Tíminn - 12.11.1975, Síða 14
14
TÍMINN
Miðvikudagur 12. nóvember 1975.
LÖGREGL UHA TARINN
64 Ed McBain
Þýðandi Haraldur Blöndal
— Hvaö kostar það okkur að póstleggja öll þessi bréf,
spurði hinn maðurinn.
— Ég skal segja þér það Buck, svaraði heyrnardaufi
maðurinn. Við sendum hundrað bréf og burðargjaldið er
fimm cent á bréf. Ef mér reiknast rétt eru það fimm
dollarar.
— Þér reiknast alltaf rétt, sagði Ahmad og brosti.
— Það er þessi kafli sem ég get aldrei spilað, sagði
stúlkan og spilaði sömu nótuna æ of an í æ eins og hún ætl-
aði að hamra hana fasta í minni sínu.
—■ Haltu áfram Rocheile, þú nærð því, sagði heyrnar-
daufi maðurinn.
Buck lyfti glasi sínu og sá að það var tómt. Hann gekk
að borðinuog hellti glasiðaftur f ullt. Hreyfingar manns-
ins voru iþróttamannslegar bakið beint og hendurnar
slakar með siðunum. Það var eins og hann væri að slaka
á eftir velheppnað stökk.
— Ég skal hjálpa þér, sagði sá heyrnardaufi.
— Ekki of sterkt, sagði Buck.
Heyrnardaufi maðurinn bætti enn í glas hans. —
Drekktu, sagði hann.... — Þú átt það skilið.
— Ég vil ekki verða ofurölvi.
— Þvi ekki það? Þú ert meðal vina, svaraði heyrnar-
daufi maðurinn og brosti. Honum var sérlega hlýtt til
Buck þessa stundina. Hefði hæf ileika hans ekki notið við
i þessum áfanga, hefði áætlun hans aldrei orðið veru-
leiki. Frumstæða sprengju mátti setja saman og tengja
hana við kveikjurofann, en það voru slóðaleg vinnubrögð
og háð tilviljun. Honum var meinilla við öll slik vinnu-
brögð. Buck hafði unnið verk sitt af áhuga og elju. Það
var sannarlega gott að geta leitt að því hugann. Sam-
setningin var gerð með það í huga að vera fyrirferðar-
lítil og fljóttengd. Kostnaðurinn var um 64 dollarar, en
hvað var það ef höfð voru í huga lokamörk f járhagsins?
Buck hélt fund með félögum sínum og skýrði meðferð
dýnamítsins, hvellhettunnar og víratenginganna. Stór-
kostlegt. Sannarlega stórkostlegt. Buck var sannarlega
góður maður. Sprengjusérfræðingur, sem unnið hafði
við óteljandi lögleg verkefni á sínu sviði. Hann hafði þá
bakgrunnsþekkingu sem heyrnardaufi maðurinn áleit
nauðsynlega. í þessu ríki var ekki hægt að kaupa
sprengiefni án leyfis og tryggingar. Buck hafði hvort
tveggja, Heyrnardauf i maðurinn var sannarlega ánægð-
ur að hafa hann í þjónustu sinni. Ahmad var líka ómiss-
andi. Hann var starfsmaður hjá Raf magns- og hitaveitu
borgarinnar og vann við uppdrætti og kortateikningar.
Vikutekjur hans námu 150 dölum í korta- og skjala-
deildinni þegar heyrnardaufi maðurinn hafði fyrst sam-
band við hann. Ahmad hreifst þegar af rikulegum laun-
um áætlunarinnar og veitti fúslega allar upplýsingar,
sem nauðsynlegar voru til að hrinda í framkvæmd
siðasta hluta áætlunarinnar. Auk þess var hann ná-
kvæmur maður og vandvirkur. Hann krafðist þess að öll
bréf in væru prentuð á mjög vandaðan skjalapappír. Sér-
hver hinna hundrað manna skyldi fá bréf sitt í frumút-
gáfu en ekki afrit eða Ijósrit. Þannig mætti koma í veg
fyrir þá skoðun að bréfið væri grín eitt. Heyrnardaufi
maðurinn vissi mætavel að slík smáatriði gátu skorið úr
um hvort áætlanir tókust vel að miður. Hann brosti því
viðurkenningarbrosi til Ahmads og sötraði viskiið sitt.
Svo sagði hann: — Hvað ertu búinn að vélrita mörg bréf ?
— Fimmtíu og tvö.
— Við verðum að þessu langt fram á nótt.
— Hvenær póstleggjum við þessi?
— Vonandi á miðvikudaginn.
— Ég verð búinn með þau löngu fyrir þann tíma, sagði
Ahmad.
— Ætlið þið í alvöru að vinna f ram á nótt, spurði Roch-
elle.
— Þú getur farið í háttinn ef þú vilt góða, sagði heyrn-
ardaufi maðurinn.
— Fara í bólið án þín, spurði stúlkan f urðulostin. Buck
og Ahmad skiptust á augnatilliti.
— Farðu að sofa. Ég kem á eftir.
— Ég er ekki syfjuð.
— Fáður þér þá í glas og spilaðu annað lag fyrir okkur.
— Ég kann ekki önnur lög.
— Lestu þá bók, sagði hann sáttfús.
Rochelle leit tómlega á hann.
— Þú getur líka farið f ram í setustof u og horft á sjón-
varpið.
— Það er ekkert í sjónvarpinu nema endursýndar
myndir.
— Sumar þessara gömlu mynda eru mjög fræðandi,
sagði heyrnarduafi maðurinn.
—- Sumar eru líka argasta þvæla, svaraði Rochelle.
Heyrnardaufi maðurinn brosti. Langar þig kannski til
að sleikja aftur eitt hundrað usmlög.
Sjáðu, þarna er
Dalla,
,,njósna-augað”
hefur fundið
hana,
12. nóvember
7.00 Morguinitvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morguhleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Guðrún Guðlaugsdótt-
ir les „Eyjuna hans Múmín-
pabba” eftir Tove Jansson
(12) . Tilkynningar kl. 9.30.
Þingfréttir kl. 9.45. Létt lög
á milli liða. Frá kirkjustöð-
um fyrir norðan kl. 10.25:
Séra Agúst Sigurðsson flyt-
ur fyrra erindi sitt um Mæli-
fell i Skagafirði. Morgun-
tónleikar kl. 11.00.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan:
„Fingramál” eftir Joanne
Greenberg. Bryndis Vig-
lundsdóttir les þýðingu sina
(2).
15.00 Miðdegistónleikar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Poppliorn.
17.10 Útvarpssaga barnanna:
„Tveggja daga ævintýri”
eftir Gunnar M. Magnúss.
Höfundur les (8).
17.30 Framburðarkennsia i
dönsku og frönsku.
17.50 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir.' Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Frcttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Vinnumál. Þáttur um
lög og rétt á vinnumarkaði.
Umsjónarmenn: Lögfræð-
ingarnir Gunnar Eydal og
Arnmundur Backman.
20.00 Kvöldvaka. a. Einsöng-
ur. Sigurveig Hjaltested
syngur islenzk lög, Ragnar
Björnsson leikur undir. b.
Þrir dagar á Gotlandi. Þór-
oddur Guðmundsson flytur
ferðaþátt, fyrri hluti. c.
,,óf ullnægja ", smásaga
eftir Pétur Hraunfjörð Pét-
ursson. Höfundur les. d.
Pjóðtrú um manninn. Bald-
ur Pálmason les frásögn
Helga Gislasonar á Hrapps-
stöðum i Vopnaíirði. e. Um
islenzka þjóðhælti. Arni
Björnsson cand. mag. talar.
f. Kórsöngur. Karlakórinn
Fóstbræður syngur, Ragnar
Björnsson stjórnar.
21.30 Útvarpssagan: „Fóst-
bræöur” eftir Gunnar
Gunnarsson. Jakob Jóhann-
esson Smári þýddi. t>or-
steinn ö. Stephensen leikari
les (14).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Kjarval" el'tir Thor
Viili jálmsson. Höfundur les
(13) .
22.40 Djassþáttur. Jón Múli
Árnason kynnir.
23.25 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
18.00 Björninn Jóki. Nýr,
bandariskur teiknimynda-
flokkur. Þýðandi Jón
Skaptason.
18.25 Kaplaskjól. Breskur
myndaflokkur byggður á
sögum eftir Monicu Dick-
ens. Skuldin. Þýðandi Jó-
hanna Jóhannsdóttir.
18.50 List og listsköpun.
Fræðslumyndaflokkur fyrir
unglinga. 3. þáttur. Ljós og
skuggar. Þýðandi Hallveig
Thorlacius. Þulur Ingi Karl
Jóhannesson.
19.15 Hlé
20. Fréttir og vcður
20.30 Pagskrá og auglýsingar
20.40 Vaka. Dagskrá um bók-
menntir og listir á liðandi
stund. Umsjónarmaður
Aðalsteinn Ingólfsson.
21.20 McCloud. Bandariskur
sakamálamyndaflokkur.
Aðalhlutverk Dennis Weav-
er. Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
22.10 Iþróttir. Umsjón Ómar
Ragnarsson.
Pagskrárlok óákveðin.