Fréttablaðið - 07.11.2005, Page 20

Fréttablaðið - 07.11.2005, Page 20
eru þarfaþing á hvert heimili núna til þess að hægt sé að moka snjó frá dyrunum. Ef snjórinn er orðinn að klaka er ágætt að hella heitu vatni á hann en gæta þarf þess að moka hann þá strax í burtu svo að vatnið frjósi ekki og verði að svelli. Skóflur Við Bergstaðastræti 33b stend- ur Emanúelshús, nefnt eftir Emanúel Bjarnasyni bygg- ingameistara. Húsið var byggt 1914 en 1920 var því lyft og kjallari settur undir það. Í dag, 85 árum síðar, er enn verið að bæta við. Thorsten Henn ljósmyndari og Lovísa Lóa Sigurðardóttir mynd- listarmaður búa í húsinu ásamt nýfæddum syni þeirra, Jökli Hrafni. Þegar stækkun fjölskyld- unnar lá fyrir hófst undirbúning- ur fyrir stækkun hússins. Auk þess að kaupa íbúðina í kjallaranum hafa Thorsten og Lóa nú hækkað risið á húsinu um einn og hálfan metra, aukið þak- hallann og bætt við kvistum með gluggum. Húsið sem var upphaf- lega byggt á einni hæð telur því þrjár hæðir í dag. „Við viljum vera í miðbænum,“ segir Thorsten. „Húsið er fallegt, hér er mikill gróður, iðandi menn- ingarlíf og hverfið er rólegt og notalegt. Það er líka ágætt að þurfa ekki að taka leigubíl úr mið- bænum. Listinn er endalaus. Svona þurftum við ekki að setja okkur á hausinn til að stækka við okkur.“ Hjónakornin hafa búið í miðhæð hússins síðan 2000 og tóku hana í gegn 2003. Það tók tólf mánuði. „Það er erfiðara að byggja innan í gömlu, meiri vinna en að byggja nýtt,“ segir Thorsten, sem ætlar sér aðeins tvo mánuði í nýju hæðina. Þá er ótalinn sá tími sem það tók að fá leyfi fyrir framkvæmdunum. „Fyrst þurfti þetta að fara fyrir húsfriðunarnefnd þó að húsið sé reyndar ekki orðið hundrað ára. Þá þurfti að athuga hvort Árbæjarsafn hefði eitthvað við framkvæmdina að athuga. Skipulagsráð sendi svo erindi til nágrannanna sem verða að samþykkja eða rökstyðja and- mæli sín. Þegar það er búið getur maður fengið byggingarleyfi. Þetta hljómar einfalt en í okkar tilfelli tók þetta rúma níu mánuði,“ segir Thorsten. „Það tók styttri tíma að bíða eftir fæðingu sonarins.“ Nýja hæðin verður með loft- hæð upp í tæpa fjóra metra og þar verður Thorsten með stúdíó. Það var áður á miðhæðinni sem fjöl- skyldan mun nú hafa til óskiptra nota auk hluta kjallarans. Í honum verður líka vinnustofa Lóu. einareli@frettabladid.is Thorsten ætlar tæpa tvo mánuði í framkvæmdirnar. Stækkaði gamla húsið sitt frekar en að flytja Aukahæðin klæðir húsið vel. Eftir breytingarnar er húsið 135 fermetrar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM El ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR • Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli • Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir Lækjargötu 34c • 220 Hafnarfirði • S:553 4488 Flottar flísar á fínu verði Mikið úrval af gólfflísum, tilboð á sturtuklefum Það nýjasta á heimilissýning- unni 2005 í Svíþjóð í haust er að innrétta fataherbergi. Nú kemst fólk ekki lengur upp með að hafa allt á tjá og tundri bak við luktar dyr fataskápa. Þó er sú líkn með þraut að nú getur sauðsvartur almúginn eignast það sem eitt sinn var bara á færi fyrirmenna og fengið útrás fyrir sköpunar- gleðina í leiðinni. Eitt sinn í skoðunarferð um ein- hverja höllina í Frakklandi tjáði leiðsögumaður okkur að aðallinn hér áður fyrr hefði haft sérstakan kjólavörð sbr. orðið garde (vörð- ur) des robes (kjólanna) fyrir karla jafnt sem konur enda gengu karlarnir í kjóljökkum á þessum tíma. Eiginlegir fataskápar voru ekki til, heldur fataherbergi og fatavörður. Vörðurinn var eins konar öryggisvörður fyrir verð- mætin í fataherberginu. Hann bar líka fram klæðnað og skart handa aðalsfólkinu fyrir ýmiss tækifæri, gerði við og hreinsaði föt, púðraði hárkollur auk þess sem hann gekk frá fötunum eftir notkun. Þetta hefur mér alltaf fundist mig vanta. Alveg síðan ég heyrði þetta hef ég orðið æ sannfærðari um að ég sé prinsessa í álögum eða að ég hafi verið aðalskona í fyrra lífi, því hvernig getur maður saknað einhvers nema maður hafi kynnst því áður? Ég segi nú bara svona. Er fram liðu stundir og menn hættu að hafa það svona gott, u.þ.b. eftir byltingu, urðu menn að búa til sérstaka fataskápa sem þeir kölluðu „garderobe“ sem er samsuða úr upprunalega fyrir- bærinu. Vissulega getur stærð húsnæðis takmarkað möguleikana á að inn- rétta fataherbergi, segja hönnuð- ir á sýningunni en fólk á æ meira af fötum og fylgihlutum sem það þarf að koma reglu á. Auk þess er það ritúal að klæða sig upp og fata- herbergi getur verið eins og þín einkavin í eyðimörkinni. Fallega innréttað fataherbergi með stórum speglum og réttri lýsingu er það sem koma skal hvort sem menn líta á það sem musteri sjálfsdýrkunar- innar eða praktíska lausn á óreiðu. Ofangreint styður þá kenningu að sagan gangi í hring. Það á sem sagt bara eftir að loka hringnum með kjólaverði af gerðinni Homo sapiens. Heillandi? Er fataskápurinn í útrýmingarhættu? RÁÐ frá Rakel RAKEL ÁRNADÓTTIR SEGIR FRÁ ENDURKOMU FATAHERBERGISINS. ][

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.