Fréttablaðið - 07.11.2005, Page 55

Fréttablaðið - 07.11.2005, Page 55
37MÁNUDAGUR 7. nóvember 2005 300 Akranes: Góð eign fyrir fólk á efri árum Höfðagrund: Nýlegt parhús með útsýni yfir Faxaflóann Lýsing: Húsið er þriggja herbergja. Forstofa er með flísum á gólfi, skáp og hillu. Stofa er björt með eikarparketti og útgengi á sólpall. Gott skápapláss er í eldhúsi, þar er veggofn, keramikhelluborð, tengi fyrir uppþvottavél og parkett á gólfi. Herbergin tvö eru með skápum. Parkett á gólfi. Baðherbergi er flísalagt og með sturtuklefa. Þvottahús er með flísum á gólfi, skolvaski og borði. Geymsla inn af þvottahúsi er með hillum, flísum á gólfi og útgengi út á sólpall sem er með heitum potti. Allar hurðir og innréttingar eru spónlagðar með hlyn og eru hurðarop 90 cm að breidd og án þröskuldar. Úti: Á pallinum er pottur og skjólveggur. Garðurinn er fallegur og er í góðri rækt. Annað: Húsið er hannað með þarfir eldri borgara í huga og er til dæmisbúið 4 öryggishnöppum. Það er við hliðina á elliheimilinu Höfða og eigendur geta haft aðgang að allri þjónustu þar. Eignin er laus og er til afhendingar við kaupsamning. Fermetrar: 93.2 Verð: 22.9. Fasteignasala: Smárinn. 109 Reykjavík: Gott útsýni úr risi Raufarsel 13: endaraðhús með innbyggðum bílskúr. Lýsing: Húsið er tvær hæðir og ris. Gengið er inn í flísalagða forstofu með fatahengi og inni af henni er flísalögð gestasnyrting. Úr forstof- unni er innangengt í bílskúr. Á fyrstu hæð er einnig eldhús, stofa, borðstofa og þvottahús. Eldhúsið er flísalagt með ljósri innréttingu, keramik helluborði og tengi fyrir uppþvottavél. Opið er á milli eldhúss og borðstofu og úr borðstofu er útgengt út á verönd. Þvottahúsið er með innréttingu og vaski. Parkettlagður stigi liggur upp á aðra hæð þar sem eru fjögur rúmgóð parkettlögð herbergi og þar af tvö með útgangi út á svalar. Á annarri hæð er auk þess rúmgott flísalagt baðherbergi með sturtu- klefa og baðkari. Á þriðju hæð er stórt parkett- lagt fjölskylduherbergi með góðu útsýni úr risgluggum. Á þriðju hæð er einnig geymsla undir súð. Úti: Innbyggður bílskúr. Annað: Litað gler er í öllum gluggum. Fermetrar: 239,5 Verð: 42,9 milljónir Fasteignasala: Draumahús 36-37 efni lesið 6.11.2005 15:22 Page 3

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.