Tíminn - 30.12.1975, Blaðsíða 4
4
TÍMINN
Þriöjudagur 30. desember 1975.
LITIÐ LEGGST NU
FYRIR KAPPANA! <Z>
Breyttir timar með miklum
skattgreiðslum og ýmsum
öðrum útgjöldum, hafa orðið til
þess, að margir stjörnuleikarar
hafa „lagzt svo lágt” eins og
einn þeirra orðar það, að leika i
sjónvarpsauglýsingum. Meira
að segja Sir Laurence Olivier,
hinn frægi brezki leikari — sem
ofan i kaupið er aðlaður — hefur
auglýst fyrir Polaroid —
myndavélar, en samnings-
upphæðin fékkst ekki uppgefin
hjá fyrirtækinu. Orson Welles
leikari lætur sig hafa það að
auglýsa vissa tegund af sherry,
og tekst vist vel upp i
auglýsingunni. Svo vel að sumir
halda að liklega hafi „senan”
verið endurtekin nokkrum sinn-
um, eins og oft þarf að gera við
myndatöku, og auðvitað hefur
Welles orðið að drekka eitt
staup i hvert sinn. I niunda sinn
hafi svo myndatakan heppnazt
svona prýðilega — en þvi miður
höfum við ekki mynd af Orson
Welles I þessu hlutverki. Svo er
það hann Peter Sellers. Hann
leikur i sjónvarpsauglýsingu
fyrir Trans World Airlines.
Leikurhann þrjú hlutverk i' aug-
lýsingunni. Hann kemur fram
sem skozkur nirfill, sem veltir
hverju pennil fyrir sér, sem
enskur herramaður og
suður-ameri'skur glaumgosi og
kvennagull. Peter Sellers setti i
samninginn, að þessa aug-
lýsingamynd mætti ekki sýna i
Bretlandi. Yfirleitt eru þessir
brezku leikararmjög fúsir til að
gera samning um auglýsinga-
myndir við bandarisk fyrirtæki
— en þeim þykir miður, ef þær
eru sýndar i Bretlandi, og þvi
hafði Peter Sellers vaðið fyrir
neðan sig í samningunum.
Óvanalegt verkefni
fyrir hvalaskyttu
Ein af skyttum sovéska hval-
veiðiflotans hefur fengið dálitið
óvanalegt verkefni. Hann á
heima i Kaliningrad, en er nú
farinn þaðan til oliu- og gas-
lindasvæðanna i Vestur-Siberiu.
Viðhald röraleiðslanna á
þessum slóðum hefur reynzt
ákaflega erfitt. Leiðslurnar
liggja viða um mosa- og mýrar-
fláka, og á veturna þegar torf-
lagið frýs pressar það rörin upp
á yfirborðið af svo miklu afli, að
þau geta rifnað. Reynt hefur
verið að halda rörunum niðri
með þrýstingi ofan frá, en það
hefur ekki borið árangur. Þá
kom mönnum i hug, að reyna að
leggja rörunum við akkeri á
nægilega miklu dýpi, og þar
kemur hvalaskyttan til sögunn-
ar, þvi að akkerinu er skotið
niður i jörðina með samskonar
byssum og hvalveiðimenn nota.
Byssan skýtur akkerinu,sem er
með ásoðinni stálstöng, 6-7
metra niður i jörðina, og siðan
eru rörin fest við stöngina.
LORD OLIVIER
PETER SELLERS
TOLO
[denni
1 DÆMALAUSI
„Þcr var hrósaö áöan. Þegar þú
kallaöir og sagöir mér aö koma
heim, sagöi Wilson, aö þaö væri
fegursta hljóö, sem hann hefur
nokkru sinni heyrt.”