Fréttablaðið - 07.11.2005, Síða 12

Fréttablaðið - 07.11.2005, Síða 12
 7. nóvember 2005 MÁNUDAGUR12 WASHINGTON, AP Öldungadeild Bandaríkjaþings hefur ákveðið að heimila olíuvinnslu á friðlýstu náttúruverndarsvæði í Alaska. Olían verður eingöngu seld á inn- anlandsmarkaði. Mjótt var á mununum í öldunga- deildinni á fimmtudagskvöldið, 51 þingmaður var því fylgjandi að heimila útboð á olíuvinnsluleyfum á svonefndu Norðurskautsfriðlandi í Alaska en 48 voru því andvígir. Þingið ákvað jafnframt að öll olían skyldi seld á heimamarkaði. George W. Bush forseti hefur lengi barist fyrir opnun svæðisins en það hefur verið friðlýst í 44 ár. Hann var því kampakátur þegar honum voru færð tíðindin á fund leiðtoga Ameríkuríkja í Argent- ínu. „Með því að auka framleiðslu okkar getum við lækkað verð á olíu umtalsvert.“ Bush kvaðst að auki þess fullviss að vinna mætti olíuna á umhverfisvænan hátt. Maria Cantwell, öldungadeild- arþingmaður demókrata, sagði ákvörðunina hins vegar gagns- lausa brellu. „Að nota klækja- brögð til að eyðileggja síðasta ósnortna víðerni Bandaríkjanna mun hvorki leysa orkuvanda þjóð- arinnar né lækka olíuverð.“ Talið er að dæla megi upp 10,5 milljörðum fata af olíu úr lind- unum á norðurskautsfriðlandinu en það magn dygði Bandaríkja- mönnum í hálft annað ár. Vist- kerfi svæðisins eru hins vegar viðkvæm fyrir slíkri vinnslu en þar eru heimkynni hjartardýra, ísbjarna og sauðnauta, auk fugla af ýmsum tegundum. - shg FRÁ ALASKA Sauðnaut og ísbirnir eru á meðal þeirra dýra sem búa á svæðinu þar sem olíuvinnslan er fyrirhuguð. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Bandaríkjaþing ákveður að taka nýjar olíulindir í notkun: Hyggjast bora eftir olíu á friðlýstu svæði í Alaska DÓMSMÁL 23 ára karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir fíkniefnalagabrot. Refsingin er skilorðsbundin í tvö ár og fellur niður að þeim tíma liðnum, brjóti hann ekki af sér aftur. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Við leit á heimili mannsins í vor fann lögregla 11,5 grömm af amfetamíni, 97,3 grömm af hassi, 16,6 grömm af marijúana, smáræði af tóbaksblönduðu kannabisi, 56 e- töflur og tólf amfetamíntöflur. Maðurinn játaði að eiga efnin en kvað þau til eigin nota, ekki til sölu. Dómurinn taldi ekki lögfulla sönnun á að maðurinn væri eitur- lyfjasali, þrátt fyrir upplýsingar um að slík sala væri stunduð frá húsinu, efnunum væri pakkað í smærri pakkningar og að upptæk var gerð á staðnum grammavog af gerðinni Point scale 5,0. - óká Skilorð fyrir fíkniefnabrot: Dæmdur fyrir vörslu eiturlyfja VERÐKÖNNUN Allt að því sjötíu prósenta verðmunur er á lyfjum sem fást í lausasölu og er verð- munurinn oftast um þrjátíu prósent, sam- kvæmt nýrri könnun sem verðlagseftirlit A l þ ý ð u s a m b a n d s Íslands lét gera. Kannað var verð á 29 tegundum algengra lausasölu- lyfja og reyndist vera nær þriðjungs- munur á verði í tuttugu tilfellum. Lyfjaver við Suður- landsbraut reyndist oftast vera með lægs- ta verðið, eða í 23 til- vikum af 29, en Lyf og heilsa við Melhaga var oftast með hæsta verð- ið, eða í átján tilvikum. Mestur verðmunur í könnuninni var á þrjá- tíu töflum af Paratabs sem voru dýrastar í Lyfju þar sem þær kostuðu 332 krónur en ódýrastar í Lyfjaveri þar sem þær kostuðu 195 krónur. Munurinn er rúmlega sjötíu pró- sent. Einnig var mikill verðmun- ur á Otrivin unkonserveret nef- úða, eða um 55 prósent. Nefúðinn var dýrastur í Lyfjum og heilsu og Skipholtsapóteki en ódýrastur í Lyfjaveri. Í síðustu verðkönnun verð- lagseftirlitsins á lausasölulyfjum í apríl var verð á þrettán af þeim lyfjum sem könnuð voru nú einn- ig skoðað. Verð þessara þrettán lyfja hefur að meðaltali lækkað um 1,7 prósent frá þeim tíma. Könnunin var gerð í tíu apótek- um. Eitt apótek neitaði þátttöku í könnuninni, Laugarnesapótek við Kirkjuteig. - sda Könnun ASÍ á verði lausasölulyfja í tíu apótekum: Allt að 70 prósenta verðmunur LYF Í LAUSASÖLU Samkvæmt verðkönnun verðlagseftilits ASÍ var dýrasta apótekið Lyf og heilsa við Melhaga. SÓLIN SEST Í AUSTRI Allir vita að sólin kemur upp í austri en hún á það til að setj- ast þar líka. Sólsetrið í Bangkok í Taílandi er í það minnsta ægifagurt en þar sest sólin um svipað leyti og hún kemur upp hér á landi um þessar mundir. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Sextíu drukkna í ferjuslysi Yfirfullri farþegaferju hvolfdi á Indusfljóti, nærri borginni Thatta í suðurhluta landsins, með þeim afleiðingum að í það minnsta sextíu manns drukknuðu. Áttatíu manns voru um borð en fólkið var á leið til helgidóms í nágrenninu að fagna lokum föstumánaðarins Ramadan. PAKISTAN DANMÖRK Gleði fyrir góminn kallast ný bók eftir Hinrik prins. Þetta er þriðja matreiðslubók prinsins og hefur að geyma 85 uppskriftir. Hinrik er þekktur sælkeri enda franskur vínbóndi að upplagi. Haft er eftir honum í Berlingske Tidende að það að borða góðan mat sé með mestu gleðistundum lífsins. Danir hafi áttað sig á því enda hefur mataráhugi þeirra aukist mikið frá því að hann kom til landsins fyrir 38 árum. Hinrik leggur í bókinni mikið upp úr óhefð- bundnum kryddum sem hann ræktar sjálfur. ■ Hinrik prins: Gefur út mat- reiðslubók Árás á kvenna- klósetti Ókunnugur maður kýldi Steinunni DV2x15-lesið 6.11.2005 20:53 Page 1
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.