Tíminn - 12.11.1975, Blaðsíða 17

Tíminn - 12.11.1975, Blaðsíða 17
lYliðvikudagur 12. nóvember 1975. TÍMINN 17 Knapp ísland er r li upf ne< á S boð frá vasann 1 — um að koma hlngað og gerast starfsmaður h já KSÍ til tveggja ára TONY KNAFP......... verður hann landsliðseinvaldur næstu tvö ár- in? ÞÆR l'réttir lial'a nú borizt frá Knglandi að TO.NY KNAPP — l'yrrverandi þjálfari KK og lands- liðsins — liafi nú tilboð l'rá Knatt- spvrnusambandi islands upp á vasann. þar sem K.S.i. hefur boð- ið lionum að koma til islands og skril'a uiulir tveggja ára samning við sambandið. Þaö lielur lengi verið i atliugun lijá K.S.Í., Iivort ekki væri kominn timi til að ráða l'astnn þjálfara hjá samhandinu, mann sem gæti þjálfaö landsliðið, u n g I in ga I a n d sliði ð, ja f n f ra m t þvi, sem sá þjálfari invndi verða ..einvaldur" landsliðsins, starfs- maður K.S.Í. og sendikennari. sem mvndi einnig ferðast um landið og halda þjálfaranám- skeið. Af Knapp er það að segja, að honum var boðið að gerast þjálf- ari hjá norska 1. deildarliðinu Rosenborg. En ekkert varð af þvi, þar sem Knapp setti upp fjárkröf- ur, sem norska liðið vildi ekki samþykkja. 1 beinu framhaldi af þessu, þá væri gaman að vita, hvaöa fjárkröfur Knapp gerði til K.S.Í. — fyrir að skrifa undir tveggja ára samning við sambandið. Það hlýtur að vera dágóð upphæð,. Þess vegna er það spurningin, — er það góð fjár- festing, að ráð ráða Knapp sem starfsmann hjá K.S.Í.? Svarið er tvimælalaust — NEI. Knapp hefurekki yfir þeirri kunnáttu að ráða sern þarf til að byggja upp knattspyrnuna hér á landi. Við þurfum vel menntaðan knatt- spyrnuþjálfara, en ekki gamal- kunnan knattspyrnumann, sem eingöngu getur státað af frægð- inni. i>að hefur greinilega komið i ljós, þegar Ungverjinn Lojos Haróti.sem er nú einn af lands- liðsþjálfurum Ungverjalands kenndi hér við þjálfaraskóla K.S.Í. Nemendur skólans voru mjög hrifnir af öllu þvi, sem Ung- verjinn kenndi þeim, og þeir sögðu, að það hefði verið eins og svart og hvitt miðað við það, sem ensku þjálfararnir, sem störfuðu hér s.l. sumar, hefðu kennt þeim. Stjórn K.S.l. verður þvi að ihuga allt vel og vandlega, áður en hún fer að gera einhverja samninga við Tony Knapp. — SOS SÖLVI MEÐ ÞRÓTT KNATTSPYRNUMENN okkar eru byrjaöir að hugsa sér til hreyfings — forráöamenn 1. deildar lið- anna okkar eru nú farnir að leita eftir þjálfurum fyrir næsta keppnistima- bil. Nýliðar Þróttar eru þegar búnir að ráða sér þjálfara — Sölvi óskarsson verður áfram með hið unga lið Þróttar. Flest 1. deildar liðin eru hins vegar byrjuð að leita eftir þjálf- urum erlendis. ÞKÓTTAKAR t ÆFINGA- BÚÐIR í SKOTLANPl Mikill hugur er i nýliðum Þrótt- ar. Þeir eru byrjaðir að æfa undir handleiðslu Sölva óskarssonar, sem hefur verið endurráðinn þjálfari Þróttar. Þróttarar æfa tvisvar i viku fram i desember. Þá taka þeir sér fri — en byrja siðan aftur af fullum krafti i janú- ar. Þróttarar fara siðan i æfinga- búðir i Skotlandi, þar sem þeir munu dveljast við æfingar um páskana. GUDMUNOUR OG JÓHANNES AFRAM MEÐ FRAM-LIDIÐ Guðmundur Jónsson og Jó- hannes Atlason. sem náðu mjög góöum árangri með Fram-liðið sl. keppnistimabil, verða að öllum likindum áfram með það. Fram- liðið, sem tekur þátt i UEFA-bik- arkeppni Evrópu næsta sumar, hafa endurheimt þá Asgeir Elias- son og Sigurberg Sigsteinsson, sem voru þjálfarar úti á iandi sl. ★ Fram, Þróttur, Breiðablik og jafnvel Keflavík með íslenzka þjólfara ★ Akranes, KR, Víkingur, Valur og FH leita eftir erlendum þjólfurum sumar. Það er geysilega mikill styrkur fyrir Fram að fá þessa. leikmenn aftur. — Þeir hafa verið ráðnir þjálfarar hjá yngri flokk- um félagsins. KR-INGAR I.EITA FYRIR SfíR i ENGLANDI KR-ingar eru nu að leita eftir þjálfara frá Englandi. Þeir hafa haft samband við Alan Wade, for- mann tækninefndar enska knatt- spyrnusambandsins, og beðið hann að senda sér lista yfir þá þjálfara, sem sambandið hefur á sinum snærum. KR-ingar biða nú eftir þessum lista, en þeir muna væntanlega velja sér þjálfara af honum. FII-ING AR HAFA AUGASTAÐ AÞEKKTUM SKOTA FH-ingar eru farnir að leita eft- ir þjálfara — þeir hafa nú auga- stað á þekktum skozkum þjálf- ara, og eru að kanna, hvort hann fæst til aö koma til Hafnarfjarð- ar. Þá hafa þeireinnig áhuga á að fá þjálfara frá V-Þýzkalandi. ÞORSTEINN AFRAM MEÐ BI.IKANA Þorsteinn Friþjófsson, sem náði mjög góðum árangri með Breiðabliks-liðið — sem endur- heimti 1. deildarsætið sitt — verð- ur að öllum likindum áfram með Kópavosgsliðið. Þaö verður þvi gaman að fylgjast með Þorsteini, sem er einn okkar bezti þjálfari, spreyta sig i baráttunni um meistaratitilinn næsta keppnis- timabil. gudni og jón afram MED KEFLAVÍKURLIÐID? Keflvikingar hafa mikinn áhuga á að Guðni Kjartansson og Jón Jóhannsson, sem tóku við þjálfun Keflavikurliðsins sl. keppnistimabil af Joe Hooley, verði áfram þjálfarar liðsins. Óvist er þó, hvort af þvi verður, þvi að Guðni hefur mikinn áhuga á að leika með Keflavikurliðinu, en hann hefur ekki getað leikið með þvi sl. ár vegna meiðsla. Hann er nú að ná sér eftir meiðsl- in og verður væntanlega orðinn góður á næsta keppnistimabili — þannig að allt bendir til að hann leiki þá með liðinu. Forráðamenn Keflavikur gera sér grein fyrir þessu — og er nú i athugun, hvort þeir eigi að leita eftir þjálf- ara erlendis. SANDERSHEFUR BOD FRA VIKINGI GUÐMUNDURJÓHANNES — þeir verða að öllum likindum áfrain mcð Fram-liöiö. Vb'kingar hafa boðið Tony Sand- ers, sem hefur þjálfað Vikings- liðið tvö sl. keppnistimabil, að koma aftur og þjálfa liðið. Ef Sanders hefur ekki tök á að koma, mun hann vera tilbúinn að vera Vikingum innan handar, með þvi að útvega þeim annan þjálfara frá Bretlandse.vjum, en Vikingar hafa mikinn áhuga á að fá erlend- an þjálfara aftur — ef Sanders kemur ekki til þeirra, þá revna þeir að finna annan góðan þjálf- ara. SKAGAMENN OG VALSMENN LEITA EFTIR ERLENDUM ÞJALFURUM tslandsmeistararnir frá Akra- nesi og Valsmenn eru nú farnir að hugsa sér til hreyfings og leita eftir þjálfurum — væntanlega frá Bretlandseyjum. Þetta er allt á byrjunarstigi hjá þeim. — SOS. SÓLVI óSKARSSON...er byrjaður aö undirbúa ný- liða Þróttar af fullum krafti fyrir baráttuna í 1. deild ar keppninni næsta suniar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.