Fréttablaðið - 07.11.2005, Blaðsíða 19
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
B
I
29
46
7
0
9/
20
054,15%
Kynntu þér kostina við íbúðalán Landsbankans. Fáðu
ráðgjöf hjá sérfræðingum okkar og veldu leiðina sem
hentar þér best. Hafðu samband í síma 410 4000 eða
á fasteignathjonusta@landsbanki.is
Íbúðalán
410 4000 | landsbanki.is
SMÁAUGLÝSINGAR
SÍMI: 550 5000
ÞÚ GETUR PANTAÐ
SMÁAUGLÝSINGAR
Á visir.is
Góðan dag!
Í dag er mánudagur 7. nóvember,
311. dagur ársins 2005.
Leifsstöð á enn að stækka
næstu tvö árin. Norðurbygg-
ingin á að teygja sig til suðurs
og önnur hæðin fær andlits-
lyftingu. KB banki lánar um
3.3. milljarða króna en áætlað
er að heildarkostnaður nemi
tæpum fimm milljörðum króna.
Byggingarframkvæmdir í Reyk-
hólahreppi standa með miklum
blóma. Þar eru byggð íbúðar-
hús, peningshús, vélageymslur,
íþróttahús, baðhús og sumar-
bústaðir auk þess sem gamla
skólahúsið í Flatey á Breiðafirði
hefur verið endurreist. Fram
undan er svo stækkun Þörunga-
verksmiðjunnar og fleira er í
bígerð á framkvæmdasviðinu.
Í Reykhólahreppi búa 260
manns.
Alls bárust á þriðja þúsund
umsóknir um 682 íbúðir á
Völlum og í Áslandi í Hafn-
arfirði en margir sóttu um á
báðum stöðum. Bæjarstjórn
mun ákveða á fundi sínum 22.
nóvember hverjir fái vilyrði fyrir
úthlutunum og síðan munu
þeir fá að velja sér lóð í þeirri
röð sem þeir verða dregnir
út. Lóðunum verður formlega
úthlutað í byrjun desember.
LIGGUR Í LOFTINU
FASTEIGNIR
Reykjavík 9.30 13.11 16.52
Akureyri 9.27 12.56 16.24
Fasteignasalan Lundur hefur til sölu
einbýlishús á tveimur hæðum. Með
eigninni fylgir tvöfaldur bílskúr og
fallegur garður.
Um er að ræða glæsilegt einbýlishús sem
er um 212 fermetrar á tveimur hæðum
og með tvöföldum bílskúr á skjólgóðum
stað í Seljahverfinu þar sem húsið stend-
ur innarlega í lokaðri götu.
Komið er inn í flísalagt hol með góðum
fataskápum, þar inni af er hol og út frá
því er gengið í svefnherbergisálmu, upp
í stofu, borðstofu og eldhús. Þar er einn-
ig stigi niður á jarðhæð.
Í svefnherbergisálmu er gott hjóna-
herbergi með sér fataherbergi og
úr herberginu er útgengt í garð. Í
svefnherbergisálmunni er einnig stórt
barnaherbergi sem áður var tvö herbergi.
Svo er snyrtilegt flísalagt baðherbergi
með baðkari.
Á efri hæðinni er stofa með arni sem
og borðstofa. Út úr stofu er gengið út á
rúmgóðar svalir. Eldhús er með eikar-
innréttingu, borðkrók og þar inni af er
búr. Eitt herbergi er á hæðinni og flísa-
lögð gestasnyrting. Parkett er á gólfum.
Á neðri hæð eru þvottaherbergi og gott
svefnherbergi, einnig er sturtuaðstaða og
geymsla. Á hæðinni er útgangur í garð.
Þakið á húsinu þarfnast endurnýjunar
en annað er í góðu standi og garður vel
ræktaður.
Ásett verð er 47,9 milljónir.
Glæsilegt hús á
rótgrónum stað
Einbýlishúsið er í Seljahverfinu og er rúmgott og fallegt.
ER ÞÍN EIGN AUGLÝST HÉR? MEST LESNA FASTEIGNABLAÐ LANDSINS
Stækkaði húsið sjálfur bls. 2
Svefnherbergið í stofnunni bls. 4
Gluggarnir í Þingholtunum bls. 22
Hönnun Háskólans á Akureyri bls. 6
FASTEIGNASÖLUR
Árborgir 17
Ás 14-15, 36
Bifröst 11
Búseti 45
Draumahús 23-30
Eignamiðlun 7
Eignastýring 31
FM 8
FMG 8
Hof 37
Hóll 41
Hraunhamar 34-35
Húsalind 18
Húseign 40
Klettur 42-43
Lundur 32
Lyngvík 19
Neteign 21
Nýtt 10
Remax 20
Smárinn 38-39
Valhöll 9
Viðskiptahúsið 13
X-hús 16