Fréttablaðið - 07.11.2005, Side 14
14 7. nóvember 2005 MÁNUDAGUR
Motorlift
Ke›judrifnu Chamberlain Motorlift bílskúrshur›aopnararnir
eru öflugir og sterkbygg›ir og fást fyrir allar stær›ir og ger›ir
bílskúrshur›a. Motorlift er me› kröftugum en hljó›látum
mótor og flægilegri fjarst‡ringu sem au›veldar umgengni um
bílskúrinn e›a geymsluhúsnæ›i› í hva›a ve›ri sem er.
Motorlift fæst í byggingavöruverslunum um land allt.
Íslenskar lei›beiningar fylgja
bílskúrshur›aopnarar
Óeirðaalda síðustu daga í
úthverfum norður af París
og víðar í Frakklandi hafa
varpað kastljósinu að mikl-
um vanda sem hver ríkis-
stjórnin af fætur annarri
hefur hummað fram af sér
að taka á. Innanríkisráð-
herrann Nicolas Sarkozy
segir þá innflytjenda-aðlög-
unarstefnu sem fylgt hefur
verið til þessa hafa beðið
skipbrot.
„Í Clichy-sous-Bois er borgarastríð
í gangi,“ sagði Michel Thooris, tals-
maður verkalýðsfélags franskra
lögreglumanna, CTFC, þegar óeirð-
irnar í þessu úthverfi Parísar höfðu
staðið í þrjár nætur í röð. Þær hafa
nú staðið í ellefu nætur í röð og
breiðzt út til ótal slíkra úthverfa
franskra stórborga, þar sem flest-
ir íbúanna eru innflytjendur frá
múslimalöndum í fyrstu, annarri
og þriðju kynslóð. Alls eru franskir
múslimar um fimm milljónir.
Það sem hrinti óeirðaöldunni af
stað var slysadauði tveggja ungl-
ingsdrengja í Clichy-sous-Bois,
sem földu sig í spennistöð jarðlest-
arstöðvar, að því er virðist vegna
þess að þeir töldu lögregluna vera
á hælum sér. Atvikið kynti undir
reiði atvinnulausra innflytjenda-
ungmenna í garð lögreglunnar og
yfirvalda almennt og þar með var
fjandinn laus.
Óeirðir af þessu tagi í „vand-
ræðaúthverfunum“ eru reynar
ekki nýjar af nálinni. Þær hafa
ítrekað blossað upp frá því á níunda
áratugnum. Hver ríkisstjórnin á
fætur annarri hefur sagzt myndu
taka á málinu en árangurinn hefur
látið á sér standa. Nú er svo komið
að Nicolas Sarkozy innanríkisráð-
herra segir að sú stefna sem yfir-
völd hafa fram til þessa fylgt til að
reyna að laga þennan þjóðfélagshóp
að frönsku samfélagi hafi beðið
skipbrot. Hann sé sannfærður um
að eingöngu „stefna hörku“ sé til
þess fallin að bera árangur; stefna
sem geri þessum reiðu ungmenn-
um ljóst að ríkið gefist ekki upp
fyrir þeim.
En hver eru þessi reiðu ungmenni
sem kvöld eftir kvöld ganga ber-
serksgang, kveikja í bílum, stræt-
isvögnum, búðum og skólum, grýta
lögreglu- og slökkviliðsmenn og
skjóta jafnvel á þá úr haglabyssum?
Reiður jaðarhópur
Í Clichy-sous-Bois búa um 28.000
manns, flestir í háum, gráum, niður-
níddum blokkum. Helmingur íbú-
anna er undir 25 ára að aldri, en
flestir eru þeir múslimar ættaðir
frá Norður-Afríku. Atvinnuleysi í
þeirra röðum er mjög mikið. Þessi
ungmenni hætta mörg í skóla án
þess að ljúka grunnskólaprófi,
ganga í hverfisgengi og afla sér
fjár með smáglæpum og eiturlyfja-
sölu. Sömu sögu er að segja af mjög
mörgum slíkum úthverfum París-
ar og annarra franskra stórborga.
Þannig séð hefur „borgarastríðið“
sem lögreglufélagstalsmaðurinn
Thooris lýsir staðið yfir í áratugi,
stríð milli þessa stóra hóps nýrra
borgara hins frjálslynda franska
lýðveldis, hóps sem finnst sér vera
útskúfað, og yfirvalda í landinu.
Alls búa um fimm milljónir mús-
lima í Frakklandi; langstærstur
hluti þeirra er ættaður frá Norður-
Afríku.
Sarkozy innanríkisráðherra, sem
er einn vinsælasti stjórnmálamaður
Frakklands og talinn er stefna á
framboð til forseta þegar núver-
andi kjörtímabili Jacques Chiracs
forseta sleppir árið 2007, hefur um
nokkra hríð talað tæpitungulaust
um að „hreinsa verði til“ í vand-
ræðaúthverfunum, „spúla“ út úr
þeim „glæpalýðinn“. En hvernig
ráðherrann hyggst með slíkum
aðferðum uppræta það eldfima
félagslega ástand sem ríkir á þess-
um fjölmenna jaðri fransks þjóð-
félags á eftir að koma í ljós. Hann
segir sjálfur að þetta sé erfitt lang-
tímaverkefni sem hann glími samt
glaður við.
Gagnrýni frá hægri og vinstri
Stjórnarandstæðingar til vinstri og
hægri hafa gagnrýnt stjórnina harð-
lega fyrir að láta reka á reiðanum
og bregðast rangt við vandanum.
Hægripopúlistanum Jean-Marie le
Pen og öðrum á þeim væng fransk-
ra stjórnmála finnst ástandið stað-
festa það sem þeir hafa lengi sagt: of
mörgum innflytjendum af framandi
uppruna hafi verið hleypt inn í land-
ið og það súpi nú seyðið af þessari
óábyrgu stefnu. Reyndar hafa le Pen
og félagar haft mjög hægt um sig
þessa síðustu daga. „Það er áberandi
að hægriöfgamenn segja ekkert,
gera ekkert núna,“ segir Jacqueline
Costa Lascoux, talsmaður Eftirlits-
skrifstofu innflytjenda- og aðlögun-
armála, óháðra félagasamtaka með
höfuðstöðvar í París. „Þeir þurfa
ekki að gera neitt nema bíða,“ segir
hún og spáir frambjóðendum af
hægrijaðrinum meira fylgi en nok-
kru sinni fyrr í næstu kosningum,
ekki sízt í forsetakosningunum 2007.
Í fyrri umferð síðustu forsetakosn-
inga, árið 2002, fékk le Pen næstflest
atkvæði í fyrri umferð kosninganna.
SARKOZY BOÐAR HÖRKU Franski innanríkisráðherrann (t.h.) mætir á fund með lögreglu- og
slökkviliðsmönnum í Bobigny norður af París á mánudag. Hann hefur talað um að það
þurfi að „spúla glæpalýðinn“ út úr vandræðaúthverfunum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Franska úthverfastríðið
nær nýjum hæðum
ÚTHVERFIN LOGA Slökkviliðsmenn á vettvangi við brunninn strætisvagn í Parísarúthverfinu
Le Blanc-Mesnil. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FORNT KIRKJUGÓLF Fangar í Megiddo-fangelsinu í norðanverðu Ísrael, nærri biblíusögu-
staðnum Armageddon, sópa í gær sandi af mósaíkgólfi úr kristinni kirkju frá þriðju til
fjórðu öld. Fornleifafræðingar segja þetta geta verið elstu kirkjurústirnar sem fundist hafa í
Landinu helga. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
fréttir og fróðleikur
FRÉTTASKÝRING
AUÐUNN ARNÓRSSON
auðunn@frettabladid.is
SVONA ERUM VIÐ
Fjöldi skráðra fyrirtækja í smábátaútgerð
Heimild: Hagstofa Íslands
20
00
20
01
20
02
20
03
20
04
312 358
760
871
938 Um tíundi hver borgari Frakklands, alls um
fimm og hálf milljón manna, er múslimi. Óeirð-
ir síðustu daga í úthverfum Parísar og fleiri
franskra borga, þar sem stór hluti þessa fólks
býr, hafa beint athygli umheimsins að þessum
hluta fransks þjóðfélags.
Hvaðan koma múslimar Frakklands?
Flestir eru múslimar Frakklands ættaðir frá fyrr-
verandi nýlendum Frakka í norðanverðri Afríku.
Um fjórði hver franskur múslimi á ættir að rekja
til Alsír, sem Frakkar gerðu að nýlendu sinni á
fjórða áratug nítjándu aldar. Áætlað er að fjöldi
múslima í Frakklandi sé nú á bilinu fimm til sex
milljónir. Engar nákvæmar tölur eru til þar sem
frönsk yfirvöld skrá ekki fólk eftir trúarbrögðum.
Að öllum meðtöldum, einkum ólöglegum inn-
flytjendum, er nær að ætla að heildarfjöldi mús-
lima í landinu sé allt að átta milljónum.
Aðlagast þeir?
Fyrsta kynslóð norður-afrískra múslima sem
flutti til Frakklands eftir stríð leit í flestum til-
vikum ekki á sig sem innflytjendur, né gerðu
frönsk yfirvöld eða atvinnurekendur það. Þessir
„gestaverkamenn“ áttu gjarnan fjölskyldu í upp-
runalandinu og héldu nánum tengslum við það.
Árið 1974 breyttu stjórnvöld um stefnu og fjöl-
skyldur „gestaverkamannanna“ fluttu til Frakk-
lands. Næsta kynslóð er í flestum tilvikum fædd
í Frakklandi og þar með franskir ríkisborgarar
með þverrandi tengsl við land forfeðranna.
Á bilinu 1.500-1.600 moskur eru starfræktar
í Frakklandi. Margir bænaformenn, imamar, eru
menntaðir í íslömskum fræðum í arabalöndum
og boða Kóranstúlkun sem samræmist engan
veginn gildum upplýsingarinnar og hins frjáls-
lynda franska lýðræðis. Allmargir af yngri kynslóð
franskra múslima vilja sem minnst af trúariðkun
áanna vita en eiga samt erfitt með að aðlagast
frönsku samfélagi. Margir eru líka mjög opnir fyrir
boðskap róttækra múslimaklerka. Þéttust er byggð
arabískættaðra múslima í Seine-Saint-Denis-sýslu
norður af París. Þar er atvinnuleysi um þrjátíu pró-
sent og glæpatíðni há, einkum tengd eiturlyfjum.
Um helmingur allra dæmdra tugthúslima í Frakk-
landi mun vera ungir múslimar.
FBL GREINING: MÚSLIMAR Í FRAKKLANDI
Arfleifð nýlenduveldis Frakka