Tíminn - 12.11.1975, Side 15
Miðvikudagur 12. nóvember 1975.
TÍMINN
15
Vestfirðir:
Gæftir óstöðugri en
undanfarin ár
gébé-Rvik — Gæftir voru miklu
óstöðugri i Vestfirðingafjórð-
ungi i október heldur en undan-
farin haust, og afli af þeim sök-
um mun lakari. Afli togaranna
var einnig mjög tregur allan
mánuðinn, og notuðu þvi margir
timann til botnþrifa, viðgerða
og endurbóta. Rækjuveiðar hóf-
ust i Arnarfirði 27. október.
Samkvæmt upplýsingum frá
Fiskifélagi Islands á Isafirði
voru 23 bátar byrjaðir róðra
með linu i íok október, og þeirrs
aflahæstur var Vestri frá Pat-
reksfirði með 104,5 lestir i 22
róðrum i október. Aflahæstur
togaranna i mánuðinum var
Guðbjartur frá ísafirði með
276,4 lestir.
Rækjuveiðar hófust i Arnar-
firði 27. okt., og voru fimm bát-
ar byrjaðir veiðar. Afli þeirra
var 19,5 lestir. Aftur á móti rikir
algjör óvissa með það, hvenær
rækjuveiðar hefjast i Isafjarð-
ardjúpi og Húnaflóa. Stærstu
rækjubátarnir voru þvi að skjót-
ast til að fara þegar gaf til
róðra, en annars voru færabátar
almennt hættir veiðum. Drag-
nótabátar voru aftur á móti
flestir ennþá að veiðum.
Heildaraflinn i mánúðinum
var 3.165 lestir, en var 2.872 lest-
ir á sama tima i fyrra.
Tíu ára afmælis-
árshátíð félagsins
verður haldin i Félagsheimilinu
Seltjarnarnesi þann 15. nóvember
1975 og hefst með borðhaldi kl.
18,30.
Góð hljómsveit og skemmtiatriði.
Aðgöngumiðasala i neðangreind-
um simum: 40547 — 42071 — 41499.
Siðasti söludagur aðgöngumiða
verður fimmtudaginn 13. nóvem-
ber.
Skemmtinefndin.
Lélegur
síldarafli
í síðustu
viku
gébé Rvik — Sildveiði islenzku
skipanna i Norðursjó i siðustu
viku var fremur léleg, en alls
seldu tiu skip £59,6 lestir að
verðmæti 47.521.369,-kr., og var
meðalverð pr. kg 49,52 kr. Loft-
ur Baldvinsson EA er enn afla-
hæstur, en Súlan EA og Gisli
Arni RE fylgja fast á eftir.
Beztu söluna i siðustu viku
átti Árni Sigurður AK, sem seldi
235,1 lest að verðmæti
12.560.579,- kr. i tveimur sölum,
þann 4. og 7. nóvember. Heild-
arafli isl. skipanna frá 18. april
til 8. nóvember er þvi 18.053.227
lestir, að verðmæti 780.230.483,-
kr., meðalverð pr. kg. 43.22 kr.
ENGAR
UNDAN-
ÞÁGUR
INNAN
50
MÍLNA
AÐALFUNDUR Framsóknar-
félags Árnessýslu var haldinn á
Selfossi 31. okt. sl. I stjórn voru
kjörnir: Hörður Sigurgrimsson
bóndi, Holti, formaður. Með-
stjórnendur: Þórarinn Sigur-
jónsson alþm., Laugadælum,
Stefán Guðmundsson oddviti,
Túni, Páll Lýðsson oddviti,
Litlu-Sandvik, Bragi Þorsteins-
son, bóndi Vatnsleysu. 1 vara-
stjórn voru kjörnir: Jón Eiriks-
son oddviti, Vorsabæ, Sigurður
Þorsteinsson, bóndi Heiði, og
Guðmundur Rafnar Valtýsson,
skólastjóri Laugarvatni.
A fundinum hafði Þórarinn
Sigurjónsson alþingismaður
framsögu um stjórnmálavið-
horfið, og vakti ræða hans mikla
athygli og umræður. Ein álykt-
un var samþykkt:
„Aðalfundur Framsóknarfé-
lags Arnessýslu, haldinn á Sel-
fossi 31.10 1975, skorar á þing-
flokk Framsóknarflokksins að
beita sér eindregið gegn þvi, að
undanþágur verði leyfðar til
veiða útlendinga innan 50 sjó-
milna við landið.”
Alyktunin var samþykkt ein-
róma og með lófaklappi.
Vegur til
verötryggingar
Gefinn hefur verið út nýr flokkur happdrættis-
skuldabréfa ríkissjóðs, G flokkur, að fjárhæð
300 milljónir króna. Skal fé því,sem inn kemur
fyrir sölu bréfanna, varið tíl varanlegrar
vegagerðar í landinu.
Happdrættisskuldabréf ríkissjóðs eru endur-
greidd að 10 árum liðnum með verðbótum í
hlutfalli við hækkun framfærsluvísitölu.
Auk þess gildir hvert bréf sem happdrættismiði,
sem aldrei þarf að endurnýja í 10 ár.
Á hverju ári verður dregiö um 942 vinninga að
fjárhæð 30 milljónir króna, og verður í fyrsta
skipti dregið 23. janúar n.k.
Vinningar á hverju ári skiptast sem hér segir:
6 vinningar á kr. 1.000.000 = kr. 6.000.000
6 vinningar á kr. 500.000 = kr. 3.000.000
130 vinningar á kr. 100.000 = kr. 13.000.000
800 vinningar á kr. 10.000 = kr. 8.000.000
Happdrættisskuldabréfin eru framtalsfrjáls og
vinningar, sem á þau falla.skattfrjálsir.
Happdrættisskuldabréf rikissjóðs eru til söiu nú
Þau fást í bönkum og sparisjóðum um land allt og kosta 2000 krónur.
m) SEÐLABANKI ISLANDS