Tíminn - 12.11.1975, Blaðsíða 16
16
TÍMINN
Miðvikudagur 12. nóvember 1975.
Krapp ur
dans í
..Höllinni''
Það má búast við kröppum dansi i Laugardalshöll-
inni i kvöld, þegar Valsmenn og íslandsmeistarar
Vikings leiða þar saman hesta sina. Leikurinn er
mjög þýðingarmikill fyrir bæði liðin — þau verða að
sigra ef þau ætla að blanda sér i baráttuna um
Islandsmeistaratitilinn.
Það má búast við skemmtileg-
um og fjörugum leik, þegar þessi
tvö sterkustu lið Reykjavikur
mætast. FH-ingar verða einnig i
sviðsljósinu, en þeir mæta nýlið-
um Þróttar, sem veittu Vikingum
harða keppni fyrur stuttu. Þrótt-
ar-liðið virtist vera að ná sér á
skrið, eftir slaka byrjun — það
verður örugglega gaman að sjá
leikmenn liðsins spreyta sig gegn
FH-ingum. Fyrri leikurinn verð-
ur á milli Þróttar og FH — hann
hefst kl. 20.15.
Valsmenn mæta Íslandsmeisturum Víkings i kvöld
IHodgson
.þjdlfar í
iKuwait
— en vill koma
aftur til íslands
SKOTINN Bill Ilodgson. sem
þjálfari FH-Iiðið i sumar, er
þjállai i i Kuwait við Fersaflóa —
þar sem liann þjállar eitt af 1.
deildar liðum Arabarikisins.
Iiodgson likar örugglega ekki
liinn mikli hiti, sem er i Kuvvait.
þvi að bann er tilbúinn að koma
allur til islands, eí eittlivert lið
lielur not fvrir liann.
REFSAD VEGNA DRYKKJUSKAPAR
Ekki
smdna
UnitedJ
— Jerzy Gorgon var dæmdur í sex mánaða keppnisbann
.IERZY GOHGON....ferill hans er
nú i molum.
,...en alaumaosinn Best
aftur í sviðsliósinu
— hann skoraði gott mark fyrir sitt nýja félag,
Stokport, gegn Stoke
— ÞAÐ ER ánægjulegt að
vera byrjaður aftur — það
tekur að visu nokkurn tima
að komast í æfingu, sagði
glaumgosinn George Best,
sem hefur nú aftur tekið
fram knattspyrnuskóna.
Manchester United leysti
hann frá samningi við fé-
lagið um helgina, en á
mánudagskvöldið var hann
i sviðsljósinu. er hann lék
vináttuleik með Stokport —
þar sem hann hefur skrif-
að undil' mánaðar samning
— gegn Stoke.
Best var með daufara móti i
fyrri hálfleik. en i þeim siðari
kom i ljós, að hann hefur engu
gleymt af göidrum knattspyrn-
unnar. Töframálturinn er enn i
fótunum á honum, það sýndi
hann. þegar hann skoraði jöfnun-
armark (1:1) Stokport — beint úr
aukaspyrnu. Markið var gullfall-
egt — hann spvrnti með utanfót-
arsnúningi, og knötturinn sigldi
Iram h já varnarmönnum 1. deild-
ar liðsins og hafnaði örugglega i
netinu, fyrir aftan þá.
Það verður gaman að fylgjast
með Best. sem er nú 29 ára gam-
all. Hann verður i reynslutima
hjá 4. deildar liðinu og leikur sinn
fyrsta leik með liðinu siðar i þess-
um mánuði. — SOS
GFOKGK IŒST....Ú skotskónum
Pólskur glaumgosi
fékk strangan dóm
ÁIIANGENÍHJK Manchester
United-liðsins eru þeir verstu,
scin á ferðinni cru i Englandi —
þeir hafa sett ljótan blett á United
með villimannsiegri framkomu.
Forráðamenn Manchester-liðsins
cru orönir mjög áhyggjufullir
vegna hegðunar áhangenda fc-
lagsins, sein fylgja þvi eftir —
livert sein farið er. Þcssi auglýs-
ing. sem sést hér fyrir ofan, hefur
mi verið fest upp viða umhvcrfis
Old Trafford — leikvang United.
Þar er sagt, aö Manchester-liðið
treysti á, að áhangendur liðsins
sýni góöa hegðun bæði á heima-
og litivelli — þannig að þeir óvirði
1 ekki nafn félagsins.
ÞAÐ ERU fleiri þekktir
knattspyrnumenn erlendis
heldur en Billy Bremner,
og félagar hans úr skozka
landsliðinu, sem settir eru i
keppnisbann. Nýlega gerð-
ist það, að hinn snjalli
landsliðsmaður Pólverja,
Jerzy Gorgon, var settur í
bann af svipuðum ástæð-
um og Bremner og félagar
— vegna drykkjuskapar.
Gorgon hefur undanfarin tvö ár
látið mikið að sér kveða sem góð-
ur varnarmaður með pólska
landsliðinu, og var einn aðal-
maður liðsins i leikjum þess i úr-
slitum heimsmeistarakeppninn-
ar. Þar sýndi hann það, að hann
var á heimsmælikvarða. En nú er
ferill hans i molum, og það er allt
honum sjálfum að kenna, þar sem
þessi frábæri varnarmaður virð-
ist ekki þola neinn aga. En i
knattspyrnu verður að vera agi,
annars væru félögin ekki til. Hann
var búinn að fá fjölda áminninga,
og hann lofaði alltaf að bæta ráð
sitt, og lagði reyndar hart að sér
fyrir úrslit heimsmeistarakeppn-
innar, en eftir það fór allt i sama
horfið aftur. Það keyrði svo um
þverbak nýlega, er Gorgon var á
heimleið frá Frakklandi með fé-
lagi sinu. Gornik Zabrze, sem
hafði verið æfingaferð. Hann
neytti áfengis á leiðinni og var
ókurteis og uppivöðslusamur við
aðra farþega. Þetta varð til þess
að pólska knattspyrnusambandið
lét rannsaka málið, og niður-
staðan varð sú, að Gorgon var
dæmdur i hálfs árs keppnisbann,
bæði með félags- og landsliði.
Það má að vissu leyti segja, að
Gorgon hafi verið fórnardýr. Það
var orðið ótrúlega mikið agaleysi,
sem rikti innan knattspyrnu-
hreyfingarinnar. Það var þvi
kominn timi til að einhverjir
tækju i taumana. Þarna gerði
pólska knattspyrnusambandið
það, og nú vita lika allir leik-
menn, að þeir mega ekki fara yfir
viss mörk, sem þeim eru sett, að
öðrum kosti verður þeim refsað
þunglega.