Fréttablaðið - 07.11.2005, Page 22

Fréttablaðið - 07.11.2005, Page 22
Í þættinum Veggfóðri í kvöld verður kíkt inn á heimili Sesselju Thorbergs sem hefur lokað svefnherbergið sitt af en það liggur beint inn af stof- unni. Auk þess hefur hún gefið gömlum fataskáp nýtt líf með einfaldri hugmynd. Margir þekkja það vandamál þegar til dæmis er flutt niður í litlar kjallaraíbúðir að börnin eru sett í eina herbergið og svo á eftir að finna stað fyrir hjónin. Sesselju langaði þess vegna að finna ein- hverja handhæga lausn sem allir gætu notað. ,,Ég tók einfaldlega bókahillu og ég setti fyrir framan rúmið. Síðan setti ég plexigler í það að aftan þannig að það virkar eins og veggur, sem hleypur líka smá birtu í gegn,“ segir Sesselja. Þannig er rúmið falið en samt inni í stofu. Sesselja lét líka mála rúmgafl fyrir ofan rúmið í stíl sjöunda ára- tugarins. Rúmgaflinn er úr þrem- ur litum sem alla má finna í rúm- teppinu, koddum og fleiru tengdu sjálfu rúminu, Listinn í kringum rammann var einfaldlega gerður með málningarlímbandi og máln- ingardollu sem teiknað var eftir, Sesselja gjörbreytti síðan sjúskuðum fataskáp með sniðugri lausn. „Ég tók gamlan skáp úr geymslunni og veggfóðraði hann. Það geta allir gert svona og þetta er alls ekkert flókið. Það er samt betra að fá leiðbeiningar áður.“ Vala Matt lofar skemmtilegum þætti í kvöld og sparar ekki lofs- yrðin þegar kemur að hugmynda- flugi Sesselju. „Það sem er sniðug- ast við þetta er að hún notar allt sem fyrir var í herberginu og því eru þessar hugmyndir nær kostn- aðarlausar.“ Hönnunar- og lífstílsþáttur- inn Veggfóður er á dagskrá sjón- varpstöðvarinnar Sirkus í kvöld klukkan 21.00. PGV ehf. ı Bæjarhrauni 6 ı 220 Hafnafjörður ı Sími: 564 6080 ı Fax: 564 6081 ı www.pgv.is STIGAR & HANDRIÐ ����������������������������������������� ����������������������������������������� Nýtt������������������������������� ��������������������������������������������������� ����������������������������������������������������� ��������������������������������������� ����������������������������������� ����� ��������������������������������� � � � �� �� �� ��� � �������������������������������������������� Hillusamstæðan litla lokar fyrir svefn,,herbergið“ þannig að ekki er hægt að sjá mikið þar inn. Hér sést Vala með Sesselju þar sem hún sýnir veggfóðrið sem hún notaði á skápinn. Herbergi lokað með einfaldri lausn Hér sést rúmgaflinn góði og hvernig hornin voru gerð með einfaldri málningardollu. 7. nóvember 2005 MÁNUDAGUR4 VEGGFÓÐUR Gluggað í birtuna DAGSBIRTAN ER AUÐVITAÐ FALLEG- ASTA BIRTAN SEM VÖL ER Á EN HÚN ER MISMUNANDI EFTIR ÞVÍ Í HVAÐA ÁTT GLUGGARNIR SNÚA. Falleg birta inn um stóra glugga gerir heimilið fallegt og hlýlegt en eðli lýsingarinnar fer eftir því í hvaða átt gluggarnir snúa. Ef þeir snúa í norður gæti birtan orðið kuldaleg og hörð og lítið um sólskin. Listamenn kjósa sér gjarna vinnustofur sem snúa í norður þar sem norðurbirta gefur litum skarpara yfirbragð. Austurgluggar gefa góða birtu fyrst á morgnanna en skugga og sólarleysi seinnipartinn. Suðurgluggar gefa hlýja birtu allan daginn en mismun- andi eftir tíma dags. Eldhús, stofur og önnur herbergi sem ætlunin er að eyða miklum tíma í ættu að snúa í suður. Vesturgluggar eru bjartastir þegar sólin er hæst á lofti og þá getur orðið heitt inni í herbergjum sem snúa í vestur. Birtan þar mýkist þegar líður á daginn. { birta

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.