGLÝSIÐ
í TÍMANUM