Tíminn - 12.11.1975, Qupperneq 5

Tíminn - 12.11.1975, Qupperneq 5
Miðvikudagur 12. nóvember 1975. TlMINN 5 I £ Opinská umræða um opinber máiefni er hornsteinn lýðræðisins Einil Björnssou, fréttastjóri sjónvarpsins, hefur sent svo- hljóðandi athugasemd vegna skrifa um sjó'nvarpið i þessuin þætti i gær: „Sjaldan hefur mér vcrið sýndur meiri heiöur en a.þ. sýndi inér hér i þættinuin i gær, 11. nóvember, þegar hann eignar mér, sem frétta- stjóra, alla þá opinskáu um- ræðu, sem tiðkazt hefir i vax- andi mæii i Sjónvarpinu, um opinber mái, en slik umræða fyrir opnuin tjöldum er horn- steinn lýðræðisins, eins og ná- grannaþjóðir okkar beggja vegna hafsins vita vel og á- stunda i fjölmiðlum sinum. Það sem ég nefni her opin- skáa umræðu um opinber niál, kallar a.þ. ,,að skapa vantrú meðal almennings á stjórn- málamönnum og embættis- niönnuin". Þar ineö hafa litil- magnar þjóöfélagsins öðlazt málsvara gegn vondum mönnum. Sanngjarnt er þó aö það komi skýrt fram, að ég á ekki nema takmarkaðan heiður af þvi, sem ég kalla „opinbera umra>ðu", en a.þ. kaliar að skapa vantrú. á stjórnmála- mönnum og em bættismöun- um. fíg annast ekki sjálfur þá uinræðuþætti i Sjónvarpinu, sem ég hygg að hann sé með i huga, og svo áhrifamikill er ég nú ekki. að ég geti ráðið öllu uinræðuefni og oröavali hinna ungu.og vösku manna hjá dag- hlööuni og rikisfjölmiðlum, sem hafa annazt þessa um- ræðuþætti f Sjónvarpinu und- anfarin ár. Þeir, sem stýra þessum umræðum cða taka þátt I þeim, gera það á eigin á- byrgð samkvæmt lögum um rikisútvarpiö. Kn satt er það, að ég hefi talið mér og öðrum, — sem einhverja stcfnu eiga að marka viö rikisfjölmiölana, — sæmra að vera fremur hvetjandi en letjandi til opin- berrar umræðu um mál, sem fulitrúar almennings, eins og stjórnmálamenn og embættis- inenn t.d„ fara með í uinboöi fólksins. Annað væri ritskoðun og ámælisvert. Sé „tabu” eða óleyfilegt, eins og má ráða af grcin a.þ„ að taka niál til um- fjöllunar i rikisf jölrn iölum, sent varöa stjórnmálamenn, embættismenn og þeirra störf, jafnframt þvi sem þeim sjálf- um er gefinn kostur á að koma fram, — eins og ávallt hefur veriö I Sjónvarpinu, — þá eru rikisfjölmiðlarnir orðnir ó- frjálsir þjónar rikisvaldsins á hverjum tíma, sem þeir liafa ekki verið liiugað til og mega aidrei vcrða. Knda liafa hvorki stjórnmálamenu, emb- ættismenn né formaður út- varpsráðs, sem er þinginaður, og ritstjória.þ. kvartaö undan Sjónvarpinu, likt þvi sem a.þ. gerir fyrir þeirra hönd, svo mér sc kunnugt. a.þ. virðist þvi vera orðinn kaþólskari en páfinn. Ilvað skyldi honum ganga til? Areiöanlega eitt- livað gott. Með kveðju og þökk fyrir birtinguna, Kmil Björnsson dagskrárstjóri.” Spurning um vinnubrögð l>aö er mikill misskilningur Kmils Björnssonar, ef hann stendur I þeirri trú, að höfund- ur þessa þáttar sé andvigur opinskáum umræðum I rikis- fjölmiðlunum. Slikar umræð- ur eru mjög nauðsynlegar og cinn af hyrningarsteinum lýö- ræöisins, eins og fréttastjórinn bendir réttilega á. Deilan snýst ekki um það. Hún snyst miklu fremur um þau vinnu- brögð. sem stunduni eru höfð uppi i þáttum sjónvarpsins og veröa að teljast miður lieiðar- leg. Tökum sem dæmi nýlegan þátt um „þrýstihópa”. 1 þeim þætti komu fram nokkrir hag- fræðingar og deildu injög fast á stjórnmálamenn. Knginn stjórnmálamaöur var til and- svara I þcim þætti, þrátt fyrir yfirlýsíngar fréttastjórans um þaö, aö mönnum, sem liags- muna ætlu að gæta, væri á- vallt boðið að taka þátt I slik- um þáttum. Afleiöingin varð sú, að aöeins sjónarmið hag- fræðinganna komu fram. Sá, sem þetta ritar, mun ekki vera einn um þá sknðun, að þar hafi steinum verið varpað úr gler- húsi. Kn almenningur, sem trúir og treystir á hlutleysi sjónvarpsins, mun e.t.v. hal'a lagt trúnað á það, sem fram kom f þessuin þætti. Flokkast þetta undir heiðarleg vinnu- brögð? Af nógu er að taka. Tökum annað dæmi. Fyrir nokkrum mánuðum var haldin „leik- sýning” i þættinum Kastljósi. þar sem komu fram annars vegarlögreglumenn suunan af Keflavikurflugvelli og fulltrúi frá sakadómaraembættinu. Stjórnandi þáttarins mun hafa undirbúið þennan þátt ræki- lega I samráði viö lögreglu- mennina. Bornar voru upp spurningar um tvö eða þrjú tiltekin mál, sem voru til með- ferðar hjá sakadómaraemb- ættinu. Fulltrúinn frá saka- dóinaraembættinu hafði ekki minnstu hugmynd um, að spurt yrði sérstaklega um þessi mál, en þess má geta, að hundruö mála liggja fyrir hjá embættinu. Vegna þess að umræddtir fulltrúi var óviðbú- inn að svara þessum spurn- ingum, enda hafði hann ekki sjálfur fjallað um þessi mál, fóru lögreglumennirnir „með sigur af hólmi” I þessum þætti, og almcnningur e.t.v. fengið þær huginyndir, að allt væði á súðum hjá sakadóm- araembættinu. Flokkast þctta undir heiðarleg vinnubrögð? I>aö væri hægt að rekja mörg önnur dæmi þessu lik, en það verður aö biða betri tlma. Mcrgur málsins er sá, að sjón- varpsmenn verða að tileinka sér heiðarleg vinnubrögð, og vissar kröfur vcrður að gera til þeirra, sem fram koma i fréttaskýringaþáttum. l>að vekur t.d. mikla furðu, að sjónvarpið skuli hvað cftir annað leita til manna, sem uppvisir hafa orðiö að alvar- legum fréttafölsunum á öðr- um vettvangi, og fá þá til að stjórna fréttaskýringaþáttum. Abyrgð rikisfjölmiðlanna er mikil. Flestir munu sammála um, að þeir liafi valdið liinu erfiða hlutverki sinu prýðilega á uiidaugeugiium árum. Umræðuþættirnir hafa margiT hverjir verið mjög góðir. l>að cr þess vegna ástæðulaust, að sjónvarpið láti draga sig niður i einhvern forarpytt óvand- aðrar fréttamennsku, eins og þvi iniður hefur gerzt of oft undanfariö. Þegar slikt gerist, molnar fljótt út hyrningar- steinum lýðræðisins. —a.þ. Landlæknisembættið óskar eftir dómsrannsókn Talinntýndur Gsal-Reykjavik — 1 fyrrakvöld var farið að óttast um siglfirzkan sjómann, sem farið hafði einn til veiða fyrr um daginn, og kom ekki til lands á tilsettum tima. Félagar i björgunarsveit SVFl hófu leit að manninuin á nokkrum bátum, og fannst hann von bráð- 1 SAMBANDI við skrif fjölmiðla um tóm lyfjaglös, fundin i Mos- fellssveit, óskar landlæknisemb- ættið eftir þvi, að eftirfarandi verði birt: f tilefni af staðhæfingum um of stórar lyfjagjafir og óeðlilega há- ar greiðslur fyrir lyfseðla hefur landlæknisembættið, i samráði við Bæknafélag Islands og Læknafélag Reykjavikur, óskað eftir dómsrannsókn. Lífeyrissjóður rafiðnaðarmanna mun á næstunni veita lán til sjóðfélaga. Lánin verða eingöngu veitt þeim sem eru að byggja/kaupa eigið húsnæði og gegn fyrsta veðrétti i hlutaðeigandi fasteign. Lánstiminn verður 15 ár og ársvextir 17% miðað við núgildandi vaxtakjör. Þeir sjóð- félagar ganga fyrir sem hafa verið i.sjóðn- um frá upphafi, enda hafi iðgjöld verið greidd skilvislega a.m.k. til siðustu ára- móta. Umsóknir um lán skulu sendast stjórn sjóðsins Freyjugötu 27, Reykjavik á eyðu- blöðum sem sjóðurinn lætur i té, eigi siðar en 10. desember 1975. Reykjavik 6. nóvember 1975 Stjórn Lifeyrissjóðs rafiðnaðarmanna Freyjugötu 27 Flugmódelin vinsælu Ingvar Helgason, Vonarlandi v/Sogaveg, sími 8451 0. r l>\ ggingav'iirur li.l. Ármúla 18 t» I. l-'ossberg h.f. Skúlagötu 03. fyrir: Bifreiðaverkstæði vélsmiðjur og einstaklinga Aðal-útsölustaðir i Reykjavik:

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.