Tíminn - 12.11.1975, Qupperneq 9
Miðvikudagur 12. nóvember 1975.
TÍMINN
9
(Jtgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
J>órarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Rit-
stjórnarfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Fréttastjóri:
Helgi H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrlmur Glsla-
son. Ritstjórnarskrifstofur I Edduhúsinu við Lindargötu,
simar 18300 — 18306. Skrifstofur I Aðalstræti 7, slmi 26500
— afgreiðslusimi 12323 — auglýsingasimi 19523. Verð I
lausasölu kr. 40.00. Askriftargjald kr. 800.00 á mánuði.
Blaðaprent h.f.
Heilbrigðisþjónusta
Meðan Ólafur Þ. Þórðarson sat á þingi sem
varamaður, flutti hann tillögu til þingsályktunar
um heilbrigðisþjónustu á Vestfjörðum. Sam-
kvæmt henni ályktar Alþingi að fela rikisstjórn-
inni að sjá um, að við þá endurskoðun, sem nú
stendur yfir á heilbrigðislöggjöfinni, skuli ákveð-
ið að læknir hafi búsetu á Suðureyri við Súganda-
fjörð, á Bildudal i Arnarfirði, á Reykhólum i
Austur-Barðastrandarsýslu og i Árneshreppi i
Strandasýslu.
1 greinargerð tillögunnar segir á þessa leið:
,,Með lögum um heilbrigðisþjónustu, nr.
56/1973, er i 1. grein laganna útskýrt markmið
þeirra og verður að telja að það hafi verið óvilja-
verk að lögin ná ekki tilgangi sinum. Þar segir
svo:
,,Allir landsmenn skulu eiga kost á fullkomn-
ustu heilbrigðisþjónustu, sem á hverjum tima eru
tök á að veita til verndar andlegri, likamlegri og
félagslegri heilbrigði.”
Samgöngur yfir vetrartimann valda þvi, að
þeir staðir, sem taldir eru upp i ályktun þessari,
eru algerlega útundan hvað öryggi i heilbrigðis-
þjónustu snertir þann tima ársins sem akvegir
eru lokaðir.
Á þessum stöðum er um afturför að ræða á
sviði heilbrigðismála og blasir sú staðreynd við,
að fólk flytur burt, sem ella hefði unað þar hag
sinum. Hvort hafa beri H 1 heilsugæzlustöðvar á
þessum stöðum eða f jölga læknum á þeim heilsu-
gæzlustöðvum sem fyrir eru, en láta nægja að
setja búsetuskilyrði, er svo matsatriði i hverju
tilfelli.
Ekkert er þó þvi til fyrirstöðu að nýta starfs-
krafta þessara manna til þjónustu stærra svæðis
þann tima sem samgöngur eru viðunandi, en það
er á þeim tima sem sumarleyfi ganga yfir og gæti
þvi verið hagkvæmt.
Nú hafa þær fréttir borizt, að meira framboðs
sé að vænta af læknum en verið hefur, og vekur
það vonir um að auðveldara verði að fá lækna til
starfa i dreifbýlinu. Sú breyting, sem hér er lögð
til, bætir til muna starfsskilyrði þeirra og leggur
þeim hóflegri kröfur á herðar til ferðalaga. Þar
sem endurskoðun heilbrigðislaganna hefst núna á
næstunni er eðlilegt að Alþingi taki afstöðu til
þess hvort 1. grein þeirra heilbrigðislaga, sem nú
eru i gildi, eigi við landið allt.”
Ólafur Þ. Þórðarson lýkur greinargerð sinni
með þeirri ósk, að Alþingi taki ábyrga afstöðu til
þessara mála, en varði ekki veg nýrrar heil-
brigðislöggjafar með dauðsföllum, sem ella gætu
hlotizt óbeint af völdum hennar.
ínúk
íslendingar fagna þvi, þegar skákmenn þeirra
vinna sigra á erlendum vettvangi. Sama gildir
um iþróttamenn. Engu minni ástæða er þó til að
fagna þvi, þegar islenzkir listamenn vinna um-
talsverða sigra erlendis. Þetta hefur ínúk-leik-
flokkurinn gert. Hann hefur nú sýnt i mörgum
löndum og hlotið mikið lof fyrir góða túlkun á at-
hyglisverðu efni. Honum stendur nú til boða að
sýna list sina i mörgum löndumogverður honum
vonandi fært að gera það. íslendingar þurfa að
sýna, að þeir séu hlutgengir á fleiri sviðum en i
skák og iþróttum, þótt það sé lika mikilsvert.
Þ.Þ.
ERLENT YFIRLIT
Efnir Indira brótt
til þingkosninga?
AAargt bendir til, að hún yrði sigursæl
Indira
HÆSTIRÉTTUR Indlands
hefur nú fellt úrskurð i máli
Indiru Gandhi, en hún hafði
verið kærð fyrir embættismis-
notkun I sambandi við siðustu
þingkosningar og hlotið dóm
fyrir það i undirrétti. Misnotk-
un þessi átti að hafa gerzt i
kjördæmi þvi, þar sem hún
var frambjóðandi. Atriði þau,
sem hún var dæmd fyrir, voru
flest litilvæg og komst enska
stórveldið The Times þannig
að orði, að frambjóðandi i
Bretlandi hefði ekki hlotið
dóm fyrir slika ákæru. Þetta
varð lika álit hæstaréttar Ind-
lands. Hann sýknaði Indiru af
öllum ákæruatriðunum.
Undirréttardómurinn hefur
haft miklar sögulegar afleið-
ingar i Indlandi. Strax eftir að
hann var kveðinn upp, hófu
andstæðingar Indiru mikla
sókn gegn henni og kröfðust
þess, að hún segði tafarlaust
af sér sem forsætisráðherra.
Indira taldi rétt að biða a.m.k.
úrskurðar hæstaréttar. Þessu
höfnuðu andstæðingar hennar
og hertu kröfurnar um að hún
segði tafarlaust af sér. Jafn-
framt hófu þeir að hvetja
menn til að fylgja kröfunni
fram með þvi, að neita að
vinna ýmis störf i þágu rikis-
ins og gera stjórnkerfið óvirkt
á þann hátt. Indira yrði þá
neydd til þess að segja af sér.
Indira ákvað að biða ekki eftir
þvi, að slik hreyfing hlypi af
stokkunum, eins og vel gat
orðið, heldur tók sér eins
konar alræðisvald, eins og
heimilt er samkvæmt stjórn-
arskránni, þegar sérstök
hætta er talin yfirvofandi. Hún
hefurnú farið með þetta vald i
fjóra mánuði og hefur enn ekki
tjáð sig um hvenær hún lætur
það aftur af hendi. Ýmsir hafa
spáð þvf, að hún myndi gera
það fljótlega eftir að úr-
skurður hæstaréttar væri fall-
inn, einkum þó ef hann félli
henni i vil. Lögum samkvæmt
eiga þingkosningar, að fara
fram i Indlandi i marzmánuði
næstkomandi og þykir nú ekki
ósennilegt, að þær verði látnar
fara fram á tilsettum tima.
SITTHVAÐ þykir benda til, að
Indiru myndi farnast vel i
kosningunum, ef hún efndi til
þeirra fljótlega. Otrúlega
miklar breytingar hafa orðið á
gangi ýmissa mála síðan
Indira tók sér alræðisvald.
T.d. jókst strax framboð á
ýmsum vörum, sem höfðu
verið af skornum skammti og
jafnframt varð verðlækkun á
þeim. Astæðan var sú, að
kaupmenn treystu sér ekki til
að hamstra lengur, eins og
þeir höfðu gert áður. Indira
birti strangar reglur um bann
við hamstri og þorðu kaup-
menn ekki annað en að fram-
fylgja þeim. Að sjálfsögðu
mæltist þetta vel fyrir hjá al-
menningi. Jafnhliða þessu
breytti embættiskerfið alveg
um svip. Áður var illa mætt á
opinberum skrifstofum og af-
greiðsla mála dróst mjög á
langinn. Indira gaf fyrirskip-
un um að þessu yrði breytt og
hafa embættismenn ekki þor-
að annað en að fara eftir þvi.
Þannig má segja, að röð og
regla og agi hafi haldið innreið
sina á mörgum sviðum þjóð-
lifsins, þar sem slikt mátti
heita óþekkt áður. Sumir hafa
þvi haft á orði, að raunveru-
lega haíi aldrei verið stjórnað
i Indlandi nema i þessa fjóra
mánuði, siðan Indira tók sér
alræðisvald.
Þróun ýmissa mála hefur
lika orðið Indiru hagstæð á
þessum tima. Þannig eru
horfur á að uppskera verði
með allra bezta móti. Jafn-
framt hefur verðlag ýmissa
neyzluvara frekar lækkað eða
haldiztóbreytt. Aður var mikil
verðbólga i Indlandi og verð-
hækkanir daglegur viðburður.
Þetta hefur almenningur beint
og óbeint fært til tekna á
reikning Indiru. Tvimælalaust
hefur þetta hjálpað til þess að
styrkja stöðu hennar.
Þá hefur Indira gert ráð-
stafanir til að hraða jarða-
skiptingu i þágu smábænda.
Þetta var að visu hafið áður,
en hefur gengið seinlega.
Jafnframt hefur hún reynt að
greiða úr skuldamálum
Desai — einn helzti andstæð-
ingur Indiru
Gandhi
þeirra, en skuldir hafa verið
mörgum þeirra fjötur um fót.
SAMKVÆMT frásögnum
erlendra blaðamanna, sem
dvalizt hafa i Indlandi að und-
anförnu, virðastþær breyting-
ar, sem hafa orðið þar siðan
Indira tók sér alræðisvald,
yfirleitt mælst vel fyrir hjá al-
menningi og hafa aukið álit
hennar. I hópi menntamanna
er hins vegar að finna meiri
gagnrýni og þeir telja að hún
hafi farið likt að og óbreyttur
einræðisherra. Hún hafi látið
setja marga helztu andstæð-
inga sina i fangelsi, lagt höml-
ur á frelsi fjölmiðla o.s.frv.
Indland sé þvi ekki lengur
frjálst land eins og áður var.
Sumir blaðamannanna benda
á, að þótt þessi gagnrýni hafi
við rök að styðjast, sé veruleg-
ur munur á ástandinu i Ind-
landi og raunverulegum ein-
ræðislöndum i þessum efnum.
Dómstólarnir séu jafnt óháðir
og áður og almenningur sé
yfirleitt óragur við að tjá sig
og gagnrýna stjórnina fyrir
það. sem miður þykir fara.
I viðtölum, sem Indira hefur
átt við erlenda blaðamenn að
undanförnu. hefur hún jafnan
lýst yfir þvi, að hún ætti að af-
sala sér alræðisvaldinu strax
og hættuástand það, sem hafi
myndazt um skeið, sé liðið
hjá. Það vaki siður en svo
fyrir henni að horfið verði frá
lýðræðisstjórn i Indlandi. Þess
vegna verði efnt til þingkosn-
inga eins fljótt og fært þykir.
Yfirleitt virðist það álit frétta-
manna. að Indira mvndi fara
með sigur af hólmi', ef efnt
væri til kosninga innan
skamms. Þ.Þ.