Fréttablaðið - 07.11.2005, Síða 13
SAMGÖNGUR „Þetta er eina leiðin
sem hægt var að fara,“ segir Jón
Rögnvaldsson vegamálastjóri en
Vegagerðin hefur ákveðið að fram-
lengja samninga sína um áætlunar-
flug innanlands við bæði Íslands-
flug og Landsflug til eins árs, eftir
að kærunefnd útboðsgagna komst
að þeirri niðurstöðu að útboðsgögn
fyrir áætlunarflug innanlands
hefði verið óskýr.
„Þetta er bráðabirgðaniður-
staða en þar sem útboðsferlið
tekur langan tíma urðum við að
fara þessa leið,“ útskýrir hann.
Í sumar var áætlunarflug inn-
anlands boðið út og skiluðu fimm
flugfélög inn tilboðum. Flugfélag
Íslands reyndist hafa lægsta til-
boðið en það hljómaði upp á fjórð-
ung af áætluðu kostnaðarverði. Í
ljós kom að Flugfélag Ísland taldi
sig vera að bjóða til eins árs en ekki
þriggja eins og gert var ráð fyrir
í útboðslýsingu. Var útboðið kært
og kærunefnd útboðsmála komst
að því að útboðsgögnin hefðu verið
óskýr og hætta á misskilningi hefði
skapast. Útboðið var því úrskurðað
ógilt og verður flugið boðið út aftur
á næsta ári. - fgg
Gæludýratryggingar TM skiptast í fjóra þætti:
Ábyrgðartryggingu, Sjúkrakostnaðartryggingu, Gæslutryggingu og Líf- og heilsutryggingu.
Hver kallar köttinn
sinn Snata?
Gæludýratrygging TM
Dæmi um hvað Sjúkrakostnaðartrygging TM
bætir:
// Útgjöld til dýralækna eða dýraspítala vegna
skoðunar og meðferðar á gæludýrinu þínu
færðu bætt.
// Tannviðgerðir vegna slysa eru bættar.
// Útgjöld vegna læknisrannsóknar á dýrinu eru
bætt, s.s. fyrir röntgenmyndir, línurit og
rannsóknir á vefjum og öðrum sýnum. Sama á
við um lyf sem gæludýrið fær við skoðun eða
meðferð.
Dæmi um hvað Sjúkrakostnaðartrygging TM
bætir ekki:
// Kostnaður vegna geldingar dýrs,
ófrjósemisaðgerðar eða fæðingar afkvæma
fæst ekki bættur.
// Meðferð vegna slysa eða sjúkdóma sem hafa
komið upp áður en tryggingin gekk í gildi fæst
ekki bætt. Sama má segja um meðferð vegna
meðfæddra og arfgengra kvilla svo og sjúkdóma
sem koma upp innan 14 daga frá gildistöku
tryggingarinnar.
// Kostnaður vegna almennra skoðanna,
bólusetninga og meðferða til að fyrirbyggja eða
lækna afleiðingar orma fæst ekki bættur.
Við sumum spurningum fást bara engin svör.
Óhöpp henda okkur og við því er ekkert að gera.
En þú getur brugðist við strax með því að tryggja hjá tryggingarfélagi sem gefur þér skýr
svör og leggur áherslu á hraðvirkan frágang tjónamála.
Þú átt kannski kunningja sem er öðruvísi en fólk er flest. Honum gæti alveg dottið í hug
að fá sér kött og kalla hann Snata. Grunlaus skokkar þú í heimsókn með hundinn þinn og
allt fer í háaloft. Þegar hundurinn þinn lendir í slysi er gott að vera rétt tryggður.
Gæludýratrygging TM er ekki flókinn hlutur og það tekur enga stund að ganga frá henni.
Það er góð regla að lesa vel tryggingaskilmálana, þeir eru sá grundvöllur sem samskipti þín og TM byggjast á.
Hringdu í síma 515 2000 eða farðu á www.tryggingamidstodin.is og fáðu skýr svör.
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN / Sími 515 2000 / tm@tryggingamidstodin.is
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
T
M
I
28
60
5
1
1/
20
05
Humar
1.290, kr/kg
Ótrúlega gott verð á fínum humri.
Höfðabakka 1 - sími 587 50 70
Vegegerðin framlengir flugsamninga:
Nýtt útboð um innan-
landsflug á næsta ári
JÓN RÖGNVALDSSON Vegagerðin hefur
framlengt samninga um áætlunarflug
innanlands, þar til hægt að bjóða flugið
út aftur.
ÁFENGI Það er löng hefð fyrir því í
Danmörku að dreifa jólabjórnum
á bari í byrjun nóvember.
Tuborg-bjórframleiðandinn
hélt í þessa hefð á föstudagskvöld-
ið. Tveggja hæða strætó keyrði
þá um götur Kaupmannahafnar
og gaf vegfarendum smakk af
nýbrugguðum jólabjór þessa árs.
Fyrir nokkrum árum var jóla-
bjórinn alltaf kynntur á miðviku-
dagskvöldum. Tekið var fyrir það
þegar samtök verslunarskóla-
nema köfðust þess árið 1999 að
veisluhöldunum yrði frestað fram
á föstudag. Helsta ástæða nem-
anna var að það reyndist mörgum
erfitt að mæta í skólann daginn
eftir. ■
Aðventan hafin í Danmörku:
Dreifing hafin á jólabjórnum
TUBORG KEYRIR ÚT BJÓRINN
MÁNUDAGUR 7. nóvember 2005